Morgunblaðið - 21.12.1988, Qupperneq 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1988
V!'.>*'Tjn.T01:l'M D V U J/U JJ IVTF'j<l (mAlMlJia'Jl';—
Sjómannalög beint
í æð á frívaktinni
mjómplötur
Árni Johnsen
Á frívaktinni sem hljómplötuút-
gáfan Steinar hefur gefið út eru
10 þekkt sjómannalög í nýjum bún-
ingi. 6 af þessum 10 söngvum eru
ættaðir frá Vestmannaeyjum og
ekki að furða þegar valin eru vin-
sælustu sjómannalög landsins, því
flest hafa þau komið frá Vest-
mannaeyjufn og meira að segja lög
sem ekki tengjast beint sjónum í
texta, en hafa unnið hug og hjörtu
sjómanna sem annarra landsmanna
og má þar nefna lagið Ég veit þú
kemur, eftir Oddgeir Kristjánsson
við ljóð Ása í Bæ.
Öll lögin á plötunni eru útsett
af Gunnari Þórðarsyni og honum
bregst ekki bogalistin frekar en
fyrri daginn, hann skiptir skemmti-
lega um ytri búning á nokkrum
laganna og ugglaust eiga menn
eftir að venjast því, en það er
skemmtileg tilbreyting í túlkun
Gunnars og vandað til í hvívetna.
Það má með sanni segja að sjó-
mannasöngvar í íslenskum dægur-
lagaheimi skipi ámóta sess og kú-
rekasöngvar í Bandaríkjunum, en
það er að sjálfsögðu engin tilviljun
að mörg laga hins ástsæla tón-
skálds Oddgeirs Kristjánssonar
hafa verið leikin í liðlega hálfa öld
og hafa ekkert látið á sjá nema
síður sé. Að sjálfsögðu hafa þau
mótast í nokkuð markvissan farveg
í flutningi, en vegir tónlistarinnar
eru óendanlegir og útsetjari hefur
ákveðið svigrúm í hvert eitt sinn.
Á frívaktinni varð til upp úr hug-
mynd Sjómannadagsráðs frá því í
sumar leið þegar haldið var upp á
50 ára afmæli Sjómannadagsins,
en þá var flutt sérstök dagskrá með
sjómannalögum þar sem Egill
Olafsson, Björgvin Halldórsson,
Eiríkur Hauksson, Jóhann Helga-
son og Ragnar Bjamason fluttu
lögin og þeir eru allir á ferðinni á
ný á frívaktinni í nýjum útsetning-
um Gunnars Þórðarsonar sem fyrr
getur auk Ríó tríós.
Þessi ágæta plata mælir með sér
sjálf. Það er dúndrandi stemmning
á henni, góður söngur og vel spilað
þótt alltaf megi deila um taktinn.
Það munar líka svo miklu hvort
siglt er í blíðu eða stríðu en þegar
um er að ræða lög eins og Blítt og
létt, Ég veit þú kemur og Ship-o-
hoj eftir Oddgeir við texta Áma úr
Eyjum, Ása í Bæ og Lofts Guð-
mundssonar þá ættu allir að una
glaðir við sitt. Þá má nefna hið ítur-
snjalla lag Ása í Bæ, Við brim-
somfa kletta, Einsa kalda úr Eyjun-
um eftir Jón Sigurðsson, og Is-
lensku sjómennina eftir Gylfa
Ægisson. Af öðrum perlum á plöt-
unni má nefna hinn rómaða sjó-
mannavals Svavars Benediktssonar
við ljóð Kristjáns frá Djúpalæks og
Þórð sjóara eftir Þórð Pétursson
við ljóð Djúpalækjarskáldsins. Af
nýrri lögum má nefna Gvend á
Eyrinni eftir Rúnar Gunnarsson við
texta Þorsteins Eggertssonar og
Hafið eftir Gunnar Þórðarson við
ljóð Ólafs Hauks Símonarsonar.
Áuk Gunnars leika á Frívaktinni
Gunnlaugur Briem, Kristinn Svav-
arsson og Eyþór Gunnarsson en um
hljóðblöndun sáu Sigurður Bjóla
Garðarsson og Baldur Már Ám-
grímsson.
Á Frívaktinni er röð af gömlum
dægurlagavinum, sem sífellt eru
aufúsugestir fyrir fólk á öllum aldri.
Eyðimerk-
urhálsar í
þrumustuði
Eyðimerkurhálsar heitir hljóm-
plata Rúnars Þórs sem kom út fyr-
ir skömmu _og er tileinkuð 10 ára
afmæli SÁÁ, enda á ágóði af plöt-
unni að renna tú þess árangursríka
starfs sem SÁÁ hefur skilað. Á
plötunni em 10 lög sem segja má
að séu öll góð, en sum mjög góð.
Rúnar Þór undirstrikar það með
plötu sinni að hann er góður laga-
höfundur og útsetningar á lögunum
eru mjög líflegar og hljómmiklar,
en textinn vill eilítið hverfa í sumum
lögum plötunnar og er þar um að
VERKAMANNABÚSTAÐIR í REYKJAVÍK
SUÐURLAHDSBRAUT 30,108 REVKJAVfK
UMSOKNIR
Stjóm verkamannabústaða í Reykjavík óskar eftir umsóknum um kaup á íbúð-
um sem áætlað er að komi til afhendingar frá miðju ári 1989 til jafnlengdar 1990.
