Morgunblaðið - 02.12.1988, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988
49
Nastassja Kinski
afhendir Ingmar
Bergman sérstök
heiðursverðlaun
evrópsku kvik-
myndahátíðarinn-
ar.
KVIKMYNDAVERÐLAUN EVRÓPU
Stefht að framhaldi á næsta ári
Berlín. Frá Önnu Bjamadóttur, (réttaritara Morgnnblaðsins.
Kvikmyndastjörnur og að-
standendur fyrstu Kvik-
myndaverðlauna Evrópu voru
einkar ánægðir með framtakið í
Berlín um helgina, þegar kvik-
myndaverðlaun Evrópu voru
veitt í fyrsta sinn. Volker Hasse-
mer, menningarráðherra borg-
arinnar, sem á hugmyndina að
verðlaununum, segist vera sann-
færður um að þau verði veitt að
nýju á næsta ári. Berlínarbúar
eru reiðubúnir að halda hátíðina
á ný en Richard Attenborough,
leiksljóri, nefndi á blaðamanna-
fundi Frakka og síðan Skota sem
líklegar þjóðir til að halda hana.
f kringum þessi verðlaun, sem
eru eftirlíking á Óskarsverðlaunun-
um í Hollywood, hefur nú myndast
kjami þekkts kvikmyndafólks sem
vill stofna samtök evrópskra kvik-
myndagerðarmanna, jafnvel evr-
ópska kvikmyndaakademíu. Bem-
ardo Bertolucci, Erland Josephson,
Isabelle Huppert, Ben Kingsley,
Wim Wenders og fleiri ásamt Ing-
mar Bergman eru talsmenn þessar-
ar hugmyndar.
Stuðningur Bergmans við málef-
nið er mikils metinn en hann nýtur
virðingar sem einn af feðmm evróp-
skrar kvikmyndagerðar. Koma
hans til Berlínar var viðburður út
af fyrir sig þar sem hann leggur
helst aldrei land undir fót og hefur
ekki sótt kvikmyndaverðlaunahátíð
í að minnsta kosti tuttugu ár. Hann
sýndi með komu sinni að hann telur
samvinnu Evrópuþjóða á þessu sviði
mjög mikilvæga og hann hefur trú
á að evrópsku kvikmyndaverðlaunin
muni styrkja evrópska kvikmynda-
gerðarlist.
BRUCE SPRINGSTEEN
Einn við hljóð-
nemann á ný
Bruce og Patti á hljómleikum
siðastliðið sumar.
Hinn goðumlíki Bruce
Springsteen er hættur að
leyfa hljómsveitarmeðlimi og ást-
mey sinni, Patti Scialfa, að syngja
í sama hljóðnema og hann eins og
þau hafa gjarnan gert um síðsum-
artíð. Orsökin er sögð augljós, ást-
arsambandi þeirra er lokið. Nú
verður hún að gjöra svo vel að láta
sér lynda að syngja bakrödd eins
og áður.
Heimildir segja að peningar valdi
því að Patti er komin í bakraddirn-
ar á ný. Hún hafði beðið um launa-
hækkun en Bruce sagt þvert nei,
enda sagður varkár í peningamál-
um. Og ekki varð samband þeirra
ástúðlegra er hún hafði tilkynnt
lausmálgu fólki að þau tvö myndu
ganga í heilagt hjónaband um leið
og skilnaður Bruce við Júlíönnu
væri yfírstaðinn. Kappinn Bruce var
semsagt ekki á biðilsbuxunum er
hann steig í vænginn við Patti og
er samkvæmt þessu frír og fijáls á
ný.
Aldrei glæsilegra
úrval af herraslopp-
um, innisettum og
náttfötum frá
finnwear
GEíSÍPf
Öufnúli P2 Slmi: 680624.
Eltir opnunartima 667556.
ÆLUM OG
RÁÐLEGGJUM í
VALI Á
INNRÉTTINGUM
• Þriggja vikna afgreiðslu-
frestur.
• Ókeypis hugmynda-
vinna.
• Ókeypis heimsendingar-
þjónusfa.
ELDHUSINNRETTINGAR,
FATASKÁPAR OG BAÐ-
INN RÉTTINGAR, I hvitu,
hvltu og beyki, gráu,
gráu og hvltu, eik, beyki,
furu og aski.
Viö erum viö hiiöina á Álnabæ i
Siöumúla. ....
Opið 9-19 alla daga.
Laugardaga 10-16.
Sunnudága 10-16.
Metsölub/aó á hverjum degi!