Morgunblaðið - 04.12.1990, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
276. tbl. 78. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Persaflóadeilan:
Cheney segir stríðs-
ógnina nauðsynlega
til að frelsa Kúvæt
Nikosíu, Washington, Lundúnum. Reuter.
DICK Cheney, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í gær
að stríðsógnin væri nauðsynleg
Grænland:
Ráðherr-
ar sviptir
risnunni
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgen
Bruun, fréttaritara Morgunblaiðsins.
UNDANFARNAR vikur hafa
grænlenskir fjölmiðlar
ljóstrað upp um óhóflegan
kostnað vegna ferðalaga
landsstjórnarmanna og
mikla risnu þeirra. Um helg-
ina tilkynnti Otto Steenholdt,
leiðtogi Atassut-flokksins er
ver stjórn Jonathans Motz-
feldts falli, að hún nyti ekki
lengur trausts flokksins og
krafðist þess að hún segði
af sér þegar í stað.
Vegna uppljóstrana fjölmiðla
voru allir fimm ráðherrar græn-
lensku landsstjórnarinnar
sviptir ráðherrarisnu í síðustu
viku. Þeir voru m.a. sakaðir um
að hafa látið ríkið borga kvöld-
verð á landsfundi stjórnar-
flokksins Siumuts en hann mun
hafa kostað 55.000 danskra
króna, jafnvirði 525 þúsund
ÍSK. Flestar greiðslur sem
grunsemdir hafa vakið eru
vegna úttekta á tóbaki, bjór og
brennivíni í áfengisversluninni
sem er skammt frá aðsetri
landsstjórnarinnar. Þá hefur
einn ráðherranna látið ríkið
borga fyrir sig svæðanudds-
meðferð.
til að neyða Saddam Hussein,
forseta íraks, til að kalla her-
sveitir sínar í Kúvæt heim.
Cheney sagði er hann ávarpaði
hermálanefnd öldungadeildar
Bandaríkjaþings að viðskiptabann
Sameinuðu þjóðanna nægði ekki til
að koma írösku hersveitunum úr
Kúvæt. „Það er nauðsynlegt að við
sýnum honum fram á að hann eigi .
alvarlegan ósigur yfir höfði sér,“
sagði varnarmálaráðherrann.
George Bush Bandaríkjaforseti
hafði lagt til að Tareq Aziz, utanrík-
isráðherra íraks, kæmi til Washing-
ton um miðjan desember og James
Baker, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, ræddi við Saddam Huss-
ein í Bagdad um mánuði síðar.
Saddam Hussein féllst á tillöguna
en lét þó í ljós efasemdir um að
Bandaríkjastjórn vildi í raun leysa
deiluna með samningum. Sovésk
stjórnvöld fögnuðu tillögu Bush, svo
og breska stjórnin, sem sagði þó
að ekki mætti tengja Persaflóadeil-
una við Palestínumálið í viðræðun-
um eins og Irakar vilja.
Verð á olíu lækkaði um meira
en helming í Asíu í gær vegna til-
lögu Bush.
Sovéska sjónvarpið skýrði frá því
í gær að um þriðjungur þeirra 3.300
Sovétmanna, sem enn eru í írak,
fengi að fara úr landinu innan
þriggja vikna.
DC-9 farþegaþotan er verið var að ljúka við að slökkva eldinn.
19 farast í árekstri á Detroit-flugvelli:
Farþegarnir komust ekki út
úr brennandi DC-9 þotunni
Detroit. Reuter.
TVÆR þotur frá bandaríska
flugfélaginu Northwest Airlines
rákust saman á flugvellinum í
Detroit í gær og var óttast að
allt að 19 mánns hefðu farist,
að sögn talsmanns flugfélagsins.
Onnur vélin er að gerðinni DC-9
en hin er Boeing 727-vél. Væng-
endar vélanna rákust saman er
Boeing-vélin var í flugtaki en
starfsmenn voru að draga hina
vélina inn í röð flugvéla sem
biðu leyfis til að fara á loft.
Skyggni var slæmt vegna úr-
komu er slysið varð.
Eldur varð laus í DC-9 vélinni,
sem 44 farþegar voru í, og voru
hinir látnu og særðu allir um borð
í henni. Um tuttugu mínútur tók
að slökkva eldinn og á meðan var
ekki hægt að koma inniluktum
farþegunum til bjargar. Auk hinna
látnu er talið að um 50 hafi sias-
ast, sumir alvarlega.
