Morgunblaðið - 10.09.1988, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 10.09.1988, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988 49 mér þar til hjálp barst eftir fjórar klukkustundir. Veður var þokkalegt sem betur fór, þó fann ég fyrir hrolli um tíma, kannski líka vegna blóðmissis. Menn úr Björgunar- sveitinni Brák í Borgamesi komu svo með börur og báru mig um snarbratta og stórgrýtta hlíðina, niður þangað, sem Þvrla Land- helgisgæslunnar beið. Ahöfn þyrl- unnar hafði frétt af þessu slysi og lagði lykkju á leið sína til þess að koma mér á sjúkrahús. Þrátt fyrir töluvert niðurstreymi gekk allt vel. Læknir var látinn síga niður til mín og svo var ég dreginn upp í þyrluna og fluttur til Reykjavíkur, á Borg- arspítalann. Ég er ekki orðinn jafn- góður eftir þetta slys en vonir standa til að ég verði það með tíð og tíma.“ Þegar við Tryggvi ljúkum spjall- inu er Guðlaugur í óða önn að sýna öðrum námskeiðsnemendum hvað heppilegt er að hafa með sér af sáraumbúnaði og þvíumlíku í ferða- lög. Kennir margra grasa á þeim lista, allt frá sárabindum, skæmm i Blástursmeðferð Loy(övf loftiou ao ntróyniíi út og $«>{ f.úJBíí íid brjwiÚL) hfiípf. H«)fu höfd) sjú) \r\mm ii*túrSv©io6u. Pfoi.'aðtj ottir puísi ! bdbwpo. l.áttu firtyur oy k!jfiQUtóW»<j fetmö ffíi n b«»KiiKýíivi níður > f iv»!ftina milO þúsv hé)&vððvanö Ljóam: Morgunblaðið/Einar Falur og flísatöngum til áttavita og vatns- þéttra klæða. Hann gerir einnig að umtalsefni bók um skyndihjálp sem Rauði kross íslands hefur gefið út. í þeirri bók er í stuttu máli gerð grein fyrri hvemig menn eiga að bera sig að við að aðstoða særða og líflitla menn. Bók þessi er þýdd úr norsku og virðist við lauslega athugun hafa að geyma afar gagn- legar leiðbeiningar um margt sem lýtur að skyndihjálp við slasaða og sjúka. Leiðbeinandinn á fyrmefndu námskeiði, Guðlaugur Leósson, hef- Ur kennt á ýmsum námskeiðum Rauða krossins mörg undanfarin úr. Fyrir hans tíma sá Jón Oddgeir Jónsson um kennslu í skyndihjálp á námskeiðum Reykjavíkurdeildar Rauða krossins. Námskeið þessi eru 20 kennslustundir að lengd sem skipt er niður á fimm kvöld. Að sögn Guðlaugs er tilgangurinn með þeim sá að kenna fólki að veita slös- Uðum og sjúkum nauðsynlegustu aðstoð þar til læknishjálp berst. Öllum sem orðnir eru 14 ára er heimil þátttaka í námskeiðum Rauða krossins í skyndihjálp. Guð- laugur sagði ennfremur að æskilegt væri að sem flestir sæktu námskeið ! skyndihjálp og helst oftar en einu sinni, því ef vel ætti að vera þyrftu Uienn að sækja slík námskeið annað ®ða þriðja hvert ár til að endumýja kunnáttu sína. Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir Afmæliskveðja: Þórdís Guðjóns- dóttir frá Eskifirði RAGNHILDUR í dag, laugardaginn 10. septem- ber 1988, er Þórdís G. Guðjóns- dóttir, Bleiksárhlíð 63, Eskifirði, 85 ára; Á tímamótum sem þessum tíðkast að berja bumbur _ þegar þekktar persónur eiga í hlut. í minni vitund er hún svo. Hún er í mínum huga ein af ótal hetjum hvers- dagslífsins, sem unnið hefur störf sín af dugnaði og trúmennsku alla sína ævi, eða fram til 80 ára ald- urs. Ein þeirra sem hlut eiga í grunni þess velferðarþjóðfélags sem aðrir hafa nú tekið við, en eru nú, þvi miður að því er virðist, að leggja í rúst. En þeir eru aftur á móti af allt öðru sauðahúsi en Þórdís og hennar líkar. Nú í dag ber ég því bumbur henni til heiðurs. Þórdís fæddist 10. september 1903 að Kolmúla við Fáskrúðsflörð. Foreldrar hennar voru þau hjónin Guðjón Jónsson bóndi þar, og Kristín Jónsdóttir. Guðjón var sonur Jóns ólafssonar skálds og ritstjóra. Kristín var ættuð af Vatnsleysu- strönd, þar sem hún á yngri árum stundaði sjóróðra, að sjálfsögðu á opnum bátum, undan Stapa. Ég játa strax vankunnáttu mína í ætt- fræði. Þó veit ég að nokkur skyld- leiki var milli Þórdísar og hins þekkta sævíkings Guðjóns Illuga- sonar. Systkini Dísu, en svo nefnist hún meðal kunnugra, voru átta. Sex systur og tveir bræður. Öll eru þau nú látin, utan ein systir, Oddný Vilborg sem búsett er í Reykjavík. Frá Kaldalæk við Vattames fluttist Dísa sjö ára að- aldri með fjölskyldu sinni til Eskifjarðar. Það segir sig sjálft að oft hlýtur að hafa verið þröngt í búi hjá svo bam- margri fjölskyldu. Enda var lífsbar- áttan harðari í þá daga, og kjörin krappari en margur gerir sér grein fyrir nú í dag. Af þeim ástæðum var Dísa sett í „vist“ aðeins sjö ára, og vann því að mestu fyrir sér upp frá því. Þó ég nefni þetta í lífshlaupi Dísu, þá var það ekkert einsdæmi á þessum árum. Frekar má segja það nokkuð algengt í þá tíð. Þegar Dísa riflar upp þessa tíma, minnist hún ávallt með virð- ingu og þökkum, sómahjónanna Sigríðar og Siguijóns í Zeuthens- húsi, sem hún dvaldi hjá, ung stúlk- an. Dísa hóf búskap fremur ung. Maður hennar var Sófus Oddur Eyjólfsson, innfæddur Eskfirðing- ur, f. 20. jan. 1892. Sambúð þeirra var sérlega farsæl. Sófus var ein- stakur geðprýðismaður sem þeir, er hann þekktu, minnast enn með hlýhug. Hann lést 21. september 1971. Bömin urðu 4: María Kristín sem er látin. Friðrik, búsettur í Reykjavík og kvæntur er Ingunni Friðriksdóttur. Svava, búsett á Seyðisfirði, gift undirrituðum, og Hákon Viðar sem búsettur er á Eskifírði og kvæntur er Sigrúnu Valgeirsdóttur. Bamabömin em nú 12, en bamabamaböm 14. Þótt lífsbaráttan hafí verið hörð á þeim ámm sem Dísa óx úr grasi, eins og áður er að vikið, og einnig meðan hún og Sófus komu bömum sínum á legg, þá hefur lundirr alltaf verið létt, og þau gæði, sem til hafa fallið, með þökkum þegin án kröfuhörku þar um. Stundum hefur mér fundist í samtölum við Dísu, að henni þætti nóg um kröfur manna í dag til lífsins gæða. Mig minnir við ekki alltaf hafa verið sammála í þeim efnum, þó við séum það oftar en ekki. Hún stendur allt- af fast á sinni sannfæringu, og getur verið óblíð