Morgunblaðið - 10.09.1988, Side 60
60
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988
OLYMPIULEIKAR
Ufúm
FOLK
■ ANDRE Agassi sigraði landa
sinn, Bandaríkjamanninn Jimmy
Connors fremur léttilega í aðeins
þremur lotum í átta manna úrslitum
á opna bandaríska meistaramót-
inu í tennis. Höfðu menn á orði,
að æskan hefði borið ellina ofurliði.
Chris Evert, sem unnið hafði sér
rétt til að leika við Steffi Graf í
undanúrslitum á opna bandaríska
meistaramótinu, varð að hætta við
þátttöku vegna veikinda. Graf
mætir annað hvort Sabatini eða
Garrison í úrslitum.
Reykjavíkur-
mótið hefst
um helgina
REYKJAVÍKURMÓT Hand-
knattleiksráðs Reykjavíkur
hefst á morgun, sunnudag og
verður leikið í Seljaskóla.
Fyrstu leikirnir í mótinu verða
í meistaraflokki kvenna og
karla.
Mótið í ár er fyrir margt öðruv-
ísi en venjulega, þar er fyrst
að nefna þá staðreynd að Ólympíu-
leikamir eru á sama tíma. Vegna
þátttöku íslenska landsliðsins í
Ólympíuleikunum í ár er ljóst. að
nú verður mótið spilað án landsliðs-
manna.
Pyrstu leikir Reykjavíkurmótsins
á morgun verða eftirtaldir: Víking-
ur-Valur í mfl. kvenna kl. 18.00
og síðan Fram-ÍR.
Kl. 20.30 leika Valur og KR í
mfl. karla og strax á eftir Víkingur
og Armann.
MorgunblaðiÖ/Sigurgeir
Sveit GK sigraði í 1. deild í sveitakeppni GSÍ um síðustu helgi. Hér fagna liðs-
menn sveitarinnar sigri að hætti kappakstursmanna. Úlfar Jónsson og Tryggvi
Traustason sprauta kampavíni yfir félaga sína í sveit GK.
Sigri fagnað
Morgunblaðið/Sigurgeir
QR sigraði I kvennaflokki og hér er Hannes Guðmunds-
son formaður Golfklúbbs Reykjavíkur ásamt Ragnhildi
Sigurðardóttir og Jóhönnu Ingólfsdóttir. Á myndina vant-
ar Steinunni Sigurðardóttir, sem einnig var í sveit GR.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Slgursvalt QK frá vinstri: Sveinn Sigurbergsson, Guðmundur
Sveinbjömsson, Tryggvi Traustason, Úlfar Jónsson og Sveinbjöm
Bjömsson liðsstjóri.
' Reuter
Andre Agassl sigraði Jimmy Con-
nore nokkuð örugglega á opna banda-
ríska meistaramótinu í tennis í gær.
■ LEO Beenhakker, hinn hol-
lenzki þjálfari Real Madrid, lenti
í kröppum dansi fyrir skömmu. Þjó-
far réðust á hann og konu hans
nálægt heimili hans í Madrid, ógn-
uðu þeim með hnífi og höfðu á brott
með sér armbandsúr þeirra.
■ BORIS Becker hefur lýst því
jrfir að hann muni ekki keppa á
ÓL vegna meiðsla á hægri fæti.
■ NELSON Piquet, heims-
meistari í kappakstri, mun verða
áfram í Lotus-liðinu næsta keppn-
istímabil.
■ MIKE Tyson, heimsmeistari í
hnefaleikum, hefur harðneitað
sögusögnum um að hann hafi ætlað
að fyrirfara sér þegar hann ók bíl
konu sinnar á tré á sunnudag.
„Þetta er fáránlegt. Enginn elskar
lífið jafnheitt og ég,“ sagði Tyson
við blaðamenn. Ljóst er að hann
verður frá keppni fram í desember
að minnsta kosti.
Si.fligf Pðltíl Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Hópur sundmanna ásamt farareljórum og fulltrúum séreambanda lögðu af stað til Seoul á miðvikudag. Ferðalagið er langt og strangt og kemur hópurinn ekki
á áfangastað fyrr en í dag, en Ólympíuleikamir eru settir eftir viku, 17. september. Stæreti hópurinn fer svo frá íslandi þann 11. september.
FRJALSAR IÞROTTIR / SPJOTKAST
Felke með heimsmet
Austur-þýska stúlkan Petra Felke setti í gær nýtt heimsmet í spjót-
kasti kvenna á móti í Austur-Berlín. Hún kastaði 80,00 metra og
bætti eigið met um 1,10 metra.
Petra Felke hefur verið í nokkrum sérflokki í spjótkasti kvenna síðan
1985. Hún setti fyrst heimsmet 1985 er hún kastaði 75,26 metra. Fatima
Whitbread, Bretlandi, náði heimsmetinu af henni 1986 með 77,44 metra,
en Felke náði metinu aftur í júlí í fyrra er hún kastaði 78,90 metra.
Felke, sem er 29 ára, virðist í mjög góðri æfingu og er til alls líkleg
á Ólympíuleikunum í Seoul og hver veit nema að heimsmetið falli þar.
Heimsmet í spjótkasti frá 1981
Hér á eftir fer listi yfir heimsmet kvenna í spjótkasti frá 1981.
71.88 Antoaneta Todorova, Búlgaríu.. 15. ágúst 1981
72.40 Tiina Lillak, Finnlandi 29. júlí 1982
74.20 Sofia Sakorafa, Grikklandi ....26. september 1982
74.76 Tiina Lillak, Finnalandi 13. júní 1983
75.26 Petra Felke, A-Þýskal 4.júní 1985
75.40 Felke 4. júní 1985
77.44 Fatima Whitbread, Englandi.... 28. ágúst 1986
78.90 Felke 29. júlí 1987
80.00 Felke 9. september 1988
Petra Felke setti nýtt heimsmet í
spjótkasti kvenna á móti í Austur-
Berlín í gær.
GOLF
Iþróttir
helgarinnar
Knattspyma, 1. deild
Fimm leikir eru á dagskrá
í 1. deild karla í knattspymu
um helgina. Fjórir í dag og
einn á morgun. í dag mætast
Víkingur-Þór, Völsungur-
Fram, Keflavík-Valur og KA-
Leiftur. Allir leikimir hefjast
kl. 14.00. Á morgun mætast
KR og ÍA kl. 14.00.
2. deild
Fimm leikir eru í 2. deild í
dag og hefjast þeir allir kl.
14.00. Þá mætast Selfoss-
Víðir, ÍR-Fylkir, UBK-Þrótt-
ur, KS-ÍBV og FH-Tindastóll.
3. delld
Úrslitaleikur 3. deildar fer
fram í dag kl. 14.00 á Tungu-
bakkavelli í Mosfellsbæ. Þar
mætast Stjaman úr Garðabæ
og Einheiji frá Vopnafirði.
4. delld
Úrslitaleikur 4. deildar í
knattspymu verður á morgun,
sunnudag, á Sauðárkróki. Þar
eigast við BÍ frá ísafirði og
Austri frá Eskifirði. Leikurinn
hefst kl. 14.00.
HANDBOLTI