Morgunblaðið - 02.12.1988, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988
21
Jákvæð gengisskráning -
neikvæður gengissjóður
eftirSkúla
Alexandersson
Alþýðubandalagið hélt miðstjórn-
arfund um síðustu helgi, 25.-27.
nóvember. Hluti fundarins var op-
inn fréttamönnum þ.e. þegar ráð-
herrarnir Steingrímur, Olafur
Ragnar og Svavar sátu fyrir svörum
fundarmanna.
Morgunblaðið var á þriðjudag,
29. nóvember, með frétt af þessum
hluta fundarins og hefur þar m.a.
eftir undirrituðum að „gengisfelling
væri lífsnauðsynleg fyrir sjávarút-
veginn og aðrar útflutningsgrein-
ar“. Þegar ég sagði þetta var það
í formála að spurningu til ráðherr-
anna. í þeim formála nefndi ég að
skrá þyrfti verð á erlendum gjald-
eyri rétt og um leið og gengið yrði
leiðrétt yrði að gera ýmsar ráðstaf-
anir, m.a. það að afurðalán ákveð-
1 inna útflutningsgreina, sem öll eru
í erlendri mynt, hækkuðu ekki í
krónutölu þótt gengið yrði lækkað.
Ég spurði ráðherrana hvernig þeim
litist á þetta síðastnefnda, en það
var einmitt aðalatriðið í mínu máli
og ég hefði alls ekki nefnt neina
gengisbreytingu nema í í tengslum
við slíka meðhöndlun á afurðalán-
um.
Svör ráðherranna skulu liggja
milli hluta.
Ég tel að ekki verði komist hjá
því að skrá gengið rétt. Rekstraraf-
koma t.d. fiskvinnslunnar, ullariðn-
aðarins o.fl. útflutningsgreina verð-
ur ekki bætt og komið í lag, nema
með því að leiðrétta gengi krónunn-
ar.
Það þarf að gera ýmsar ráðstaf-
anir í peningamálum samtímis til
að draga úr verðhækkunaráhrifum
og til þess að gengislækkun komi
að gagni og bæti að einhvetju leyti
útflutningsgreinum það tjón sem
fastgengisstefnan hefur valdið
þeim. Það er ekki auðvelt að gera
sér greir. fyrir því hve mikið fast-
gengisstefna og annað ráðleysi
ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks,
Framsóknar- og Alþýðuflokks milli-
færði frá útflutningsgreinum og
landsbyggðinni á sínum stutta
valdatíma. Erfitt verður að bakfæra
þá millifærslu — sjálfsagt tekst það
aldrei — tjónið sem tvær síðustu
ríkisstjórnir hafa valdið þjóðinni
verður seint bætt.
I tengslum við breytta gengis-
skráningu má skila smávegis aftur
af millifærslu síðustu mánaða. Sú
leið er einföld í framkvæmd. Hún
er sú er ég nefndi hér áður, að af-
urðalán þessara útflutningsgreina,
sem öll eru í erlendri mynt, hækki
ekki í krónutölu við gengisfellingu.
Við það myndast neikvæður
gengismunasjóður, ef má orða það
svo, í viðkomandi banka. Seðla-
banki yrði látinn leysa það vanda-
mál til að byija með. Gengismunin-
um yrði síðan eytt með millifærslu
frá þeim sem grætt hafa á fjármála-
stjóm síðustu mánuðina. Þjóðhags-
stofnun og Seðlabanki myndu gera
úttekt á því hverjir nutu millifærsl-
unnar og skattlagning og endur-
heimta til greiðslu gengismunarins
getur byggst á þeirri úttekt.
Með því að afurðalán yrðu
óbreytt í krónutölu kæmu hin já-
„Ég tel að ekki verði
komist hjá því að skrá
gengið rétt. Rekstrar-
afkoma t.d. fiskvinnsl-
unnar, ullariðnaðarins
o.fl. útflutningsgreina
verður ekki bætt og
komið í lag, nema með
því að leiðrétta gengi
krónunnar.“
kvæðu áhrif gengislækkunar strax
fram og myndu gjörbreyta stöðu
Skúli Alexandersson
útflutningsfyrirtækja. Ekki þyrfti
að bíða eftir því að birgðir seldust
sem oft tekur vikur eða mánuði,
heldur kæmi bein verðhækkun
strax fram í fyrstu afurðasölu eftir
gengisfellingu.
Með því að koma á gengisleið-
réttingu með þeim hætti sem ég
hefi hér nefnt myndi þetta gerast:
1. Greiðslustaða útflutnings-
greina myndi batna strax og geng-
isbreyting yrði gerð um leið og
rekstrargrundvöllurinn.
