Morgunblaðið - 02.12.1988, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988
33
Bók eftir Colin Forbes
ÖRN og Örlygnr hafa gefið út
bók eftir Colin Forbes. Hún nefii-
ist Ógnir Alpakastalans og er
þýdd af Snjólaugu Bragadóttur.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„Söguþráður hinnar nýju bókar er
í stuttu máli sá að í hrikalegum
fjöllum Sviss gerast váleigir at-
burðir sem virðast í fyrstu ekki
tengjast þeim mislita hópi fólks sem
Sovésk kvik-
myndavika
SOVÉSK kvikmyndavika hófst
í Regnboganum í gær, 1. desem-
ber.
Sjö kvikmyndir verða sýndar á
sovéskri kvikmyndaviku. Þær eru
Vera litla í leikstjórn V. Pichul,
Kalda sumarið 1953 í leikstjórn
A. Proshkon, Assa, leikstjóri S.
Solovjov, „Herra hönnuður" í leik-
stjórn 0. Tepcov, Kóngarnir á
Krím í leikstjórn J. Kara, Bréf frá
dauðum manni í leikstjórn K. Lop-
ushan og Keðja í leikstjórn E.
Klimov.
Kvikmyndin Bréf frá dánum
manni var verðlaunuð í Mannheim
árið 1986 og í Vestur-Berlín 1987
og Keðja fékk verðlaun í Tenerife
á Spáni árið 1986.
allt í einu á ýmis erindi til landsins.
Bandaríski blaðamaðurinn Bob
Newman og unnusta hans, sem er
læknir, eiga sín erindi til Sviss.
Jafnt í glæsum hótelum sem dimm-
um öngstrætum finna þau að ekki
er allt með felldu.
Spennan hleðst upp í andrúms-
loftinu, einkennileg atvik eiga sér
stað og svo byija morðin. Enginn
getur treyst neinum, ekki einu sinni
ástinni. Bob Newman finnur lykt
af stórmáli sem varðað gæti örlög
alls mannkyns, en til að stöða geð-
bilaðan vísindamann og peninga-
sjúka ráðamenn þarf miklu að
fórna."
Árlegur basar hjá KFUK
FYRSTA laugardag í desember
ár hvert heldur KFUK basar í
húsi félagsins á Amtmannsstig
2b.
í ár verður hann laugardaginn
3. desember og hefst kl. 14.00. Að
venju verður þar margt eigulegra
muna hentugum til jólagjafa, kökur
o.fl. Á meðan basarinn er opinn
verður selt kaffi og meðlæti.
Sunnudaginn 4. desember kl.
16.30 verður samkoma á sama stað.
Þar verður happdrætti g sönghópur
syngur o.fl.
(Fréttatilkynning)
Basar KFUK verður á laugar-
daginn á Amtmannsstíg 2b.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 1. desember. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð(kr.)
Þorskur 52,00 36,00 49,91 22,908 1.143.280
Þorskur(óst) 45,00 45,00 45,00 1,096 49.320
Undirmál 20,00 15,00 19,71 1,337 26.349
Ýsa 86,00 40,00 71,45 4,605 329.070
Ýsa(óst) 77,00 76,00 76,33 2,079 158.691
Undirmálsýsa 20,00 15,00 17,46 0,157 2.745
Karfi 30,00 30,00 30,00 0,032 960
Steinbitur 34,00 15,00 26,55 0,873 23.183
Hlýri 34,00 34,00 34,00 0,052 1.760
Langa 32,00 27,00 29,46 0,959 28.277
Lúða 340,00 100,00 194,70 0,508 98.996
Keila Samtals 16,00 13,00 14,64 51,40 2,278 36,886 33.351 1.895.982
Selt var aðallega úr Stakkavík ÁR, Lómi SH og Guðrúnu Björgu
ÞH. I dag verða meðal annars seld 10 tonn af þorski og 6 tonn af ýsu úr Lómi SH og fleiri bátum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 49,00 45,00 47,90 0,694 42.827
