Morgunblaðið - 22.11.1990, Blaðsíða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1990
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
Markahæstir
Hans Guðmundsson, KA....99/11
ValdimarGrímsson, Val...96/15
Stefán Kristjánsson, FH, ....89/31
Konráð Olavson, KR,.....87/ 6
Gústaf Bjarnason, Selfossi, .80/ 8
Magnús Sigurðsson, Stj..77/27
Páll Ólafsson, KR,......74/11
Guðjón Árnason, FH,.....73/ 3
Aíexej Trúfan, Víkingi,.71/28
Birgir Sigurðsson, Víkingi, .70
Sigurður Bjarnason, Stj.69/ 7
Gylfi Birgisson, ÍBV....67/ 8
PetrBaumruk, Haukum, ....68/13
Sigurður Gunnarsson, ÍBV, .66/21
Ólafur Gylfason, ÍR.....66/22
Karl Karlsson, Fram.....65/ 1
Sigurp. Aðalsteinsson, KA, .61/11
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 9 -105 Reykjavfk
Símar 624631 / 624699
■k Pitney Bowes
Frimerkjavélar og stimpilvélar
Véiar til póstpökkunar o. fl.
Víkingurekki tapað stigi:
„Enginn trtill
enn í höfn“
Morgunblaðið/Einar Falur
Sovétmaðurinn Alexej Trúfan hefur hleypt nýju blóði í lið Víkings — bindur vörnina saman og stjórnar sóknar-
leiknum. Trúfan hefur leikið að undanförnu þrátt fyrir að eiga við handarmeiðsl að stríða, en fær nú góða hvíld.
(|D
^ meiri ánægja^
fyrir liðin og ekki síður fyrir lands-
liðið. Enda er athyglisvert að liðin,
sem eru í neðri hluta deildarinnar,
veita hinum mjög harða keppni.
Áður var það gjarnan svo að tvö
lið voru áberandi slökust, en það á
ekki við um yfirstandandi keppni.
Það hefur verið mikið af jöfnum
leikjum og keppnin sýnir að það var
rétt ákvörðun að íjölga liðum.“
„Handboltinn að breytast"
Ekki verður sagt að leikirnir í
vetur hafi almennt verið vel sóttir.
Ástæðurnar eru sjálfsagt margar,
en sýnt er að úrslitin ráðast ekki
fyrr en í lokakeppninni og dregur
það úr mikilvægi leikja í forkeppn-
inni. Þá eru „stjörnur" ekki eins
áberandi nú og oft áður — bestu
leikmennirnir keppa með erlendum
félagsliðum.
Guðmundur segir að handboltinn
sé ekki verri en áður, en breytingar
eigi sér stað. „Það er viss blóðtaka
að bestu skytturnar eru erlendis,
en auk þess er handboltinn að breyt-
ast. Leikurinn byggist æ meira á
samvinnu allra leikmanna frekar
en einstaklingsframtaki. Áður átti
ein eða tvær skyttur 80% til 90%
af öllum skotum, en nú er handbolt-
inn kerfisbundnari og skipilagðari.
Þetta virðist ganga í bylgjum — nú
erum við með fleiri góða horna- og
línumenn, en ljóst er að fátt er um
skyttur og markvarslan er ekki eins
góð og oft áður. Engu að síður er
handboltinn ekki í lægð, þó frammi-
staða liðanna í Evrópumótunum sé
visst áhyggjuefni."
Sterk heild
Víkingur var í fallbaráttu í fyrra,
en slapp fyrir horn. Nú er öldin
önnur — liðið hefur sýnt mesta stöð-
ugleika allra í mótinu. Sterkir menn
bættust í hópinn eftir síðasta tíma-
bil- og Árni Indriðason, einn besti
þjálfari landsins, tók að sér að að-
stoða Guðmund, svo hornamaður-
inn gæti einbeitt sér að því að spila
í leikjum.
Guðmundur segir að umgjörðin
sé eins og best verði á kosið og
slíkt sé nauðsynlegt til að ná ár-
angri, en áréttar að Víkingar séu
jarðbundnir. „Við erum ekki uppi í
skýjunum. Það er ekkert auðveldara
en að missa forskot niður, jafnt í
leik sem heildarstigum. Við erum
ekki með afgerandi forystu í deild-
inni og það er ávallt hættulegt að
byggja á fölsku öryggi. Hins vegar
erum við afslappaðri en í fyrra og
það gengur meðan við beijumst í
leikjum. Við erum með breiðan hóp
og gott gengi gefur aukið svigrúm
til að gefa fleiri mönnum tækifæri,
en við getum ekki leyft okkur að
sofna á verðinum.“
Liðin í mótun
Línur hafa skýrst í deildinni og
að mati Guðmundar halda fimm
efstu liðin stöðu sinni, en baráttan
um sjötta sætið í úrslitakeppninni
um titilinn komi til með að standa
á milli KR og ÍBV. „Þetta eru mjög
ámóta lið en ég hallast frekar að
því að Eyjamenn tryggi sér sætið
ogþar skiptir heimavöllurinn öllu.“
Guðmundur segir að gera megi
ráð fyrir jafnri og spennandi úrslita-
keppni. „Staðan nú gefur ekki alveg
rétta mynd af hinum liðunum.
Bæði er að þau eru í mótun og eins
hitt að meiðsl hafa sett strik í reikn-
inginn, sérstaklega hjá Val og FH.
