Morgunblaðið - 21.12.1988, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 21. DESEMBER 1988
Ekkert venjubundið
samráð haft í vetur
- segir Ólafiir G. Einarsson
í GÆR náðist samkomulag- um það
milli stjómar og stjóraarandstöðu
að stefha að þvi að afgreiða tekju-
öflunarfrumvörp ríkisstjómar-
innar fyrir jól en bíða með þriðju
umræðu fjárlaga þangað til milli
jóla og nýárs.
„Hið venjubundna samráð, þ.e.
reglubundnir fundir með formönnum
þingflokka, þingforsetum og forætis-
ráðherra, hefur ekki verið til í vet-
ur,“ sagði Ólafur G. Einarsson, for-
maður þingflokks sjálfstæðismanna,
þegar Morgunblaðið innti hann eftir
því hvemig þingstörfum yrði háttað
næstu daga. „I dag var hins vegar
haldinn fundur með forsætisráð-
herra, að ég held annar fundurinn í
vetur sem hann mætir á.“ Ólafur
G. sagði að á þessum fundi virtist
það hafa runnið upp fyrir sumum í
fyrsta skipti, það sem öðram hefði
verið ljóst lengi, að ekki yrði hægt
að afgreiða flárlög fyrir jól. Um það
væri ekki við neinn að sakast, vinnan
hefði tekið þetta langan tíma og fjár-
veitinganeftid ekki getað verið tilbúin
fyrr.
Forsætisráðherra óskaði eftir því
á fundinum í gær að reynt yrði að
afgreiða skattafrumvörp ríkisstjóm-
arinnar fyrir jól og menn myndu svo
koma til funda milli jóla og nýárs til
að ljúka afgreiðslu fjárlaga.
„Það hefur verið töluverð umræða
um vinnubrögð í þinginu og látið að
því liggja að stjómarandstæðan væri
að tefla framgang mála. Þess vegna
væri nú þessi tímaþröng rétt fyrir
jól. Þannig var t.d. ekki rætt um
annað til klukkan 17 en vinnubrögð
í þinginu. Þrátt fyrir það tafðist ekk-
ert mál því það var ekkert mál á
dagskrá. Ríkisstjómin var ekki tilbú-
in með sín höfuðmál," sagði Ólafur
G. Vísaði hann því á bug með öllu
að stjóraarandstaðan hefði tafíð af-
greiðslu mála.
Sjá nánar fréttir á bls. 41
Búnaðarbankinn og Iðnaðarbankinn:
Síðdegisafgreiðslu
hætt í spamaðarskyni
TVEIR viðskiptabankanna, Bún-
aðarbankinn og Iðnaðarbankinn,
hafa ákveðið að fella niður síðdeg-
isafgreiðslur sem hafa verið opn-
ar á fimmtudögum á bilinu milli
ldukkan 17.00 og 18.00. Tfl þessa
er gripið f spamaðarskyni, segir
f frétt sem þessir bankar sendu
sameiginlega frá sér í gær.
Síðdegisþjónustan verður lögð nið-
ur frá og með 12. janúar næstkom-
andi. Bankamir segja að margvísleg-
ar ráðstafanir til að draga úr rekstr-
arkostnaði hafi verið til athugunar
að undanfömu og eigi að ná ákveðn-
um markmiðum í þeim efnum þegar
á árinu 1989. Þetta leiði óhjákvæmi-
lega til skerðingar á þjónustu bank-
anna.
Bent er á í fréttinni að síðdegis-
þjónustan hafi verið lítið notuð af
viðskiptavinum og hún hafi verið
mjögr kostnaðarsöm fyrir bankana.
Viðskiptavinum er bent á þjónustu
hraðbanka og tölvubanka sem geti
sinnt algengustu bankaviðskiptum
allan sólarhringinn.
Lánskjaravísitalan:
0,22 hækkun í desember
Seðlabankinn hefiir reiknað
lánskjaravisitölu fyrir janúar
1989. Lánskjaravísitalan 2.279
gildir fyrir janúar 1989 og hefur
hækkað frá þessum mánuði um
0,22%.
