Morgunblaðið - 21.12.1988, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 21.12.1988, Blaðsíða 51
MÓRÖWfeEÁÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2l‘. DESEMBER Í988 51 Gullfiskar Herdísar Hallvarðsdóttur: Persónulegt verk og hafið yfir tískusveiflur Það er talsverð kúnst að semja tónlist sem er hafin yfir tfsku- sveiflur þannig að hún virðist gjaldgeng nánast hvenær sem er og hvar sem er. Þannig finnst mór sú tóniist vera sem Herdís Hallvarðsdóttir flytur okkur á sinni fyrstu sólóplötu, Gullfiskar. Lögin á þessari plötu eru líka þeim kostum gædd, að maður fer ósjálfrátt að hlusta á þau aftur og aftur og þau verða sífellt betri eftir því sem maður hlustar oftar. Á plötuumslagi segir Herdís að það séu forréttindi að fá tækifæri til að gera hljómplötu eftir eigin höfði, og sjálfsagt er það rétt hjá henni. En eftir að hafa hlustað á plötuna finnst mér það líka viss forréttindi fyrir okkur hin, að fá tækifæri til aö njóta slíkrar plötu. Sannleikurinn er nefnilega sá, að fyrir utan fallegar laglínur á Gull- fiskum er boðskapur textanna óvenju einlægur og manni finnst einhvern veginn að maður þekki Herdísi persónulega eftir að hafa hlustað á og íhugað boðskap text- anna. Á textablaði hefur Herdís skrifað formála við hvert lag og það færir hlustandann nær þeim viðfangsefnum sem hún er að fjalla um hverju sinni. Herdís segir á plötuumslagi aö hvert lag hafi sín séreinkenni og sína skapgerð, svo helst megi líkja þeim við börn. Við þetta mætti bæta að þessi „börn" Herdísar eru á misjöfnum aldri og sum lögin bera það með sér að þau eru sam- in fyrir nokkuð mörgum árum. Það rýrir þó ekki gildi þeirra, því eins og áður segir eru þau flest þannig að tímasetningin skiptir ekki máli. Þess vegna gæti ég vel trúað að mörg laganna ættu eftir að lifa góðu lífi á ókomnum árum og raun- ar má slá þvi föstu, að platan sem slík, úreldist ekki um leið og jóla- plötuvertíð þessa árs lýkur, eins og viðbúið er með þær hljómplötur sem háðar eru tískusveiflum og tíðarandnaum hverju sinni. Það er dálítið erfitt að gera upp á milli einstakra laga á þessari plötu því það fer eiginlega eftir því ( hvernig skapi maður er hverju sinni hvaða lag hljómar best. Þó get ég nefnt að lagið „Um geðsá- lina í mér“ er alltaf að skjóta upp kollinum í huga mér, enda með fallegri lögum sem ég hef heyrt í langan tíma. Margir góðir tónlist- armenn aðstoða Herdísi á þessari plötu og auk hennar sjálfrar syngja Guðrún Gunnarsdóttir, Helga B. Magnúsdóttir og Eyjólfur Kristj- ánsson aðalraddir í nokkrum lag- anna. Guðrún og Helga standa sig inn og er sérstök ástæða til að geta þar frammistöðu Valdi- mars Flygering, Eggerts Þor- leifssonar, Hönnu Maríu Karls- dóttur og Sigrúnar Eddu Björns- dóttur, þótt frammistaða hinna sé einnig góð, enda allt vanir menn og konur. Ég sé ekki ástæðu til að gera hér upp á milli einstakra laga á plötunni, en blúskenndu lögin létu /ainna best í eyrum þess sem þetta skrifar. Hljóðfæraleikarar eru Jóhann G. Jóhannsson á hljómborð, Birgir Bragason, bassi, Pétur Grétarsson, trommur, Björgvin Gíslason gítar og hljómborð, og Árni Scheving á