Morgunblaðið - 10.09.1988, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988
Kína og Taiwan:
Kínveijar fagna til-
lögu um sameiningu
Þó leggja Tævanar til að kommúnisman-
um verði endanlega varpað fyrir róða
Peking. Reuter.
Kommúnistaflokkur Kína
hefur lofað tævanska þjóðernis-
sinna fyrir tillögu um að
Kínveijum verði veitt 10 milij-
arða dala lán (460 mil\jarða ísl.
kr.) að því tilskildu meðal ann-
ars að þeir hverfi frá kommún-
isma. Ennfremur er þar gert
ráð fyrir að viðræður hefjist
um sameiningu ríkjanna. Vest-
rænir stjórnarerindrekar héldu
þvi þó fram að þessi jákvæðu
viðbrögð Kínveija væru aðeins
enn eitt bragðið í áróðursstríði
ríkjanna.
Nokkrir stjómmálamenn úr
Þjóðemisflokki Taiwans hvöttu til
þess í júlí að Taiwanar veittu
Kínveijum allt að 10 milljarða
dala lán gegn því að að endi yrði
bundinn á alræði kommúnista-
flokksins í Kína, auk þess sem
kommúnisminn yrði lagður fyrir
róða. Þeir kröfðust þess einnig að
Kínveijar lofuðu að beita Taiwani
ekki hervaldi, svo hægt yrði að
efna til viðræðna um sameiningu
ríkjanna. Þeir settu einnig það
skilyrði að í hinu sameinaða Kína-
veldi yrði hefðbundin menning
Kínveija höfð í hávegum.
Á forsíðu Dagblaðs alþýðunnar
á miðvikudag vom þjóðemis-
sinnamir lofaðir fyrir Jákvætt
hugarfar." Álíka greinar vom birt-
ar í öðmm blöðum á fímmtudag.
„Þar sem íjóðemisflokkurinn og
Kommúnistaflokkurinn leitast
báðir við að vemda kínverska
menningu og gera Kína að öflugu
veldi á ný ætti að vera gmndvöllur
fyrir sameiningu.“ sagði í dagblaði
alþýðunnar. Ekki var minnst á þá
kröfu að Kínveijar afneituðu
kommúnismanum.
Kínveijar hafa ætíð sagt að
þeir áskildu sér rétt til að beita
Taiwan hervaldi. Viðskipti Kína
og Taiwans hafa aukist mjög á
síðustu ámm og nokkrir tævan-
skir fjármálamenn hafa fjárfest í
Kína.
„Stjómvöld í Kína hafa dregið
þá ályktun að útilokað sé að til-
íaga þjóðemissinnanna verði sam-
þykkt í Taiwan og þeir geti því
sýnt sáttfýsi," sagði stjómarerind-
reki í Peking. „Taiwanar búast
heldur ekki við að kínversk stjóm-
völd hverfí frá kommúnisma,"
bætti hann við.
t -
Pyntingum mótmælt í Santiago
Reuter
Óeirðalögreglumenn sprauta vatni á félaga í hreyfingu sem berst gegn pyntingum í Chile.
Hreyfingin efndi til mótmæla framan við helsta bókasafn Santiago-borgar í gær. Fjórir mótmæ-
lendur slösuðust og tuttugu voru fangelsaðir.
Svíþjóð:
Mútustarfsemi, skjala-
fals og ólögleg vopnasala
Stokkhólmi. Reuter.
HÖFÐAÐ hefur verið opinbert
mál á hendur þremur fyrrver-
andi yfirmönnum Bofors-vopna-
verksmiðjanna í Sviþjóð. Eru
þeir sakaðir um að hafa fengið
Björgunarmenn leita í braki vfetnömsku þotunnar, sem fórst
skammt frá flugvellinum f Bangkok f Thailandi f gær.
75 biðu bana er víet-
nömsk þota fórst
Bangkok. Reuter.
SEX menn komust lffs af þegar
vfetnömsk farþegaþota fórst
skammt frá flugvellinum í
Bangkok í Thailandi í gær-
morgun. Að minnsta kostí 75
biðu bana.
Flugvélin brotlenti í miklu
þrumuveðri er hún átti sex kíló-
metra ófama til flugvallarins.
Sjónarvottar sögðu að eldingu
hefði lostið niður í flugvélinni, sem
var af gerðinni Tupolev TU-134.
Hún var í eigu víetnamska ríkis-
flugfélagsins og var að koma úr
áætlunarflugi frá Hanoi.
Flugvélin kom niður á
hrísgijónaakur skammt frá út-
hverfí Bangkok. Hún brotnaði í
þrennt er hún skall til jarðar og
dreyfðist brak úr henni yfír stórt
svæði. Eldur kom samstundis upp.
Mennimir sex, sem komust lífs
af, slösuðust allir alvarlega.
