Morgunblaðið - 02.12.1988, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988
Mirming:
Margrét Jónsdóttir
^ húsmæðrakennari
Fædd 30. maí 1927
Dáin 24. nóvember 1988
Síminn vakti mig snemma morg-
uns 24. þessa mánaðar með sínu
fuglskvaki að vanda. í símanum var
þá ein af skólasystrum mínum úr
Húsmæðrakennaraskóla Islands frá
árunum 1948—1950 að tilkynna
mér lát eins samnemanda okkar,
—» Margrétar Jónsdóttur frá Gunn-
hildargerði í Tunguhreppi.
Ég varð eins og af fjöllum kom-
in, vegna þess að ég hafði ekkert
heyrt um veikindi hennar. Síðast
hafði ég frétt af henni í sumar, þá
hafði hún verið á ferð ásamt einka-
dóttur sinni hjá skólasystur okkar,
sem býr á Vopnafirði, og verið þá
eldhress að vanda.
Það er skammt á milli skins og
skúra í þessu mannlífi. Síðast hitti
ég Margréti í afmælisfagnaði, hjá
einni af skólasystrum okkar, mynd-
arlega og virðulega eins og hún var
þegar ég sá hana fyrst. Sjúkdómur
hafði hetjað á Margréti í tiltölulega
stuttan tíma og lagt hana ómaklega
_að velli.
Margrét var af sterkum bænda-
stofni að austan, dóttir hjónanna
Jóns Sigmundssonar og Önnu Ól-
afsdóttur, sem bjuggu í Gunnhildar-
gerði í Tunguhreppi. Hún var elst
átta systkina og hefur því óhjá-
kvæmilega komið í hlut hennar að
aðstoða foreldrana við bústörfin og
uppeldi yngri systkinanna. Þótt
bömin væru mörg var hún samt
sett til náms í Héraðsskólann að
Eiðum og lauk þaðan burtfarar-
♦^'prófi 1945. Eftir skólaveruna á Eið-
um gerðist hún bamakennari í
Tunguhreppi, þótt ung væri, og
kenndi þar í tvö ár. I þá tíð var
ekki óalgengt að duglegir héraðs-
skólanemendur væru ráðnir, að
prófi loknu, til að kenna börnum
upp til sveita.
Margrét var bóknámsmanneskja,
sagði ein vinkona hennar og víðles-
in, enda bar námsárangur hennar
þess glöggan vott. Hefði hún valið
bóknámsleiðina, hefði hún komist
langt í þeim efnum. Hún valdi
verknámsleiðina til að komast sem
fyrst út á vinnumarkaðinn, sjálfsagt
hafa fjárráð hennar þar ráðið miklu.
Ég hugsa nú til skóladaganna í
— Húsmæðrakennaraskóla Islands.
Það var glaður og feginn hópur sem
gekk út úr skólanum, að afloknum
prófum á vordegi 1950, eftir súra
og sæla daga í tvö ár. Margrét
Jónsdóttir, sem nú er kvödd, var
ein í þeim hópi. Hún var skólaskáld-
ið okkar og skólavísur efitr hana
hafa verið einskonar þjóðsöngur hjá
okkur skólasystrunum þegar við
höfum komið saman.
Eftir námið í Húsmæðrakennara-
skóla Islands var Margrét þrjú ár
kennari á Löngumýri en vann jafn-
framt á sumrin við hótelstörf. Hún
var síðan þrjú ár við framhaldsnám
í Danmörku.
Árið 1963 giftist Margrét Gunn-
ari Höskuldssyni, syni Höskuldar
Baldvinssonar verkfræðings og
konu hans, Þórdísar Ragnhildar
Björnsdóttur. Með honum eignaðist
hún einkadótturina Sigurlaugu Urði
blaðamann.
Gunnar andaðist 1972 af afleið-
ingum slyss sem hann varð fyrir
þegar hann var við rannsóknarstörf
fyrir Orkustofnun vestur á Snæ-
fellsnesi. Harmur Margrétar við
andlát Gunnars var djúpur, þótt
ekki bæri hún það utan á sér. Þá
stóð hún ein uppi með litlu stúlkuna
þeirra 5 ára.
