Morgunblaðið - 02.12.1988, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988
17
EITT ATRIÐI
í KVIKMYND
eftir Jakob Jónsson
Mér skilst á blöðunum, að eitt-
hvað sé rætt meðal almennings um
kvikmyndina, „Síðustu freistingu
Krists." Sjálfur hefi ég ekki tæki-
færi til að sjá myndina, en mér
skilst, að allur söguþráður sé annar
en fram kemur í biblíunni, enda
vilji sumir banna sýninguna.
Við Islendingar erum alltaf treg-
ir til að banna myndir, bækur eða
annað, sem lýtur að tjáningarfrelsi.
En spyija má, hvað helst sé athuga-
vert við mynd sem þessa. Eg ætla
mér ekki að dæma um myndina sem
heild, en eitt atriði get ég ijallað
lim af því, að því hefir verið lýst í
ijölmiðlum. Hér á ég við, að sýndar
eru samfarir Jesú og Maríu Magda-
lenu. Það á að vísu að vera draum-
ur, en á skjánum sést ekki munur
á veruleikanum og ímyndun
draumsins. Mér er spum: Hvar eru
forsendur fyrir slíku atriði í kvik-
mynd?
I nýja testamentinu er þess get-
ið, að Jesús hafi orðið fyrir freist-
ingunni. I byrjun starfstíma síns
er honum ögrað af myrkraveru á
eyðimörkinni og í lokin berst hann
harðri baráttu í Getsemanegarðin-
um. En hinn ókunni höfundur
Hebreabréfsins segir, að hans hafi
verið „freistað á allan hátt, eins og
vor, án syndar." (Hebr.4,15.) Þær
freistingar, sem guðspjöllin geta
um, standa allar í sambandi við
opinbera köllun hans og starf, en
hvergi er lýst þeim prófraunum,
sem áttu sér stað í einkalífi hans
sérstaklega. Sjálfsagt er þó heimilt
að álykta, að einnig þar hafi hann
orðið fyrir freistingum. Munurinn á
honum og okkur, er þá sá, að hann
fær ávallt og alstaðar staðist. En
hvaða leið velur höfundur eða höf-
undar til að lýsa freistingum Jesú?
Getur ekki túlkunin sem slík falið
eitthvað í sér, sem er niðurlæging
fyrir hann og særir þá, sem trúa á
hann?
Athugum það ofurlítið nánar.
Tökum dæmi úr menningarsög-
unni til samanburðar. Grískir sjón-
leikir gátu verið grófir, en þeir
stjómuðust þó yfirleitt af glaðværð
náttúrubarnsins og þó nokkurri
hófsemi. En leiklistin barst yfir til
Rómar og varð smám saman svæsn-
ari. Það þurfti meiri og meiri
spennu, uns ekki nægði minna en
manndráp með óteljandi aðförum.
Jafnvel prúðar hofróður gátu
skemmt sér við þetta. Fólk var orð-
ið leitt á leikjum, leitt á fáguðum
íþróttum. Það þurfti eitthvað, sem
gekk fram af mönnum. Söguna
þarf ekki að segja lengra.
Beinum nú athyglinni að nútím-
anum. Allir vita, að börn, sem alast
upp í sveit, fylgjast með því af viss-
um spenningi, þegar húsdýrin eðla
sig. Smám saman verður slíkt þó
harla hversdagslegt og veldur ekki
meiri spennu en gróðurinn og veð-
urfarið. En samruni kynjanna held-
ur þó oft og tíðum að vekja meira
gaman, þegar mannfólkið á I hlut.
Það sést t.d. af fjölda vísna, sem
skáldin hafa kveðið um kynlíf, og
nefndar eru klámvísur. Áður fyr var
gert ráð fyrir því, að slík fræði
voru fremur stunduð af takmörkuð-
um hópi manna, en með tímanum
efldust þau að mun og komu fram
í dagsljósið. Austurrískur vísinda-
maður, Sigmund Freud, gerði mikið
úr gildi kynhvatarinnar fyrir and-
legan vöxt og viðgang mannsins,
Höföar til
„fólksíöllum
starfsgreinum!
