Morgunblaðið - 08.06.1989, Blaðsíða 43
en hann. „Við erum 2 eða 3 á mínum
aldri sem höfum stundað þetta í vet-
ur, allir hinir eru mun yngri. Við
þessir eldri erum bara einir en yngri
strákamir eru oft nokkrir saman í
hóp,“ sagði hann.
Hilmar bjóst ekki við að hann
myndi gella aftur á næstu vertíð
enda orðinn aldursforseti gellupeyj-
anna í Eyjum. „Þetta var met vertíð
hjá mér í vetur. Áður hafði ég mest
gellað um tonn á vertíð þannig að
þetta er hér um bil helmingi meira
en það,“ sagði Hilmar og var ánægð-
ur, enda ekki furða því það eru
líklega ekki margir 15 ára skólapeyj-
ar sem geta státað af því að hafa
unnið sér inn jafn mikið með skólan-
um og Hilmar hefur gert í vetur.
Grímur
YESTMANNAEYJAR
Gellupeyjar
gera það gott
Eitt af því sem minnir Eyjamenn
á það að vertíðin er komin í
gang er þegar gellupeyjar fara á
stjá. Þá er algengt að sjá hópa stráka
arka um með gelluvagna sína, banka
upp á í húsum bæjarins og bjóða
gellur og kinnar til sölu.
Strákarnir gella og kinna mest í
portinu hjá fiskverkuninni Tinnu en
einnig hafa þeir gellað í þró Fiski-
mjölsverksmiðjunnar, þar sem þorsk-
hausum frá fiskvinnslustöðvunum er
ekið til bræðslu. Þar fylla strákarnir
vagna sína og halda síðan af stað í
söluferðir um bæinn. Sumir selja þó
ekki feng sinn í hús heldur selja
hann beint í fiskverkanir eða fiskbúð
bæjarins.
Duglegustu gellupeyjarnir hafa
góðar tekjur fyrir vinnu sína, enda
þurfa þeir að hafa talsvert fyrir þeim.
Þeir eru við iðju sína öllum stundum
þegar þeir hafa frí frá náminu.
Einn alharðasti gellupeyinn í Eyj-
um er Hilmar Kristjánsson. Hilmar
er 15 ára gamall og hefur gellað í 4
ár. Hann sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hann væri búinn að gera
það mjög gott í vetur. Hann hefði
verið að í tvo og hálfan mánuð og
hefði gellað tæp tvö tonn á þeim
tíma. Hann sagði að hann hefði
eflaust gellað meira ef hann hefði
ekki orðið að hætta vegna meiðsla
sem hann varð fyrir.
Hilmar seldi allar gellur sínar í
fiskverkunina Tinnu og sagði hann
að það hefði gefið honum ágætis
pening.
„Ég fór í þetta eftir skóla á dag-
inn og ætli ég hafi ekki unnið mér
inn vel á annað hundrað þúsund með
gellunum," sagði Hilmar. Hann sagði
að meiri hlutinn af þeim peyjum sem
gellað hefðu í vetur væru mun yngri
Hilmar
Kristjánsson,
gellupeyi.
Morgunblaðið
Grímur Gíslason
FLATEYRI
Hreppsijóri
lenti í
útistöðum
við þröst
Steinar Guðmundsson hreppstjóri
á Flateyri varð fyrir því á dög-
unum að bíll hans var kyrrsettur.
Sá sem tók völdin af hreppstjóranum
var skógarþröstur sem gert hafði sér
hreiður fyrir framan vatnskassann í
bíl hans og var búinn að verpa fimm
eggjum, er Steinar varð þess var.
Steinar sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hann hefði brugðið sér
í bíltúr með dóttur sinni og er hann
kom heim, beið þrösturinn á bíla-
Morgunblaðið/Magnea Guðmundsdóttir
TVOFALDUR
1. VINMNGUR
álaugardag
handa þér, ef þú tiittír
á réttu tölumar.
Láttu þínar tölur ekki
vanta í þetta sinn!
Björgunarskóli LHS útskrifaði yfír 100 leiðbeinendur í skyndihjálp.
BJORGUNARSKOLI LHS
Leiðbeinendur í skyndihjálp útskrifaðir
rétt til þess að kenna skyndihjálp
innan björgunarsveita og á nám-
skeiðum fyrir almenning. Þá fá
leiðbeinendurnir einnig s.k.
flokksstjóraréttindi innan vett-
vangsstjórnskipulags Almanna-
varna ríksins.
upphafi, auk fjölda annarra á öðr-
um sviðum björgunarstarfa.
Á þessum 12 daga námskeiðum
fá þátttakendur leiðbeiningar og
reynslu í að kenna þá sérhæfðu
skyndihjálp sem björgunarsveitar-
menn verða að hafa á valdi sínu.
Útskrifaðir leiðbeinendur fá
Asíðasta leiðbeinendanám-
skeiði í skyndihjálp hjá
Björgunarskóla Landssambands
hjálparsveita skáta (LHS) útskrif-
uðust 14 björgunarsveitamenn og
stóðust allir þátttakendur prófið.
Skólinn hefur þá útskrifað 105.
leiðbeinendur í skyndihjálp frá
Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511
MORGÚNBLÁÐÍÐ FIMMTUDAGUR 8.: JÖN't íöfe)..
43