Síðustu árin starfaði Margrét í
Seðlabanka íslands.
Ég sé nú Margréti skólasystur
mína fyrir mér í anda eins og ég
sá hana fyrst, er hún gekk inn
gólfið að skólasetningu Húsmæðra-
kennaraskóla Islands, fyrir tugum
ára. Hún gekk þá „fögrum, réttum
skrefum og bar höfuðið átt“ eins
og stendur í Konungs Skuggsjá, en
sú bók var notuð sem undirstöðuat-
riði við kennslu í háttvísi í Hús-
mæðrakennaraskólanum. Sömu
ákveðnu skrefunum gekk hún út
úr skólanum að loknum skólaslitum,
nema þá ef til vill með örlítið meiri
fyrirmannssvip. Við skólasysturnar
minnumst Margrétar eða Möggu
eins og við kölluðum hana, með
virðingu og þakklæti og þykjumst
nokkuð vissar um að hún hafi fá
eða engin vanhugsuð spor stigið í
lífinu.
Ungu stúlkunni hennar Margrét-
ar, Sigurlaugu Urði, og öðrum ást-
vinum og vinum hennar, vil ég fyr-
ir hönd okkar skólasystra lýsa ein-
lægri hluttekningu. Við söknum
Margrétar sárt úr skólasystrahópn-
um.
Fari hún í friði og Guð blessi
minninguna um hana.
Jensína Halldórsdóttir
Þar sem góðir menn fara, þar
eru Guðs vegir. Þannig vil ég kveðja
Margréti Jónsdóttur frá Gunnhild-
argerði í Hróarstungu.
Margrét var elst a_f átta börnum
þeirra hjóna, Önnu Olafsdóttur og
Jóns Sigmundssonar í Gunnhildar-
gerði og sú fyrsta af hópnum sem
kveður. Þau hjón höfðu mikið
barnalán. Það tel ég mesta lán
lífsins, sem fáum hlotnast.
Margrét var vitur kona og vel
menntuð, kunni að velja sér lesefni
og krufði hlutina til mergjar. Ung
byijaði hún að afla sér menntunar,
fyrst á Alþýðuskólanum á Eiðum,
því merka menntasetri. Þar voru
oft menn sem sköruðu framúr,
bæði í stjómun og kennslu. Hér
heima lauk hún húsmæðrakennara-
námi 1950. Hún kenndi við Hús-
mæðraskólann á Löngumýri við
góðan orðstír. Þaðan fær hún góða
umsögn frá samkennurum og nem-
endum. Síðan fór hún í framhalds-
nám til Danmerkur og dvaldi þar í
nokkur ár.
Margrét fluttist heim, giftist fjöl-
hæfum gáfumanni, Gunnari Hös-
kuldssyni. Hann fórst af slysförum
1972. Þá stóð Margrét ein með
unga dóttur þeirra hjóna, Sigur-
laugu Urði, f. 1967.
Hún menntaði dóttur sína, vann
mikið, var matráðskona Lands-
banka og Seðlabanka í 18 ár en
vann síðustu ár skrifstofustörf í
Seðlabanka Islands.
Margrét ferðaðist mikið, alltaf
með fullri eftirtekt. Hun hafði opinn
huga fyrir öllu fögm og'fróðlegu.
Ég var svo heppin að heyra frásögn
hennar um ferðalögin. Það er
ógleymanlegt. Síðasta langferðin,
sem hún fór, var til Jerúsalem og
Egyptalands. Þeirrar ferðar naut
hún í ríkum mæli. Þá var hún löngu
búin að fá þann sjúkdóm, er varð
henni að aldurtila, samt fór hún
allt með samferðafólkinu. Hún tók
saman allt ’það helsta frá ferðinni
og gaf okkur hjónum. Við vorum
að fara í sömu ferð, það var mikill
stuðningur.
