Morgunblaðið - 02.12.1988, Side 59
MORGUNBLAÐDE) IÞROTTIR PÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1988
59
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Terry Venables býður
Guðna Bergssyni samning
TERRY Venables, fram-
kvæmdastjóri Tottenham
Hotspur, bauð Guðna Bergs-
syni landsliðsmanni úr Val
samning við félagið i gær.
„Eftir æfingu í gær ræddi
Venables við mig og lýsti
áhuga sínum að fá mig á
samning," sagði Guðni
Bergsson í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi.
Guðni, sem á 23 landsleiki að
baki, hefur verið hjá Totten-
ham til reynslu í 10 daga. Hann
hefur æft með aðalliði félagsins
og spilað nokkra leiki með varalið-
inu og staðið sig vel.
Guðni sagði að ekkert hafi ver-
ið rætt um peningahliðina eða
lengd samnings í gær. „Ég hitti
Venables aftur á morgun [í dag]
og þá verða þessi mál rædd frek-
ar. Þetta er fyrsta og stærsta
skrefið í áttina að leika með Tott-
enham. Þeir telja sig greinilega
hafa not fyrir mig,“ sagði Guðni.
„Ég er mjög bjartsýnn á að við
náum samkomulagi um laun og
lengd samnings. Eina hugsanlega
vandamálið núna er að fá atvinnu-
leyfi í Englandi. En ég hef ekki
trú á öðru en að það fáist. Totten-
ham er stór klúbbur og hefur víða
ítök.“
Til að fá atvinnuleyfi í Eng-
landi og leika með ensku félags-
liði veður viðkomandi í fyrsta lagi
að vera landsliðsmaður og í öðru
lagi þarf viðkomandi lið að geta
5
Tarry Venables
sannað að það vanti tilfinnanlega
leikmann í þessa ákveðnu stöðu.
Guðni uppfyllir fyrra skilyrðið, en
í því síðara er það forráðamanna
Tottenham að sannfæra knatt-
spyrnusambandið og verklýðs-
félag knattspymumanna.
Guðni æfir með aðalliði Totten-
ham í dag, en bjóst við að æfing-
in yrði stutt þar sem liðið á að
leika á laugardaginn. Hann reikn-
aði með að leika með varaliðinu
um helgina.
Guðni Bergsson
Venables hefur
keypt lelkmenn
fyrir 5.5 mlllj.
pund- Sjá bls.
57
HANDKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ
KR-sigur í
hörkuleik
KR-INGAR fögnuðu ógurlega
eftirað Héðni Gilssyni mi-
stókst að jafna beint úr-
aukakasti eftir venjulegan
leiktíma í leik KR og FH í gær-
kvöldi. Þeir höfðu fulla ástæðu
til því þeir eru með fullt hús
stiga eftir sjö umferðir.
Leikmenn virtust taugaóstyrkir
í upphafi enda leikurinn geysi-
lega mikilvægur fyrir bæði lið.
Viggó þjálfari FH fékk áminningu
BBHHB eftir aðeins fimm
SkúliUnnar mínútur og mínútu
Sveinsson síðar kom fyrsta
skrífar _ mark leiksins.
KR-ingar leiddu
allan fyrri hálfleikinn og virkuðu
þá mun betri aðilinn. FH-ingar tóku
sig á í- síðari hálfleik og náðu for-
ustunni eftir fjórar mínútur og
héldu henni allt fram á síðustu
mínútu, utan þess að KR náði
nokkrum sinnum að jafna.
Lokamínútan var æsispennandi.
Leifur varði tvívegis vel og Guð-
mundur Albertsson skoraði fyrir
KR, 27:26. Leifur varði frá Héðni
í dauðafæri og dæmdur var ruðn-
KR-FH
27 : 26
Laugardalshöll, íslandsmótið í Tíand-
knattleik, fímmtudaginn 1. desember
1988.
Gangur leiksins: 3:0, 6:4,12:7, 13:11,
14:15, 18:18, 23:23, 25:24, 25:26,
27:26.
KR: Stefán Kristjánsson 10/3, Alfreð
Gíslason 9/2, Konráð Olavson 3, Páll
Ólafsson 2, Jóhannes Stefánsson 1,
Guðmundur Albertsson 1, Sigurður
Sveinsson 1, Friðrik Þorbjömsson, Þor-
steinn Guðjónsson, Páll ólafsson.
yarin skot: Leifíir Dagfinsson 18,
Ámi Harðarson 1/1.
Utan vallar: 12 mínútur.
FH: Héðinn Gilsson 8, Guðjón Ámason
8/1, Þorgils óttar Mathiesen 5, Gunn-
ar Beinteinsson 2, Óskar Ármannsson
2/2, óskar Helgason 1, Hálfdán Þórð-
arson, Einar Hjaltason, Knútur Sig-
urðsson, Stephan Stephansen.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson
4, Magnús Ámason 4.
