Morgunblaðið - 23.12.1988, Side 55
55
MORGUNBLAÐEÐ iÞRornR PÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1988
Kenny Sansom var { gær seldur
frá Arsenal til Newcastle.
UKENNY SANSOM var í gær
seldur frá Arsenal til Newcastle
fyrir 300 þúsund pund. Sansom,
sem á 86 íandsleiki að baki fyrir
England, hefur
Frá ekki komst í lið
BobHennessy Arsenal í vetur og
lEnglandi leikið eingöngu með
varaliði félagsins.
Hann er þrítugur vamarmaður og
hefur verið hjá Arsenal í átta ár.
Hann mun líklega leika með New-
castle gegn Sigurði Jónssyni og
félögum í Sheffield Wednesday
annan dag jóla.
■ NEWCASTLE með Jim
Smith við stjómvölinn lét sér ekki
nægja að kaupa Sanmos því Smith
keypti einnig hægri bakvörðinn Ray .
Ranson frá Birmingham í gær
fyrir 150 þúsund pund. Ranson er
28 ára og lék með Manchester
City áður en hann gekk til liðs við
Birmingham fyrir þremur árum.
■ VIV Anderson leikur ekki
meira með Manchester' United á
þessu keppnistímabili. Hann hefur
lengi átt við bakmeiðsli að stríða
og í gær fór hann í uppskurð og
þarf minnst hálft ár til að ná fullum
bata. Þetta er mikið áfall fyrir
United sem hefur átt misjafna leiki
að undanfömu.
B MICK MiJIs, framkvæmda-
stjóri Stoke City, hefur keypt Dave
Bamber frá Watford fyrir 170
þúsund pund. Bamber er 24 ára
gamall frammheiji og hefur leikið
meðal annars með Portsmouth,
WalsaU og Swindon.
■ NORWICH, sem er í efsta
sæti ensku deildarinnar, festi kaup
á Mike Flynn frá Oldham At-
hletic í gær fyrir 100 þúsund pund.
Fiynn, sem er 19 ára frammheiji,
hefur leikið 32 leiki fyrir Oldham.
I MAKTIN Hodge markvörður,
sem var seldur frá Sheffield Wed-
nesday til Leicester City fyrir 210
þúsund pund í vor, hefur aðeins
leikið einn ieik með Leicester í
vetur. Ólánið hefur ellt þennan
ágæta markvörð. Hann meiddist í
fyrsta leik sínum með Leicester
og hefur ekki leikið síðan og gerir
það ekki fyrr en í fyrsta lagi í mars.
■ ÍTALIR sigruðu Skota, 2:0, í
vináttulandsleik í knattspymu sem
fram fór fyrir framan 25 búsund
áhorfendur f Perugia á Italíu í
gærkvöldi. Giuseppe Giannini
(víti) og Nicola Berti settu mörkin.
Leikurinn var liður í undirbúningi
Itala, sem eru að yngja upp lið sitt,
fyrir HM 1990. Tveir ítalskir leik-
menn léku sinn fyrsta landsleik í
gær. Það vom þeir Massimo
Crippa og Giancario Marrochi.
Ian Ferguson, miðvallarleikmaður
hjá Glasgow Ragners, Iék einnig
sinn fyrsta landsleik í gær.
■ DANSJKI leikmaðurinn Hen-
rik Nielsen hefur gengið til liðs
við gríska félagið Iraklis. Með því
félagi æfði Am(jótur Davíðsson
um tíma. Margir danskir leikmenn
leika nú með .grískum liðum.
HANDKNATTLEIKUR / HM 1995
HM f Reiðhöllinni?
Athugað hvort hægt sé að stækka Reiðhöilina íyrir HM 1995 -
NÚer verið að athuga hvort
möguleikar sóu á að stœkka
Reiðhöllina í Víðidal svo hœgt
verði að nota hana sem
keppnishús í Heimsmeistara-
keppninni í handknattleik
1995. Á Ólympfuleikunum í
Seoul var ákveðið að Heims-
meistarakeppnin 1995yrði
haidin á íslandi. Þau skilyrði
voru sett að mótshaldarar
gœtu boðið upp á fþróttahús
sem rúmaði 8.000 áhorfend-
ur. Ríkisstjórnin samþykkti að
byggja nýja íþróttahöll en nú
er verið að athuga hvort Reið-
höllin gœti leyst vandann.
Bygging nýrrar íþróttahallar
yrði mjög dýrt fyrirtæki og
gæti jafnvel kostað 600-900 millj-
ónir kr. Þvf væri mun ódýrara ef
hægt væri að stækka Reiðhöllina
þannig að hún tæki um 8.000
áhorfendur og leggja þar gólf fyr-
ir handknattleik.
„Mér finnst alveg sjálfsagt að
athuga þetta. Við þurfum að upp-
Relðhöllln 5 Víðidal. Verður leikið í henni f heimsmeistarakeppninni 1995?
fylla óskir alþjóða handknattleiks- rúmar um 8.000 áhorfendur og
sambandsins um íþróttahöll sem það má vel hugsast að hægt sé
að nota Reiðhöllina," .sagði Jón
Hjattalin Magnússon, formaður
HSÍ. „Það ætti að vera lítill vandi
að leggja færanlegt gólf á Reið-
höllina og það þyrfti ekki kosta
nema um 3-4 miUjónir.