Þetta er jitri raminn, konan sem
aldrei gafst upp. Síðustu fimm til
sex árin barðist hún við sjúkdóm,
sem flestir falla fyrir. Þrautirnar
voru miklar, en aldrei tapaði hún
reisn sinni. I hvert skipti, sem mað-
ur kom til hennar, fór maður ríkari
til baka.
Ég þakka árin, sem við þekkt-
umst, óskaði að þau hefðu verið
fleiri.
Hjartanleg samúð til Urðar, dótt-
ur hennar, sem minnist gáfaðrar,
kærleiksríkrar móður. Öllum henn-
ar ættmönnum og vinum sendi ég
samúðarkvedjur.
Magnea Hjálmarsdóttir
Margrét Jonsdóttir frá Gunn-
hildargerði, Hróarstungu, lézt i
Landakotsspítala þann 24. nóvem-
ber síðastliðinn. Baráttu hennar við
illvígan sjúkdóm er lokið.
Margrét var fædd 30. maí 1927.
Hún var elzt átta barna hjónanna
Önnu Ólafsdóttur og Jóns Sig-
mundssonar, búenda í Gunnhildar-
gerði og ólst þar upp.
Margrét stundaði nám við Al-
þýðuskólann á Eiðum árin 1943—
1945 og kenndi börnum víða á
bæjum í Hróarstungu 1946—1948.
Vorið 1948 urðu nokkur þáttaskil
þegar þær systur, hún og Guðrún
Ingibjörg, hleyptu heimdraganum
og réðu sig yfir sumarmánuðina í
kaupavinnu austur í Ölfusi, Margrét
að Núpum en Guðrún að Bakka.
Um haustið fór Margrét í Hús-
mæðrakennaraskólann, sem þá var
til húsa í kjallara Háskóla Islands,
og lauk hún námi þar um vorið
1950. Hún kenndi síðan þijá vetur
árin 1950—1953 við húsmæðra-
skólann að Löngumýri, Skagafirði.
Síðan lá leiðin til Kaupmannahafn-
ar. Þar dvaldi Margrét í tvö ár við
framhaldsnám og vinnu. Eftir heim-
komuna vann Margrét við mat-
reiðslustörf og réðst til starfa sem
matráðskona við Landsbankann
1957 og starfaði þar samfleytt í
átján ár. Þá breytti hún til og hóf
skrifstofustörf í Seðlabanka Is-
lands. Þar lét hún af störfum vegna
veikinda í ágúst síðastliðnum.
Margrét giftist árið 1963 Gunn-
ari Höskuldssyni, skrifstofumanni.
Foreldrar Gunnars voru Höskuldur
Baldvinsson, verkfræðingur, og
Þórdís Ragnhildur Björnsdóttir.
Þau eru bæði látin. Sambúð Mar-
grétar og Gunnars stóð til ársins
1972, er Gunnar lézt af slysförum.
Þá var dóttir þeirra, Sigurlaug Urð-
ur, nýlega orðin fimm ára gömul
og Bjöm, sonur Gunnars, á sext-
ánda ári. Þau hjón höfðu skömmu
áður fest kaup á húseigninni Sam-
túni 14 í Reykjavík. Þar hélt Mar-
grét síðan heimili með dóttur sinni.
Ég minnist Margrétar frá
bemsku minni sem góðrar frænku,
sem gaf sér ávallt tíma til þess að
spjalla við okkur bræðuma. Hún
kom oft á heimili foreldra minna.
Ávallt var hún boðin og búin að
rétta þeim hjálparhönd. Foreldrar
mínir minnast hennar með þakk-
læti fyrir einlæga greiðvikni alla tíð.
Margrét var vel máli farin, hafði
góða kímnigáfu og átti létt með að
koma fyrir sig orði bæði í ræðu og
riti. Framkoma hennar var bæði
ljúf og geðþekk, og kurteisi var
henni í blóð borin.