Dr. Jakob Jónsson
og sumir fylgjendur hans virtust
sjá kynhvötina í flestu ef ekki öllu,
sem samið væri, ort og mótað. Til
dæmis um ákefðina mætti kannske
nefna allan þann fjölda sjónvarps-
mynda og kvikmynda þar sem sam-
farir karla og kvenna þykja ómiss-
andi krydd í grautinn. Það er orðið
svo mikið um kynlífsmyndir í um-
ferð, að þær eru að verða hvers-
dagslegar. Þær eru enginn vitnis-
burður um „dirfsku", heldur stein-
dauða hugsanaleti og andlega
þreytu. Sama er í rauninni að segja
um allan þorra glæpamynda, sem
þó hljóta að kosta þjóðina dijúgan
skilding. Mig grunar, að hér sé
ekki um ísland eitt að ræða, heldur
sé heimsmarkaðurinn senn mettað-
ur af kynlífsmyndum. En þá erum
við líkt staddir og Rómveijar forð-
um. Það þarf að fínna eitthvað, sem
gengur fram af fólki. Þeir, sem nú
eru orðnir' þreyttir á samförum
venjulegs fólks, verða ekki ánægðir
nema þeir fái að sjá hvílubrögð
manns, sem í vitund milljóna manna
er gæddur guðdómleika til orðs og
æðis. Hvort það á að vera draumur
eða veruleiki, skiptir ekki máli. Það
er undir öllum kringumstæðum
sýnileg mynd á skjánum.
Það var sú tíð, að skáld og mynd-
snillingar gátu fundið aðrar leiðir
til að láta í ljós ást heldur en hold-
legar samfarir — en svo virðist nú
sem ekkert annað sé tekið gilt.
Vera má, að skáld og kvikmynda-
menn framtíðarinnar skyggnist
dýpra í mannlegt eðli.
Eg hefí aðeins rætt eitt atriði
hinnar umdeildu myndar, en það
gefur nægilegt tilefni til að spurt
sé: Hví er myndin sýnd?
Höfundur er fyrrverandi sóknar-
prestur og doktor í guðfræði.
FANNY-Fi
Litur: Svart rúskinn
Stærðir: 28-34
Verð: 1.590,-
HiLDA-J(C)
Rúskinn
Stærðir: 31-35
Verð: 1.690,-
HARHGLD-J
Litur: Svart lakk
Stærðir: 31-36
Verð: 1.690,-
RANK XEROX
SÝNING
dagana 12. og 3. desember
aö Nýbýlavegi 16, Kópavogi.
★ Ljósritunavélar
★ Telefaxtæki
★ Teikningavélar
RANK XEROX
TILBOÐSVERÐ
Ljósritunarvélar teg. 1012/1038
Telefaxtæki teg. 7010/7020
Teikningavél teg. 2510
Nú er tækifærió aó komast yfir
góóan grip á hagstæóu verói.
Opnunartími er frá kl. 10.00 til kl. 18.00 alla dagana.
GÍSLI J. JOHNSEN
Nýbýlavegi 16, Kópavogi
n i
Sími 641222
RANK XEROX
Traust samvinna
Litur: Svart m/grænu
Verð: 1.885,-
Litur: Svart leður
Verð: 2.245,-
Litur: Svart lakk
Stærðir: 24-32
Verð: 1.690,-
ELODíE-FI
Litur: Svart lakk
Stærðir: 28-34
Verð: 1.590,-
HONORE-J
Litur: Rautt leður
Stærðir: 31-35
Verð: 1.690,-
JACYNTH-riíCi
Litir: Svart, grænt
Stærðir: 31-36
Verð: 1.885,-
Barnaskór
Jólaskómir em komnir.
Smáskór er eina versl-
unin á íslandi sem sel-
ur eingöngu barnaskó.
Verslunin er nýflutt
Skólavörðustígsmegin
smáskór
Skólavörðustíg 6
sérvers/un me<t barnaskó