Morgunblaðið - 02.07.1988, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1988
23
Sex prestar verða
vígðir á morgun
SÉRA Sigiirður Guðmundsson
vígslubiskup vígir 6 guðfræðinga
til prestsþjónustu á morgun,
sunnudaginn 3. júlí. Vígslan
verður i Dómkirkjunni í
Reykjavík og hefst kl. 11.00
Vígsluþegar eru:
Gunnar Sigurjónsson, sem kall-
aður hefur verið til Skeggjastaða-
prestakalls. Gunnar er 27 ára, lauk
guðfræðiprófi frá Háskóla íslands
nú í vor. Kona hans er Þóra Þórar-
insdóttir, landfræðingur. Halldóra
J. Þorvarðardóttir, sem kjörin var
í Fellsmúlaprestakall. Hún er 28
ára, lauk guðfræðiprófi haustið
1986. Eiginmaður hennar er Sigur-
jón Bjarnason, skólastjóri.
Ólöf Ólafsdóttir verður prestur
við Umönnunar- og hjúkrunar-
heimilið Skjól í Reykjavík. Ólöf er
sextug að aldri, lauk guðfræðiprófi
vorið 1987. Eiginmaður hennar,
Svavar Pálsson, rafvirki, er látinn.
Ragnheiður Erla Bjamadóttir
hefur verið kjörin prestur á Raufar-
höfn. Hún er 35 ára, lauk guð-
fræðiprófi haustið 1987.
Sigurður Jónsson, sem kjörinn
var prestur í Patreksfj arðarpresta-
kalli. Hann er 28 ára, lauk guð-
fræðiprófi nú í vor. Kona hans er
Jóhanna Friðriksdóttir, hjúkrunar-
fræðingur.
Sigurður Pálsson er settur prest-
ur í Hallgrímsprestakalli í náms-
leyfi sr. Karls Sigurbjömssonar.
Hann er 51 árs, lauk guðfræðiprófi
haustið 1986. Kona hans er Jó-
hanna Möller, söngkona.
Vígsluvottar verða:
Sr. Hulda Hrönn M. Helgadóttir,
sr. Ragnar Fjalar Lámsson, sr. Sig-
urður H. Guðmundsson og sr. Sig-
mar I. Torfason, prófastur, er lýsir
vígslu.
Suðurnesjaverktakar:
Hlutdeild í nýfram-
kvæmdum rædd á
aðaifundi félagsins
AÐALFUNDUR Suðumesja-
verktaka hf. var haldinn 28. júní
1988 f Keflavfk. Stjórn félagsins
skipa eftirtaldir aðalmenn:
Formaður Anton S. Jónsson og
meðstjórnendur Ólafur B. Erl-
ingsson, Ólafur Þ. Guðmundsson,
Ingólfur Bárðarson og Hjalti Öm
Ólason.
Suðumesjaverktakar gerðu fyrst
verksamning við íslenzka aðalverk-
taka árið 1978, [ stjómarfor-
mannstíð Vilhjálms Amasonar, og
störfuðu sem undirverktaki til
hausts 1984.
Undanfarin tæp fjögur ár hafa
Suðumesjaverktakar ekki gert
verksamning við íslenzka aðalverk-
taka. Umrætt tfmabil hefur Thor
Ó. Thors verið stjómarformaður
íslenzkra aðalverktaka.
Á fundinum var rætt m.a. um
fbúðarhúsabyggingar íslenzkra að-
alverktaka fyrir vamarliðið á
Keflavíkurflugvelli og væntanlega
hlutdeild Suðumesjaverktaka í
þeim framkvæmdum og öðrum ný-
framkvæmdum.
(Fréttatilkynning)
f--------
Eru
þeir að
fá 'ann
->
m o
A---------
Álftá byrjuð að gefa veiði
„Álftáin fór ekki að gefa fyrr en
í síðustu viku þegar það hætti loks
að rigna, en fram að því æddi hún
fram eins og stórfljót, kolmórauð
og enginn veiddi neitt. Ég talaði
við einn sem var f ánni í fyrradag
og hann veiddi vel og sagði talsvert
af físki komið víða um ána. Þá
voru 6 laxar komnir á land, en
milli 12 og 15 fiskar nú,“ sagði
Halldór Gunnarsson í Þverholtum í
samtali í gær, en Halldór er formað-
ur Veiðifélags Álftár á Mýrum.
Að sögn Halldórs hafa þetta ver-
ið 6 til 9 punda fiskar að stærstum
hluta og allir grálúsugir. Þetta er
allgott í Álftá, því yfirleitt er hún
síðsumarsá. I fyrra veiddist til
dæmis ekki einn einasti lax f ánni
fyrr en 6. júlí. Þijú árin á undan
var hins vegar nokkur veiði strax
upp úr 21. júní,_ en fram að því
taldist laxveiði í Álftá í júnf til und-
antekninga. Nú er áin brðin tær
og vatnið í henni gott. Lax að ganga
í nokkmm mæli. Útlitið gæti því
ekki verið betra.
Áttræður með 14-pundara
Sjaldan fást fréttir úr Urriðaá á
Mýmm, en það er lítil spræna á
milli Langár og Álftár. Rennur hún
til Langár niðri á leirum. Fregnir
herma nú, að allmikill lax hafi not-
fært sér vatnavextina síðustu vikur
og rennt sér upp f Urriðaá og góð
veiði hafi verið þar, betri en gengur
og gerist svo snemma sumars. Til
dæmis dró áttræður veiðimaður þar
14 punda lax fyrir skömmu. Ur-
riðaá er mjög lítil, svo lítil að hún
megnar vart að seitla milli hylja í
þurrkum eins og hafa verið sfðustu
sumur.
Helmingi betra en í fyrra
„Þetta hefur gengið alveg bæri-
lega, öll hollin hafa fengið eitthvað
þrátt fyrir þráláta vestanátt og
gmgg í ánni vikum saman, en nú
ber það saman, að góð smálaxa-
ganga hefur komið og veðrið batn-
að til muna. Þeir sem nú em í ánni
hafa t.d. fengið 25 laxa og eiga
einn dag eftir," sagði Siguijón
Samúelsson á Hrafnabjörgum við
Laugardalsá í gær.
Þegar Siguijón fletti nánar upp
á því, kom á daginn að komnir
vom um 60 laxar á land frá því
að veiðin hófst 12. juní, en á sama
tíma í fyrra vom aðeins 33 laxar
komnir á land. Þeir sem nú em að
fá’ann vom á sama tíma í fyrra og
fengu þá aðeins 8 laxa á öllum
dögunum. Framan af var laxinn
yfirleitt 10 til 16 punda, en nú er
það aðallega 4 til 6 punda lax sem
veiðist.
ee
SEX GOÐIR
MATSOLU
STAÐIR
allir á sama stad í Kringlunni
Ljúffengar pizzur matreiddar af kúnst.
£7
£7
Bragðmikill mexíkanskur matur,
kjúklingabitarog hreinn ávaxtasafi.
H.H. Hamborgarar
Safaríkir hamborgarar, franskar,
salat, fiskurog fleiragott.
Austurlensk matargerðarlist, t.d. nauta-
pönnukökur, svínatsjámein og Saigonrækjur.
R E T TIR
Smurt brauð, heitt brauð, kökur
ogein meðöllu.
n ISHOLLIN
Úrval af freistandi ísréttum,
heimalagaður ís og ferckir ávextir.
\o