Morgunblaðið - 10.09.1988, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988
Samband vestfirskra kvenna:
Fjallað um mótun mann-
eldis- og neyslustefnu
FORMANNAFUNDUR Sam-
bands vestfirskra kvenna var
haldinn á ísafirði i lok ágústmán-
aðar í húsakynnum Húsmæðra-
skólans Óskar. Á fundinum var
rætt um málefni kvenfélaganna
og flutt var erindi um manneldis-
mál. Framsögumaður var Unnur
Stefánsdóttir, verkefnisstjóri í
heilbrigðisráðuneytinu. Erindi
hennar fjaUaði um mótun mann-
Kvartett
Krisljáns í
Heita pottinum
KVARTETT Krisljáns Magnús-
sonar leikur i Heita pottinum í
Duus-húsi v/Fischersund sunnu-
dagskvöldið 11. september.
Auk Kristjáns, sem spilar á
píanó, skipa hljómsveitina þeir Þor-
leifur Gíslason á tenór- og altsaxó-
fóna, Tómas R. Einarsson á kontra-
bassa og Guðmundur R. Einarsson
á trommur.
Kvartettinn hefur starfað reglu-
lega í nokkur ár og spilar lög frá
ýmsum skeiðum djasssögunnar, eft-
ir höfunda eins og Dexter Gordon,
Randy Weston, Sonny Rollins
o.m.fl.
Tónleikamir hefjast kl. 21.30.
(Frétt&tilkynmng)
eldis- og neyslustefnu. Unnur
hefur starfað að því verkefni i
ráðuneytinu siðastliðna 6 mán-
uði.
í frétt frá Sambandinu segir, að
manneldismál snerti mjög marga
þætti hins daglega lífs, mataræði,
matarvenjur, heilbrigðismál,
fræðslumál, neytendamál o.fl.
Líflegar umræður hafi orðið á fund-
inum um stöðu okkar íslendinga í
þessum efnum.
Fundarmenn hafí verið sammála
um að lýsa ánægju með þá vinnu,
sem í gangi er hjá heilbrigðisráðu-
neytinu, um mótun manneldis- og
neyslustefnu. Fram hafí komið að
nauðsynlegt væri að gera víðtæka
könnun á neysluvenjum lands-
manna. Fundarmenn hafí þó talið
víst að fyrir lægi meðal annars of
mikil sykumeysla almennings, sem
nauðsynlegt væri að minnka. Þá
segir í fréttinni að mikið hafí verið
rætt um aukaefni í matvælum og
lagasetningar þar um.
Þá hafí komið fram í máli form-
anna kvenfélaganna að heimilis-
fræðslu í grunnskólum á Vestflörð-
um væri víða af skomum skammti.
Þar vantaði bæði kennara og
kennsluaðstöðu. Kvenféiögin hafí
ítrekað sent frá sér ályktanir til
úrbóta en lítið virðist miða að settu
mmarki.
í fundarlok kynnti Elsa Bjart-
marsdóttir væntanlegt námskeiða-
hald í Húsmæðraskólanum næsta
vetur.
Morgunblaðið/Vilhjálmur Eyjólfsson
Flakið af belgíska togaranum Van der Weyden sem strandaði á Skarðsfjöru 1957.
Um Van der Weyd-
en og fleiri flök
Meðallandi.
TOGARINN Van der Weyden frá
Ostende i Belgiu strandaði á
Skarðsfjöru i Meðallandi að
morgni 30. mars 1957. Þetta var
BARNADANSAR
HVAÐ GERIR DANS-NÝJUNG FYRIR BARNIÐ ÞITT?
• Létt upphitun, leikræn tjáning til að byggja upp
sjálfstraust og öryggi.
• Léttir, hnitmiðaðir og skemmtilegir dansar, sem
barnið ræður auðveldlega við.
• Að dansa er yndisleg tilfinning sem barnið þitt
ætti að finna fyrir.
4-6 ára 7-9 ára 10-12 ára Unglingar
1x í viku 1x í viku 2x í viku 2x í viku
UNGLINGAR
ÞIÐ FÁIÐ ÞAÐ SEM ÞIÐ VIUIÐ HJÁ OKKUR í DANS-NÝJUNG
• Góðar æfingar til að halda sér í góðu formi.
i • Frábæra dansa, langar og stuttar danslotur.
; • Jazz-dansa, funck-hreifingar og allt það nýjasta
& í dansinum í dag.
Þjálfaðir kennarar með langa starfsreynslu tryggja
árangur.
Afhending skírteina laugardaginn 17. sept. og sunnudaginn 18. sept. kl. 14-18
báða dagana á Hverfisgötu 46.
Kennslustaöír: Hverfisgata 46, KR-húslö viö Frostaskjól, Mosfellsbœ, Félagsmiöstööinni á Selfossi.
Veríð ve/komin.
Eydís Eyjólfsdóttir
20 ára danskennari með 4
óra reynslu að baki í
kennslu og námi í Eng-
landi. Starfandi atvinnu-
dan8ari. 2x ialandameist-
ari í hópdan8i. Unnið við
söngleik, myndbönd og
sjónvarp.
Wm
KoRmin Aöaltteinsdöttir
32 ára danskennari og
danshöfundur með 16 óra
reynslu að baki I kennalu
og námi í Þýskalandi,
Bandarikjunum og Eng-
fandi. 6x íslandsmeistari í
hópdönsum. Unnið fyrir
8jónvarp, leikara, vlð upp-
setningu tískusýningarat-
riða, söngleikja og dansat-
riða hériendis og eriendis.
Tommie M.Y. Luke
26 ára danskennari og
danshöfundur með 6 éra
reynslu að baki og nám f
Englandi og Þýskalandi.
