Morgunblaðið - 02.12.1988, Blaðsíða 1
120 SIÐUR B/C
277. tbl. 76. árg.
FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988 Prentsmiðja Morgiinblaðsins
Æðsta ráð Sovétríkjanna:
Stjómarskrárbreyt-
ingar samþykktar
Moskvu. Reuter.
UMDEILDAR tillögur til breyt-
inga á stjórnarskrá Sovétríkjanna
voru samþykktar í Æðsta ráðinu
(þjóðþinginu) i gær með yfirgnæf-
andi meirihluta atkvæða hinna
1.500 fulltrúa. Samþykkt var sam-
hljóða að breyta kosningalögum
og leyfa fleiri en einum að bjóða
sig fram til þings. Fimm fulltrúar
frá Lettlandi greiddu atkvæði
gegn mikilvægum þætti tillagn-
anna, sem m.a. kveður á um
tveggja deilda þing en samanlagt
27 fúlltrúar frá Eistlandi og Lithá-
en sátu hjá.
Andstæðingar tillagnanna qttast
að hin nýja þingskipan geti orðið til
að skerða enn frekar sjálfræði ein-
stakra lýðvelda innan Sovétríkjanna.
Það mun vera einsdæmi í sögu
Æðsta ráðsins að fulltrúar greiði
atkvæði gegn Kremlarstjóm í mikil-
vægu máli.
Fyrir atkvæðagreiðsluna voru
gerðar breytingar á upphaflegum
drögum að tillögunum til að koma
til móts við fulltrúa Eystrasaltsland-
anna og Míkafl Gorbatsjov Sovét-
leiðtogi ávarpaði fulltrúana. „Allir
geta treyst því að vandamál þeirra
verða leyst á grundvelli gagnkvæms
skilnings og virðingar," sagði Gorb-
atsjov.
Bandaríkin:
Askorun
SÞ hafiiað
SÞ. Reuter.
BANDARÍKJASTJÓRN hafiiaði í
gær áskorun allsherjarþings Sam-
einuðu þjóðanna um að Banda-
ríkjamenn veittu Yasser Arafat,
leiðtoga PLO, vegabréfsáritun til
að hann geti ávarpað fúnd þings-
ins í New York.
Allsherjarþingið hafði gefið
Bandaríkjamönnum frest til kl. 5 í
morgun að íslenskum tfma til að
breyta þeirri ákvörðun sinni að neita
Arafat um áritun. Talið er að ara-
baríki muni í dag leggja fram tillögu
þess efnis að þingið fundi í Sviss um
málefni Palestínu svo að Arafat geti
sótt fund þess.
T’ASS-fréttastofan sovéska skýrði
frá því að Gorbatsjov hefði átt „hrein-
skilnar viðræður" við forseta Arm-
eníu og Azerbajdzhans að loknum
fundi Æðsta ráðsins og hefðu þeir
náð samkomulagi um leiðir til að
lægja öldumar í deilum þjóðanna
tveggja sem fréttastofan segir hafa
kostað 28 mannslíf síðustu vikur.
Arfastríð
í Frakklandi
JyUands-Posten.
FRANSKUR dómstóll hefiir
verið beðinn um að skera úr
um hvorum beri konungdæm-
ið í Frakklandi ákveði lands-
menn að taka það upp af nýju,
Henri prins af Orleans eða
Alfonso hertoga af Bourbon.
Báðir vilja þeir heita „hertog-
inn af Anjou" og ekki að
ástæðulausu því að Nostrada-
mus spáði því fyrir 400 árum,
að hertoginn af Anjou yrði
konungur Frakklands
skömmu fyrir aldamótin 2000.
Henri er elsti sonur greifans
af París, bamabamabams
Lúðvíks Filippusar, síðasta kon-
ungs Frakka, en faðir hans vill
hann ekki sem krónprins og hef-
ur tilnefnt sonarson sinn í stað-
inn. Á það vill Henri þó ekki
fallast og segir, að pabbi sinn
hafi ekkert með að gera sig arf-
lausan. Alfonso hertogi reisir
kröfu sina á því, að hann til-
heyri hinni svokölluðu lögmætu
grein frönsku konungsættarinn-
Reuter
Fagnandi stuðningsmenn Benazirs Bhuttos 1 Rawaipindi mynda sigurmerkið með fíngrunum skömmu
eftir að Ghulam Ishaq Khan forseti hafði útnefnt Bhutto forsætisráðherra.
Kona skipuð forsætisráðherra í Pakistan:
Valdatöku Benazirs
Bhuttos vel fagnað
Islamabad, Washlngton. Reuter.
GÍFURLEGUR fögnuður braust
út meðal stuðningsmanna Benaz-
irs Bhuttos er Ghulam Ishaq
Khan, forseti Pakistans, útnefiidi
hana forsætisráðherra landsins í
sjónvarpsávarpi til þjóðarinnar í
gær. Khan sagði að Bhutto væri
ung, vel menntuð, heiðarleg og
kynni vel til verka, hefði mikla
leiðtogahæfileika og væri staðráð-
Atlantshafsbandalagið:
Tillaga um evrópskt herfylki
Brussel. Frá Kristófer Má Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins, og Reuter.
