Morgunblaðið - 02.06.1988, Qupperneq 73
8861 IviCn .S HUOAaUTMMr? .ŒIOAJaWUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988
79^
FRJALSAR IÞROTTIR / FLUGLEIÐAMOTIÐ
Fyrrum heims-
methafi keppir
WOLFGANG Schmidt, fyrrum
heimsmethafi íkringlukasti,
hefur þegið boð Frjálsfþrótta-
sambandsins (FRÍ) um að
keppa á Flugleiðamótinu í
frjálsum, sem haldið verður á
Laugardalsvelli 21. júní nœst-
komandi. Schmidt var pólitísk-
ur fangi í heimalandi sínu,
Austur-Þýzkalandi, á annað ár
en fókk að flytjast úr landi í
fyrra og keppir nú fyrir Vestur-
Þýzkaland.
Það er hvalreki fyrir íslenska
íþróttaunnendur að fá að sjá
Wolfgang Schmidt í keppni og við
erum mjög ánægðir að hann skuli
hafa þegið boð okkar. Schmidt er
að komast í fremstu röð á nýjan
leik og verður verðugur keppinaut-
ur fyrir þá Véstein Hafsteinsson
og Eggert Bogason," sagði Ágúst
Ásgeirsson, formaður FRÍ, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Schmidt setti heimsmet í kringlu-
kasti, 71,16 metra, árið 1978. Hann
varð annar á Olympíuleikunum
1976 og Qórði í Moskvu 1980, einn-
ig Evrópumeistari 1978, og ósi-
grandi um árabil. Hann er aðeins
33 ára gamall og hefur kastað
65,84 metra í ár. Schmidt segir
takmark sitt að kasta 68 metra i
ár og hver veit nema honum takist
TENNIS
Reuter
John McEnroo var ekki ánægður
með tapið gegn Ivan Lendl.
Lendl sló
McEnroe út
JOHN McEnroe er úr leik á
opna franska meistaramótinu
í tennis, sem nú stendur yfir í
París. Hann tapaði fyrir Ivan
Lendl f 16-manna úrslitum, 1:3.
McEnroe vann fyrstu lotuna,
en þá tók Lendl við, vann þrjár
nœstu og tryggði sór sœti f
undanúrslitum.
John McEnroe byijaði mjög vel
og vann fyrstu lotuna, 7:6. í
næstu lotu var jafnt 6:6, en Ivan
Lendl fékk síðasta stigið eftir að
boltinn hafði skoppað af Knunni.
McEnroe sagði að boltinn hefði
greinilega verið fýrir utan línuna
og neitaði að halda áfram. Það var
ekki fyrr en tiu mínútum síðar að
hann fékkst til að taka við spaðan-
um að nýju. Þá var Lendl kominn
í gang og hann vann tvær næstu,
6:4 og 6:4.
Ivan Lendl mætir Svíanum Jonas
Svensson í 8-manna úrslitum í dag.
í hinum leikjum undanúrslitanna
mætast Bandaríkjamaðurinn Andre
Agassi og Argentínumaðurinn
Guillermo Perez-Roldan. Frakkinn
Henri Leconte mætir Sovétmannin-
um Andrei Chesnokov. Loks er það
Svínn Mats Wilander sem mætir
Emilo Sanchez frá Spáni.
Steffi Graf mætir Grabrielu Sabat-
ini frá Argentínu og í undanúrslit-
um og Nicole Provis frá Ástralíu
mætir Natalia Zvereva frá Sov-
étríkjunum.
það á Flugleiðamótinu.
Schmidt var sæmdur „Föðurlands-
orðunni", einu æðsta heiðursmerki
Austur-Þýzkalands árið 1978 en
fjórum árum síðar var hann orðinn
pólitískur fangi. Var honum gefið
að sök að hafa umgengist vestræna
íþróttamenn af of mikilli vináttu og
að hafa lofað lífskjör fólks á Vest-
urlöndum.
Auk Schmidt hefur Vestur-Þjóð-
veijinn Alwin Wagner, sem náði
fimmta bezta árangri heims í fyrra,
kastaði kringlunni 67,80 metra,
þegið boð um að keppa á Flugleiða-
mótinu. Hann sagðist ætla að reyna
að slá þýzka metið, 68,08, á Flug-
leiðamótinu. Ennfremur vestur-
þýzkur hástökkvari, Hans Burc-
hard, sem á 2,27 metra og varð
þriðji á vestur-þýzka innanhúss-
meistaramótinu í vetur sem leið, en
þá stökk hann 2,19, eða fjórum
sentimetrum hærra en Gunnlaugur
Grettisson, sem fær væntanlega
góða keppni af Burchard.
„Við höfum unnið að því að fá góða
spjótkastara á flugleiðamótið en
engin niðurstaða er fengin í það
mál. Þá vitum við um áhuga fleiri
afburða kringlukastara á að koma
og skýrast þau mál væntanlega á
næstu dögum. Ætlunin er allavega
að gera Flugleiðamótið að góðu
móti,“ sagði Agúst Ásgeirsson.