víbrafón, harm- ónikku, marimba og saxófón og ieysa þeir allir hlutverk sitt vel af hendi eins og við var að bú- ast. Þótt þessi plata sé aö vísu ekki neitt yfirburðaverk út frá faglegum sjónarmiðum er full ástæða til að mæla með henni við alla þá sem eru opnir fyrir léttum húmor og skemmtileg- um tónlistarlegum fléttum. Sveinn Guðjónsson báðar vel, en Eyjólfur hefur hins vegar oft notið sín betur að mínum dómi. Sjálf stendur Herdís fyllilega fyrir sínu í söngnum og þegar um svo einlægt og persónulegt verk er að ræða eins og þessa plötu, finnst mér alltaf skemmtilegra að heyra lögin í flutningi höfundar. Mörgum kann að þykja nóg um þá lofgjörð sem þessi gagnrýni hefur þróast upp í því vissulega er þessi plata ekki gallalaus. En þegar um svona fallegt og per- sónulegt verk er að ræða hefur maður ekki geð í sér til að vera með einhvern sparðatíning um hluti, sem skipta í rauninni litlu sem engu máli varðandi heildarút- komuna á þessari sérstæðu plötu Herdísar. Sveinn Guðjónsson RÆTUR ISLEIMSliRAR NEMimGAR eftir Einar Pálsson Allt ritsafnið fæst nú hjá forlaginu ívönduðu bandi. Bókaútgáfan Mímir, Sólvallagötu 28, sími 25149. Yörumarkaðurinn KRINGLAN, S. 685440 Litli sælkeraofninn Tilvalinn þegar matbúa þarf fyrir 1, 2, 3 eða fleiri. Þú bakar, eldar, steikir, „gratinerar", þíðir, hitar upp, grillar o.fl. o.fl. í sælkeraofninum snjalla. Sjálfhreinsandi ofn fyrir heimilið. Margur er knár þótt hann sé smár! Mál: 29 x 26,5 x 37,5 cm. Jólaverð kr. 6.800,- Rowenta FB 12 FTJNAI fullkommn örbylgjuofn ☆ Mjög sparneytinn Nákvæm klukka Auðvelt að þrífa Færanlegur afþíðingarbakki Afþíðingarstilling Einfaldur í notkun 1100 W ofn frá Japan Ytri mál H. 28,0 B. 49,2 D. 30,4 InnrimálH. 19,5 B. 31,5 D. 28,0 Allt þetta fyrir aöeins kr. 17.859 stgr. Má bjóða ykkur svissneska þvottavél með öllum hugsanlegum möguleikum fyrir kr.38.211,- Hreinlega hlægilegt verð, hágæða vél. Tölvuprófuð fyrir afhendingu o.fl. slgr. Leit þinni er lokió! Hér er komin kaffivélin sem hellir beint í hitabrú- sann (sem fylgir með). Nýjung og auðvitað ROWENTA fyrir aðeins kr. 3.930,- Ekkert venjuleg BRAUÐRIST ROWENTA TO 38,0 Hitnar ekkert að utan. Nýjung í hitaleiðurum: Samloku- hitai, jafnari og betri hiti. Sú besta! Fáanlegirfylgihlutir. FUNAI VCR5400 VHS myndbandstaeki * jjf • Hraðupptaka • Rakavarnarkerfi (Dew) O Sjálfvirk bakspólun • Fjölhæft minni • Sjálfleitun stöðva O Einfalt og fullkomið Ótrúlegt jólatilboó 29.999,- stgr. - JAPÖNSK TÆKNI í HÆSTA GÆÐAFLOKKI! HQ (high quality) kerti Þráðlaus fjarstýring 4 þátta/14 daga upptökuminni Stafræn afspilun (digital) Sjálfleitun síðustu upptöku NYTT A ISLANDI „BAKARAMEISTARIN N “ Ótrúlegt Nú geta aliir bakað! Meira að segja þeir sem aldrei hafa kunnað það eða ekki haft tíma til þess. Bakara- meistarinn vinnur allt verkið og þú sinnir öðru á meðan. JólatilboA kr. 22.300,- P.S. Byrjið daginn með ný- bökuðu og „góðu“ brauði. 60 milljón straujárn mæla með Rowenta ROWENTA kaffivélar Fást í öllum betri raftækjaverslunum P.S.: noi FINNUR ÞU JOLAGJOFINA Verið velkomin KRINGLAN, S. 685440
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.