Morgunblaðið - 02.07.1988, Page 23

Morgunblaðið - 02.07.1988, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988 23 Sex prestar verða vígðir á morgun SÉRA Sigiirður Guðmundsson vígslubiskup vígir 6 guðfræðinga til prestsþjónustu á morgun, sunnudaginn 3. júlí. Vígslan verður i Dómkirkjunni í Reykjavík og hefst kl. 11.00 Vígsluþegar eru: Gunnar Sigurjónsson, sem kall- aður hefur verið til Skeggjastaða- prestakalls. Gunnar er 27 ára, lauk guðfræðiprófi frá Háskóla íslands nú í vor. Kona hans er Þóra Þórar- insdóttir, landfræðingur. Halldóra J. Þorvarðardóttir, sem kjörin var í Fellsmúlaprestakall. Hún er 28 ára, lauk guðfræðiprófi haustið 1986. Eiginmaður hennar er Sigur- jón Bjarnason, skólastjóri. Ólöf Ólafsdóttir verður prestur við Umönnunar- og hjúkrunar- heimilið Skjól í Reykjavík. Ólöf er sextug að aldri, lauk guðfræðiprófi vorið 1987. Eiginmaður hennar, Svavar Pálsson, rafvirki, er látinn. Ragnheiður Erla Bjamadóttir hefur verið kjörin prestur á Raufar- höfn. Hún er 35 ára, lauk guð- fræðiprófi haustið 1987. Sigurður Jónsson, sem kjörinn var prestur í Patreksfj arðarpresta- kalli. Hann er 28 ára, lauk guð- fræðiprófi nú í vor. Kona hans er Jóhanna Friðriksdóttir, hjúkrunar- fræðingur. Sigurður Pálsson er settur prest- ur í Hallgrímsprestakalli í náms- leyfi sr. Karls Sigurbjömssonar. Hann er 51 árs, lauk guðfræðiprófi haustið 1986. Kona hans er Jó- hanna Möller, söngkona. Vígsluvottar verða: Sr. Hulda Hrönn M. Helgadóttir, sr. Ragnar Fjalar Lámsson, sr. Sig- urður H. Guðmundsson og sr. Sig- mar I. Torfason, prófastur, er lýsir vígslu. Suðurnesjaverktakar: Hlutdeild í nýfram- kvæmdum rædd á aðaifundi félagsins AÐALFUNDUR Suðumesja- verktaka hf. var haldinn 28. júní 1988 f Keflavfk. Stjórn félagsins skipa eftirtaldir aðalmenn: Formaður Anton S. Jónsson og meðstjórnendur Ólafur B. Erl- ingsson, Ólafur Þ. Guðmundsson, Ingólfur Bárðarson og Hjalti Öm Ólason. Suðumesjaverktakar gerðu fyrst verksamning við íslenzka aðalverk- taka árið 1978, [ stjómarfor- mannstíð Vilhjálms Amasonar, og störfuðu sem undirverktaki til hausts 1984. Undanfarin tæp fjögur ár hafa Suðumesjaverktakar ekki gert verksamning við íslenzka aðalverk- taka. Umrætt tfmabil hefur Thor Ó. Thors verið stjómarformaður íslenzkra aðalverktaka. Á fundinum var rætt m.a. um fbúðarhúsabyggingar íslenzkra að- alverktaka fyrir vamarliðið á Keflavíkurflugvelli og væntanlega hlutdeild Suðumesjaverktaka í þeim framkvæmdum og öðrum ný- framkvæmdum. (Fréttatilkynning) f-------- Eru þeir að fá 'ann -> m o A--------- Álftá byrjuð að gefa veiði „Álftáin fór ekki að gefa fyrr en í síðustu viku þegar það hætti loks að rigna, en fram að því æddi hún fram eins og stórfljót, kolmórauð og enginn veiddi neitt. Ég talaði við einn sem var f ánni í fyrradag og hann veiddi vel og sagði talsvert af físki komið víða um ána. Þá voru 6 laxar komnir á land, en milli 12 og 15 fiskar nú,“ sagði Halldór Gunnarsson í Þverholtum í samtali í gær, en Halldór er formað- ur Veiðifélags Álftár á Mýrum. Að sögn Halldórs hafa þetta ver- ið 6 til 9 punda fiskar að stærstum hluta og allir grálúsugir. Þetta er allgott í Álftá, því yfirleitt er hún síðsumarsá. I fyrra veiddist til dæmis ekki einn einasti lax f ánni fyrr en 6. júlí. Þijú árin á undan var hins vegar nokkur veiði strax upp úr 21. júní,_ en fram að því taldist laxveiði í Álftá í júnf til und- antekninga. Nú er áin brðin tær og vatnið í henni gott. Lax að ganga í nokkmm mæli. Útlitið gæti því ekki verið betra. Áttræður með 14-pundara Sjaldan fást fréttir úr Urriðaá á Mýmm, en það er lítil spræna á milli Langár og Álftár. Rennur hún til Langár niðri á leirum. Fregnir herma nú, að allmikill lax hafi not- fært sér vatnavextina síðustu vikur og rennt sér upp f Urriðaá og góð veiði hafi verið þar, betri en gengur og gerist svo snemma sumars. Til dæmis dró áttræður veiðimaður þar 14 punda lax fyrir skömmu. Ur- riðaá er mjög lítil, svo lítil að hún megnar vart að seitla milli hylja í þurrkum eins og hafa verið sfðustu sumur. Helmingi betra en í fyrra „Þetta hefur gengið alveg bæri- lega, öll hollin hafa fengið eitthvað þrátt fyrir þráláta vestanátt og gmgg í ánni vikum saman, en nú ber það saman, að góð smálaxa- ganga hefur komið og veðrið batn- að til muna. Þeir sem nú em í ánni hafa t.d. fengið 25 laxa og eiga einn dag eftir," sagði Siguijón Samúelsson á Hrafnabjörgum við Laugardalsá í gær. Þegar Siguijón fletti nánar upp á því, kom á daginn að komnir vom um 60 laxar á land frá því að veiðin hófst 12. juní, en á sama tíma í fyrra vom aðeins 33 laxar komnir á land. Þeir sem nú em að fá’ann vom á sama tíma í fyrra og fengu þá aðeins 8 laxa á öllum dögunum. Framan af var laxinn yfirleitt 10 til 16 punda, en nú er það aðallega 4 til 6 punda lax sem veiðist. ee SEX GOÐIR MATSOLU STAÐIR allir á sama stad í Kringlunni Ljúffengar pizzur matreiddar af kúnst. £7 £7 Bragðmikill mexíkanskur matur, kjúklingabitarog hreinn ávaxtasafi. H.H. Hamborgarar Safaríkir hamborgarar, franskar, salat, fiskurog fleiragott. Austurlensk matargerðarlist, t.d. nauta- pönnukökur, svínatsjámein og Saigonrækjur. R E T TIR Smurt brauð, heitt brauð, kökur ogein meðöllu. n ISHOLLIN Úrval af freistandi ísréttum, heimalagaður ís og ferckir ávextir. \o

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.