Morgunblaðið - 02.12.1988, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988
51
Opið í kvöld og annað kvöld
kl. 22-03
FJÖR í FYRIRRÚMI!!
SÁLIN HANS JÓNS
MÍNS
Söfnuðurinn fær jafn mjúka með-
höndlun í myndinni sem í sögunni
og einvalalið danskra leikara holdi
klæðir hann af snilli. Þá er einkar
ánægjulegt að sjá sænska stórleikar-
ann Jarl Kulle á nýjan leik, sposkur
leikur hans glæðir myndina nauðsyn-
legri kímni. Enginn er þó betri en
Audran, þessi kunna, franska leik-
kona, þekktust fyrir htutverk í mynd-
um manns síns, Claude Chabrol, sem
flest eru harla ólík þessu. Hún á með
sinni óaðfinnanlegu persónusköpun,
ríkan þátt í að gera smásöguna henn-
ar Blixen að veruleika.
Sem fyrr segir, hefur Axel (sem
hér er í ljósárafjariægð frá Rauðu
skikkjunni) gert kraftaverk, skapað
nánast snuðrulausa mynd og handrit
sem skilar snilldarlega blæbrigðum
sögunnar. Eftirsjá liðinna tækifæra,
ónýttra ástarævintýra og tómlegrar
æsku. Lífsferli í skugga strangrar
trúar og ónýttrar sköpunarþarfar.
En tilfinningamar falla í réttan far-
veg, Gestaboð Babettu skilur áhorf-
andann eftir í ljúfu og jákvæðu sálar-
ástandi. Slík áhrifasköpun stafar af
snilldargáfu. Oss er boðið til glæstr-
ar veislu, njótið heil.
DAUÐAGILDRA
Stjörnubíó:
Vetur dauðans — „Dead Of Wint-
er“ ★ ★
Leikstjóri Arthur Penn. Aðalleik-
endur Mary Steenburgen, Roddy
McDowall, Jan Rubes, William
Russ, Ken Pouge. Bandarísk.
United Artists 1987. 98 mín.
Nýtt ár er að ganga í garð og
Steenburgen sem leikur kolblanka
leikkonu sem grípur fegins hendi
fyrsta atvinnutilboði. A hún að
ganga inní aðalhlutverk í kvikmynd
sem verið er að taka norður undir
landamærum Kanada. Leysa af
hólmi stöllu sína sem þoldi víst ekki
álagið. Þegar norður er komið fer
Steenburgen í prufuupptöku undir
handleiðslu framleiðandans (Rubes)
og aðstoðarmanns hans (McDow-
all). Fer hún fram á heldur óhugn-
anlegu sveitasetri og ekki eru heim-
ilismennirnir tveir þekkilegri.
Steenburgen kemst fljótlega að
raun um að ekki er allt sem skyldi,
heldur er hún orðinn leiksoppur
tvímenninganna í banvænum fjár-
kúgunaráformum þeirra.
Nokkuð spennandi og geigvæn-
legur þriller, sem á köflum getur
einsvel flokkast undir hrollvekju.
Leikhópurínn er dágóður, ekki síst
Steenburgen í þreföldu hlutverki.
Rubes tekur þó talsvert á taugarn-
ar, þar sem manngarmurinn treður
nú í annað skipti á örfáum dögum
uppí fádæma andstyggilegu hlut-
verki í kvikmyndahúsinu. Karl virð-
ist nokkuð fágaður leikari og velur
sér vonandi hugnanlegri hlutverk á
næsturini. Sagan er glompótt og
þolir illa nærskoðun en keyrslan,
undir annars meðalmennskulegri
leikstjórn Penns er góð og fyllir í
eyðurnar. Þessi fyrrum afbragðs-
leikstjóri (Bonnie And Clyde, Little
Big Man, Alice’s Restaurant, ofl.
ofl) virðist vera farinn að slaka
heldur betur á klónni.
velflestum aðdáendum Kundera til
mikillar ánægju. Afrek Axels er ekki
síðra.
