Morgunblaðið - 02.12.1988, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988
Þorsteinn Pálsson:
Vextir á bindiskyldu
eru niðurgreiðslur
ÞORSTEINN Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir að sú
ákvörðun Seðlabankans, að greiða 2% vexti á bindiskyldu ban-
kanna, sé aðeins niðurgreiðsla á almennum vöxtum og segi ekk-
ert til um eiginlegt vaxtastig í landinu. Hann segir augljóst, af
þegar boðuðum skattaráðstöfúnum ríkisstjórnarinnar, að verð-
bólga muni aukast verulega í upphafí næsta árs.
Þegar Morgunblaðið leitaði álits
Þorsteins Pálssonar á vaxtalækk-
uninni í gær, sagði hann að vextir
hefðu verið að lækka síðan fyrri
ríkisstjóm greip til efnahagsað-
gerða og verðstöðvunar í lok
ágústmánuðar.
„Þessi breyting er eðlileg afleið-
ing af þeim ráðstöfunum en það
má hins vegar segja, að miðað við
skráða verðbólgu, sem er nánast
engin, séu 12% vextir geysiháir.
En það helgast auðvitað af því,
að engir hafa trú á því að sú verð-
bólga sé raunveruleg, enda aug-
ljóst af þegar boðuðum skattaráð-
stöfunum að verðbólgan eykst
verulega, þegar á næsta ári. Þetta
hefur einnig valdið því að fólk
hefur misst trú á ijármagnsmark-
aðinn. Spamaður virðist vera að
minnka, sala á spariskírteinum
minnkar, sem helgast m.a. af yfír-
lýsingum ríkisstjórnarinnar um
breytta skattastefnu," sagði Þor-
steinn.
Um þá ákvörðun Seðlabankans,
að greiða bönkum 2% vexti á bindi-
skylduna, sagði Þorsteinn að þetta
væri ekki annað en niðurgreiðsla
á almennum vöxtum, og Seðla-
bankinn yrði að meta þörf fyrir
slíkt á hveijum tíma. „En þetta
er skammtímaráðstöfun og segir
ekkert um hið eiginlega vaxtastig
í landinu," sagði Þorsteinn Páls-
son.
Iðnfyrirtæki og SIS
fá að taka erlend lán
IÐNFYRIRTÆKI, Sambandið
og fyrirtæki þess, hafa undan-
farið fengið heimildir fyrir er-
lendum lántökum til Qárhags-
legrar endurskipulagningar.
Viðskiptaráðuneytið hefúr ekki
viljað upplýsa Morgunblaðið um
heildarupphæð þessara lána.
Síðasta ríkistjóm samþykkti sl.
vor að veita fyrirtækjum í sam-
keppnis- og útflutningsgreinum
heimildir til erlendrar lántöku,
samanlagt 1 milljarð króna. Var
Löggæsla í Árbæ
Sólarhrings-
vaktir liðin tíð
Sólarhringsvaktir í Árbæjarstöð
Reykjavíkurlögreglunnar heyra
nú sögunni til. Frá mánaðarmót-
um eru einungis vaktir þar frá
morgni til klukkan 19 síðdegis.
Að sögn Böðvars Bragasonar
tengist þessi ákvörðun þröngum
fjárlagaramma embættisins.
Verður rekstur stöðvarinnar fyrst
um sinn með sama móti á nýop-
naðri stöð í Mosfellsbæ.
ÁTVR hefur lagt lögreglunni til
húsnæði fyrir Árbæjarstöð og hafa
lögreglumenn þar komið í stað næt-
urvarða og vaktmanna við lóð og
birgðageymslu ÁTVR á Stuðlahálsi.
Böðvar Bragason lögreglustjóri sagði
í samtali við Morgunblaðið að _í við-
ræðum hefðu forsvarsmenn ÁTVR
lýst áhuga á að taka það fyrirkomu-
lag til endurskoðunar á næsta ári.
lántökuheimildunum úthlutað eftir
tillögum banka og komu lánin að
langmestu leyti í hlut sjávarút-
vegsfyrirtækja. Viðskiptaráðherra
lýsti því síðan yfír að hann myndi
skoða sérstaklega lántökubeiðnir
iðnfyrirtækja út frá stöðu hvers
fyrirtækis fyrir sig.