Wolfgang Schmldt, fyrrum heimsmethafi i kringlukasti. Hann keppir á
Flugleiðamótinu í Reykjavík 21. júní, ásamt fleiri erlendum afreksmönnum.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
„Náðum að keyra
hraðann upp aftur
- sagði „Magic" Johnson eftir að Los Angeles vann Dallas
,U
LOS Angeles Lakers sigrafii
Dallas Mavericks í fimmta leik
lifianna f úrslitum Vesturdeild-
ar, 119:102. Mefi þessum sigri
hefur Los Angeles náð forystu
3:2 í keppni lifianna og getur
komist í lokaúrslit mefi sigri f
nœsta leik lifianna, sem fer
f ram f Dallas.
Það voru stórstjömur Lakers-
liðsins, þeir James Worthy,
Kareem Abdul-Jabbar og „Magic"
Johnson, sem vöknuðu aíftur til
Gunnar
Valgeirsson
skrifar
lífsins eftir tvo
ósigra liðsins í Dail-
as um sl. helgi.
Fyrsti leikhluti var
jafn, en Los Angeles
tók mikinn sprett í öðmm leikhluta
og hafði forystu, 64:47, í hálfleik.
Liðið hafði 11 stiga forystu eftir
þijá leikhluta, 80:69, og sigraði
síðan ömgglega sem fyrr segir
119:102.
Meistaramir náðu að keyra upp
hraðann í þessum leik, en Dallas
hafði tekist að stöðva þau í leikjum
liðanna um síðustu helgi. Það var
James Worthy sem fylgdi oft vel
eftir í hraðaupphlaupunum og tróð
með miklum tilþrifum eins og hon-
um er einum lagið. Hann var stiga-
hæstur í liði Los Angeles með 28
stig, en Jabbar naut sín einnig vel
og skoraði 25 stig. Magic Johnson
átti enn einn stórleikinn og átti 20
stoðsendingar í leiknum.
Johnson sagði við fréttamenn eftir
leikinn: „Við náðum hraðanum upp
aftur í þessum leik. Það vom fleiri
sem komust inn í leikinn hjá okkur
í kvöld og þegar við náum að keyra
hraðann svona upp — þá er erfitt
að stöðva okkur.“
Itf&UR
FOLK
I EINAR Ásbjörn Ólafsson
sem lék í knattspymunni með Fram
á síðasta keppnistímabili, mun leika
með sínum gömlu félögum í ÍBK í
sumar. Hann verður löglegur með
. ÍBK næsta föstudag er liðið leikur
við KA á útivelli.
H ÞESSA dagana fer fram fjög-
urra liða knattspymumót í Tokyo.
í gær lék brasilíska liðið Flamengo
við UEFA meistarana Bayer Le*—
verkusen frá Vestur-Þýskalandi.
Leiknum lauk með jafntefli 1:1. Það
var Cha Bum-kun sem kom Bayer
Leverkusen yfir, en Edinho jafn-
aði fyrir Flamengo. Bæði mörkin
komu í fyrri hálfleik.
■ Á nýafstöðnu móti í
Montevideo kepptu körfuknatt-
leikslið Ameríkuríkja um rétt til
þátttöku _ á Ólympíuleikunum í
Seoul. í úrslitaleiknum sigraði
Brasilía lið Puerto Rico 101:92.
Staðan í leikhléi var 50:45. Lið
Kanada náði þriðja sæti eftir 87:70
sigur á Uruguay. Þessi þijú lið
verða því meðal keppenda í Seoul
í haust. ___
■ BEN Johnson heimsmethafi í
100 metra hlaupi er meiddur og
mun verða frá keppni um tíma.
Ekki er vitað hvenær Johnson verð-
ur tilbúinn í slaginn en umboðsmað-
ur hans Larry Heiðerbrecht segir
að vonir standi til að það verði af
einvígi hans og Carl Lewis sem
áætlað er 27. júní í Paris. Einvígið
,er hið fyrsta í röðinni af þremur
sem skipulögð hafa verið f sumar.
Umboðsmaður Johnsons segir enn-
fremur að ef hann verði ekki orðinn
góður af meiðslunum fyrir 27. júnf
þá verði einvíginu frestað, en því
ekki aflýst. Þess má geta að þjálf-
ari Carl Lewis hefur ásakað Jo-
hnson um að aflýsa sífellt fyrir-
huguðum keppnum þeirra á milli.
Umboðsmenn Johnsons vísa öllum
slíkum ásökunum aftur til föður-
húsanna og segjast efast um að
jafnvel Carl Lewis myndi keppa
meiddur.
■ MARCEL Raducanu, fyrrum
landsliðsmaður Rúmena f knatt-
spyrnu, hefur gengið til liðs við
svissneska 1. deildarliðið FC
Zlirich. Hann lék á sfðasta keppn-
istímabili með vestur-þýska liðinu
Boruissia Dortmund. Raducanu
er 33 ára miðvallarleikmaður og
hefur verið hjá Dortmund síðan
1981.