Varnarmálaráðherrar Atlants-
hafsbandalagsins (NATO) sam-
þykktu á fúndi hermálanefndar
bandalagsins í gær að vinna að
því öllum árum að kostnaði við
vamirnar yrði skipt í samræmi
við fjárhagslega getu hvers ríkis.
Belgíumenn, Kanadamenn og
Danir vom gagnrýndir fyrir að
ná ekki þeim markmiðum sem
NATO hefði sett þessum ríkjum.
Jafnframt var tekið fram að sum
Pressens Bild
Blóðugátök
íStokkhólmi
Lögreglan i Stokkhólmi handtók
f fyrrinótt nærri 200 manns eft-
ir að til blóðugra átaka kom á
mlUi svonefndra „skalla“ og and-
stæðinga kynþáttamisréttis. í
slagsmálunum höfðu skallarnir
uppi nasísk slagorð og köstuðu
táragassprengjum og púðurkerl-
ingum að hinum hópnum. í
Lundi sló einnig í brýnu með
þessum flokkum og þar urðu 16
lögreglumenn að leita læknis-
hjálpar efftir að hafa skakkað
leikinn. Skallarnir vom að minn-
ast þess, að 270 ár em liðin frá
dauða Karls XII Svíakonungs en
á honum hafa þeir hina me'stu
helgi.
aðildarríkjanna yrðu fyrir miklu
félagslegu álagi vegna vama
bandalagsins, einkum Vestur-
Þjóðveijar, og sagt að erfitt væri
að meta slíkt til Qár.
Á fundinum lögðu Vestur-Þjóð-
veijar fram tillögu um sameiginlegt,
evrópskt herfylki til að styrkja varn-
ir Norður-Evrópu. Líklegt er talið
að Bretar, Hollendingar, Belgar og
Vestur-Þjóðveijar muni standa að
þessu herfylki. Jafnframt er unnið
að því að koma á fót sameiginlegri
herdeild til varna í Norður-Noregi.
Wolfgang Altenburg, hershöfðingi
og formaður hermálanefndar NATO,
sagði á fréttamannafundi að sérs-
takri nefnd yrði falið að meta þessar
tillögur. Þær hefðu einnig verið
kynntar varnarmálaráðherrum
bandalagsins í gærmorgun og hefðu
þeir tekið þeim vel. Altenburg sagði
að líta bæri á tillöguna um evrópskt
herfylki sem viljayfirlýsingu af hálfu
Evrópuríkjanna um aukna ábyrgð á
eigin vömum.
Þorsteinn Ingólfsson, skrifstofu-
stjóri vamarmálaskristofu utanríkis-
ráðuneytisins, sat fund hermála-
nefndarinnar.
in í að þjóna alþýðunni sem hefði
Iyflt henni til valda. Jafiiframt
hvatti forsetinn andstæðinga
Bhuttos til að starfa í anda lýðræð-
is og Bhutto sjálfa til að sýna
stjórnarandstöðunni virðingu. Bað
hann Bhutto að ýta ekki umsvifa-
laust til hliðar öllu sem fyrirrenn-
ari hennar hefði gert en byggja á
þvi sem vel hefði tekist.
Fjöldi fólks í borginni Rawalpindi
og víðar dansaði á götunum,
sprengdi púðurkerlingar og barði
bumbur til að láta í ljós fögnuð sinn
yfir valdatöku Bhuttos sem er aðeins
35 ára gömul og því meðal yngstu
þjóðarleiðtoga í heiminum. Fólkið
hrópaði nafn Bhuttos og veifaði
myndum af henni.
Benazir Bhutto er fyrsta kona sem
nær svo hátt í valdastiganum á síðari
tímum í múslimaríki enda telja marg-
ir strangtrúaðir úr þeirra hópi, einn-
ig í Pakistan, að kona megi ekki
gegna slíkri stöðu. Leita þarf aftur
til 13. aldar til að finna fordæmi
fyrir upphefð Bhuttos en þá náðu
konur tvisvar stjómarforystu í ind-
verskum ríkjum. Telja má fullvíst að
andstæðingar Bhuttos muni reyna
að notfæra sér reynsluleysi hennar
og kynferði til hins ítrasta.
Fyrirrennari Bhuttos í valdasessi
í Pakistan, Zia-ul-Haq, var mikill
vinur Bandaríkjanna og studdi
skæruliða í Afganistan með ráðum
og dáð. Bhutto hefur hins vegar ver-
ið talin höll undir vinstri sjónannið
en í kosningabaráttunni fyrir
skemmstu bar lítið á slíku og margir
stuðningsmanna hennar em hægfara
miðjumenn. Ronald Reagan Banda-
ríkjaforseti óskaði Bhutto í gær til
hamingju með skipanina og sagði
útnefninguna lofa góðu varðandi
framtíð lýðræðis í Pakistan.
Sjá einnig svipmynd á bls.27.