2. Utflutningsgreinarnar fengju
skilað aftur hluta af því sem milli-
fært hefur verið frá þeim á síðustu
mánuðum.
3. Erlend vara og þjónusta hækk-
aði í verði. — Það bætir stöðu sam-
keppnisgreina, stuðlar að hagstæð-
ari greiðslu- og vöruviðskiptajöfn-
uði við útlönd — meiri gjaldeyrir
verður til ráðstöfunar til að hamla
gegn erlendri skuldasöfnun.
Höfundur er alþingismaður fyrir
Alþýðubandalagið á Vesturlandi.
Gerðuberg:
Mælsku-
keppni
MÆLSKU- og rökræðukeppni
III. ráðs ITC á íslandi verður
haldin í menningarmiðstöðinni
Gerðubergi sunnudaginn 4. des-
ember kl. 14.00.
ITC-deildin Stjarna.n á Hvols-
velli/Hellu leggur fram tillögu um
að prestaköllum á íslandi verði
fækkað um helming.
ITC-deildin Melkorka mælir með
tillögunni en ITC-deildin Stjarnan
andmælir tillögunni.
(Fréttatilkynning)
t....;;.....
- Stærsti gólfdúkaframleiðandi
Evrópu. Vestur-þýsk gæðavara.
- Hollenskar teppaflísar með
ótrúlega möguleika í
sérframleiðslu
GRESMIMIA
- Fallegar heimilisflísar frá Spáni
ege
- Stærsti teppaframleiðandi
Danmerkur, 50 ára og enn síungir
Brintons VORWERK
carpets
- Einn elsti framleiðandi Wilton
og Axminster teppa í Englandi
- Einn stærsti teppaframleiðandi
Vestur-Þýskalands.
Frumlegustu teppamynstrin á
markaðnum.
tufhm
- Gegnheill vinyldúkur frá virtasta
framleiðanda Vestur-Þýskalands
- Skítgleypimottur (Coral) frá
Hollandi
IMrMJMm
- Lím og fylgiefni frá
Vestur-Þýskalandi
norament
I—Freudenberg
I i
- Takkaðir gúmmídúkar frá
V-Þýskalandi. Stærstir og
fjölbreyttasta úrvalið
- Náttúru- og vinylkorkur frá
Portúgal
-Stærsti teppaflísaframleiðandi í
heimi
HARO desso
Die Parkett-Marke®
- Vestur-þýskt gæðaparket
- Stærsti teppaframleiðandi
Evrópu.
AltroNordic
- Öryggisdúkar frá Svípjóð
\REDESTEIN3
- Hollenskar gúmmímottur og
gúmmídreglar
^toi97Keramik
- Vestur-þýskar gæðafllsar.
- Stök teppi úr ull með
tískumynstrum frá Hollandi
OSTACARPETS
- Sérhæfður framleiðandi stakra
teppa í Belgíu
CPIIOÖQŒIQD
- Stök teppi i sígildum mynstrum
frá Belgíu.
LA SAti
GIOPGIO
- Steyptar marmaraflögur
(terrazzo) frá ftaliu
Hjá okkur færðu allt á gólfið á einum stað.
Ieppaland
Grensásvegi 13, Rvík., símar 83577 og 83430.
FAST
LAND
FOTUM
N
ú eru liðin 20 ár frá
opnun Teppalands. •
Á þessum tíma höfum við
selt yfir 3,2 milljónir fer-
metra af gólfefnum, sem
segir sína sögu um vin-
sældir Teppalands. • Þetta
hefur einnig verið staðfest í
nýlegri skoðanakönnun
Hagvangs, þar sem 51%
aðspurðra sögðust myndu
leita fyrst tii Teppalands ef
kaupa ætti gólfefni. •
Næstu verslanir voru með
10,8% og minna.
Teppaland er nú alhliða
verslun með allt á gólfið á
einum stað. • í Teppalandi
færðu gólfteppin, teppaflís-
arnar, motturnar og dregl-
ana. • í Dúkalandi færðu
gólfdúkinn, parketið og flí-
sarnar auk úrvals fylgihiuta.
• Styrkur okkar liggur í inn-
flutningi frá þekktum og virt-
um framleiðendum gólfefna
um allan heim.
• Teppaland-Dúkaland er í
dag umfangsmesta gólf-
efnaverslun landsins, með
reynslu og þekkingu sem
kemur þér til góða.
LÍTTU VIÐ EÐA HAFÐU
SAMBAND.