Morgunblaðið - 02.12.1988, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR PÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988
Lovlsa Einarsdóttir.
foém
FOLK
■ LOVÍSA Einarsdóttir, fyrr-
um formaður Fimleikasambands
íslands, mun halda til V-Þýska-
lands eftir áramót. För hennar er
heitið til Kölnar, þar sem hún sest
á skólabekk við íþróttaháskólann í
Köln. Lovísa verður þar í tvo mán-
uði og kynnir sér kennslu í íþróttum
fyrir aldraðra og nútímafimleikum.
■ GÖSTA Zellén, forseti Evr-
ópudeildar alþjóða keilusambands-
ins, er væntanlegur til landsins 8.
desember. Zallén, sem er þekktur
þjálfari - hefur m.a. þjálfarð
sænska keilulandsliðið, mun koma
hingað til að leiðbeina á hinum
ýmslu sviðum keilu. Kennslan fer
fram í Keilusalnum í Öskjuhlíð.
■ NORÐURLANDAMÓTIÐ í
keilu verður að öllum líkindum í
Reykjavík 1984.
■ MARKO Van Basten, hol-
lenski landsliðsmaðurinn, sem leik-
ur með AC Mílanó, er nú staddur
í Amsterdam. Van Basten fór
þangað til að láta skoða ökkla hægri
fótar. Á síðasta keppnistímabili var
Van Basten frá keppni í fimm
mánuði, þar sem hann ökklabrotn-
aði. Hann og Ruud Gullit leika
ekki með AC Milanó um helgina.
■ SOVÉTMAÐURINN Alex-
ander Zavarov hjá Juventus, hef-
ur verið dæmdur í eins leiks keppn-
isbann. Hann var rekinn af leikvelli
um sl. helgi.
■ AGANEFND Knattspyrnu-
sambands Evrópu hefur dæmt
ítalska landsliðsmanninn Virdis
hjá AC Mílanó í þriggja leikja bann
fyrir fólskulegt brot í Evrópuleik.
Virdis gaf mótheija sínum oln-
bogaskot í andlitið. Þá vár AC
Mílanó dæmt í 270 þús. kr. sekt.
KORFUKNATALEIKUR / NBA-DEILDIN
Stórstjöm-
umar skína
Johnson, Barkley og Thomas í stuði
meðfélögumsínum
í leikjum á miðvikudagskvöld í
NBA-deildinni voru þrjár stór-
stjörnur mikið í sviðsljósinu
fyrir góða frammistöðu. Fyrst
ber að geta enn eins frábærs
leiks hjá „Magic" Johnson hjá
Los Angeles Lakers. Eftir erf-
iða ferð um austurhluta Banda-
ríkjanna í síðustu viku spilaði
Lakers nú loks heima.
Seattle Supersonics voru í heim-
sókn í The Forum í Los Ange-
les og náði Lakers 18 stiga forystu
í seinni hálfleik, en með miklu harð-
fylgi tókst Seattle
Gunnar að jafna 106:106
I/algeirsson þegar ein mínúta
skrifar var eft;r f>að sem
eftir lifði leiks var
tvívegis brotið á Johnson hjá La-
kers og hann hitti úr öllum fjórum
vítaskotum sínum og innsiglaði sig-
ur Lakers 110:106. Johnson skoraði
40 stig í leiknum og átti 10 stoð-
sendingar.
í sigurleik Detroit gegn Indiana
skoraði Isiah Thomas 36 stig og
var þetta besti leikur kappans í all-
an vetur. Charles Barkley átti enn
einn stjömuleikinn fyrir Philadelp-
hia. Hann skoraði 41 stig og tók
22 fráköst þegar lið hans vann
Portland 114:106.
Larers vann, tapaði ekki I
Á úrslitasíðu á þriðjudag voru röng
úrslit í leik Los Angeles Lakers og
Philadelphia 76ers. Fréttaskeyti
Rauters sögðu úrsjitin 104:102 fyr-
ir Philadelphia, en rétt úrslit voru
hinsvegar 109:104 fyrir Los Ange-
les eins og greint var frá hér á
íþróttasíðunni í gær.
NBA-úrslit
Boston Celtics - N.J. Nets .133:100
Detroit Pistons - Indiana .114:111
San Antonio Spurs - Miami.... .105:101
Philadelphia - Portland .114:106
Houston Rockets - Dallas ...101:89
Utah Jazz - Chicago Bulls ...107:93
N.Y. Knicks - L.A. Clippers.... .135:128
Los Angeles Lakers - Seattle.. .110:106
KNATTSPYRNA
Hólmbert þjálfar
Keflavíkurliðið
HÓLMBERT Friðjónsson hefur
verið ráðinn þjálfari hjá 1.
deildarliði ÍBK í knattspyrnu.
Hólmbert undirritaði samning-
inn í gær og gildir hann til eins
árs. Hólmbert hefur þjálfað
mörg lið með góðum árangri
en hann hef ur tekið sér f rí frá
þjálfun í tvö ár og var ÍBK
síðasta liðið sem var undir
hans stjórn.
Eg hef ekki mikið um þetta sam-
komulag að segja á þessari
stundu, því margt er óljóst hvað
varðar leikmenn og fleiri þætti. En
það er óneitanlega
Bjöm gaman að vera kom-
Blöndal - inn afturtil
skrifar Keflavíkur og við
ætlum að hefja æf-
ingar þegar í janúar," sagði Hólm-
bert Friðjónsson í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Rúnar Lúðvíksson formaður
knattspymuráðs IBK sagði að
ÍBK-menn væm mjög ánægðir með
að hafa klófest Hólmbert. „Við telj-
um okkur heppna að hafa náð
samningum við Hólmbert miðað við
hvað stutt er til stefnu og hann á
örugglega eftir að gera góða hluti."