Því hafa þau ekki náð að sýna sitt
rétta andlit, en prófið verður í úr-
slitakeppninni, sem verður mjög
erfið fyrir öll lið.“
VÍKINGAR hafa ekki tapað stigi á yfirstandi íslandsmóti í hand-
knattleik og eru fimm stigum á undan Valsmönnum, sem eru í
2. sæti. „Ég er ánægður með það sem komið er, en við höfum
ekki unnið neitt — það er enginn titill enn í höfn,“ sagði Guð-
mundur Guðmundsson, þjálfari og ieikmaður Víkings, aðspurður
um mótið. „Okkur hefur gengið allt í haginn og frammistaðan
kemur mér einna helst á óvart, en það er mikið eftir og við
þurfum að leggja mikið af mörkum til að ná settum markmiðum.
Allt getur gerst og í úrslitakeppninni standa öll liðin nær jafnt'
að vígi.“
Forkeppni 1. deildar karla í
handknattleik er liðlega hálfn-
uð. Síðustu níu vikur hafa verið
leiknar 13 umferðir, en nú verður
mgHMi gert tveggja vikna
Eftir hlé á keppninni
Steinþór vegna verkefna
Guðbjartsson landsliðsins. Þrír
leikir verða í viku-
lokin við Tékka, í næstu viku verð-
ur leikið gegn Bandaríkjamönnum
og síðan tekur liðið þátt í móti í
Danmörku.
Aðstöðuleysi áhyggjuefni
MORA sænsk gæðavara
fyrir íslenskar aðstæður.
Fást í byggingavöruverslunum.
Síðan höfum við reynt að verða
okkur úti um tíma hér og þar, en
engu að síður höfum við þurft að
æfa úti. Ástandið er slæmt og það
er ijóst að okkur vantar íþróttahús
í borginni. Staða þessara mála er
áhyggjuefni fyrir handboltann."
Fjölgun leikja skilar sér
Tímabilið hefur lengst samfara
fjölgun liða og fleiri leikja. Margir
eru á þeirri skoðun að erfitt sé að
undirbúa lið og fara vel í leikkerfi
vegna þess hve þétt er spilað. Guð-
mundur mælir breytingunni bót, en
hefði viljað hafa niðurröðun leikja
á annan hátt.
„I fyrra sagði ég að leikirnir
væru of fáir og því er ég ánægður
með að fá fleiri leiki. Eins og málin
eru nú er þetta ef till vill of stíft —
betra hefði verið að spila á laugar-
dögum og annanhvern miðvikudag
eða eitthvað í þá áttina.
En fleiri leikir skila sér, bæði
Fyrirkomulagi keppninnar er
með öðru sniði en áður og sýnist
sitt hveijum utn breytinguna.
Styttri tími er á milli leikja en áð-
ur, leikirnir eru fleiri og æfingarnar
færri. Reyndar hefur fjölgun leikja
í Reykjavík haft þau áhrif að félög-
in fá ekki þá tíma, sem þau vilja,
til æfinga. Þegar hefur einn þjálf-
ari sagt upp störfum, meðal annars
vegna aðstöðuleysis, og Guðmundur
segir að aðstöðuleysi félaganna sé
áhyggjuefni. .
„Við nýttum undirbúningstíma-
bilið mjög vel og það hefur skilað
árangri. Við byrjuðum æfingar 20.
júní, höfum æft samfelll síðan og
tókum þátt í móti í Svíþjóð fyrir
keppnistímabilið. Hins vegar höfum
við átt erfitt um vik með æfingar
í vetur. Við eigum tvo æfingatíma
vikulega í Laugardalshöll, en þeir
falla yfirleitt niður. Sömu sögu er
að segja af eina tímanum í íþrótta-
húsi Seljaskóla. Þá eni eftir tveir
tímar í litlum sal Réttarholtsskóla.
í
MORATEMP
MORATEMP blöndunar-
tækin eru með auðveldri
einnar handar stillingu á
hitastigi og vatnsmagni.
c@)
AUÐSTILLT
GEIRMLINDUR
KEMUR1BÆINN
og skemmtir föstudags-og
laugardagskvöldiö 3Q.ll.oq 112.
^ frá kl. 22.til 3.
BORÐAFANTANIR S. 29900
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR SAMTALS ■
Leikir u j T Mörk U j T Mörk Mörk Stig
VÍKINGUR 13 6 0 0 150:121 7 0 0 177:151 327:272 26
VALUR 13 6 1 0 172:148 4 0 2 145:133 317:281 21
STJARNAN 13 4 0 2 139:135 6 0 1 181:164 320:299 20
FH 13 5 2 1 193:176 2 0 3 117:122 310:298 16
HAUKAR 12 3 0 2 122:125 4 0 3 159:164 281:289 14
KR 13 1 3 2 136:139 2 3 2 163:168 299:307 12
ÍBV 12 2 0 4 149:148 2 3 1 142:136 291:284 11
KA 13 3 0 4 166:148 1 1 4 136:143 302:291 9
GRÓTTA 13 1 0 6 152:166 2 1 3 134:139 286:305 7
SELFOSS 13 2 1 4 157:168 0 2 4 104:129 261:297 7
FRAM 13 1 3 2 127:135 0 1 6 137:165 264:300 6
ÍR 13 1 1 4 126:139 1 0 6 153:175 279:314 5