Morgunblaðið - 02.12.1988, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988
43
Margréti og það gerir öll gamla
Kirkjubæjarfjölskyldan.
Við vottum dóttur hennar, systk-
inum og öðrum aðstandendum
dýpstu samúð. '
Friður fylgi henni fram á veginn.
Sindri Siguijónsson
í dag verður til moldar borin
vinnufélagi okkar til margra ára,
Margrét Jónsdóttir frá Gunnhildar-
gerði í Hróarstungu. Hún hóf störf
í Landsbanka íslands árið 1957, en
fluttist 1975 til Seðlabanka íslands,
þar sem hún vann í lánadeild bank-
ans alla tíð síðan, og þar kynnt-
umst við henni betur.
Magga, eins og hún var alltaf
kölluð í okkar hópi, var ákaflega
samvizkusöm og vandvirk í störfum
sínum, og nutum við þess, sem með
henni unnum, auk þess sem hún
var alltaf boðin og búin til að leggja
okkur lið í störfum okkar, ef því
var að skipta. En þótt hún legði
metnað sinn í dagleg störf sín, fór
því fjarri, að áhugi hennar væri
einskorðaður við þau. Áhugaefni
hennar spönnuðu reyndar vítt svið,
og má þar nefna íslenzkt mál. Hun
hafði mjög næma tilfinningu og
smekk fyrir málinu, og stundum
enduðu umræður með símhringingu
til Orðabókar Háskólans, ef eyða
þurfti óvissu eða fá úrskurð um
álitaefni. Einnig hafði hún mikinn
áhuga á stjórnmálum, og þar fór
afstaða hennar ekki á milli mála,
þótt hún virti skoðanir annarra, án
þess þó að gera þær að sínum. Þá
hafði hún yndi af ferðalögum, ekki
sízt til fjarlægra landa. Henni auðn-
aðist m.a. að fara ferð til landanna
fyrir botni Miðjarðarhafs, sem varð
henni mjög minnisstæð og hún bjó
að alla tíð síðan, enda hafði hún
mikinn áhuga á sögu og fornri
menningu þessara þjóða.
Okkur vinnufélögum hennar
verða ávallt minnisstæðir kaffitím-
arnir okkar, því að ósjaldan var það
hinum fjölbreytilegu áhugamálum
hennar að þakka, hversu margt bar
á góma og hve fjörugar og tilbreyt-
ingaríkar umræðurnar gátu orðið.
Nú er Margrét ekki lengur á
meðal okkar. Síðla árs 1984 veikt-
ist hún af sjúkdómi þeim, sem hún
hefur nú orðið að lúta, langt um
aldur fram.
Mann sinn, Gunnar Höskuldsson,
missti hún eftir skamma sambúð.
Einkadóttur þeirra, Urði, svo og
systkinum hennar og öðrum ætt-
ingjum vottum við dýpstu samúð
okkar.
Vinnufélagar í lánadeild
Seðlabankans.
MaMfr
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁ RÁÐHÚSTORGI
Höfóar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!
Kveðjuorð:
Niels Gíslason
Fæddur 15. apríl 1923
Dáinn 26. nóvember 1988
Nú legg ég augun aftur,
6, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka,
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjöm Egilsson)
Afi okkar, Niels Gíslason, er
dáinn. Hann sem alltaf átti bros
og hlýju, þegar við komum í heim-
sókn upp á spítala, og eins þegar
hann var heima og sat í stólnum
sínum, þá var gott að setjast í
fang hans, þar lék hann sér við
okkur og læddi góðgæti í munninn
okkar.
Falleg eru svæfilverin sem hann
afí saumaði fyrir okkur, þegar við
vorum lítil.
Við þökkum elsku afa fyrir allt.
Guð blessi minningu hans.
Barnabörnin
Gott nautakjöt
Grillsteikur kr. 390.- kg
Sirlonsteik kr. 490.- kg
Roastbeef kr. 990.- kg
Kjúklingará heildsöluverði
aðeins kr. 473.- kg
Allt úr svínakjöti Valið er þitt - reykt eða nýtt
KJÖTMIÐSTÖÐIN
Laugalæk 2 - S. 68 65 11
„Bækurfallaeinogein
allarsamanholastein!"
Rmm fyrstu bækur Þórarins fást nú í einu faliegu
bindi og á verði einnar: Kvæði, Disneyrímur,
Erindi, Ofsögum sagt og Kyrr kjör.
500 blaðsíður með skemmtilegum kvæðum og
sögum. Tilvalin stúdentsgjöf!
K!>sagt
disneyrS®
0F^ÚmsagT
KYRR Kj°K
Mál IMI og menning
Síðumúla 7-9. Simi 688577. Laugavegi 18. Sími 15199-24240.