Þegar þessi breyting er umreikn-
uð til árshækkunar jafngildir hækk-
unin síðasta mánuð 2,7% hækkun
lánskjaravísitöiu á heilu ári. Hækk-
unin síðustu þijá mánuði jafngildir
einnig 2,7% á ári, síðustu sex mán-
uði jafngildir hækkunin 11,9% árs-
hækkun og síðustu tólf mánuði
hefur lánskjaravísitalan hækkað
um 19,1%.
Hæstiréttur:
Þyngdar
refeing-
arvegna
manndrápa
HÆSTIRÉTTUR hefúr þyngt
re&ingu, sem undirréttur hafði
ákveðið, i tveimur manndrápsmál-
um.
Einar Siguijónsson, 24 ára gam-
all, var i fyrradag dæmdur til 14 ára
fangelsisvistar fyrir að hafa, þann
29. ágúst 1987, orðið Ingólfi Ómari
Þorsteinssyni, 26 ára gömlum, að
bana af ásettu ráði í verbúð í Innri-
Njarðvík. Einar var einnig ákærður
og sakfelldur fyrir nokkur auðgunar-
brot. í Sakadómi Njarðvíkur hafði
hann verið dæmdur í 12 ára fanga-
vist. Veijandi hafði krafist vægustu
refsingar sem lög leyfa en ákæra-
vald áfrýjaði til þyngingar.
Sama dag var Svanur Elí Elías-
son, 29 ára gamall, dæmdur til 12
ára fangelsisvistar fyrir að hafa orð-
ið Jóhannesi Halldóri Péturssyni, 41
árs gömlum, að bana af ásettu ráði
á heimili Svans í Skipholti, þann 7.
nóvember 1987. í Sakadómi
Reykjavíkur hafði 10 ára fangelsis-
vist verið talin hæfileg. Veijandi
mannsins krafðist sýknu af kröfum
ákæravalds en ákæravald krafðist
þyngingar refsingar.
Bæði málin dæmdu hæstaréttar-
dómaramir Guðmundur Jónsson,
Benedikt Blöndal, Bjami K. Bjama-
son og Guðmundur Skaftason og
Haraldur Henrýsson, settur hæsta-
réttardómari. í máli Svans vildi Guð-
mundur Jónsson einn staðfesta
ákvæði héraðsdóms um refsingu.
Frumvarp um Tryg'g'inga-
sjóð fískeldislána lagt fram
Verður 1 vörslu Stofnlánadeildar landbúnaðarins
STEINGRÍMUR J. Sigfússon landbúnaðarráðherra hefiir lagt fram
frumvarp á Alþingi um stoftmn Tryggingasjóðs fiskeldislána. Hlutverk
sjóðsins á að vera að tryggja greiðslu afurðalána sem bankar veita
fiskeldisfyrirtækjum, þannig að rekstrar- og afúrðalánin geti numið
allt að 75% af verðmæti birgða. Sjóðurinn skal vera í vörslu Stofiflána-
deildar iandbúnaðarins en lúta stjóra nefndar sem landbúnaðarráð-
herra skipar.
„Ég fagna því mjög að þetta frum-
varp skuli nú loksins vera komið fram
og póhtísk ákvörðun því tekin. Við
höfum lengi beðið eftir niðurstöðu
en lengi hefur verið ljóst að ekki er
hægt að fá hækkun á rekstrar- og
afurðalánum nema ‘gegn ríkis-
ábyrgð,“ sagði Friðrik Sigurðsson,
framkvæmdastj óri Landssambands
fiskeldis- og hafbeitarstöðva. Fisk-
eldismenn lögðu upphaflega til að
stofnuð yrði sérstök deild við Ríkis-
ábyrgðasjóð en Friðrik sagði að þeir
hefðu ekkert út á það að seija að
ríkisábyigðin væri veitt í gegn um
Stofnlánadeild. Taldi Friðrik að ef
framvarp þetta yrði að lögum myndi
rekstrarfjárskortur fiskeldisfyrir-
tækja lagast mjög. Þá ættu að skap-
ast almenn skilyrði til að reka fyrir-
tækin með eðlilegum hætti.