Utan vallar: 8 mínútur.
Áhorfendur: Um 800.
Dómarar: Gunnar Kjartansson og
Rögnvald Erlingsson. Þeir voru alls
ekki nógu sannfærandi.
ingur á Alfreð. FH í hraðaupphlaup
en brotið á þeim. Jóhann Ingi ósam-
mála og fékk rautt spjald. FH-ingar
fengu aragrúa aukakasta það sem
eftir var en það dugði ekki. Leifur
varði skot frá Héðni en FH-ingur
náði frákastinu og komst inn úr
horninu. Margir bjuggust við víta-
kasti en FH fékk aðeins aukakast
og tíminn var búinn.
Þeir Jóhann Ingi og Þorgils Óttar
voru sammála um að þetta hafi
verið besti leikur vetrarins. „Þetta
var eins og leikir eiga að vera.
Spennandi og skemmtilegir,“ sagði
Jóhann Ingi eftir leikinn. „Við vor-
um betri í fyrri hálfleik en ég hafði
það á tilfinningunni að dómararnir
vildu fá jafntefli í síðari hálfleik,"
bætti hann við og sagði jafnframt
að hann væri ekki vanur að ræða
um framistöðu dómara en hann
gæti ekki orða bundist að þessu
sinni. „Ég held samt að þetta hafí
ekki bitnað á öðru liðinu þegar á
heildina er litið. Nú er vandamálið
hjá okkur að ná upp einbeitingu
fýrir leikinn við UBK en bytja ekki
strax að hugsa um Valsleikinn."
Bestu menn KR í leiknum voru
Stefán, Alfreð og Leifur en annars
léku flestir ágætlega. Hjá FH voru
þeir Guðjón og Héðinn bestir en
einnig lék Þorgils Óttar ágætlega.
KR-ingar fögnuðu ógurlega eftir
leikinn og í búningsherbergi þeirra
höfðu menn á orði að þakka bæri
Viggó þjálfara FH fyrir sigurinn.
Viggó sagði í gærdag að FH væri
„klass betri“ og það fór ekki of vel
í leikmenn KR.
PIPP
Leifur Dagfinsson, KR.
PIP
Stefán Kristjánsson og Alfreð
Gíslason, KR. Guðjón Árna-
son, FH.
JH
Páll Ólafsson (eldri) KR. Héð-
inn Gilsson, Þorgils Óttar
Mathiesen, FH.
Leifur Dagflnnson hefur varið frá-
bærlega með KR. Hann er landsliðs-
markvörður framtíðarinnar.
Þrjú rauð spjöld!
Rauða spjaldið fór þrívegis á loft í leik KR og FH í gærkvöldi, og er
það ef til vill besta dæmi þess hversu æsispennandi leikurinn var.
Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari KR, fékk að sjá það rauða er tæpai'
tvær mínútur voru til leiksloka og eftir að venjulegum leiktíma var lokið
fengu Viggó Sigurðsson, þjálfari FH, og Þorgils Ottar Mathiesen, fyrir-
liði þeirra, að sjá það rauða.
Það hefur verið nóg að gera hjá þeim Gunnari og Rögnvald upp á
síðkastið því í fyrradag sýndu þeir þjálfara Vals rauða spjaldið þannig
að rauðu spjöldin liggja ekki ónotuð í vösum þeirra félga.
Morgunblaðið/Bjarni
Alfreö Gfslason brýst hér í gegnum vöm FH og skorar eitt marka sinna í
leiknum í gær. Guðjón og Óskar koma ekki við neinum vömum.
Mikill hasar í lokinn
að er víst óhætt að segja að
mikill hasar hafí verið í Höll-
inni eftir leikinn í gærkvöldi. Svo
mikið gekk á að minnstu munaði
að til átaka kæmi um tíma.
Ástæðan mun fyrst og fremst
hafa verið sú að menn töldu Viggó
Sigurðsson hafa iamið unga
stúlku. Viggó sagðist sjálfur hafa
rekið sig í stúlkuna þegar hann
strunsaði til búningsherbergja eft-
ir að hafa deildt við dómarana
Blaðamaður var ekki í aðstöðu
til að sjá hvað gerðist en ef það
er rétt sem margir sögðu í gær
að Viggó hafí lamið ungu stúlk-
una þá er það auðvitað mjög
slæmt og ekki til fyrirmyndar.
Hvort sem það er rétt eða ekki
þá er það umhugsunarefni fyrir
forráðamenn Hallarinar og/eða
félaganna hvort ekki verði að
hafa betri gætur á áhorfendum
þegar leikir fara fram, þannig að
þeir komist ekki í færi við mis-
munandi æsta leikmenn og þjá-
fara..