Margrét átti dijúgan þátt í undir-
búningi og gerð bókar um Gunn-
hildargerðisætt, niðjatal afa okkar
og ömmu, Sigmundar Jónssonar og
Guðrúnar Ingibjargar Sigfúsdóttur.
Fyrir skömmu var ég við sjúkra-
beð Margrétar og þar var einnig
lítil frænka hennar stödd. Eftir stutt
samtal þeirra í milli rétti hún
Margréti lítinn hlut og bað hana
að eiga. Þetta lítilræði hafði barnið
keypt fyrr um daginn. Margrét
þakkaði henni fyrir á einkar næman
hátt. Hafi barnssálin eitt augnablik
séð eftir gjöfínni var sú eftirsjá
orðin af óblandinni ánægju yfir að
hafa glatt veika frænku. Þannig
kunni Margrét að umgangast smá-
fólk.
Ég og íjölskylda mín sendum
Urði, systkinum Margrétar og öðr-
um vandamönnum samúðarkveðjur.
Sár er móðurmissir, sár er syst-
urmissir, en lát birtu minninga um
Margréti Jónsdóttur lýsa nú í
skammdeginu og um framtíð.
Rúnar Sigfússon
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka,
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna,
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem)
Vinkona mín og skólasystir er
látin eftir langt og erfitt veikinda-
stríð. Þar sem leiðir okkar hafa leg-
ið mikið saman um ævina finn ég
hjá mér löngum til að minnast henn-
ar með nokkrum orðum.
Við kynntumst ungar á æsku-
stöðvum okkar austur á Fljótsdals-
héraði og fór þá þegar vel á með
okkur. Haustið 1948 hófum við nám
við Húsmæðrakennaraskóla íslands
og lukum þaðan prófi 1950. Að
loknu námi fórum við að kenna við
sitt hvom húsmæðraskólann;
Magga við Löngumýrarskóla, ég
við Varmalandsskóla. Þó vík væri
milli vina hélst sambandið, því við
heimsóttum Jivora aðra í skólana
okkur til fræðslu og ánægju.
Á sumrin unnum við síðan saman
við sumarhótelið á Laugarvatni, hjá
Eysteini Jóhannssyni hótelstjóra.
Hann hafði lært matreiðslu í Dan-
mörku og unnið á hótelum víða um
heim. Eysteini fannst við of ungar
til að vera lokaðar inni á húsmæðra-
skóla, bestu ár ævinnar. Hann benti
okkur á að víka sjóndeildarhringinn
og fara til Danmerkur og fullnuma
okkur í matreiðslu, svo sem köldum
mat og smurbrauðsgerð. Haustið
1953 fórum við til Kaupmannahafn-
ar og hófum nám hjá Oscari David-
sen, einu elsta og þekktasta smur-
brauðsfyrirtæki í Danmörku.
Á þessum tveimur Kaupmanna-
hafnarárum kynntumst við Magga
enn betur; í nýju umhverfi, fjarri
ættingjum og vinum þar sem allt
var framandi. Þessi ár voru
skemmtileg og þroskandi. Við ferð-
uðumst töluvert um Danmörku og
fórum í vinahópi til Ítalíu. Síðar á
ævinni gátum við oft yljað okkur
við skemmtilegar minningar frá
þessum árum.
Eftir heimkomuna voru við bú-
settar í Reykjavík og vinátta okkar
hélst í gegnum súrt og sætt. Á erfið-
um stundum í lífi mínu var Magga
ávallt fyrst til að rétta hjálparhönd.
í henni fann ég alltaf traustan og
góðan vin. Magga var mjög sterkur
persónuleiki, hafði ákveðnar skoð-
anir á mönnum og málefnum. Hún
var mjög greind kona og vel lesin,
sérlega minnug og fylgdist vel með
öllu sem var að gerast, hvort heldur
var í þjóðmálum eða á erlendum
vettvangi.
Magga hafði mikinn áhuga á
andlegum málefnum og trúði statt
og stöðugt á að tilvist hennar héldi
áfram eftir líkamsdauðann og var
þessi trú henni mikil hjálp í erfiðum
veikindum. í ljósi þessarar skoðunar
getum við ályktað að þegar fólk
deyi á góðum aldri hafi almættið
kallað sálina til annarra og meiri
starfa.
