Morgunblaðið - 02.12.1988, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988
27
Súdan:
Fellst á
friðar-
Nýskipaður forsætisráðherra Pakistans:
Tæknimenn bandarísku útvarp-
anna í Munchen komust að þeirri
niðurstöðu að hætt hefði verið að
trufla útsendingar útvarpanna á
þriðjudag. „Með því að stöðva þess-
ar truflanir, sem eru brot á alþjóða-
samningum sem Sovétmenn hafa
undirritað, hefur Míkhaíl Gorbatsj-
ov sovétleiðtogi sýnt að honum er
alvara með umbótastefnu sinni,"
sagði Forbes. Hann bætti þó við
að truflanimar gætu hafist að nýju.
samninga
Khartoum. Reuter.
Súdanstjórn hefur lagt blessun
sína yfir friðarsamninga, sem
vonast er til, að bindi enda á
borgarastyrjöldina, sem geisað
hefur í suðurhluta landsins í
'fimm ár.
John Garang, leiðtogi skæruliða,
og Mohammed Osman al-Mirghani,
formaður eins stjómarflokksins,
undirrituðu samkomulagið 16. nóv-
ember sl. en það hefur mætt mik-
illi mótstöðu innan íslömsku þjóð-
fylkingarinnar, sem einnig á aðild
að stjóminni. Samkomulagið kveð-
ur á um vopnahlé og einnig, að
fyrirhugaðri gildistöku nýrra,
íslamskra laga verði frestað þar til
um þau hefur verið fjallað á stjóm-
arskrárráðstefnu.
Jafnvígur
utan vega
sem innanbæjar
Kraftmikil 2,4 Ktra
vél.
Aflstýri.
Fimm gíra beinskipt-
ur, hátt og lágt drif.
Tímaritið ,Tour
Wheeler“ kaus Path-
finderjeppaársins,
aukiplda annara
tímarita.
3jaáraábyrgð.
Sýningarbíll í bílasal
Nissan Pathfinder er
af nýrri kynslóð tor-
færubifreiða sem
sameinar þægindi og
hörku á óviðjafnan-
legan hátt.
Ingvar
Helgason hf.
sýningarsalurinn,
Rauðagerði
simi91-3 35 60.
Draumurinn rætt-
ist eftir ellefu ár
Islamabad. Reuter.
HELSTI draumur Benazirs Bhutto hefiir verið að hefiia fyrir aftöku
föður síns með því að verða leiðtogi Pakistans og sá draumur rættist
í gær, er hún var skipuð forsætisráðherra landsins, eftir ellefii ára
baming ýmist í fangelsi eða útlegð.
Englandi, sneri heim mánuði áður
en föður hennar var steypt af stóli
og hefur setið í fangelsi af og til
síðan þá.
enn. „Rísandi sól, Benazir," hróp-
uðu tugþúsundir stuðningsmanna á
kosningafundum hennar. Hún gerði
víðreist um landið, með lestum og
opnum bifreiðum, og þótti með ólík-
indum að hún skuli hafa fætt sitt
fyrsta barn skömmu áður, 21. sept-
ember.
Þótt hún hafi í fyrstu verið drifin
áfram af hefndarþránni hvatti hún
til sátta eftir lát Zias. „Við eigum
ekki að tileinka okkur stjómmál
hatursins og hefndarinnar,“ sagði
hún við stuðningsmenn sína.
Benazir Bhutto tók ekki upp
vinstristefnu föður síns, Zulfikars
Ali Bhutto, sem hafði valdið fjár-
málamönnum og bandarískum
stjómvöldum miklum áhyggjum.
Hún er á móti þjóðnýtingu, með
einkavæðingu, telur að varnarmál
eigi að hafa algeran forgang og
vill bæta hag millistéttarinnar.
