Morgunblaðið - 02.12.1988, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988
Sauðfjárafurðir:
Sláturleyfishafar
greiða 7 5% innleggs
Fullnaðaruppgjör um miðjan mán-
uðinn, segir landbúnaðarráðherra
SLÁTURLEYFISHAFAR hafa nú fengið afurðalán fyrir um 67% af
framleiðslukostnaði innlagðra sauðQárafnrða í haust. Gunnar Guð-
bjartsson starfsmaður Landssambands sláturleyfíshafa telur að slát-
urleyfishafarnir reyni í framhaldi af þessu að greiða sauðfjárbænd-
um inn á innlegg þeirra og sagði að stjórn samtakanna mælti með
að greidd verði 75% innleggsins.
Frumgreiðslu sauðfjárafurða
áttu bændur að fá 15. október og
hefur oftast verið miðað við að hún
væri 75% innleggsins en loka-
greiðsluna eiga þeir að fá fyrir 15.
desember. Almennt greiddu slátur-
leyfishafar talsvert innan við helm-
ing afurðanna í október og eru
bændumir því að fá frumgreiðsluna
nú. Gunnar Guðbjartsson telur að
75% innleggsins verði vaxtafært frá
15. október þó bændumir fengju
peningana ekki fyrr en nú.
Steingrímur J. Sigfússon land-
búnaðarráðherra segir að búið sé
að ryðja þeim hindrunum úr vegi
sem tafíð hafa uppgjör við bændur
og ætti að vera tryggt að þeir
fengju að fullu uppgert um miðjan
mánuðinn í'Samræmi við búvörulög-
in. Hann segir að vandinn vegna
fjármögnunar gömlu birgðanna
hefði verið leystur með því að Seðla-
bankinn veitti þeim viðskiptabönk-
um sem veittu afurðalán í land-
búnaði tímabundna fyrirgreiðslu til
að standa undir þeim. Bankamir
myndu hækka afurðalán sín um
miðjan desember og þá myndi ríkið
veita svokallað staðgreiðslulán.
Gunnar Guðbjartsson segir að
enn séu óleyst vandamál sem skertu
greiðslugetu sláturleyfíshafanna.
Ogreitt væri vaxta- og geymslu-
gjald að flárhæð 130-140 milljónir
og útflutningsbætur að fjárhæð 125
milljónir kr. Þessi mál sagði hann
að snem bæði beint að ríkinu. Hann
sagði að full afurðalán og stað-
greiðslulán ríkisins fengjust ekki
fyrr en fyrir skýrlur um framleiðsl-
una væm tilbúnar, þannig að ljóst
væri hvað mikil framleiðsla væri
innan fullvirðisréttar. Illa gengi að
safna upplýsum um framleiðslu ein-
stakra bænda frá sumum slátur-
leyfíshöfum, en vonast væri til að
verkinu lyki fyrir miðjan mánuð,
þannig að bændur fengju peninga
sína.
VEÐURHORFUR í DAG, 2. DESEMBER
1988
YFIRLIT f GÆR: Yfir Skandinavíu er 1.022 mb hæð en yfir Noröur-
Grænlandi er 960 mb lægö á leið norð-austur. Á suö-vestanverðu
Grænlandshafi er 980 mb lægð, sem þokast aust-norð-austur.
Dálltið kólnar í veðri en áfram veröur frostiaust um allt land.
SPÁ: Suð-vestanátt, kaldi eða stinningskaldí. Slydduél suðvestan-
og vestanlands, en úrkomulaust í öðrum landshlutum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg suðlæg ótt á Norður- og Vestur-
landi með snjó- eða slydduóljum um landið vestan-vert, en austan-
og norð-austanótt á Suö-austurlandi með skúrum. Hiti 0-6 stig.
HORFUR A SUNNUDAG: Norö-austlæg átt og kóinandi veður með
éljagangi norðanlands. Slydda á Austurlandi en að mestu þurrt á
Suður- og Vesturlandi.
•D-
V: x Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind-
Heiðskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður
Léttskýjað er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning
Hálfskýjað / r /
Skýjað * / * / * / * Slydda / * /
Alskýjað # * * * * * * Snjókoma
•| 0' Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’, > Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
[T Þrumuveður
xm, VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 9 skýjað Reykjavík S léttskýjaft
Bergen +1 hálfskýjað
Helsinki +11 heiðskírt
Kaupmannah. +1 snjókoma
Narssarssuaq 1 rigning
Nuuk 4 snjókoma
Osló +11 léttskýjað
Stokkhólmur +10 léttskýjað
Þórshöfn 6 skýjað
Algarve 18 skýjað
Amsterdam 0 súld
Barcelona 15 láttsýjað
Chicago 2 alskýjað
Feneyjar 8 rigning
Frankfurt 11 skýjað
Glasgow S skýjað
Hamborg +2 snjókoma
Las Palmas 21 alskýjað
London 7 mistur
Los Angelos 12 heiðskfrt
Lúxemborg 7 þokumóða
Madríd 11 skýjað
Malaga 18 léttskýjað
Maliorca 15 skýjað
Montreal 3 skýjað
New York 6 léttskýjað
Parfs 9 skýjað
Róm 17 alskýjað
San Diego 9 heiðskírt
Winnipeg +9 hálfskýjað
Morgunblaðið/Kári Jónsson
Vegaskemmdir á Gerðhamradal eftir vatnavexti í síðustu viku.
