Morgunblaðið - 10.09.1988, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988
41
Kristniboðskaffi
Kristniboðsfélag karla í
Reykjavík heldur hina árlegu
kaffisölu sína sunnudaginn 11.
september i húsnæði kristniboðs-
ins, Háaleitisbraut 58—60. Kaffi-
salan hefst kl. 14 og lýkur kl.
19. Allur ágóði rennur til starfs
Kristniboðssambandsins í
Afríku.
Um síðustu helgi var haldin
kveðjusamkoma fyrir ung kristni-
boðshjón, Valgerði Gísladóttur og
Guðlaug Gunnarsson, en þau lögðu
af stað á laugardagsmorgun ásamt
tveimur ungum dætrum sínum
áleiðis til Eþíópíu þar sem þau
munu dveljast næstu fjögur árin.
Þetta er annað starfstímabil þeirra
hjóna þar syðra.
Tvenn íslensk hjón eru nú á veg-
um Kristniboðssambandsins á með-
al Pókotmanna í Vestur-Kenýa. Þar
standa þeim allar dyr opnar og
háir þeim mest að starfslið er of
fámennt og svo fjárskortur. Alls
þarf Kristniboðssambandið að safna
á níundu milljón til starfsins á þessu
ári.
Eins og fyrr segir byrja karlam-
ir í kristniboðsfélaginu að hella upp
á könnuna kl. 14 á morgun og von-
ast þeir til að margir líti inn til
þeirra og fái sér hressingu.
íslenskir kristniboðar voru upphafsmenn skólastarfs i Konsó í
Eþíópíu. Þeir hafa einnig komið á fót nokkrum skóliun meðal Pókot-
manna í Kenýa; á stöðinni í Cheparería er t.d. fjölmennur barna-
skóli. í kirkjulegu starfi er börnunum lika sinnt sérstaklega. Mynd-
in er af glöðum börnum i Eþiópiu.
Humri
stolið
Höfn í Homafirði
Brotist var inn í frystigám á
hafnarsvæðinu á Höfn í Horna-
firði í fyrrinótt og þaðan stolið
tæpum 800 kg. af humri. Þjóf-
amir náðust í gærmorgun á
Hvolsvelli.
Þjófamir höfðu leigt sér sendibif-
reið og vom þeir á leið með humar-
inn til Reykjavíkur er þeir voru
gripnir. Verðmæti humarsins er á
bilinu 6-700.000 krónur.
JGG.
Brídsmót á
Laugarhóli
Laugarhóli, Bjarnarfirði.
BRIDSMÓT var haldið á Laugar-
hóli í Bjamarfirði helgina 2.—4.
september. Var þetta Vestfjarða-
mót í tvímenningi. Keppnisstjóri
var Vigfús Pálsson. Gestgjafi á
mótinu var Tafl- og bridsfélag
Hólmavíkur. Var þetta síðasta
helgin sem sumarhótelið á Laug-
arhóli starfaði en Klúkuskóli var
settur fimmtudaginn 1. septem-
ber.
Það voru 27 pör sem kepptu á
móti Bridssambands Vestfjarða í
tvímenningi á Laugarhóli, í boði
Tafl- og bridsfélags Hólmavíkur.
Er þetta árleg keppni sem flyst
milli félaga á svaeðinu ár hvert.
Næsta keppni verður svo sveita-
keppni sem háð verður á Núpi í
maí á næsta vori.
Það voru þijú spil milli para, eða
samtals 81 spil, sem spiluð voru og
var keppt um Vestfjarðameistara-
titílinn.
Vestfjarðameistarar urðu þeir
Jóhannes Ó. Bjamason og Hermann
Sigurðsson. í öðru sæti urðu þeir
Geir Viggósson og Símon Viggós-
son en í þriðja sæti Einar Valur
Kristjánsson og Amar Geir Hinriks-
son.
Þeir Jóhannes og Hermann höfðu
verið í fyrsta til öðm sæti mikinn
hluta keppninnar. Að vísu höfðu
þeir hrapað niður í fimmta til sjötta
sæti í tíundu umferð, en náðu sér
brátt á strik aftur.
Geir og Símon höfðu verið neðar-
lega framan af keppninni, eða í 13.
sæti eftir 6 umferðir og í 12. sæti
eftir 10 umferðir. Þeir vom í þriðja
sæti eftir fimmtán umferðir og
§órða sæti eftir átján umferðir.
Eftir 23 umferðir vom þeir svo enn
í fjórða sæti og enduðu svo í öðm.
Svipuð þróun var hjá Einari Val og
Amari Geir.
Aðeins sex konur, eða þijú pör
kvenna, tóku þátt í mótinu. Jóhann-
es og Hermann em frá Þingeyri,
Geir og Símon frá Tálknafirði og
Einar Valur og Amar Geir frá
ísafirði. Konumar vom frá Patreks-
firði og Tálknafirði.
Rómuðu keppendur móttökur
gestgjafa.
- SHÞ
Ný bílaþremia
BÍLAÞRENNA er nýtt skrap-
miðahappdrætti Styrktarfélags-
ins Vogs og SÁÁ.
Vinningar í skrapmiðahapp-
drættinu em 50 Lancia bifreiðir,
250 Nordmende geislaspilarar og
500 Kodak myndavélar. I fréttatil-
kynningu segir að heildarverðmæti
vinninga sé 24.125.000 krónur.
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
LATTU FJARMUNI ÞINA VAXA
í VERZIUNARBANKANUM!
Verzlunarbankinn hefur bryddað upp á mörgum vinsælum
nýjungum í þjónustu við spariíjáreigendur, enda mikil gróska í
starfsemi bankans.
Þess vegna kemur til okkar fólk sem vill hleypa nýju lífi í sparnað
sinn og sjá hann dafna hratt og örugglega.
MARGIR KOSTIR - ALLIR GÓÐIR.
Við höfum margar uppástungur um það hvernig best verður
staðið að ávöxtuninni:
1. KASKÓREIKNINGURINN er löngu orðinn klassískur hjá
sparifjáreigendum sem þurfa að hafa ffjálsan aðgang að
sparnaði sínum. Sterkur og sveigjanlegur.
2. RENTUBÓK, nýr 18 mánaða spennandi sparnaðarkostur.
Bók sem rentar sig eins og góð fjárfesting, en er þó
óbundin ef þörf krefur.
3. SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS, öruggt sparnaðarform til
þriggja, fimm eða átta ára. Nú til sölu í bankanum.
Við veitum allar nánari upplýsingar og hjálpum þér að vega og
meta kosti allra ávöxtunarleiða með hliðsjón af aðstæðum þínum
og markmiðum.
Alltaf velkomin (n).
VERZLUNARBANKINN
-vúuuvwteðþén!
BANKASTRÆTl 5
LAUGAVEGI 172
GRENSÁSVEGI 13
ÞARABAKKA 3
UMFERÐARMIÐSTÖÐINNI
VAITNSMÝRARVEGI 10
HUSI VERSI.UNARINNAR
KRINGLUNNI 7
ÞVERHOLTI 6, MOSFELLSBÆ
VAl’NSNESVEGI 14, KEFLAVÍK