Um er að ræða bæði nýjar og notaðar íbúðir.
Um ráðstöfun, verð og greiðsluskilmála þessara íbúða gilda lög númer 60/1984.
Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu VB Suðurlandsbraut 30 og verða
þar einnig veittar allar almennar upplýsingar.
Skrifstofan er opin mánudaga til föstudaga kl. 9.00-12.00 og 13.00-16.00.
Umsóknum skal skilað eigi síðar en 10. janúar 1989.
Stjórn Verkamannabústaða íReykjavík.
BHUARD. BORBTEMIS. PÍMAST
Billiardborð 2 fet kr.
Billiardborð 3fet kr.
Biiliardborð 4fet kr.
Billiardborð 4,5 fet kr.
Billiardborð 6fet kr.
Billiardborð 7 fet kr.
2.140
2.750
4.320
10.640 stgr.
13.205 stgr.
30.305 stgr.
Sími 35320
Sendum í póstkröfu
Kreditkortaþjónusta
tereíunin vfy
HRKIQ
Láttu þér ekki leiðast í skammdeginu
Dartpílur 3 stk. frá kr. 178
Dartspjöid verð frá kr. 430
Dartspjöld keppnis, Bristle, kr. 2.190
Borðtenniskúlur
Borðtennisspaðar
Borðtennisborð, verð frá kr. 7.900 stgr.
Borðtennisborð á hjólum, verð frá kr. 12.255 stgr
kenna hljóðblöndun. Til dæmis
njóta sín ekki sem skildi ágætir
söngvarar sem Rúnar Þór hefur
fengið til liðs við sig, nema Bubbi
Morthens sem siglir í gegn með
sínu striki.
Textar Eyðimerkurhálsanna eru
eftir ýmsa menn og tengjast þeir
flestir reynslu manna af víni, en
eru þó látlausir í eðli sínu og svo
sem mynd af daglegum sjónarmið-
um, en þótt þeir séu nokkuð daprir
falla þeir vel að líflegri tónlist plöt-
unnar og úr verður sérstæð plata
sem stendur vel fyrir sínu. Lagið
1.12’87 eftir Rúnar Þór er gullfal-
legt lag án söngs og útsetning þess
eitt það besta á plötunni. Það væri
skemmtilegt að sjá ballettkafla við
það tónverk. Þá er mjög fallega
flutt lagið Höfðingi smiðjunnar eft-
ir Rúnar Þór við ljóð Davíðs Stef-
ánssonar, en svipmeira hefði verið
að fá Egil Ólafsson sterkari í gegn
með Rúnari Þór sem annars- er
ágætur söngvari og bestur í
Cohen-stíl sem hann bregður fyrir
sig.
Það eru margir ágætis listamenn
sem hafa lagt hönd á plóginn í
Eyðimerkurhálsunum og platan
nýtur þess. Hún er rokkuð og mel-
ódísk og er ágætis innlegg í barátt-
una sem hún er tengd um leið og
hún er alhliða skemmtiplata.
Hjálpar-
starfsplatan
Hjálparhönd
Kristilega hljómplatan Hjálpar-
hönd er vönduð að upptöku og allri
gerð. Textarnir eru samdir eins og
orðunum er eðlilegt að líða af munni
fram, en það er Hjalti Gunnlaugsson
sem hefur haft umsjón með gerð
plötunnar. Hjálparhönd er afrakstur
samkirkjulegs hjálparstarfs þar sem
markmiðið er aðstoð við fólk í þriðja
heiminum, en það starf sem Hjálpar-
hönd leggur lið er í Mexíkó.
Fjölmargir góðir listamenn koma
við sögu á Hjálparhönd, með söng
hljóðfæraleik, upptökum og öðru sem
þarf að vinna við eina hljómplötu.
Hjálparhönd fæst einnig á snældu
og geisladisk. Yfírleitt eru lög plöt-
unnar íjörleg og margir söngvarar
syngja á plötunni. Má þar nefna
Þorvald Halldórsson, Sólveigu
Guðnadóttur, Pétur Hrafnsson,
Hjalta Gunnlaugsson, Helgu B.
Óskarsdóttur, Guðrúnu Magnúsdótt-
ur, Helgu Bolladóttur, Sigurbjörgu
Níelsdóttur, Samúel Ingimarsson,
Hrefnu Guðnadóttur, Þóru Þóris-
dóttur og Sigríði Guðnadóttur.
Hjálparhönd er vel gerð og
skemmtileg plata á kristilegum nót-
um og tilefnið er hjálparstarf í Mex-
íkó. Góð plata og göfugt málefni
fara þar saman.
Lómurinn
Lævís á léttu
nótunum
Lýður Ægisson skipstjóri og tón-
listarmaður hefur nýlega sent frá
sér nýja hljómplötu með eigin lögum
og að þessu sinni eigin textum einn-
ig. Lómurinn Lævís heitir þessi
frísklega plata þar sem Lýður er
samur við sig og siglir sinn tónasjó
í melódískum og hefðbundnum takti
sem á svo gott með að hrífa allan
þorra fólks með. Á plötu Lýðs eru
10 lög og Lýður er með góða menn