Morgunblaðið - 23.12.1988, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1988
25
Pan Am-þotan
var nánast endur-
smíðuð í fyrra
Aldur Boeing 747
þotna bandarískra
Bandarísk llugfélög nota 124
Boelng 747 þotur. Alls aru
692 slfkar þotur í heiminum
öllum. Hér sóst
hversu margar Boeing 747
þotur voru
afhentar bandarfskum
flugfélögum ó árl
hverju síöan árift 1969.
100-p^
New York. Reuter.
JEFF Kriendl-
er, talsmaður
Pan Am, sagði
að breiðþotan
sem fórst yfir
Skotlandi hefði
verið tekin í
notkun árið
1970 en hefði
verið nánast
endursmíðuð í
fyrra og því
verið sem ný.
Síðast var hún
skoðuð í San
Francisco í
síðustu viku, en
það var svokðll-
uð 250 tíma
skoðun.
Kriendler
sagði, að í sam-
ræmi við áætlun
yfirvalda um
notkun farþegaflugvéla í þágu al-
mannavama hefðu í fyrra verið
gerðar umfangsmiklar endurbætur
á þotunni sem fórst. „Hún var öll
tekin í sundur og bókstaflega end-
ursmíðuð," sagði talsmaðurinn.
Kriendler sagði að flugmenn þot-
unnar hefðu ekkert látið frá sér
heyra eftir brottfor frá London sem
benti til þess að þeir hefðu átt við
einhveija bilun að etja. Síðast höfðu
þeir talstöðvarsamband við flugum-
ferðarstjóra tveimur mínútum áður
en þotan hvarf af ratsjám þeirra,
eða um klukkan 19.15. Hún hefði
verið á réttri leið í 31 þúsund feta
haað er hún hvarf skyndilega af
ratsjám klukkan 19.17 að íslenzk-
um tíma. Talið er að brak úr þo-
tunni hafi skollið til jarðar á sömu
mínútu. Að sögn Kriendlers, bendir
það til þess að flugvélarbrakið hafí
fallið hratt til jarðar.
Aðspurður um það hvort
sprengju hefði hugsanlega verið
laumað um borð í þotuna á Heath-
row sagði Kriendler að þar væri
öryggisgæzla með „miklum ágæt-
um“.
Talsmaður Pan Am í Frankfurt
fullyrti að útilokað væri að
sprengju, sem kynni að hafa gran-
dað þotunni, hefði verið smyglað
um borð þar. Aðeins töskur og
72
- Breiöþotan sem-
fórst var afhent -
- áriÖ1 970
'65 '70 '75 '80 '85
HEIMILDIR; Avmark Inc., Boeing, World Jet
Airpiano Inventory at Year End 1Ö67
pakkar, sem far-
þegar létu rita
inn sjálfir eða
tóku með sem
handfarangur,
hefði farið um
borð. Allur far-
angur hefði til-
heyrt mönnum,
sem um borð
voru.
Fulltrúar
bandarískra
flugmálayfir-
valda og Bo-
eing-verksmiðj-
anna komu í gær
til Skotlands til
þess að taka þátt
í rannsókn flug-
slyssins ásamt
fulltrúum brezku
flugmálastjóm-
arinnar.
Syrgja samstúdenta
Reuter
Námsmeyjar í Syracuse-háskólanum I New York-ríki syrgja 37
samstúdenta, sem fórust með þotu Pan Am í Skotlandi. Myndin
var tekin er efiit var til sorgarþagnar við upphaf íþróttaleiks í
skólanum í fyrrakvöld, skömmu eftir að fi*egnin um örlög þotunn-
ar barst.
*
Iranir af-
neita aðild
London. Reuter.
MAÐUR, sem kvaðst tala fyrir
hönd samtaka er nefiidust Verðir
islömsku byltingarinnar, hringdi
í alþjóðlega fréttastofu í London
í gær og lýsti ábyrgð á flugslysinu
í Skotlandi á hendur samtakanna.
Maðurinn neitaði að gefa upp nafn
en sagði að áhöfn og farþegar Pan
Am þotunnar hefðu verið „líflátnir"
í hefndarskyni fyrir árás Bandaríkja-
manna á írönsku þotuna, sem her-
skipið Vincennes skaut niður á Pers-
aflóa í júlí sl. Með þeirri flugvél fór-
ust 290 manns.
Samtökin, sem maðurinn sagðist
tala fyrir, sögðust á sínum tíma hafa
tekið Amirhussein Amir-Parviz, fyrr-
um ráðherra í stjóm írans, og pa-
lestínska teiknarans Ali Naji al Ad-
hami, af lífi. Þeir voru vegnir í Lon-
don í júlí sl. Talið er að um sé að
ræða samtök strangtrúaðra múslima
sem tengjast Jihad-samtökunum í
Líbanon.
Hossein Mousavi, forsætisráð-
herra írans, harðneitaði aðild íran-
skra yfirvalda eða samtökum á þeirra
vegum að flugslysinu. Sendi hann
ættingjum þeirra er biðu bana sam-
úðarkveðjur.
22. janúar, 1973:Þota af gerðinni
Boeing 707 ferst í lendingu á Kano-
flugvelli í Nígeríu. 176 manns týna
lífi.
10. september, 1976:176 manns
farast er Trident-þota í eigu British
Airways og júgóslavnesk farþega-
þota af gerðinni DC-9 rekast á nærri
Zagreb.
1. desember, 1981:DC-9 þota í eigu
júgóslavneska flugfélagsins Inex-
Adria Airways rekst á fjall nærri
Ajaccio á Korsíku. 174 týna lífi.
17. ágúst, 1979:Tvær þotur frá Ae-
roflot-flugfélaginu rekast á yfir Ukr-
aínu. 173 farast.
28. nóvember, 1987:160 manns far-
ast er Boeing 747-þota frá South
African Airways hrapar í hafíð
skammt undan eyjunni Mauritus á
Indlandshafi.
16. ágúst, 1987:Þota af gerðinni
MD-80 f eigu bandaríska flugfélags-
ins Northwest hrapar skömmu eftir
flugtak frá flugvellinum í Detroit.
156 manns farast, þar af þrír á jörðu
niðri. Fjögurra ára gömul stúlka
kemst ein lífs af úr slysinu.
9. júlí, 1982:Boeing 727-þota frá
Pan American hrapar í New Orle-
ans. 153 týna lffi, þar af nokkrir á
jörðu niðri.
Opið til kl. 22
íkvöld