í máli þegar svik og óheiðarleika ber á góma. Sjálf hefur hún fram að þessu hvorki þurft að eyða fingraförum sínum né hylja spor sín. Þess vegna gæti Dísa allt eins hafa sagt þetta: Oft er lífsins gatan greið þótt gæfan stundum víki en stytt sér getur enginn leið inn í himnaríki. Þegar trúmál eru rædd, fer ekki milli mála að þama er trúuð kona á ferð. Svo vel þekki ég hana eftir rösklega þijátíu ára kynningu. Oft hefur mig furðað minni þess- arar konu. Þegar liðna tíð ber á góma, virðist hún muna ýmis atvik upp á dag, jafnvel þó liðin sé meira en hálf öld frá því þau gerðust. Þess vegna kemur það ekki svo mjög á óvart að enginn afmælis- dagur í Qölskyldum okkar fer fram hjá henni. Um það vitna afmælis- gjafimar til bamabamanna og bamabamabamanna, sem segja má að séu jafn vissar og gangur himintunglanna. í upphafí þessarar afmælisgrein- ar minntist ég á hetjur hversdags- lífsins. Fólk sem vinnur alla sína starfsævi af dugnaði og trú- mennsku. Fólk sem aldrei reynir að koma byrðum sínum á aðra, og tekur því sem að höndum ber með ró og stillingu. Þannig er Dísa. Dísa mín. Böm þín, tengdaböm, bamaböm, bamabamaböm og aðr- ir vinir senda þér í dag hugheilar óskir og þakka liðna tíð, með vissu um langt framhald. Jóhann B. Sveinbjömsson BA ÐHERBERGISBUNA Ð. A J. ÞORLAKSSON & NORÐMANN gjr RÉTTARHÁLSI2 ______________ SÍMI83833 m jfgmd | Meim en þú geturímyndad þér! fK?*f NilHi Upplyfting og heilsubót ***’■"" íKramhúsinu! JASSDANS ? Kennari: Parncll NÚTÍMADANS Kennari: Parneii DANSSPUNI Kcnnari JoSo AFR0CARABIAN DANS^j Kcnnari: Parnell SAMBA LEIKFIMI Kennari: Joáo W KLASSÍSKUR BALLETT k'Þ. Kennari: Lára % BLÚS/JASS ^ KÁ Kennari: Parnell H JASSDANS 7-8 ÁRA Kennari Joáo JASSDANS 9-10 ÁRA Kennari: Joáo LEIKLIST FYRIR BÖRN OG UNGLINGA Kennari: Sigríður Eyþórs DANS - LEIKIR - SPUNI 4-7 ÁRA 13 vikna námskeið hefjast 12. sept. ...uí Kennari: Lára NNARAR KRAMHUSSINS IVETUR ER|MLLAN PARNELL FRÁ NEW YORK OG J0Á0 SILVA FRÁ BRASILIU ' ALLAN PARNELL hcfur starfað sem (lansari, kcnnari og dansahöfundurvíða um Bandaríkin, Kanada og á Karabísku eyjunum. Hann hefur dansað í kvikmynd- um, söngleikjum og dansleikhúsum, m.a. í West Side Story, Hair og All That Jazz. Hann hefur hlotið menntun hjá þekktum skólum, svo sem Fred Benja- min og Alvin Ailey. JOÁO SILVA hefur starfað scm dansari og leikari við dans- og spunaleikhús í Brasilíu. MUSIKLEIKFIMI (þol - teygjur - dans) Kennarar: Hafdfs og Elfsabet MORGVN; HÁDEGIS-, SÍDDEGIS- OG KVÖLDTÍMAR ATHI: Sérstakir karlatimar í hádeginu LÁTBRAGÐSLEIKUR OG SPUNI (4 vikna námskeið 13. scpt. — 9. okt.) Kennari: Geraldinc Brams, kennari vid leiklistarskólann í Amsterdam. . „FL0TT F0RM“ 7 bekkja æfingakerfid fyrir fólk a öllum aldri. Styrkir - liðkar - grennir og veitir slökun. HÚ5I& Innritun alla daga frá kl. 9.30 - 18.00. Símar: 15103 og 17860.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.