Morgunblaðið - 23.12.1988, Síða 17
félagið lenti í greiðsluþrot metin á
45 milljónir króna. Hún var seld á
nauðungaruppboði fyrir um 19
milljónir króna, en eigandi hennar
nú mun vera hlutafélag þar sem
aðilar samvinnuhrejrfingarinnar
eiga 80% hlutaljár.
Eftir að bú Kaupfélags Sval-
barðseyrar var tekið til gjaldþrota-
skipta kom til álita að selja eignir
félagsins á fijálsum markaði. Þar
á meðal frystihús þess. Formaður
stjómar Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga Valur Amþórsson, mun
hafa verið mjög fylgjandi og fýs-
andi þess að sú leið yrði farin. í
dag em menn sjálfsagt sammála
um það að það hefði orðið affarar-
sælasta leiðin og fírrt mestu tjóni.
Hins vegar náðist ekki um það sam-
staða hjá eigenda meirihluta krafna
í búið, þar á meðal Samvinnubank-
ans. í frystihúsið hafði borist kaup-
tilboð fyrir um 38 milljónir króna
sem Samvinnubankinn sem einn af
stærstu kröfuhöfum vildi ekki sam-
þykkja. Samvinnubankanum var
lögð út eignin á um 15 milljónir
króna. Bændur höfðu því fulla
ástæðu til þess að ætla að tómlæti
og viljaleysi bankans í að ganga
að þeim ætti við efnisrök að styðj-
ast.
Eins og áður getur, mátti ráða
af grein Hermanns að Iðnaðarbank-
inn hefði sýnt ábyrgðarmönnunum
meiri hörku en Samvinnubankinn
og þegar hafið ijámámsaðgerðir.
Það er að vísu rétt, að Iðnaðarbank-
inn gerði ráðstafanir til þess að
tryggja rétt sinn með málssókn
gagnvart ábyrgðarmönnunum.
Skipta má kröfum Iðnaðarbankans
á hendur ábyrgðarmönnunum í þijá
liði. Um einn liðiina er ekki ágrein-
ingur. Um annan liðinn er því hald-
ið fram að mistök umboðsmanna
bankans hafí valdið því, að réttur
bankans féll niður, en að því er
þriðja liðinn varðar tel ég að mistök
eða misskilningur hafí valdið því
að rasað hafí verið að því að fylla
út víxileyðublað eftir að víxilréttur
var fymdur gagnvart ábyrgðar-
mönnum og fylltur út með mun
hærri fjárhæð en þeirri er bankinn
hafði lýst í búið og samþykkt hafði
verið við upphaf gjaldþrotaskipt-
anna. Tel ég fremur ósennilegt að
Iðnaðarbankinn láti á víxil þennan
reyna. Ágreiningur vegna hins
málsins er hins vegar nú fyrir
Hæstarétti. Hins vegar ber að taka
það fram, að þrátt fyrir það að Iðn-
aðarbankinn hafí tryggt sér rétt
sinn í því máli sem ágreiningur er
ekki um hefur hann lýst fullum vilja
á að semja um greiðslu þeirrar
skuldar.
Vegna margnefndrar greinar
Hermanns Sveinbjömssonar þótti
mér rétt, að sjónarmið bændanna
kæmu fram á sama vettvangi, svo
að lesendur sem vildu gætu skoðað
málin frá sjónarhóli beggja. Ég ef-
ast ekki um hæfí og kunnáttu lög-
manna Samvinnubankans og Sam-
bandsins og tel að þeir hafí af sam-
viskusemi lagt málin svo fyrir um-
bjóðendur sína að þar væru dregnar
fram helstu málsástæður og laga-
rök fyrir hugsanlegri kröfugerð.
ÚRVALS LEÐURFATNAÐUR
m
Skólavörðustíg 17a, sími 25115.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. DESEM^ER 1988
. t"i'--iÍTiil "•■■V1 . ■> : ■ ... í lif.i —
En eins og áður var tekið fram jafn-
gildir hvorki álit þeirra né mitt dómi
í málinu. Því var það, þegar tilboð
Sambandsins var kynnt fyrrverandi
stjómarmönnum kaupfélagsins nú
í síðastliðnum mánuði, þá vom sjón-
armið þau, sem fram koma í grein
þessari kynnt fyrirsvarsmönnum
beggja lánastofnanna og jafnframt
lagt til vegna andstæðra skoðana
lögmanna aðila að bankastofnan-
imar leituðu út fyrir lögfræðideildir
bankanna til hlutlauss aðila t.d.
Lagastofnunar Háskólans um það
hver væri raunveruleg réttarstaða
í málinu. Grein Hermanns bendir
því miður til þess að svo hafi ekki
verið gert því þá hafði hún senni-
lega ekki verið skrifuð.