Jón Sigurðsson viðskipta- og
iðnaðarráðherra sagði við Morg-
unblaðið að undanfarið hefðu iðn-
fyrirtæki, og önnur fyrirtæki í
útflutningsstarfsemi, þar á meðal
sjávarútvegsfyrirtæki, fengið lán-
tökuheimildir til íjárhagslegrar
endurskipulagningar. Þá hafí
einnig fyrirtæki í fjölbreyttri at-
vinnustarfsemi, sem skiptu miklu
máli fyrir atvinnulífíð í heilum
byggðarlögum, fengið lántöku-
heimildir. Jón staðfesti að Sam-
bandið og ýmis kaupfélagsfyrir-
tæki væru með talsvert stóran
hluta af heildarupphæðinni en vildi
ekki nefna tölur.
Jón sagði að þegar litið væri á
erlendar lántökuheimildir í heild,
þá væru lán til fjárhagslegrar end-
urskipulagningar sennilega minni
á þessu ári en þvi síðasta. „En
innan þeirra lægri marka fyrir
heimildir til erlendrar lántöku, sem
ég hef verið að reyna að halda
mér við, hef ég beint fénu. aðþessu
frekar en til fjárfestingar. Eg tel
það miklu skynsamlegra að búa
sínu búi með eðlilegu móti, frekar
en að auka við atvinnutæki sem
þegar er nóg til af,“ sagði Jón
Sigurðsson.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Endurvakinn var sá siður að
leggja blómsveig frá stúdentum
á leiði Jóns Sigurðssonar forseta
í kirkjugarðinum við Suðurgötu.
Sveinn Andri Sveinsson, formað-
ur SHÍ, lagði blómsveiginn á leið-
ið, en Sigurður Lindal, lagapróf-
essor og forseti Hins islenska
bókmenntafélags, minntist Jóns
og verka hans í þágu sjálfstæðis-
baráttu þjóðarinnar. Á innfeUdu
myndinni flytur Sveinn Andri
setningarávarp sitt á fúllveldis-
hátíðinni.
Morgunblaðið/Sverrir
Formaður SHÍ í fiillveldisdagsávarpi:
Aðfarir stjórnvalda
að flárhag Háskól-
ans hans mesti vandi
SVEINN Andri Sveinsson, for-
maður Stúdentaráðs Háskóla
Islands, sagði i ávarpi sínu við
setningu fúllveldishátíðar stúd-
enta, að reglulegar aðfarir
stjórnvalda að fjárhag Háskóla
Islands væru mesti vandi skól-
ans, og skertu frelsi hans.
„Ár eftir ár eru framlög til skól-
ans skert og ár eftir ár er skólan-
um gert að afla sér meiri eigin
tekna en áður. Og ár eftir ár eru
þessar sértekjur notaðar sem rök-
semd til þess að minnka framlögin
enn meira en áður," sagði Sveinn
Andri.
„Þessi lítt skemmtilega þróun
er mesti vandi Háskóla íslands um
þessar mundir, því frelsi hans er
með þessu skert. Honum er haldið
í heljargreipum fjársveltis. Hús-
næðis- og aðstöðuleysi háir öllu
háskólastarfí í dag, þannig að bitn-
ar bæði á kennslu, námi og rann-
sóknum. Stjómvöld verða að gera
sér grein fyrir því að það er ekki
nóg að tala vel um Háskóla ís-
lands á hátíðarstundu sem þess-
ari, orðum verða að fylgja athafn-
ir.“
Fjármálaráðuneytið:
Dráttarvextir á skattskuld-
ir voru reiknaðir út eftir á
Breytingin ekki auglýst sérstaklega
Fjármálaráðuneytið hefúr
breytt reglum um dráttarvexti
af vangoldnum þinggjöldum i
samræmi við það ákvæði í
bráðabirgðalögum ríkisstjórn-
arinnar að dráttarvextir reikn-
ist sem dagvextir. Dráttarvext-
irnir voru nú reiknaðir eftirá
af skattskuldum nóvembermán-
aðar, og þeir sem greiddu slíka
skuld í gær, 1. desember, fengu
dráttarvexti á alla upphæðina.
Þessi breyting var ekki tilkynnt
sérstaklega og kom því þessum
greiðendum mjög á óvart, ög
voru dæmi til þess að menn
neituðu að greiða skattskuldirn-
ar vegna dráttarvaxtanna.
Lárus Ögmundsson deildarstjóri
í fjármálaráðuneyti sagði að áður
hefðu dráttarvextir verið reiknaðir
fyrirfram fyrir hvern hafinn mán-
uð, en vegna dagvaxtakerfisins
hefðu engir dráttarvextir verið
reiknaðir í byijun nóvember. í
nóvemberlok hefðu dráttarvextir
síðan verið reiknaðir út fyrir nóv-
embermánuð.
