Morgunblaðið - 02.12.1988, Blaðsíða 45
* K
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988
Guðný Þórhalla Páls-
dóttir - Minning
Guðný Þórhalla Pálsdóttir kvaddi
þennan heim 14. nóvember sl. eftir
langvinnt veikindastríð. Hún fædd-
ist á Akureyri 25. október 1935,
dóttir hjónanna Aðalbjargar G.
Jónsdóttur og Páls Bjarnasonar
símamanns. Þar ólst hún upp ásamt
þremur bræðrum sínum á góðu
heimili. Páll faðir hennar, kunnur
hagleiksmaður, dó liðlega sextugur
og var það mikið áfall fyrir fjöi-
skylduna. Aðalbjörg lifði mann sinn
í þrettán ár. Sýndi hún mikið þrek
og dugnað og hélt heimili til hinstu
stundar.
Abba, en svo var Guðný kölluð,
lauk gangfræðaprófi við Gagn-
fræðaskóla Akureyrar og gekk vel
að læra. Hefði hún eflaust getað
lært meira en á þeim tíma þótti
ekkert sjálfsagt að stúlkur öfluðu
sér starfsmenntunar. Þær áttu að
giftast og hugsa um sitt heimili.
Hún giftist ung Baldri Sveinssyni
húsasmið frá Sveinsstöðum í Dala-
sýslu. Hann kom úr stórum hópi
einkar samheldinna systkina. Börn-
in urðu þijú: Aðalbjörg, f. 1956,
afgreiðslustjóri, gift Gylfa Skúla-
syni byggingameistara. Páll, f.
1957 dáinn 1986, húsasmiður og
Þóra Björk, f. 1970, nemi í Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti.
Ég kynntist Öbbu og Baldri fyrst
árið 1956 er þau höfðu flust til
Reykjavíkur. Þannig stóð á því að
hópur ungra karla og kvenna ákvað
að eignast eigin íbúð í fjölbýlishúsi
í Bogahlíð 12—18. Það tókst og
vorum við nágrannakonur í u.þ.b.
sjö ár. Með okkur tókst vinskapur
sem hélst alla tíð. Engan gat grun-
að þau grimmu örlög er biðu þessar-
ar góðu og vönduðu ungu konu.
Seinna byggðu þau sér raðhús
við Hraunbæ í Árbæjarhverfi af
miklum dugnaði. Efnin voru ekki
mikil en hjónin voru samhent og
hagsýni og regiusemi gætt í
hvívetna. Hvorki heyrði ég kvartað
yfir peningaleysi á því heimili né
öfnundast fyrir efnum annarra.
Abba var einstaklega snyrtileg
húsmóðir, gestrisin og flink við
matreiðslu. Hamingjan virtist brosa
við þessari fjölskyldu. Börnin uxu
úr grasi og gekk vel í námi og
starfi. Enda voru foreldrarnir sívak-
andi yfir velferð þeirra. Orðið lykla-
barn var þá ekki til í málinu.
Svo var eins og sólin hnigi til
viðar um miðjan dag. Allt breyttist.
Dugnaðurinn og atorkan sem ein-
kenndu hana áður voru ekki lengur
til staðar. Lífsviljinn þorrinn. Ég
vissi seinna að hún hafði orðið fyr-
ir áfalli í einkalífinu sem viðkvæmt
geð hennar reis ekki undir. Harð-
gerðari manneskja hefði hrist þetta
af sér en hún gat það ekki. Upp
frá þessu seig allt á ógæfuhlið.
Hjónin slitu samvistir.
Þungur harmur var kveðinn að
íjölskyldunni er Páll, einkasonur-
inn, lést skyndilega tæplega þrítug-
ur að aldri. Hafði har.n sinnt veikri
móður sinni vel.
Abba reyndist vera með hina
erfiðu Parkinsonsveiki og hrakaði
stöðugt. Þótt bæði lærðir og leikir
legðust á eitt með að hjálpa henni
kom það fyrir ekki.
Síðustu fjögur árin bjó hún í
Hátúni 12. Naut hún þar hinnar
bestu aðhlynningar og eignaðist
vini. En þeir sem kynntust henni
þá geta vart ímyndað sér þá miklu
breytingu sem orðin var á henni.
Dæturnar reyndust henni vel og
gerðu það sem í þeirra valdi stóð
til að stytta henni stundir. Barna-
börnin þijú voru henni til mikillar
gleði.
Nú er hún laus við þjáningar
þessa heims. Ég bið algóðan Guð
fyrir sál hennar og megi dætur
hennar eflast og þroskast af þeim
raunum er lagðar hafa verið á ung-
ar herðar þeirra.
S.E.
minnast hinna góðu eiginleika
Harðar og hans einstöku hjálpsemi
til dæmis þegar einhver var að
vinna í garðinum sínum og þarfnað-
ist hjálpar, þá var Hörður mættur
á vörubílnum sínum, flytjandi mold-
arhlass og fleira. Einnig gaf ’hann
sér ávallt tíma til að sinna yngri
kynslóðinni.
Að lokum langar okkur að minn-
ast á börnin hans sem hafa ekki
farið varhluta af þessum eiginleik-
um föður síns, sem felast í ljúf-
mennsku og góðvild.
Guðrún mín, við vottum þér,
bömum þínum, tengdabörnum og
barnabörnum okkar innilegustu
samúð og biðjum Guð að veita ykk-
ur styrk í sorg ykkar.
Fjóla og Unnur
Hörður Guðmunds-
son - Kveðjuorð
Fæddur 12. ágúst 1919
Dáinn 31. október 1988
Mig og systur mína langar til að
minnast bróður okkar, Harðar Guð-
mundssonar, í nokkrum línum og
þakka fyrir ljúfar endurminningar.
Bróðir okkar lést skyndilega á
heimili sínu 31. október síðastliðinn.
Ekki leiddi maður hugann að
því, þegar Hörður kom glaður og
hress á heimili mitt til að sækja
systur okkar sem stödd var í bæn-
um, að svo stutt væri í kveðjustund-
ina;
Á þeim árum, þegar við systurn-
ar komum hingað suður, gátum við
alltaf leitað til Harðar og fjölskyldu
hans. Hún tók okkur alltaf opnum
örmum. Okkur systrunum var það
mikill styrkur, að geta leitað til
þeirra og langar okkur að þakka
kærlega fýrir allar þær ánægju-
stundir sem við höfum átt á heim-
ili þeirra hjóna.
Okkur langar gjarnan til að
45
AFERÐ
með
Kópal
Dýrótóni
Veldu Kópal
með gljáa við hæfi.
Heimilistæki
sem bíða ekki! ^sskápnr—
iWi^ i tfil
■ iiiinirii'iM
þuriíkari
eldavél
Iryslikisl a
imúUTOK
*.
mwwi
Nú er eljtki eftir neinu að bíða, þú verslar í Rafbúð
Sambandsins fyrir 100 þúsund og getur þá keypt
öll heimilistækin í einu, valið sjálfur hvert tæki af
ótal gerðum í pakkann, bætt sjónvarpi, videotæki
eða hrærivél við og skipt greiðslum jafnt niður á
24 mánuði. Engin útborgun og fyrstagreiðsla eftir
einn mánuð. Enginn íslenskur raftækjasali hefur
boðið slík kjör - hvorki fyrr né síðar. Hafðu sam-
band við Rafbúð Sambandsins strax - það er ekki
eftir neinu að bíða.
&SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55S0
ÁRMÚLA 3 SlMI 68 79 10-681Z66
OCTAVO/SlA