Morgunblaðið - 02.12.1988, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988
55
Mísskílin kvikmynd
Til Velvakanda.
Það er ávallt undarlegt þegar
fólk tekur upp á því að fordæma
það sem það þekkir ekki. Margir
hrópa upp, guðlast!, þegar kvik-
myndina Síðasta freising Krists ber
á góma. Fólk misskilur þessa kvik-
mynd mikið.
Þessi síðasta freisting skeður í
lok myndarinnar þegar Kristur
hangir á krossinum. Þá birtist hon-
um Satan í engilsgervi sem kemur
til þess að gera lokatilraun til að
leiða hann afvega. Engillinn (Satan)
segir Kristi að hann þurfi ekki að
þjást lengur, hann geti einfaldlega
gengið af krossinum en leyft heim-
inum að halda að hann hafi látið
þar lífið. Kristi er birt í sýn hvemig
líf hans gæti oðið. Hann gæti hafið
nýtt líf, gifst Maríu og eignast börn
og dáið saddur lífdaga.
Þótt Kristur hafi verið fullkomn-
ari en við, þá hafði hann sínar til-
finningar og hann hefur óttast þær
kvalir sem hann átti í vændum á
krossinum, enda bað hann Guð að
taka þann kaleik frá sér. En hann
stóðst þessa freistingu því hann
vissi að þá væri grundvöllur fagnað-
arboðskaparins hruninn ef hann
félli fyrir freistingunni, þótt kristin-
dómurinn yrði til eftir sem áður.
Þegar talað er um ósæmilega
hegðun milli Krists og Maríu í
myndinni þá er ekki verið að segja
að þetta hafi skeð milli þeirra í
rauninni, heldur þveröfugt. Það
stendur kannski ekki í guðspjöllun-
um að Satan hafi reynt að freista
Krists á krossinum en er það nokk-
uð svo ólíklegt að hann hafi reynt
að nota það tækifæri þegar Kristur
var viðkvæmastur. Kannski skeði
það en enginn var til frásagnar.
Útkoma þessa atriðis í myndinni
er Kristi til lofs.
Til að gera þessa þrautsegju
Krists sem mesta er hann í kvik-
myndinni lítt hugaður, sérstaklega
áður en hann byrjar að boða fagn-
aðarerindið og er kannski full langt
gengið í því. Í upphafi er honum
lýst sem venjulegum manni sem
þráir það eitt að lifa eins og aðrir
menn. En Guð er farinn að tala til
hans, kalla hann til verka. Jesú er
ekki hrifinn af því í fyrstu og reyn-
ir að koma sér undan þessu hlut-
verki. Til dæmis smíðar hann krossa
fyrir Rómveija til að vekja vanþókn-
un Guðs svo að Guð missi áhuga á
honum. En hann sættir sig loks við
hlutverkið sem honum er ætlað.
Þetta er sálfræðidrama og frá
því sjónarmiði merkileg mynd
ásamt því að vera vönduð mjög.
Jafnframt er þetta skáldsaga og er
því ekki verið að segja að líf Krists
hafi verið á þennan veg. Menn ættu
ekki að dæma þessa mynd án þess
að hafa séð hana.
Ahugamaður um trúmál
*
Agætt
framtak
Til Velvakanda.
Mig langar til að koma á fram-
færi kærum þökkum til Máls og
menningar, sem hefur hafið nýja
þjónustu við gamla fólkið hér í borg.
Vistfólki á ýmsum stofnunum eldri
borgara hefur undanfarið verið boð-
ið í hópferðir í verslunina í Síðu-
múla, þar sem því hefur gefist kost-
ur á að kaupa bækur og annan
varning með góðum afslætti.
Fór ég í eina slíka ferð og kunni
vel að meta. Jólalög voru leikin og
starfsfólkið var afskaplega alúðlegt
við okkur. Fólk var mjög þakklátt
fyrir þessa þjónustu, enda eiga
margir erfitt með að komast leiðir
sinnar. Kærar þakkir fyrir þetta
ágæta framtak.
Eldri borgari.
Foreldrar: Látið börnin bera endurskinsmerki. Notkun þeirra tryggir
öryggi barnanna í umferðinni.
Kennarar: Brýnið fýrir bömunum að fara varlega í umferðinni og
gefið þeim góð ráð í þeim efnum.
Vegfarendur: Hvert fótmál í umferðinni krefst umhugsunar og að-
gæslu.
Okumenn: Ljósker bifreiðanna verða að vera hrein og ljósin rétt stillt
til þess að ljósmagnið nýtist sem best við aksturinn. Rétt notkun
stefnuljósa auðveldar alla umferð.
Verð f rá kr. 2.290,-
Mikið úrval af spariskóm barnafrá JIP
^ggílj/
KRINGWN
KÖMeNM
S. 689212
VELTUSUND11
Domus Medica,
Egilsgötu 3,
Sími: 18519.
JOLALJOSA-
SAMSTÆÐUR
úti sem inni með 40 perum
Verð frá kr. 1.380 með straumbreyti
JÓLASTJÖRNUR
úr málmi, margir litir.
Með perustæði,
3,5m. snúru og kló.
Verð^frá kr. 650
Sendum í póstkröfu
SKEIFUNNI 8 ■ SÍMI 82660
- leiöandi í lýsingu
Vörn
í sókn
l
Til Velvakanda.
Upp á síðkastið hafa Grænfrið-
ungar gert mikið af að auglýsa
landið okkar. Meðan ísland er ofar-
lega í huga fólksins ættum við að
nota tækifærið og auglýsa upp
hreinan og hollan íslandsfisk frá
ómenguðum íslandsmiðum. Þó
Evrópubúum og Bandaríkjamönn-
um þyki vænt um hvalinn þá hafa
þeir núna meiri áhyggjur af
hormónakjöti og öðrum menguðum
matvælum sem þeir hafa verið að
láta ofna í sig og setja með því sig
sjálfa í útrýmingarhættu.
Guðm.
Nú geturðu fengið uppáhalds
sultuna þína í sérstökum
umbúðum með spraututappa.
Þá geturðu fengið þér
mátulega af Mömmusultu og
sprautað henni beint á
vöffluna eða við hliðina á
stórsteikinni!
SULTAN HENNAR
MÖMMU ÞESSI
GÓÐA MEÐ
SPRAUTUNNI!
EBBBHQBHBHM