Fram að þessu hafa dráttar-
vextir ekki verið reiknaðir fyrr en
3-4. hvers mánaðar, þannig þeir
þeir sem greitt hafa skattskuldir
1.-2. hvers mánaðar hafa sloppið
við dráttarvexti. Nú voru dráttar-
vextirnir hins vegar reiknaðir að
kvöldi- 30. nóvember og þeir sem
komu í gær til að greiða skatta
nóvembermánaðar fengu á þá
fulla dráttarvexti.
Lárus sagði að ef reglum væri
fylgt bókstaflega ætti að reikna
dráttarvexti á hvern einasta dag
sem dregst að greiða þinggjöldin,
en Qármálaráðuneytið hefði ekki
verið viðbúið breytingunni að
þessu sinni, og því hefði það ekki
verið gert, hvað sem síðar yrði.
Engar breytingar hefðu hins vegar
verið gerðar á dráttarvöxtum á
söluskatti og útsvari, þar sem
lagaheimildir væru fyrir að reikna
þá fyrirfram.
Fimmmamiaiiefiid:
Vinnslu- og
heildsölu-
kostnaður
hækkar ekki
FIMMMANNANEFND haöiaði
kröfú fúlltrúa sláturleyfíshafa
um hækkun heildsölukostnaðar
sauðfjárafúrða við verðlagning-
una núna um mánaðarmótin.
Nefndin heimilaði 0,8% hækkun
vinnslu- og dreifíngarkostnaðar
mjólkurvara en fúlltrúar samlag-
anna fóru fram á 3,24% hækkun.
Sexmannanefnd ákvað 2,16%
hækkun kjöts og sláturs til bænda
við verðlagninguna nú um mánað-
armótin. Vegna breytinga á verð-
lagningu í haust er þessi ákvörðun
aðeins uppfærsla á pappírunum því
bændur fengu verðið hækkað í
haust gegn því að sleppa ársfjórð-
ungslegum hækkunum. Bændur fá
því ekki hærri greiðslur þó verðlags-
grundvöllurinn hafi verið uppreikn-
aður. Fulltrúar afurðastöðvanna í
fímmmannanefnd lögðu til að slát-
ur- og heildsölukostnaðurinn yrði
hækkaður úr 115 í 119 krónur á
kíló en tillagan var felld af fulltrú-
um neytenda og verðiagsstjóra sem
er oddamaður í nefndinni.
Vegna ákvörðunar ríkisstjórnar-
innar um að hækka niðurgreiðslur
leiða þessar verðákvarðanir verð-
lagsnefnda landbúnaðarins ekki til
hækkunar útsöluverðs búvara.
Helg-i Þór Jóns-
son gjaldþrota:
Skuldir um-
fram eignir
200 millj.
HELGI Þór Jónsson hefúr
verið úrskurðaður jgald-
þrota í skiptarétti Arnes-
sýslu. Að sögn Sigurðar Jóns-
sonar, fúlltrúa sýslumanns
Arnessýslu, er ljóst að skuld-
ir Helga eru meira en 200
milljónir króna umfram
eignir.
Að Hótel Örk frátöldu, en
nauðungarsala þess til Fram-
kvæmdasjóðs sætir nú kæru-
meðferð til Hæstaréttar, eru
helstu eignir sem Helgi Þór
hefur gefíð upp: 10 milljón
króna óþinglýst skuldabréf, út-
gefíð af Hótel Örk h/f og með
veði í lausafé Hótels Arkar; 499
þúsund króna, eða 49,9%, hlut-
afjáreign í Hótel Örk h/f;
óbyggð lóð, Breiðamörk lb í
Hveragerði metin á 20-30 millj-
ónir, en veðsett fyrir 7 milljón-
ir; hlutaeign í bújörð á Suður-
landi, metin á 5-600 þúsund
og tveir fólksbílar, Lada og
Volvo. Einnig leigusamningur
við Hótel Örk h/f, þar sem
kveðið er á um að leiga sé 10%
af nettó hagnaði.
Kröfur skipta tugum. Af al-
mennum kröfum má nefna 6,5
milljóna kröfu frá Gjaldheimt-
unni og 4 milljóna dómkröfu
frá Iðnaðarbankanum. Einnig
hefur verið lýst kröfu vegna
söluskattsskuldar.
Þá voru veðskuldir Hótels
Arkar um 305 milljónir króna.
Verði kæru Hótels Arkar h/f
til Hæstaréttar hafnað, verður
gengið að um 200 milljóna
króna tilboði Framkvæmda-
sjóðs en hæsta tilboðið, tilboð
Hótels Arkar h/f, hljóðaði upp
á 230 milljónir króna.
Bústjóri hefur ekki verið
skipaður en að sögn Sigurðar
Jónssonar er þess að vænta
fljótlega.