Morgunblaðið - 08.06.1989, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1989
+ Maðurinn minn, JÓHANN LÁRUS JÓHANNESSON, lést á heimili sínu 31. maí. Útförin ferframfrá Silfrastaðakirkju laugardaginn lO.júníkl. 14.00. Helga Kristjánsdóttir, Silfrastöðum.
t Móðursystir mín, GUÐRÚN JENSDÖTTIR, frá Árnagerði, andaðist að morgni 7. júní í Hátúni 10. Fyrir hönd ættingja, Árni Björnsson.
+ Ástkær eiginmaður minn og faðir, EGGERT JÓHANNESSON vélstjóri, Skeiðarvogi 87, andaðist 7. júní i Landakotsspítala. Sigurborg Sigurðardóttir, Sigríður Björg Eggertsdóttir.
+ Móðir okkar og tengdamóðir, HELGA ÞÓRAINSDÓTTIR, frá Bræðratungu, Grindavík, verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju, laugardaginn 10. júní kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á sjóð heimilis aldraðra í Grindavík. Börn og tengdabörn.
+ Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, BJARNI HALLDÓRSSON, verður jarðsunginn frá Hólmavfkurkirkju laugardaginn 10. júní kl. 14.00. Halldóra Guðmundsdóttir, Sigurbjörg Bjarnadóttir, Einar Njálsson, Gunnlaugur Bjarnason, Guðbjörg Stefánsdóttir, Rut Bjarnadóttir.
+ Móðir okkar, fósturmóðir og tengdamóðir, ÁSGERÐUR JÓNSDÓTTIR, Dvalarheimilinu Dalbæ, Dalvík, sem lést 1. júní sl. verður jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju, laugardag- inn 10. júni kl. 13.30. Hlín Sigfúsdóttir, Þórður Pétursson, Hörður Sigfússon, Hermína Þorvaldsdóttir, Kári Sigfússon, Guðrún Guðnadóttir, Ragnheiður Sigvaldadóttir, Július Kristjánsson.
+ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VIGDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR, dvalarheimilinu Hlið, Akureyri, verður jarðsungin frá Glerárkirkju föstudaginn 9. júní kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar er vinsamlegast bent á minninga- spjöld dvalarheimilanna. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Útför móður okkar, HELGU JÓNSDÓTTUR, Túngötu 12, Húsavík, verður gerð frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 10. júní kl. 14.00. Kristbjörg Héðinsdóttir, Marius Héðinsson, Guðrún Héðinsdóttir, Jón Ármann Héðinsson, Helgi Héðinsson, Pálmi Héðinsson, Þórunn Héðinsdóttir, Benedikt Héðinsson, Sigurður Héðinsson.
Minning:
OlöfKrisijáns-
dóttirftá Víði
Fædd 27. apríl 1971
Dáin 30. mai 1989
í dag, fimmtudaginn 8. júní, er
kvödd hinstu kveðju hún Ólöf okkar
á Víði. Það er svo erfitt að trúa
því, að hún sem alltaf var svo glöð
og kát, sé allt í einu horfin með svo
skjótum hætti. En vegir Guðs eru
órannsakanlegir og við reynum að
trúa því að hann hafi ætiað henni
eitthvert mikilvægt hlutverk á æðri
stöðum, sem ekki hafi mátt bíða.
Ólöf var á fjórða árinu þegar hún
fluttist hingað í dalinn með ijöl-
skyldu sinni. Og síðan höfum við
hér á Hrísbrú átt því láni að fagna
að hafa hana í næsta nágrenni við
okkur.
Það kom snemma í ljós hvað
sveitalífið átti vel við hana. Hún
var óvenju mikið gefin fyrir öll dýr,
þó voru hestamir eftirlæti hennar
enda var hún mjög lagin og dugleg
við þá.
Hún var oft samvistum við
krakkana okkar, einkum í hesta-
mennskunni, og eiga þau ótal dýr-
mætar minningar frá þeim stund-
um. Síðustu 2-3 árin hafa þær ver-
ið mjög nánar vinkonur, Elínborg
dóttir okkar og Ólöf. Missir hennar
er því mjög mikill.
Eg flyt hér fyrir hennar hönd
hjartans þakklæti fyrir allt sem þær
áttu saman. Við hin þökkum henni
einnig samfylgdina af alhug, sem
varð því miður svo alltof stutt. Mig
skortir orð til að lýsa hugsunum
mínum á.þessari stundu.
Ég bið Guð að blessa og styrkja
foreldra, systur, unnusta, ömmur
og afa og alla aðra ástvini, frænd-
fólk og hina mörgu vini Ólafar í
þeirra miklu sorg og votta þeim
okkar dýpstu samúð.
Einnig biðjum við góðan Guð að
leiða hana og styðja á ókunnum
vegum.
Fyrir hönd Ijölskyldunnar á
Hrísbrú.
Ásgerður Gísladóttir
í dag er lögð til hinstu hvílu vin-
kona okkar og frænka, Ólöf Krist-
jánsdóttir, sem lést 30. maí af völd-
um umferðarslyss. Okkur langar
að minnast hennar i nokkrum orð-
um.
Við kynntumst Ólöfu aðallega í
gegnum hestamennskuna sem var
okkar sameiginlega áhugamál.
Þegar von var á Ólöfu í heimsókn,
vissum við vinirnir af fenginni
reynslu að glaðar stundir væru
framundan.
Oft fórum við í hestaferðalög
saman. Þegar hugurinn leitar til
baka er okkur sérstaklega minnis-
stæð ferð sem farin var í Borgar-
fjörðinn með Ólöfu í fyrrasumar.