Þorskur(ósL) 47,00 42,00 45,22 1,127 50.959
Ýsa 65,00 37,00 48,69 0,306 14.898
Ýsa(ósL) 73,00 49,00 56,63 2,074 117.446
Smáýsa 23,00 12,00 17,25 0,549 9.470
Ýsa(umálósL) 8,00 8,00 8,00 0,227 1.816
Karfi 15,00 15,00 15,00 1,025 15.375
Lúða 160,00 160,00 160,00 0,055 8.800
Hlýri+steinb. 29,00 15,00 24,29 1,789 43.387
Langa(ósL) 15,00 15,00 15,00 0,062 930
Keila 7,00 7,00 7,00 0,389 2.723
Keila(ósL) Samtals 7,00 7,00 7,00 34,93 0,426 8,920 2.982 311.613
Selt var úr Freyju RE, Jóni Baldvinssyni verður selt úr bátum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. RE og bátum. í dag
Þorskur 52,00 42,00 49,59 37,851 1.877.061
Ýsa 84,50 30,00 72,28 9,074 655.911
Ufsi 26,50 15,00 26,17 2,757 72.152
Karfi 28,00 24,00 24,84 23,480 583.374
Steinbítur 29,00 10,00 19,02 0,070 1.322
Hlýri 20,00 20,00 20,00 0,030 600
Langa 31,50 21,00 31,24 13,375 105.461
Lúða 247,00 85,00 199,93 0,240 47.983
Sólkoli 55,00 55,00 55,00 0,062 3.410
Keila 23,00 18,50 21,03 4,570 96.095
Síld 8,48 8,48 8,48 54,350 460.888
Lýsa 8,00 8,00 8,00 0,100 800
Náskata 5,00 5,00 5,00 0,100 500
Skötuselur Samtals 315,00 280,00 306,58 28,79 0,040 136,100 12.110 3.917.667
Selt var aðallega úr Hauki GK, Eldeyjar-Hjalta GK og Eldeyjar-
Boða GK. I dag veröur selt úr dagróðrabátum ef á sjó gefur.
Kökubasar o g
kaffisala Ffladeffiu
Systrafélag Fíladelfíu heldur
kökubasar og kaffisölu í Fíla-
delfíukirkjunni, Hátúni 2, neðri
sal, laugardaginn 3. desember
ki. 14.00.
Boðið er upp á mikið af nýbökuð-
um góðum kökum til jólanna. Einn-
ig gefst fólki kostur á að setjast
niður og fá sér kaffi og ijómapönnu-
kökur, gegn vægu gjaldi.
Allur ágóði af basarnum rennur
til Systrafélagsins í Fíladelfíu.
(Fréttatilkynning)
Skáldsaga eftir
Jerzy Kosinsky
BÓK desembermánaðar hjá
Veröld er komin út og er það
skáldsagan Skræpótti fuglinn
eftir Jerzy Kosinsky.
I kynningu Veraldar segir að
um sé að ræða frásögn ungs
drengs frá Austur-Evrópu um vit-
firringu síðari heimsstyijaldarinn-
ar, sem byggð sé á eigin reynslu
höfundarins.
Jerzy Kosinsky er fæddur í Pól-
landi, en fluttist til Bandaríkjanna
árið 1957, hlaut þar menntun sína
og hefur búið þar síðan.
Skræpótti fuglinn er fyrsta
skáldsaga Kosinskys. Hún kom
út árið 1965. Bókin er 200 blaðsí-
ður að stærð og útgefandi hennar
er Skjaldborg.
Sýnir í
nýjum sal
NYR sýningastaður, Gal er í sál,
opnar laugardaginn 3. desember
kl. 16 í Tryggvagötu 18 í
Reykjavík með málverkasýningu
Tryggva Gunnars Hansen.
Tryggvi Harisen hefur unnið torf
og gijót í hús, garða, skúlptúra og
grímur svo og hefur hann gengist
fyrir kynningu á torfverki og bygg-
ingarlist um árabil.
(Fréttatilkynning)
Tryggvi Hansen opnar sýningu
á .verkum sínum í nýjum sýning-
arsal, Gal er í sál, á laugardag.
Sprengja kol-
sýruhylki
Siglufirði.
NOKKUÐ hefúr borið á því að
unglingar hér séu að leika sér að
því að sprengja kolsýruhylki úr
Soda-Stream tækjum, með því að
kveikja eld við hylkin.