Næst á undan ásökun sinni á
fyrrverandi stjómarmenn kaupfé-
lagsins í niðurlagi greinar sinnar
segir Hermann Sveinbjömsson:
„þar sem þessir menn vom öðmm
þræði að gangast í þessa ábyrgð
vegna sveitunga sinna, eins og áður
er að vikið, mætti einnig hugsa sér
að íbúamir almennt fyndu blóðið
renna sér til skyldunnar og dreifðu
þessum þriðjungi skuldbindinganna
sín á milli. Það væri samvinnuhug-
sjón og náungarkærleikur í verki.“
Ef kynningarsljórinn hefði nú
skoðað kröfulýsingaskrá í þrotabú
Kaupfélags Svalbarðseyrar áður en
hann flutti þess hugvekju sína hefði
hann getað séð það tjón, sem íbú-
amir almennt höfðu þá þegar orðið
fyrir vegna gjaldþrotsins. Innistæð-
ur þeirra hjá kaupfélaginu vegna
afurða er þeir höfðu lagt inn, í sum-
um tilvikum arðurinn af allt að
heilsársstarfi þeirra hafði þegar
orðið að engu. Vera má að sú ráð-
deild Sambandsins í lok sláturtíðar
1985, þegar kaupfélagið var komið
í greiðsluþrot, að taka í sínar vörsl-
ur að handveði til tryggingar
ábyrgðarskuldbindingum Sam-
bandsins 150 tonn af dilkakjöti,
hafi gert hlut bændanna nokkuð
lakari, en þurft hefði og kröfulýs-
ingaskrá sýnir, því tel ég þessa leið
kynningarstjórans hæpna.
I grein Hermanns Sveinbjöms-
sonar var tekið fram að það hafí
verið samþykkt samhljóða á stjóm-
arfundi Sambandsins hinn 14. nóv-
ember sl. að létta á byrðum ábyrgð-
armanna Kaupfélagsins með þeim
hætti sem til var lagt. Ég efast
ekkert um það að með samþykkt-
inni hafí verið átt við það, að Sam-
bandið hlypi undir bagga með
greiðslu á Vs af þeim kröfum, sem
þar til greindar lánastofnanir ættu
___________________________
ótvíræðan og lögvarinn rétt til
greiðslu á úr hendi ábyrgðarmanna,
þar sem ágreiningur er um það,
hver þessi lögvarði réttur þessara
lánastofnana er, og augljóst hlýtur
að vera að stjómarmenn hafa ekki
ætlast til þess að bændumir fæm
að taka á sig kröfur umfram lög-
boðna skyldu, þá virðist eðlilegt að
leitað sé álits hlutlausra en sér-
hæfðra aðila um réttarstöðuna; ell-
egar að leggja ágreininginn til úr-
lausnar dómstóla, til þess að unnt
sé að framkvæma samþykkt stjóm-
ar Sambandsins í þeim anda er hún
var gerð „það væri samvinnuhug-
sjón og náungakærleikur í verki“.
Gleðileg jól.
Höfundur er hæstaréttarlögmað-
ur.
Ódýr heimilishjálp
frá AEG
iáMw~
Brauðrist AT 20
Eggjasuðutæki f. 7 egg/EK 102
Hrærivél KM 21 Handryksuga Liliput
Ryksuga VampjT 402/1000 W Hárblásari F 1200/1200 W
Umboðsmenn um land allt
Mikligarður, Reykjavík
H.G. Guðjónsson hf., Reykjavík
Hagkaup, Reykjavík
Kaupstaður, Reykjavík
Þorsteinn Bergmann, Reykjavík
BYKO, Kópavogi
Samvirki, Kópavogi
Rafbúðin, Kópavogi
Mosraf, Varmá
Stapafell, Keflavík
Vesturland:
Málningarþjónustan, Akranesi
Húsprýði, Borgarnesi
Blómsturvellir, Hellissandi
Guðni Hallgrímsson,
Grundarfirði
Verslun Einars Stefánssonar,
Búðardal
Vestfirðir:
Bjarnabúð, Tálknafirði
RafbúðJónasarÞórs,
Patreksfirði
Verslun Gunnars Sigurðssonar,
Þingeyri
Straumur, Isafirði
Verslunin Edinborg, Bíldudal
EinarGuðfinnsson hf.,
Bolungarvík
Norðurland:
Kaupfélag Steingrímsfjarðar,
Hólmavík
Kaupfélag Húnvetninga,
Blönduósi
Kaupfélag Skagfirðinga,
Sauðárkróki
Kaupfélag Eyfirðinga, Akurevri
Bókabúð Rannveigar H. Ólafs-
dóttur, Laugum,
S-Þingeyjarsýslu.
Verslunin Sel, Mývatnssveit
Kaupfélag Þingeyinga, Húsavik
Austurland:
Kaupfélag Langnesinga,
Þórshöfn
Kaupfélag N-Þingeyinga,
Kópaskeri
Kaupfélag Vopnfirðinga,
Vopnafirði
Sveinn 0. Elíasson,
Neskaupsstað
Stálbúð, Seyðisfirði
Rafnet, Reyðarfirði
Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga,
Fáskrúðsfirði
Sveinn Guðmundsson,
Egilsstöðum
Kaupfélag Skaftfellinga, Höfn
Suðurland:
E.P. Innréttingar,
Vestmannaeyjum
Mosfell, Hellu
Rás, Þorlákshöfn
Árvirkinn, Selfossi
AFKÖST
ENDING
GÆÐI
AE G heimilistœki
- því þú hleypir ekki hverju sem er í
húsverkin!
BRÆÐURNIR
OKMSSONHF
Lágmúla 9, sími: 38820