Dýrafjörður:
Skemmdir á „Sands-
vegi“ vegna vatnavaxta
Núpi, Dýrafirði.
MIKLIR vatnavextir ollu stór-
skemmdum á veginum út á Ingj-
aldssand. Rofnaði vegurinn með
öllu á þremur stöðum á um 150
metra kafla.
Mikil hlýindi voru alla síðustu
viku eftir nokkurt frost. Þetta hefur
valdið því að flestir malarvegir á
Vestflörðum hafa verið’ þungfærir
vegna aurbleytu og með þungatak-
mörkunum seinnipart vikunnar, allt
niður í tvö tonn. Síðan bætti ekki
úr mikil úrkoma fimmtudag og
fostudag, sem ollu asahláku í Dýra-
fírði.
Ræsi í veginum upp á Sands-
heiði, um miðjan Gerðhamradal,
stíflaðist og rann vatn yfír veginn
á um 150 metra kafla. Um hádegis-
bil á föstudag var vatnsflaumurinn
hvað mestur og rofnaði þá vegurinn
á þremur stöðum. Þá hafði verið
reynt að opna ræsið með lítilli vél-
gröfu en hún var frá að hverfa
vegna vatnsflaums. í þann mund
er vegurinn brast voru vegfarendur
að búa sig til yfírferðar. Má telja
mildi að þeir voru ekki augnabliki
fyrr á ferðinni.
Á laugardag var síðan hægt að
heijast handa við viðgerð á veginum
með stórvirkum vinnuvélum.
- Kárí
Félagsmálaráðuneytið um
oddvitadeiluna á Skagaströnd:
Oddvitinn kosinn
út kjörtímabilið
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur látið það álit í ljós að oddvita-
kjör í Höfðahreppi (Skagaströnd) skuli næst fara fram eftir næstu
hreppsnefhdarkosningar. Nýr meirihluti sem myndaður var fyrr á
þessu ári taldi að oddvitinn sem kosinn var til fjögurra ára eftir
síðustu kosningar skyldi víkja þannig að þeir fengju að kjósa nýjan
en oddvitinn neitaði og var þvi leitað úrskurðar félagsmálaráðuneyt-
isins.
Eftir síðustu hreppsnefndarkosn-
ingar stóðu fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins, sem eru tveir, og fulltrúi
Alþýðuflokksins saman að kosning-
um í nefndir og áhrifastöður og var
Adolf J. Bemdsen efsti maður á
lista Sjálfstæðisflokksins kjörinn
oddviti til fjögurra ára. Fyrr á þessu
ári slitnaði upp úr samvinnu þess-
ara manna og myndaði fulltrúi Al-
þýðuflokksins formlegan meirihluta
með fulltrúum Alþýðubandalags og
Framsóknarflokks. Adolf varð ekki
við kröfu nýja meirihlutans um að
segja af sér þannig að hægt væri
að kjósa nýjan oddvita. Vitnaði nýi
meirihlutinn m.a. í breytingar sem
orðið hafa á sveitarstjómarlögum
og samþykktum sveitarfélagsins
þar sem kveðið er á um að oddviti
skuli kosinn árlega.
Ágreiningnum var skotið til fé-
lagsmálaráðuneytisins sem nýlega
lét það álit í Ijósi, samkvæmt upp-
lýsingum Berglindar Ásgeirsdóttur
ráðuneytisstjóra, að kjör oddvitans
hafí farið fram samkvæmt gömlu
lögunum og gilti' út kjörtímabil
hreppsnefndarmannanna.
A hreppsnefndarfundi þar sem
álit ráðuneytisins var kynnt létu
fulltrúar meirihlutans bóka að þeir
gætu ekki litið á núverandi oddvita
sem fulltrúa sveitarfélagsins út á
við en Adolf sagðist hafa samþykkt
þeirra að engfu.
Rækjuskipið
Hersir til sölu
Rækjuskipið Hersir HF 227 hef-
ur nú verið auglýst til sölu. Skip-
ið er búið til frystingar um borð.
Sigurður Bjömsson, fram-
kvæmdastjóri íslenzkra matvæla og
einn eigenda skipsins, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að ástæða
sölunnar væri erfiður rekstur.
Rækjuafli á togtíma hefði farið
minnkandi undanfarin ár, rækjuafli
í ár hefði verið minni en heimilt
hefði verið og fyrirsjáanlegur sam-
dráttur á næsta ár. Rekstur skips-
ins væri ekki í neinum beinum
tengslum við. fyrirtækið og vafa-
laust gengi betur að reka það, væri
það til dæmis í eigu rækjuverk-
smiðju.
Hersir hét áður Hafrenningur og
er tæp 300 tonn. Hann var byggður
í Danmörku 1976, fluttur inn 1980
og yfirbyggður sama ár.