Hermt var að sendiherrar Ind-
lands og Finnlands í Hanoi og
eiginkonur þeirra hefðu verið
meðal farþega sem týndu lífi.
sinn skerf af umboðslaunum eða
mútum, sem notaðar voru til að
greiða fyrir ólöglegri vopnasölu.
Folke Ljungwall saksóknari
sagði, að mennimir væm gmnaðir
um að hafa stungið i eigin vasa og
komið fyrir á bankareikningi í Sviss
allt að 36 milljónum ísl. kr. Vildi
hann ekki nafngreina mennina enda
ekki leyfílegt samkvæmt sænskum
lögum fyrr en dómur hefur gengið.
Bofors, sem er eitt af dótturfyrir-
tækjum Nóbelsamsteypunnar, hef-
ur verið mikið í fréttum að undan-
fömu vegna þessara mála og þykja
þau mjög vandræðaleg fyrir sænsk
stjómvöld, sem halda hlutleysi sínu
hátt á loft og vilja láta að sér kveða
f afvopnunarmálum. Forsvarsmenn
Nóbelsamsteypunnar hafa viður-
kennt, að Bofors hafí selt vopn til
Khomeini setur
niður deilurnar
- segir íranskur embættismaður
Nikósfu. Reuter.
Háttsettur embættismaður t
íran neitaði því i gær, að klofn-
ingur væri kominn upp meðal
ráðamanna og sagði, að Aya-
tollah Khomeini erkiklerkur
leystí úr og svefði allar deOur
jafnharðan.
„Að halda því fram, að einn
hópurinn reyni að bregða fæti fyr-
ir annan er hreinasta fírra. Vissu-
lega eru skiptar skoðanir f flestum
málum en Khomeini er dómarinn,"
sagði Abdolkarim Mousavi Arde-
bili, forseti hæstaréttar írans, í
ræðu, sem hann flutti við bæna-
hald í gær. Mikill orðrómur er um
ágreining meðal æðstu ráðamanna
ríkisins og fyrir nokkrum dögum
sagði forsætisráðherrann, Mir-
Hossein Mousavi, af sér embætti.
Hann tók þó við því aftur að skip-
un Khomeinis.
Sagt er, að ágreiningurinn snú-
ist um stefnuna í efnahagsmálum
og endurreisnina eftir átta ára stríð
við íraka en Mousavi, sem er
hlynntur miklum ríkisafskiptum,
vill enga samvinnu við flölþjóðafyr-
irtæki. Ali Khamenei forseti, sem
reyndi að bola Mousavi burt árið
1985, er aftur á móti stuðnings-
maður fíjáls markaðskerfís og seg-
ir, að það sé bamaskapur, að íran-
ir geti endurreist efnahagslífið án
erlendrar aðstoðar og þátttöku.
íranskir embættismenn segja,
að nú sé ekki neinum ráðum ráðið
nema þeir séu allir viðstaddir,
Khamenei, Ardebili, Mousavi,
Rafsanjani þingforseti og Ahmad,
sonur Khomeinis. Ef menn koma
sér ekki saman ber Ahmad málið
upp við föður sinn, sem kveður þá
upp sinn Salómonsdóm.
Miðausturlanda en í sænskum lög-
um er bannað að selja vopn til
ríkja, sem standa f styijöld eða eru
líkleg til þess. Þá hefur komið fram,
að vopnaútflutningur Svía jókst um
helming á milli áranna 1986 og
1987.
Komið hefur fram við rannsókn,
að Bofors seldi vopn til Singapore
en þaðan voru þau flutt til Bahrain,
Dubai og Oman, sem öll eru á
sænska bannlistanum. í mars sl.
var vopnasali, sem hafði sambönd
í vamarmálaráðuneytinu í Singap-
ore, dæmdur í flögurra ára fangelsi
fyrir falsanir og fyrir að þiggja
mútur af Bofors. Viðurkenndi hann
að hafa tekið við 300.000 dollurum
og hjálpað til við að falsa skjöl, sem
auðvelduðu endursölu Bofors-vopn-
anna til annarra ríkja.
Tveir háttsettir yfírmenn annars
Nóbelfyrirtækis, Nobel Kemi, hafa
einnig verið ákærðir fyrir að selja
írönum mikið af sprengiefni og
grunur leikur á, að Bofors hafí
greitt 1,3 milljarða dollara í mútur
til að tiyggja vopnasölu til Ind-
lands. Hefúr það mál komið sér illa
fyrir Rajiv Gandhi forsætisráðherra
þótt ekki hafí tekist að komast til
botns í því.
Rcutcr
Storkará suðurleið
Þessir sex storkar hvUdu sig á ljósastaur á umferðareyju í
Lausanne í Sviss á leið sinni til Afríku nú í vikunni.