Engin slys hafa orðið vegna þess-
arar iðju en ekki þarf að taka fram
að hún er stórhættuleg. Þarf því að
brýna fyrir unglingum og foreldrum
að láta af þessu háttalagi.
Niðurstaða dómsins er ósanngjöm
- segir Hreiðar
Karlsson, for-
maður Lands-
sambands slátur-
leyfishafa
„ÉG er hvorki sammála forsend-
um þessa dóms eða niðurstöðu,
og eins og þetta mál kemur mér
fyrir sjónir þá er þetta ákveðin
árás á það félagskerfi sem bænd-
ur hafa byggt upp í kringum
kaupfélagsviðskipti," segir
Hreiðar Karlsson, formaður
Landssambands sláturleyfishafa,
um það er Kaupfélag Þingeyinga
var dæmt í bæjarþingi Húsavíkur
til að greiða bændum á félags-
búinu Garði II í Mývatnssveit
dráttarvexti vegna tafar á
greiðslu andvirðis sauðfjára-
fúrða haustið 1987.
„I forsendum dómsins er gert ráð
fyrir því að ákveðin greiðsla sé innt
af hendi á ákveðnum degi, og í
þessu tilfelli var ekki tekið tillit til
þess að aðstæður voru ekki fyrir
hendi til að ganga frá greiðslum á
tilteknum tíma. Tæknilega var ekki
framkvæmanlegt að ganga frá
greiðslu 15. október þar sem slátrun
var þá rétt nýlega lokið og ekki lá
fyrir heildaruppgjör fyrir slátrun.
Hvað varðar greiðslur 15. desem-
ber, þá var þetta spurning um fjár-
mögnun til að gera upp við bænd-
ur, en þá var ekki hægt að gera
upp við þá fyrr en seint og um
síðir. Staðgreiðslulán var afgreitt
af hálfu ríkisvaldsins 23. desember,
og þegar bankarnir veittu aafurðal-
án út á framleiðslu haustsins 1987
þá gjaldfelldu þeir afurðalán af
birgðum frá fyrra ári. Þær birgðir
lágu bótalausar á sláturleyfishöfum
á þessum tíma, þó seinna hafi því
verið létt af að verulegu leyti. Á
þeim tíma sem inna átti greiðslur
til bænda af hendi í desember var
því fjármögnun sláturhúsanna öll í
ólestri. Til þessara aðstæðna er
ekki tekið tillit í dómnum, og því
finnst mér niðurstaða hans ekki
sanngjörn."
Hreiðar segir sláturleyfishafa á
vissan hátt standa frammi fyrir
svipuðum aðstæðum og í fyrrá,
meðal annars vegna þess að afurð-
aián í sláturtíð hafi verið hlutfalls-
lega minni nú í haust en í fyrra. .
„Bankarnir eru að vísu að færa
sig nær fullu afurðaláni með því
að fara í 67% afurðalánshlutfall nú
um mánaðarmótin en jafnframt eru
þeir að gjaldfella afurðalán frá fyrra
ári, þar á meðal af birgðum. Við
teljum raunar að þær kjötbirgðir
sem til eru frá fyrra ári séu í raun
og veru á ábyrgð ríkisins og höfum
því gert kröfu um að ríkið taki að
sér ijármögnun á þessu birgða-
haldi. Ef ekki tekst að greiða úr
þessu máli í tæka tíð gæti því kom-
ið upp svipuð staða og í fyrra,“
segir Hreiðar.
Kvenfélag Hringsins:
Krukku- og korta-
sala í Kringlunni
Kvenfélag Hringsins verður
með krukku- og kortasölu í
göngugötu Kringlunnar á laug-
ardaginn til styrktar barnaspít-
ala Hringsins.
Jólakortin eru til sölu í ýmsum
bókabúðum, blómabúðum og Hag-
kaupi og eru tvenns konar. Annað
kortið er hannað af Guðrúnu
Geirsdóttur Hringskonu og er það
prentað bæði í rauðu og bláu og
hitt kortið er með mynd af glugga
eftir Leif Breiðfjörð. Krukkumar
eru frá Holmegaard.
(Fréttatilkynning)
Hringskonur verða með krukku-
og kortasölu í göngugötu Kringl-
unnar á laugardag.