Morgunblaðið - 02.12.1988, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988
Veldu Kópal
með gljáa við hæfí.
suuatchn
Nýju Swatch úrin eru
mætt - stundvíslega.
Lílum á eill þeirra.
„ Svarti Haukurinn “
er með swatch-Quartz
úrverkið í högg- og
vatnsþáttri umgerð
úr IgÆÐASTÁ
Stóra tölustafi
SJÁLFLÝSANDt
ggö'
ÚRSMIÐIR
Skólavörðustíg 3. Sími: 11133
vísa og úrskílu.
Ólin er úr besta
I KÁLFSKINNI |--------
, Svartl Haukurinn “
hefur á sér svipmót
fimmta áratugarins
en undir niðri leynist
hátækni nútímans.
Við sendum öll úr í
póstkröfu, árs ábyrgð.
VJterkurog
KJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Úti undir vegg í smáþorpinu Salamanza á Sáo Vicente. Ekkert er
við að vera fyrir þá sem ekki eru á sjó, þeir sitjá bara saman í
hnapp og bíða.
Löndun á túnfiski i Mindelo. Þessi fiskur er mjög stór hluti þess
fisks sem fluttur er út frá eyjunum. Vertíðin er ekki nema 3 mánuðir
á ári og útgerð því óhagkvæm.
Á Grænhöfðaeyjum:
Mikil misskiptíng á
þessa heims gæðum
Eyjan Sal er eins og eyðimörk þar sem örfáar hríslur beijast fyrir
lífínu.
Því meira sem ég ferðast um
eyjar þær sem kenndar eru við hinn
græna höfða á vesturströnd Afríku,
því betur verður mér ljós munurinn
á milli þeirra. Hann er ekki skrýtinn
þar eð mörg hundruð kílómetrar eru
á milli fjarlægustu eyjanna og fyrr
á tímum voru samgöngur lélegar.
Hann hefur haft ýmsar alvarlegar
afleiðingar, fyrst og fremst ríg á
milli eyja. Sérlega metast eyja-
skeggjar í norðri við þá í suðri. Að
mörgu leyti minnir þetta mig á ríg
sem var á milli Reykjavíkur og
Akureyrar þegar ég var barn, þessi
er bara sínu harðari.
Bærinn Mindelo, þar sem er aðal
íslendinganýlenda eyjanna, var til
skamms tíma ema eiginlega hafnar-
borg eyjanna. I höfnina þar komu
dallar frá öllum helstu siglingaþjóð-
um heims á leiðinni suður fyrir
Afríku. Þó að þessar heimsóknir
hafi minnkað mikið með opnun
Súesskurðarins eimir enn eftir af
fomri frægð. Það var til dæmis
tíguleg sjón á dögunum þegar inn
kom bandarísk snekkja undir bresk-
um fána. Kostnaðurinn við hana
nemur eitthvað kringum saman-
lögðum fjárlögum eyjanna héma.
Það hefur einnig sett svip sinn á
bæinn að undanfömu að rúmenskur
togari lá í slipp og voru þurrbrjósta
skipveijar iðnir við að raska næt-
urró bæjarbúa.
Þurr og blásin
Mindelo er á eyjunni Sáo Vicente
sem er ein af hinum svonefndu vind-
eyjum. Þær mynda norðurhluta
Grænhöfðaeyja og hafa hlotið nafn
sitt af því að þar er nær alltaf rok.
Sáo Vicente ber þess mikil merki.
Alla daga blæs sandi og örfínu ryki
fram og til baka og endar úti á
hafi. Jarðvegur er nær enginn og
því lítið hægt að rækta. Ekki bætir
úr skák að varla hefur rignt þarna
í 20 ár, þó að margar af hinum
eyjunum hafi fengið ríkulega úr-
komu í ár og í fyrra. Beiskir menn
í Mindelo segja að rigningin fari,
eins og allt annað, suður til höfuð-
borgarinnar, Praia.