Hann hefur unnið með
þekktum tíanshöfundum
t.d. Brur»o Tonioli - Alain
Dehay - Ken Warwick. I
siónvarpi, leikhúsi, mynd-
böndum, stjómandi tísku-
sýninga, unniö fyrir
Wham, Elton John og Mlc-
hael Jeck8on.
Á toppnum i Englandi í
dag.
Innritun er hafin í síma 621088
frá kl. 10-12 og 13-17 alla daga
HVERFISGATA 46 SIMI621088
sem nýtt skip og allstórt. Togar-
inn var gufuskip og brenndi oliu.
Mannbjörg varð en þegar átti að
bjarga skipinu rak það á togara-
flak sem ekki sást á og menn
þarna vissu ekki um. Eftir rúm-
lega 30 ár er flakið af Van der
Weyden þarna enn. Væri það
löngu horfið f sand og sjó ef
ekki væri annar togari undir
þvi. Skipið liggur á hliðinni móti
sjó og er furða að sjórinn skuli
ekki hafa brotið það allt niður
fyrir löngu. Nú hefur hann þó
brotið þá hliðina sem upp er fram
fyrir gufuketilinn og framhlut-
inn er mjög farinn að láta á sjá,
göt eru víða og er flakið farið
að síga í sandinn.
Bjargmundur Sveinsson, bróðir
Kjarvals, sagði fréttaritara Morg-
unblaðsins seinna að árið 1903 hefði
strandað þama enskur togari sem
hét Lindsey. Vann hann við að rífa
úr því skipi.
Áður var Meðallandið einn mesti
strandstaður á íslandi. Með vaxandi
tækni er það nærri úr sögunni og
þó svo færi þá er skipum yfirleitt
bjargað ef þau stranda þar sem
sandur er. Gæti svo farið að gufu-
ketillinn í Van der Weyden verði
lengi minnisvarði um strönd í Með-
allandi. Hefur hann þá sérstöðu að
liggja ofan á öðru skipi og því miklu
hærra en annars væri.
Lindsey var einnig gufutogari en
kolakyntur og einn af fyrstu togur-
unum sem strönduðu í Meðallandi.
Af Lindsey munu allir hafa bjarg-
ast í land og mun svo yfírleitt hafa
farið ef heimamenn komu á strand-
stað áður en skipbrotsmenn reyndu
að komast í iand. En það kom þó
fyrir að menn fórust er skip strönd-
uðu. Svo var nokkuð um að lík
ræki á fjörumar. Menn tók út af á
fískiskipum og féllu úr reiðum á
skútunum.
Nokkm vestar en þessir tveir
togarar strönduðu strandaði skip
snemma á síðustu öld. Vom þar í
lík af tveimur mönnum, grindhoruð.
70 menn áttu að hafa verið á skip-
inu. Það strandaði á Klaufarfjöru
fyrir jól og var mikið flutt þangað
úr skipinu. Bærinn var afskekktur
og er góssið hafði verið flutt þang-
að flúði fólkið bæinn vegna reim-
leika en komu aftur að vori er dó-
tið hafði verið flutt burt. Muna
menn enn vísupartinn „70 draugar
suðr’á Klauf sækja að Jóni loðna"
en svo hét bóndinn á bænum.
Líklegt þótti að skipið hefði lent
í hafvillum og þótti reimt á Klaufar-
fjöru á eftir og þama á fjörunum
þóttu fleiri vera á ferð en menn sáu
yfirleitt þeir sem óskyggnir vom.
- Vilhjálmur
Heimspekinámskeið fyrir börn:
I hverju er fegurðin fólgin?
HEIMSPEKISKÓLINN býður
upp á 12 vikna heimspekinám-
skeið í vetur fyrir 10—16 ára
börn i samvinnu við Heimspeki-
stofnun Háskóla íslands. Þetta
er annað starfsár skólans, sem
starfar í yngri og eldri deild.
Unnið er út frá skáldsögum, sem
bandaríski heimspekingurinn
Matthew Lipman hefur samið
fyrir þennan aldurshóp. Skóla-
stjóri Heimspekiskólans er dr.
Hreinn Pálsson.
í frétt frá Heimspekiskólanum
segir að í sögum Lipmans segi af
krökkum, sem fara að velta fyrir
sér notkun máls og eðli hugsunar.
Meðal annars beinist athyglin að
margræðni, líkingum og þeirri rök-
vísi, sem felst í notkun daglegs
máls. Þar sé einnig vakið máls á
ráðgátum, sem leita á böm á öllum
aldri: Hvað gerir manninn mennsk-
an? Hvers vegna göngum við í
skóla? Er það móðgun við aðra að
vera þeim ósammála? í hveiju er
fegurðin fólgin? Undir leiðsögn
kennara taki þátttakendur ótal
slíkar spumingar til umfjöllunar og
fari meiri hluti námskeiðsins í sam-
ræður um þær.
Námsefni Lipmans á 20 ára sögu
að baki sér og hafa sögur hans
verið þýddar á mörg erlend tungu-
mál, þ.á.m. kínversku, spænsku,
þýsku, frönsku, portúgölsku,
arabísku og dönsku.
Námskeið Heimspekiskólans
verða haldin í gamla Verslunarskól-
anum við Gmndarstíg. í hvetjum
hópi verða 10—14 nemendur, sem
hittast einu sinni í viku eina og
hálfa klukkustund í senn. Rökleikni
nemenda verður metin við upphaf
og lok námskeiðanna. Aðalleið-
beinandi verður dr. Hreinn Pálsson,
sem hefur sérhæft sig í heimspeki-
kennslu bama og unglinga. Innrit-
un stendur til 18. september og
kennsla hefst daginn eftir. Fram-
haldsnámskeið verða í boði á vor-
misseri.