Babette (Audran), flóttamaður úr
frönsku kommúnubyltingunni, birtist
skyndilega í strangtrúuðu samfélagi
lútherskra í smábæ á Jótlandi. Þar
svífur yfir vötnunum andi strangra
siðareglna prestsins sem þjónaði þar
til skamms tíma. Babette fær ein-
mitt inni sem matráðskona hjá dætr-
um hans, sem ótrauðar halda merki
föður síns á lofti. 14 ár líða, Babette
fellur inní lífsmunstur bæjarbúa og
einu tengsl hennar við Frakkland er
happdrættismiði sem er endurnýjað-
ur fyrir hana árlega. Og þá kemur
að því að þessi dularfulla kona hlýtur
stóra vinninginn. Nú reikna bæjarbú-
ar með að Babette hverfi á braut, en
í stað þess krefst hún að fá að halda
söfnuðinum ekta, franskt kvöldverð-
arboð. Og það kemur á daginn að
Babette er stórkostlegur listamaður
potta og panna, og að hún var yfir-
matreiðslumeistari eins besta eðal-
matsölustaðar háborgar matargerð-
arlistarinnar, Parísar, fyrir bylting-
una.
Úr hnossgætinu sem hún fær sent
frá Frans, og telur m.a. skjaldböku,
kornhænsni, styijuhrogn, jarðsveppi,
gimilegasta grænmeti og ávexti, auk
höfugra eðalvína hárréttra árganga,
skapar hún þvílíkt meistarastykki
matargerðarlistarinnar að forpokað-
ur söfnuðurinn má vart mæla sökum
fullnægju sálar og líkama. Ótti hans
við reiði Guðs vegna hinna pápísku
ósiða sem þeir álitu hið konunglega
kvöldverðarboð, er horfinn sem dögg
fyrir sólu. Og Babette hefur sannað
að listamaður er alltaf listamaður,
svo fremi hann fái tækifæri að sanna
hvað í honum býr. Aðstæður og
umhverfi skipta ekki máli.
Setið að hinum konunglega kvöldverði í Gestaboði Babette.
ÞVÍLÍK VEISLA!
markaðnum í ár, Gestaboð Babettu,
er, líkt og efnið, einstæð stórveisla
sem öltum ætti að falla í geð og
minnir okkur blessunarlega á að til
er annað og betra á kvikmyndamark-
aðnum en afþreying og augnabliks-
gaman. Myndin er unnin af snilld,
tónn hennar er svo hlýr að maður
svífur útaf sýningunni og skamm-
degið bjartara og notalegra eftir en
áður.
Efnið, sótt í smásögu eftir Karen
Blixen, er ekki á hvers manns færi
að flytja yfir á filmu, en á undan-
fömum árum hafa a.m.k. þrír leik-
stjórar lagt í áður álitin ófilmandi
bókmenntaverk og skilað meiningu
þeirra af sér með sæmd á hvíta tjald-
ið; þ.e. Dauðinn, eftir John heitinn
Huston, sem byggð er á samnefndri
smásögu James Joyce, og Óbærileg-
ur léttleiki tilverunnar, sem Kaufman
sneri laglega yfir í kvikmyndagerð,
Kvikmyndir
GOMLU DANSARNIR
f kvöld frá kl. 21.00-03.00.
Hljómsveitin DANSSPORIÐ ásamt söngvurunum Örnu Þor-
stoinsogQrMarl.
Dansstuðiðer
ÍÁRTÚNI.
stmns og uratorí.
Vagnhöfða 11, Reykjavík, s(mi 685090.
Sæbjörn Valdimarsson
Regnboginn:
Gestaboð Babettu - Babettes
Gæstebud
Leikstjóri og handritshöfundur,
eftir smásögu Karen Blixen,
Gabriel Axel. Kvikmyndatöku-
stjóri Henning Kristiansen. Tón-
list Per Nörgard. Aðalleikendur
Sthépane Audran, Birgitte Fed-
erspiel, Bodil Kjer, Jarl Kulle,
Jean-Philippe Lafont, Vibeke Has-
trup, Hanne Stensgaard, Ebbe
Rode, Preben Lerdorff Rye, Bibi
Anderson, Axel Ströbye, Bendt
Rothe. Dönsk. Nordisk Film 1987.
Ein ljúfasta mynd síðari ára,
glæsileg endurkoma Axels og
Öskarsverðlaunaþegi sem besta er-
lenda kvikmyndaverkið á bandaríska
með nýjasta smell sinn „Þig bara þig“
og öll hin hressu lögin sín.
— Sem sagt,
dúndurstuö á staðnum!!!
Á IMEÐRI HÆÐ: BEIMSOIM
Sjáumst hress!!!
20 ára + 750 kr.
/íl/il/IDEIJS
ÞÓRSC/IEÉ
Brautarholti 20,
símar: 23333 & 23335.
il\/;mVv\A
OGFÉIAGAR
------hötel
SAGA
S. 29900