Þar eð vonlítíð er að stunda nokk-
um landbúnað á Sáo Vicente er lífið
fískur, eins og víða í sjávarplássum
á íslandi. í litlu þorpunum við
ströndina eru bömin svöng ef illa
veiðist og hinir fullorðnu stara
vondaprir í gaupnir sér. Léleg veiði
er ekki lítilli sókn að kenna. Róið
er á hverjum degi sem guð gefur,
þó að brimið sé stundum svo mikið
að erfitt er að koma bátunum út
og enn erfíðara fullhlöðnum inn
aftur. Bátamir eru litlir og oft vél-
arlausir. Veitt er á handfæri og
gamlir sjómenn hafa rák í lófa sér
sem færið hefur grafíð í áranna
rás. Handfærarúllur eru óþekktar.
Allt er undir því komið að hafa
heppnina með sér og mánaðarlaun-
in geta verið frá 1.500 krónum
íslenskum og allt upp í 7 þúsund.
Ekki mikið til að sjá fyrir stórum
fjölskyldum. Konurnar eru oftast
atvinnulausar, fyrir utan þær fáu
sem hafa atvinnu af að ganga með
fiskinn á höfðinu í upp undir hálfan
annan klukkutíma til að selja hann
síðan á markaðnum í Mindelo.
Grænni en grænt
Miðað við Sáo Vicente er eyjan
Santiago eins og paradís. I ár hefur
rignt mikið, og það sem meira er,
rigningin hefur fallið mjúklega. Þau
miklu flóð sem oft hafa orðið, með
gífurlegri eyðingu jarðvegs, hafa
því ekki komið. Eyjan var í sept-
emberlok þegar ég heimsótti hana
iðjagræn milli fjalls og fjöru. Ýkju-
laust. Maisinn óx um allt, meira að
segja á snarbröttum sillum utan í
fjöilunum. Pálmar bærðust í hlýjum
og blíðum vindinum og bognuðu af
kókoshnetum, banönum, papaja og
öðru góðgæti. Erfítt var að ímynda
sér að fyrir aðeins tveim árum hafí
eyjan verið jafn þurr og Sáo Vic-
ente og fólk flúið þaðan unnvörpum
frá hungrinu. Margt af þessu fólki
kemur líklega aldrei til baka.
En þrátt fyrir gróðurinn á eyjan
eina eign enn dýrmætari. Það er
höfuðborgin Praia. Mér er sagt að
við stofnun lýðveldisins árið 1975
hafi næstum ekkert verið af neinu
tagi þar sem borgin er núna. Fyrir
utan örfáar byggingar sem portúg-
ölsku nýlenduherrarnir gátu ekki
tekið með sér og urðu því að skilja
eftir. Síðan hefur borgin byggst
ótrúlega hratt og er að verða eins
og hver önnur heimsborg, þótt ekki
séu íbúamir margir á þann fræga
heimsmælikvarða.
Til Praia sækir margt af hinu
vel menntaða unga fólki sem þjóðin
er smám saman að eignast. Margt
af því hefur verið í háskólum í hinu
stóra útlandi og sjá ekki að það
geti notað menntun sína í einhverri
lítilli heimabyggð. í Praia er hins
vegar beðið eftir þeim með stöðum-
ar og alltaf vantar fleira fólk með
menntun. Tekjurnar eru betri en
það getur fengið í heimabyggðinni
en hún Sonia, sem sér meðal ann-
ars um samstarf við íslendinga fyr-
ir hönd ráðuneytis skipulags- og
samvinnu, sagði mér að kostnaður-
inn við að búa í borginni væri líka
mikill. Hún sagðist til dæmis borga
2/s hluta launa sinna í leigu. Hún
slyppi með brot af því í heimabæ
sínum, Mindelo.