Rúnar sagði að enn hefði ekkert
áþreifanlegt gerst í sambandi við
nýja leikmenn, en vitað væri að
nokkrir fyrrverandi liðsmenn IBK
hefðu sýnt áhuga á að koma aftur,
en hefðu viljað bíða eftir niðurstöðu
í þjálfaramálinu. „Ég á því von á
að línur skýrist fljótlega í þessu
máli þannig að við getum einbeitt
okkur að komandi keppnistímabili,"
sagðir Rúnar Lúðvíksson ennfrem-
ur.
Tvær strjörnur úr NBA-delldinni. Hér kyssas „Magic“ Johnson og Isiah
Thomas fyrir leik í úrslitakeppninni í fyrra.
KNATTSPYRNA / HM
Dýrustu miðarnir
á 7000 krónur
Þótt enn megi heita all langt
til lokakeppni HM á Ítalíu
1990, er búiö að ákveða miða-
verð. Er það æði mismun-
andi, allt frá 550 króna miður
og upp i'7000 króna miða,
allt eftir keppnisstað og
leikjavægi.
Alls verða leikimir 52 talsins,
en dýrastir verða miðamir
að sjálfsögðu á sjálfan úrslitaleik-
inn. Það þykir einnig athyglivert,
að í fyrsta skipti í HM-keppni
verður eingöngu selt í sæti. Hver
einasti miðahafi mun eiga tryggt
númerað sæti, misgott sæti, allt
eftir því hversu háa upphæð
viðkmandi reiddi fram. Þessar
tölur em hinar opinbem tölur og
víst er, að svartamarkaðsmiðar
eiga eftir að fara á mun hærra
verði, sérstaklega á leiki í loka-
umferðunum svo og úrslitaleikinn.
GETRAUNIR 1X2
ENGLAND
Ásgeir úr leik
■ Á
sgeir Elíasson, þjálfari Fram,
var með fímm leiki rétta í
síðustu leikviku, en Þorleifur Anan-
íasson var með sex. Ásgeir verður
því að víkja fyrir nýjum keppanda
eftir að hafa verið með í getrauna-
leik Morgunblaðsins í fjórar vikur
- eða allt frá upphafí.
Sæti Ásgeirs tekur Akumesing-
urinn Gunnar Sigurðsson, stjórnar-
maður í KSÍ. Hann hefur lengi
fylgst með ensku knattspymunni
og þekkir vel til þar. Uppáhaldslið
Gunnars er Aston Villa.
Tvöfaldur pottur
Á morgun, laugardag, verður
tvöflaldur pottur hjá íslenkum get-
raunum þar sem fyrsti vinningur
gekk ekki út síðast. Það er tæp
milljón sem flyst á þessa viku. Það
má því búast við að fyrsti vinningur
verði allt að þremur milljónum á
morgun.
ÞORLEIFUR
Leikir 3. desember
Aston Villa — Norwich
Everton — Tottenham
Luton — Newcastle
Millwall — West Ham
Nott. Forest — Middlesbro
Q.P.R. — Coventry
Sheff. Wednesday — Derby
Wimbledon — Southampton
Crystal Palace — Manchester City
Portsmouth — W.B.A.
Stoke — Chelsea
Sunderland — Watford
GUIMIMAR
orleifur Ananíasson sló Ásgeir Elíasson út í
síðustu umferð. Þorleifur var með sex leiki rétta
en Ásgeir fímm. „Þetta er alltaf jafn erfitt. Leikur
Sheffíeld Wednesday og Derby er mjög snúinn. Sheffi-
eld hefur unnið þá leiki sem liðið ætti ekki að vinna
en tapað fyrir lakari liðum. Eg spái því útisigri," sagði
Þorleifur. Hann sagðist vera ánægður með gang mála
í ensku knattspyrnunni og garrian að sjá ríku liðin
fyrir neðan „peðin“. „Ég stend alltaf með lítilmagnan-
um,“ bætti hann við.
Gunnar Sigurðsson, nýkjörinn formaður Knatt-
spyrnufélags ÍA, hefur lengi fylgst með ensku
knattspyrnunni. Hann heldur mest upp á Aston Villa.
„Ég hef haldið lengi með Villa og styð það í gegnum
súrt og sætt. Ég verð að setja heimasigur á Everton
aðallega fyrir son minn, Örn. Einnig verð ég að setja
einn á Sheffield Wednesday fyrir Sigurð Jonsson,"
sagði Gunnar. En hann átti einmitt mikinn þátt í því
á sínum tíma að Sigurður færi til Sheffield Wednesday.
West Ham
mætir
Aston Villa
állpton
LUNDÚNARLIÐIÐ West
Ham fær heimaleik gegn
Aston Villa í 8-liða úrslitum
ensku deildarbikarkeppn-
innar, en dregið var í keppn-
inni í gær í London. Leikur-
inn ferfram á Upton Park
16. janúar. West Ham fór
létt með Liverpool í 16-liða
úrslitunum - 4:1.
Luton fær Southampton í
heimsókn til Hattaborgar-
innar frægu. Bradford eða Ever-
ton leika gegn Bristol City og
fjórði leikurinn verður viðureign
Leicester eða Nottingham For-
est og QPR eða Wimbledon.