DOMARAMAL / GUÐMUNDUR HARALDSSON
Ánægjuleg sjón á Laugardalsvelli
í LEIK íslands og ítalfu á
sunnudaginn sáu vallargestir
nokkuA óvœnta an ánœgju-
lega sjón er dómarinn dœmdi
skref á ítalska markvörAinn.
Sá ítalski tók allt of mörg
skref. Undanfarin ár hefur
það sést í sjónvarpsleikjum bæði
í ítölsku deildarkeppninni, og eins
hjá Stalska landsiiðinu, að mark-
verðimir hafa fengið sér göngutúr
með boltann í fanginu án þess að
nokkuð hafi verið dæmt. Það hef-
ur mikið verið rætt um þetta at-
riði meðal dómara hérlendis og
erlendis, og hafa dómarar verið
nyög undrandi á þvf að ekki skuli
vera dæmd skref á ítölsku mark-
verðina. ÞeBS vegna var ánægju-
legt að sjá dóminn hjá velska
dómaranum í leiknum á sunnu-
daginn.
En hve mörg skref mé markvörð-
urinn taka? Hann má taka fjögur
skref, og losa sig við boltann f
þvf fimmta. Ekki skal byija að
te\ja fyrr en markvörðurinn hefur
náð fullkomnu jafnvægi — ef hann
nær boltanum t.d. í loftinu, þá
skulu skrefin sem hann tekur
ekki talin, fyrr en hann hefur náð
fullkomnu jafnvægi.
Framkvmmd Innkasts
Oft kemur það fyrir við fram-
kvæmd á innkasti að mótheiji
tekur sér stöðu fyrir framan þann
er innkastið ætlar að taka. Ekk-
ert er hægt að segja við því, en
ef sá er innkastið ætlar að fram-
kvæma, færir sig til hliðar, og
mótheijinn eltir hann er það orðið
refsivert þar sem leikmaðurinn er
farinn að hindra framkvæmdina
á innkastinu. Það er líka ólöglegt
ef mótheiji hoppar fyrir framan
innvarparann, til þess að trufla
framkvæmd innkastsins. Ég ætla
að nefna annað dæmi: þegar hom-
spyma er tekin, sést oft að sókn-
arleikmaður stillir sér fyrir fram-
an markvörðinn. Það er ekkert
sem bannar það, en um leið og
sóknarleikmaðurinn eltir mark-
vörðinn með það eitt f huga að
trufla hann eða hindra, er hann
orðinn brotlegur, því sóknarleik-
maðurinn er þarna aðeins að
hugsa um markvörðinn en ekki
boltinn. Og það ber að refsa fyrir
slíkt.
Mertri HnuvarAa til dómara
3. Ég ætla að fara nokkrum
orðum um Ifnuverði, eða réttara
sagt merki lfnuvarða til dómara.
Þegar línuvöiður gefur merki um
rangstöðu, eða brot sem hann
sér, er ekki alltaf þar með sagt,
að dómarinn stöðvi leikinn. Þá á
ég við að sá sem brotið er á getur
hagnast á þvf að dómarinn stöðvi
ekki leikinn. Því á domarinn að
nota hagnaðarreglunu og Iáta
leikinn halda áfram, en um leið á
hann að gefa línuverði sínum
áberandi merki um að hann ætli
að nota hagnaðarregluna, og léta
leikinn halda áfram. En þvf miöur
er alltof algengt að leikmenn
stoppi er þeir sjá merki lfnuvarð-
ar. Það er flauta dómarans sem
gildir og þess vegna verða leik-
menn að halda leiknum áfram,
þar til dómarinn stöðvar leikinn.
Þegar þJAHarar Qarstýra leik-
mönnum slnuml
4. Mig langar til þess að ræða
svolltið um þjálfara, og þá sér-
staklega þjálfara yngri flokkanna.
Köll og stjómsemi þjálfara þegar
í leik er komið vil ég kalla stórt
vandamál. Það er grátlegt að
horfa upp á all flesta þjálfara
yngri flokkanna er þeir reyna að
Qarstýra þessum ungu leikmönn-
um, oft með miklum hávaða; það
miklum að þessir ungu knatt-
spymumenn vita oft ekki hvað
þeir eiga að gera þegar þeir fá
boltann. Leikmenn eiga að fá frið
fyrir þjálfumnum til þess að leika.
Þjálfarar eiga að sjálfsögðu að
hvetja sfna menn, og láta þá vita
þegar þeir gera góða hluti inni á
leikvellinum. Hvatningin er af
hinu góða, en að fjarstýra leik-
mönnum í leik er leiðinlegur og
slæmur ávani. Það er góður þjálf-
ari sem leyfir sínum mönnum að
leika án þess að fjarstýra þeim
með þessum köllum frá hliðarlínu.
Með dómarakveðju,
Guðmundur Haraldsson.