Án hennar hefði þetta ferðalag ekki
verið hið sama. Það var ávallt gott
að ferðast með henni. Hún var allt-
af hress og glaðlynd, og fljót að
leysa þau vandamál sem upp komu.
Eins skilningsríka og hreinskilna
persónu og Ólöfu er erfitt að fmna.
Hún var góður vinur og einílíg mik-
ill dýravinur og fann ávallt til með
dýrum sem þjáðust.
í sumar var í bígerð að fara
hestaferð norður og vorum við byij-
aðir að gera okkur vonir um
ánægjulegar stundir með Ólöfu.
Ferðin sem hún fór í er mun lengri
og í þá ferð fer hún án okkar hinna.
Sagt er að tíminn lækni öll sár, en
það sár sem skyndilega og ótíma-
bært fráfall Ólafar veldur í huga
vina og vandamanna verður lengi
að gróa. En vert er að hafa í huga
orð Kahlils Gibrans úr bókinni Spá-
maðurinn: „Þegar þú ert sorg-
mæddur, skoðaðu þá aftur hug
þinn, og þú munt sjá, að þú grætur
vegna þess, sem var gleði þín.“
Við þökkum Ólöfu fyrir allar þær
ánægjustundir sem við höfum átt
saman. Við sendum fjölskyldu, unn-
usta og ástvinum hennar okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Margs er að minnast.
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem)
Andrés Ólafsson, Gísli Þór Ólafs-
son, Rúnar Grétarsson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SVAVA ARNÓRSDÓTTIR,
Kleppsvegi 134,
verður jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn 9. júní kl. 13.30.
Arnór Guðbjartsson, Halldóra Friðriksdóttir,
Stefán Guðbjartsson, Þóra Eyland,
Hulda Guðbjartsdóttir, Pétur H. Skaptason,
Einar Guðbjartsson, Sigríður E. Hreiðarsdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
JÓNA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Ásum, Stafholtstungum,
Mýrasýslu,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 9. júní kl. 13.30.
Jóhannes Ólafsson,
Kristján Jóhannesson, Vigdis H. Guðjónsdóttir,
Björn Jóhannesson,
Jóhannes Jóhannesson, Kristin Möller,
Sigríður Guðný Jóhannesd., Skúli Guðmundsson,
Ólafur Ingi Jóhannesson, Kolbrún Sigurðardóttir
og barnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
GUÐLEIFAR HALLGRÍMSDÓTTUR,
Holtagerði 37,
Kópavogi.
Hafliði Jónsson,
synir, tengdadætur og barnabörn.
í dag er til moldar borin frá
Mosfellskirkju í Mosfellsdal Ólöf
Kristjánsdóttir frá Víði í Mosfells-
dal.
Hún fæddist 27. apríl 1971 í
Reykjavík. Foreldrar hennar eru
Eygerður Ingimundardóttir frá
Hrísbrú í Mosfellsdal og Kristján
Ólafsson frá Miðhjáleigu í A-Land-
eyjum. Ólöf var flórða í röð fimm
systra. Systur hennar eru Inga Elín,
Jóna Margrét, Bóel og síðan Stein-
unn, sem er yngst.
Ólöf flutti með fjölskyldu sinni
þriggja ára að aldri frá Reykjavík
að Víði í Mosfellsdal. Þar undi hún
sér vel í uppvextinum, enda bar hún
þess merki í allri framkomu sinni
að vel hafi verið að henni hlúð í
uppvexti. Hun var hlý og góð öllum
dýrum sem hún umgekkst, ekki síst
hestum sínum og hundum. Hún
stráði glaðværð og hlýhug meðal
samferðamanna sinna og þessa eig-
inleika sína bar hún með sér inn í
kennslubifreið rnína er hún lærði á
bíl sl. ár. Ólöf var þess albúin að
takast á við lífið með öllum þeim
skilyrðum sem slíku fylgir. Hún
hafði unnið hjá föður sínum við
húsasmíði frá fjórtán ára aldri, og
lokið eins árs námi í Iðnskólanum
þar að lútandi.
Það er sárt að horfa á eftir atján
ára stúlku, sem bar þess öll merki
að hún flytti með sér dugnað og
góðleik gegn um þjóðfélagsstigann.
— Hún fór sína hinstu ferð og steig
í sitt síðasta þrep í þessu jarðlífi á
gatnamótum Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar laust eftir
miðnætti þann 27. maí sl. Hún var
þar á ferð með nánum vini sínum,
Jóhanni Birgi Magnússyni frá Gili
á Kjalarnesi. Hann komst lífs af
og jafnframt tvær ungar stúlkur,
sem voru í annarri bifreið. Ólöf
Kristjánsdóttir lést á Borgarspít-
alanum þriðjudaginn 30. maí sl.
Mér var undrunarefni í upphafi
byggingar Kringlumýrarbrautar-
Miklubrautar á sínum tíma, að ekki
skyidi byggð brú á þessi ein fjöl-
förnustu gatnamót landsins, sem
vita mátti að væru stórhættuleg
vegfarendum. Mér var enn meira
Leiðrétting
Nafti Gests Þorgeirssonar, form-
anns Hjartasjúkdómafélags
íslenskra lækna, misritaðist í
frétt um Norrænt hjartalækna-
þing í Morgunblaðinu í gær. Er
beðist velvirðingar á þessum mis-
tökum.
iLOMll
HAFNARSTRÆT115,
SÍMI21330
Xra/isar, krossar og
kist uskt'eytingar.
Sendum um allt land.
Opið kl. 9-19 virka daga
og til 21 um helgar.