Dótturinni Urði, sem Magga átti
með manni sínum, Gunnar Hös-
kuldssyni, reyndist hún sérlega góð
móðir og mun Urður búa alla ævi
að þeiri óvenju góðu uppfræðslu og
uppeldi sem hún hlaut á heimili
móður sinnar.
Á kveðjustund þakka ég vinkonu
minni samfylgdina og órofa tryggð.
Ég óska henni fararheilla á nýju
tilverustigi og veit að hún á góða
heimkomu. Urði og öðrum vanda-
mönnum votta ég innilega samúð.
Sigurbjörg Einarsdóttir
Mér hugstæð vinkona, Margrét
Jónsdóttir frá Gunnhildargerði, er
látin, langt um aldur fram eftir
glímu undanfarin ár við sjúkdóm,
sem hún bar með hugrekki og þreki
þar til yfir lauk. Ollum, sem til
hennar þekktu, er hún harmdauði.
Á seinni árum lágu leiðir okkar
sjaldnar saman, en þó nógu oft til
þess að ég sannfærðist um að hún
átti góða og göfuga sál. Hún var
hugþekk öllum, sem til þekktu og
manni leið undarlega vel í návist
hennar.
Ég lít svo á að út frá öllum
mönnum stafi mismunandi út-
streymi, allt eftir þeim hughrifum
sem þeir eru í það og það skiptið og
í samræmi við eðlisþætti skapgerð-
arinnar. Út frá því skýrist það,
hversu mönnum líður betur í návist
eins en annars.
í návist fárra hefur mér liðið
betur en þessarar horfnu vinkonu
minnar. Það var sem út frá henni
streymdi ylur og kærleiki í meiri
fyllingu en menn almennt eiga að
venjast og yfir framkomu hennar
hvíldi einhver þokki, er virtist leiða
mann og laða til samveru. Að þess-
ari tilfinningu má vel hafa hlúð
eðlislæg prúðmennska hennar,
samfara tign yfir svip og sýn, góð-
ir vitsmunir, gjörhygli og listrænn
andi.
Margrét fæddist á næsta bæ við
mitt heimili hinn 30. maí 1927. Hún
var elst af átta börnum hjónanna
Onnu Olafsdóttur og Jóns Sig-
mundssonar, sem lengi bjuggu
rausnarbúi í Gunnhildargerði í Hró-
arstungu. Ég ætla mér ekki út í
ættfærslu, því eflaust verður það
gert af öðrum mér færari.
Ég þekkti Margréti frá blautu
bamsbeini, því mikill samgangur
og vinátta var á milli fjölskyldna
okkar. Ég sá þessa ungu stúlku
vaxa og dafna og verða sómi sinnar
fjölskyldu og byggðarlags. En ég
finn, að gætu ásamir og mýrar-
sundin okkar grátið, þá myndu þau
gera það við brottför Margrétar,
eins og ég geri sjálfur innra með
mér.
Sem ég gat um áður, þá fækkaði
samfundum hin seinni ár, en ætíð
fylgdist maður með lífshlaupi henn-
ar, gleði, sorgum og hamingju. Ég
vissi um styrk hennar og þor, sem
er eðlislæg kynfylgja ættar hennar,
þrek hennar til að mæta erfiðleikum
og axla þá í vonlausri baráttu við
illvígan sjúkdóm sem hún að lyktum
hneig fyrir.
Ég var alltaf á leiðinni til að
heimsækja hana á sjúkrahúsið en
eins og svo oft áður, þá varð ég
of seinn. Ég sendi því kveðju mína
og þakkir út yfír gröf og dauða í
þeirri vissu að dauðinn sé ekki nema
augnabliks húm, en líf sé að baki
og fyrir stafni.
Við hjónin þökkum kynnin við
« ||jf
í verslanir
efi \\r \ íel Igino |