Við höfum hinsvegar ekki að-
eins hugsað okkur nýja höíl fyrir
handknattleik. Það mætti nota
hana undir ráðstefnur og vörusýn-
ingar, samhliða fþróttamótum.
Það myndi færa ríkinu dágóðan
skilding i gjaldeyristekjum. Því
kæmu peningamar fyrr eða sfðar
til baka,“ sagði Jón.
Ríkisstjóm Þorsteins Pálssonar
hét stuðningi við byggingu
íþróttahaUar, fengju íslendingar
heimsmeistarakeppnina 1993,
fyiforðið var svo endumýjað er
íslendingum var úthlutað keppn-
inni 1995. Hinsvegar hefur ekki
verið tekin afstaða til málsins I
ríkisstjóm Steingríms Hermanns-
sonar en málið verður tekið fyrir
eftir áramót. Áður en ákvörðun
er tekin verdur athugað hvort
hægt sé að nota Reiðhöllina.
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐ
Island mætir
Búlgaríu
ÍSLENSKA landsliöiö í hand-
knattleik leikur gegn landsiiði
Búlgaríu í Eyrasundskeppninni,
sem hefst í Danmörku 10. jan-
úar. A-Þjóðverjar eru hœttir viö
aö taka þátt í keppninní.
ess má geta að Búlgarar leika
í sama riðli og íslendingar í
B-keppninni í Frakklandi, en aðrar
þjóðir í riðlinum eru Rúmenía og
Kúvait. Það var ekki inn í mynd-
inni hjá stjómarmönnum^ HSÍ að
leika gegn mótheijum íslands í
B-keppninni áður en keppnin fer
fram. En nú er sú óvænta staða
komin upp. íslenska og búlgarska
landsliðið leika saman f keppni,
þannig að þjálfarar landsliða þjóð-
anna geta kortlagt ýmislegt áður
en slagurinn í Frakklandi hefst.
Danir byija undirbúning sinn
fyrir Eyrasundskeppnina strax eftir
áramót, en þá kallar Andres-Dahl
Nielsen lið sitt saman og leikur
æfíngaleik gegn tékkneska meist-
araliðinu Dukla Prag 2. janúar.
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
Róbert til
Breiðabliks
RÓBERT Haraldsson, sem
leikið hefur með KS, hefur
gengið til liös viö Breiðablik
í 2. deildinni í knattspymu og
mun leika meö liðinu næsta
sumar.
Róbert var einn besti leikmað-
ur Siglfírðinga í sumar en
þeir féllu niður í 3. deild ásamt
Þrótturum. Róbert hefur leikið
flesta leiki KS undanfarin tvö ár
og gert í þeim 10 mörk.
Blikar hafa einnig fengið tvo
leikmenn aftur. Guðmundur Guð-
mundssón er kominn að nýju frá
Völsungi og Sigurður Halldórs-
son, kom frá Augnabliki en hann
varð markakóngur í 4. deildinni
síðasta sumar.
FÉLAGSMAL
Morgunblaðið/Errilia
Ármenningar heimsóttu
borgarstjóra Reykjavíkur
Grímur Valdimarsson, formaður Glímufélagsins Armanns, sem varð 100 ára á dögunum og Guðmund-
ur Arason, formaður bygginganefndar, gengu á fund Davíðs Oddssonar, borgarstjóra Reykjavíkur, á
miðvikudaginn. Þeir færðu Davíð afmælisdisk, sem Armenningar létu gera í tilefni afmælisins, sem þakk-
lætisvott. Reylgavíkurborg gaf Armanni eina milljón kr. í afmælisgjöf.
LYFTINGAR
Unnur setti
Norður-
landamet
Unnur Siguijónsdóttir setti í
gærkvöldi Norðurlandamet í
hnébeygju í 56 kg flokki kvenna á
móti sem fram fór í Æfingastöðinni
Engihjalla. Unnur var þar með fyrst
íslenskra kvenna til að setja Norð-
urlandamet í kraftlyftingum.
Unnur lyfti 148 kg í hnébeygju
sem er Norðurlandamet. Hún jafn-
aði íslandsmet sitt í bekkpressu,
67,5 kg. Loks lyfti hún 124 kg í
réttstöðu.
SUND
Þijú drengja-
metsettí
Mosfellsbæ
Fimm ungir drengir úr UMFA_
settu þrjú drengjamet í sundi
á miðvikudagskvöldið - í sundlaug-
inni að Varmá í Mosfellsbæ. Geir
Birgisson, Ingimar Róbertsson,
Kristján Sigurðsson og Vilhjálmur
Matthíasson settu met í 4x100 m
fjórsundi, 1:47.87 mín. og í 4x50
bringusundi á 2:35.05. Jósef Vig-
fússon tók sæti Ingimars þegar
sveitin setti met í 4x50 flugsundi,
2:17.11 mín.