Landbúnaðarráðherra leggur
áherslu á að frumvarp þetta verði
afgreitt fyrir áramót, að sögn Frið-
riks og sagðist hann vona að það
tækist. Vandinn væri orðinn ákaflega
mikill.
Ágreiningur um Inga Björn sem
varaformann Borgaraflokksins
Tilraun til að tengja „hulduherinn“ fastari böndum
við flokkinn segir Albert Guðmundsson
ÁGREININGUR er innan Borg-
araflokksins um þá tillögu Al-
berts Guðmundssonar for-
manns flokksins að Ingi Bjöm
Albertsson taki við varafor-
mennsku í flokknum fram að
landsfundi flokksins í haust.
Albert Guðmundsson segir að
tillaga sin um Inga Björn sé
tflraun tfl að tengja „hulduher-
inn“ svokaliaða fastari böndum
við Borgaraflokkinn, en stuðn-
ingsmenn Alberts I Reykjavík
hafa gengið undir þessu nafiii.
Þá segir Albert að samstaða sé
innan 15 manna aðalstjómar
um tillögu sína.
Fyrir liggur að Júlíus Sólnes,
þingmaður Reyknesinga, tekur
við formennsku flokksins þegar
Albert Guðmundsson verður
sendiherra íslands í París eftir
áramót. Óli Þ. Guðbjartsson þing-
maður Suðurlands verður formað-
ur þingflokksins og Ólafur Gránz
varaþingmaður Suðurlands er rit-
ari flokksins. Ingi Bjöm Alberts-
son er þingmaður Vesturlands.
Þegar Albert lagði það til á
þingflokksfundi Borgaraflokksins
á mánudag að Ingi Bjöm tæki við
varaformennsku fram að lands-
fyndi mótmælti Guðmundur
Ágústsson þingmaður Reyk-
víkinga þeim hugmyndum og taldi
m.a. með því gengið á hlut Reyk-
víkinga í forastu flokksins, enda
væri þar stærsti hluti kjósenda
flokksins. Einnig væri kveðið á
um það í lögum flokksins að kos-
ið væri í sijóm hans á lands-
fundi. Albert ákvað síðan að
leggja tillögu sína fyrir 15 manna
aðalstjóm Borgaraflokksins.
Ásgeir Hannes Eiríksson vara-
þingmaður, sem sóttist eftir vara-
formannsembættinu á síðasta
Iandsfundi Borgaraflokksins
haustið 1987, segir að hann og
fleiri muni beita sér fyrir því að
landsfundi verði flýtt svo hægt
sé að kjósa nýja forystu flokks-
ins. Hann sagðist aðspurður vera
enn í ffamboði til varaformanns,
þar sem hann hefði einungis frest-
að framboði sínu á síðasta lands-
fundi til að skapa einingu í flokkn-
um.
Aðspurður hvort hann myndi
sætta sig við það að aðalstjóm
Borgaraflokksins féllist á tillögu
Alberts, sagði Ásgeir Hannes að
stjómin hefði ekki vald til að
ákveða þetta, og til greina kæmi
að leita úrskurðar félagsmála-
ráðuneytisins, ef þetta yrði ofaná.
Einnig væri hætta á að flokkurinn
klofnaði.
Benedikt Bogason, sem tekur
við þingmennsku í Reykjavík þeg-
ar Álbert hætti, sagði við Morgun-
blaðið að hann teldi eðlilegt að
fresta því til landsfundar í haust
að velja varaformann. Hann var
í ffamboði til embættisins á
síðasta landsfundi, en sagðist ekki
myndu gefa kost á sér aftur.
Hann benti hins vegar á að Reyk-
víkingar ættu gott varaformanns-
efni á þingi, Guðmund Ágústsson,
og samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins íhugar Guð-
mundur að gefa kost á sér í þetta
embætti.
Hera Björg Emilsdóttir
Látin éftir
umferðarslys
LÍTIL stúlka, sem varð fyrir bíl
á Skeiðarvogi á þriðjudag í
síðustu viku, lést í Borgarspítal-
anum á mánudagskvöld.
Hún hét Hera Björg Emilsdóttir
og var til heimilis á Réttarholtsvegi
61 í Reykjavík. Hera Björg var
fædd 29. desember 1984.