Afskipti Bhutto af stjómmálum
hófust eftir lát föður hennar. Hann
komst til valda eftir kosningar árið
1970 en Zia, þá yfirmaður hersins,
steypti honum af stóli í júlí árið
1977. Bhutto var átján mánuði í
fangelsi og síðan dæmdur til dauða
sakaður um morðsamsæri í apríl
árið 1979.
Benazir Bhutto nam við Rad-
cliffe-háskóla í Bandaríkjunum,
sem nú tilheyrir Harvard. Hún
stundaði nám við Oxford-háskóla i
Spánn:
Nýr varnar-
samningur
Madríd. Reuter.
SPÁNVERJAR og Bandaríkja-
menn undirrituðu í gær nýjan
varnarsamning sem gildir í átta
ár. Þar með lauk formlega
stífiim samningaviðræðum sem
staðið hafa í tvö ár um niður-
skurð á herafla Bandaríkja-
manna á Spáni.
Samningurinn fer fyrst fyrir
spænska þingið og verði hann sam-
þykktur kemur hann í stað varnar-
samnings ríkjanna sem undirritaður
var fyrir 35 árum.
I nýja samningnum er banda-
rískum hermönnum á Spáni fækkað
úr 12.500 í 8.000 og að kröfu Spán-
veija verða 72 F16-orrustuvélar
íjarlægðar frá Torrejon-flugstöð-
inni nærri Madríd. Bandarískt her-
lið verður í tveimur herstöðvum og
einni flotastöð.
Lagt er bann við flutningi eða
geymslu kjamorkuvopna á
spænskri gmnd en Spánveijar féll-
ust á að kreija ekki bandaríska
skipstjóra eða flugstjóra skýringa á
farmi sem þeir flytja.
Reuter
Benazir Bhutto á kosninganótt. Að baki henni sér i mynd af
föður hennar, Zulfikar Ali Bhutto.
Lát erkiljanda hennar, Moh-
ammads Zia-ul-Haqs, í flugslysi í
ágúst síðastliðnum breytti öllu. Allt
í einu átti Bhutto raunhæfa mögu-
leika til að láta drauminn rætast
og stjómmálamenn flyktust í flokk
hennar, Þjóðarfylkinguna, fyrir
kosningamar 16. nóvember.
I kosningabáráttunni kom í ljós
að töfrar nafnsins Bhutto hrifu
Sovétríkin:
Hætta að trufla er-
lendar útsendingar
120 sovéskum Gyðingum heimilað að flytja til ísraels
Washington. Reuter.
SOVÉTMENN hafa í fyrsta sinn
í 35 ár hætt að trufla útsending-
ar bandarisku útvarpsstöðvanna
Free Europe og Liberty til Sov-
étríkjanna, að því er Malcolm
Forbes, formaður bandarísku
heimsútvarpsnefiidarinnar BIB,
skýrði frá í gær. ísraelskir emb-
ættismenn skýrðu einnig frá því
að hætt hefði verið að trufia út-
sendingar ísraelska útvarpsins.
Ennfremur hefur verið greint
frá því að afhumdar hafi verið
reglur, sem komið hafa i veg
fyrir að 120 sovéskir gyðingar
fái að flytja til ísraels vegna vitn-
eskju um ríkisleyndarmál. *
ísraelsk stjómvöld fögnuðu þeirri
ákvörðun Sovétmanna að hætta
truflunum á útsendingum ísraelska
útvarpsins til Sovétríkjanna og
heimila 120 sovéskum gyðingum
að flytja til ísraels. Gyðingur í Sov-
étríkjunum sagði að sovésk yfírvöld
hefðu haft samband við alla Gyðing-
anna og tjáð þeim að reglunum
hefði verið breytt og þeir gætu sótt
um vegabréfsáritanir. Talsmaður
ísraelska utanríkisráðuneytisins
sagðist telja að með þessum ákvörð-
un vildu Sovétmenn breyta ímynd
sinni í Vesturlöndum Ail að þeir
gætu gegnt stóm hlutverki í hugs-
anlegum viðræðum um frið í Mið-
Austurlöndum.