í Praia eru líka höfuðstöðvar
flestra þekktra alþjóðasamtaka sem
hér stunda annað hvort þróunar-
samvinnu eða hreint góðgerðar-
starf. I borginni búa um 2 þúsund
útlendingar, starfsfólk þessara
stofnana og fjölskyldur þeirra
ásamt örfáum starfsmönnum er-
lendra einkafyrirtækja sem hér reka
einhveija starfsemi. Þetta fólk setur
mikinn svip á bæjarlífið þar sem
það gengur um alvarlegt á svip
með öll vandamál heimsins á herð-
um sínum og sem betur fer allar
réttu lausnimar í kollinum. Heldur
það að minnsta kosti sjálft. íbúam-
ir em búnir að læra á þetta fólk,
að vekja meðaumkun þess og sníkja
sér peninga. Bömin kunna til dæm-
is flest eitt orð í ensku: money.
Þar sem ekkert er af neinu
Eftir dvöl mina á Santiago vom
það mikil viðbrigði að koma til eyj-
arinnar Sal. Nafnið þýðir salt þar
eð mikil framleiðsla hefur verið af
því á eynni. Annars er eyjan óskap-
lega dauðyflisleg. Hún er jafnvel
enn þurrari en Sáo Vicente og þar
vaxa ekki nema örfáar hríslur sem
beijast harðri baráttu við vindinn
og verða að beita miklum klókind-
um við að verða sér úti um vatn.
Fram að þessu hefur aðeins verið
eitt til eyjarinnar að sækja, að fara
í gegnum einu alþjóðlegu flug-
höfnina á eyjunum. Er kaldhæðnis-
legt að hún er byggð fyrir suður-
afrískt fé og með þeim skilmálum
að flugfélagið þaðan megi nota
völlinn að vild. Hefur aðstaðan ver-
ið notuð mikið eftir að aðrar Afríku-
þjóðir lokuðu á Suður-Afríku. Flug-
stöðin er kennd við þjóðhetjuna
Amical Cabral, sem eins og Jón
Sigurðsson dvaldist mikið fjarri
ættjörðinni og barðist gegn erlend-
um yfirráðum.
Ríkisstjómin hefur verið að reyna
að gera eitthvað fyrir þessa voluðu
eyju. Búið er að byggja gott frysti-
hús og íslenska skipið Fengur land-
ar í það, ásamt öðrum skipum.
Höfnin er hins vegar lítil og veldur
það dijúgum erfiðleikum því stund-
um þurfa skipin að bíða þess að
komast að.
Skilin milli ríkra og fátækra á
Sal eru stór, eins og víðar á þessum
eyjum. Ég hef óvíða séð fínni „vill-
ur“ eða hrörlegri kofa. Mér er hulin
ráðgáta hvemig stendur á velsæld
ríka fólksins hér, þó að hægt sé að
sjá með berum augum ótal skýring-
ar á fátæktinni. Eina von er smám
saman hægt að greina út úr þess-
ari fátækt. Sal er smátt og smátt
að byggjast upp sem ferðamanna-
staður. Búið er að byggja tvö glæsi-
hótel í þorpinu Santa María við
langa, hvíta, hreina strönd. Lítið
er hins vegar við að vera fyrir þá
erlendu ferðamenn sem þangað
koma, varla nokkuð annað en að
fara í sjóinn, liggja í brennandi sól-
inni eða taka þátt í þeim íþróttum
sem hótelin bjóða. Mikinn tíma má
líka nota til að borða og á því sviði
þarf ríkan ferðamann ekkert að
skorta af þessa heims gæðum. Kjöt
frá Argentínu, epli frá Suður-
Afríku og mjólk frá Hollandi er eins
og hver vill. Og þótt aðrir hlutar
eyjanna væru brauðlausir vikum
saman skortir ekki frönsk hom eða
ristað brauð á hótelunum í Santa
María.
TEXTI OG MYNDIR:
Dóra Stefánsson