145 farþegar voru í Boeing-vél-
inni sem skemmdist ekki mikið.
Hún var á leið til Memphis en
DC-9 vélin á leið til Pittsburgh.
Samkvæmt útvarpsfregnum í
Detroit rifnaði þakið af miðhluta
farþegarýmis DC-vélarinnar og
einn hreyflanna datt af við árekst-
Kosningarnar í Þýskalandi:
Kohl vinnur að stjómar-
myndun eftir góðan sigur
Bonn. Frá Birni Bjarnasyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
Suður-Afríka:
64 falla í óeirð-
um svertingja
Thokoza í S-Afríku. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti 64 hafa beðið
bana í átökum sem brutust út
milli stríðandi fylkinga blökku-
manna í fjórum bæjum austan við
Jóhannesarborg í Suður-Afríku á
sunnudagskvöld.
Sjónarvottar sögðu að bardag-
arnir hefðu blossað upp þegar vopn-
aðir Zulu-menn í Inkatha-frelsis-
flokknum hefðu komið til bæjanna
í rútum til að leita uppi félaga í
Afríska þjóðarráðinu (ANC). Adria-
an Vlok dómsmálariðherra setti út-
göngubann í bæjunum og sendi her-
menn til eins þeirra, Thokoza, þar
sem 52 hið minnsta höfðu fallið.
HELMUT Kohl, kanslari Þýska-
lands, hóf í gær undirbúning að
því að endurnýja stjórnarsamstarf
sitt við frjálsa demókrata í þriðja
sinn eftir góðan sigur flokkanna
í kosningunum á sunnudag. Flokk-
Friður í Beirút
Reuter
Hersveitir kristinna manna í Líbanon yfirgáfu síðustu stöðvar sínar í
Beirút í gær og er þá lokið brottflutningi einkaheija úr borginni. Stjórn-
arhermenn tóku sér síðan stöðu í hverfum kristinna. Myndin var tekin
er skriðdreka var ekið út úr Ashrafiyeh-hverfinu í hjarta Beirút.
arnir hlutu til samans stuðning
tæplega 55% (43,8 + 11%) kjós-
enda. Jafnaðarmenn biðu veruleg-
an ósigur undir forystu Oskars
Lafontaines og hafa þegar tekið
til við að ræða breytingar í for-
ystusveit sinni. Græningjar náðu
ekki 5% atkvæða í vesturhluta
Þýskalands og fengu engan þing-
mann þar.
Kristilegir demókratar fögnuðu
sigri sínum á glæsilegan liátt í höfuð-
stöðvum sínum í Bonn. Var Helrnut
Kohl inniiega fagnað, þegar hann
kom þangað sem öruggur sigurveg-
ari aðeins rúmri klukkustund eftir
að kjörstöðum var lokað. Hann sagði
að þetta væri gleðidagur í sögu
Þýskalands en endurtók hvatningu
sína úr kosningabaráttunni um að
nú yrðu Þjóðveijar að láta hendur
standa fram úr ermum við endur-
reisn austurhluta lands síns.
í gær komu forystumenn flokk-
anna saman og réðu ráðum sínum.
StjórnaiTlokkarnir þurfa að semja
um menn og málefni, áður en ný
stjórn verður formlega mynduð.
Hans-Dietrich Genscher, leiðtogi
frjálslyndra, sem tókst að auka fylgi
flokks síns verulega í kosningunum,
ætlar að vera utanríkisráðherra
áfram en því embætti hefur hann
nú gegnt síðan 1974. Er að því
stefnt, að nýtt þing greiði atkvæði
um nýja ríkisstjóm fyrir jól.
Hans-Jochen Vogel, formaður
Jafnaðarmannaflokksins, lýsti yfir
því að loknum fundi framkvæmda-
stjórnar flokks síns í gær að hann
væri reiðubúinn að víkja fyrir Laf-
ontaine á þingi flokksins í maí næst-
komandi. Lafontaine hafnaði í gær-
kvöldi því tilboði eftir nokkra um-
hugsun. Lafontaine og stuðnings-
menn hans segjast hafa lagt grunn
að framtíðarsigrum jafnaðarmanna
með stefnumótun sinni i kosningun-
um nú. Jafnaðarmenn fengu 33,5%
atkvæða og hefur fylgi þeirra ekki
verið minna síðan 1957.
Sjá „Neikvæð kosningabarátta
þýskra vinstrisinna misheppn-
aðist“ á bls. 28.