Morgunblaðið - 04.12.1990, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990
Bömin baka
Þegar ég var barn á Seyðis-
fírði var rafmagn oft lé-
legt að deginum til, þeg-
ar allar húsmæður bæj
arins stóðu í jólabakstri. Og það
var mikið bakað á Seyðisfirði í þá
daga og svo er kannski enn.
Við systumar fimm skiptumst á
að fara á fætur með mömmu kl. 5
til að baka, meðan lítið álag var á
rafmagninu, en bræðurnir tveir
tóku ekki þátt í þessu, það var
ekki til siðs í þá daga að strákar
hjálpuðu til við heimilisstörfin.
Þessar bökunarnætur eru ljúfar
minningar æskuáranna. Kveikt var
á kertum og ilmur þeirra blandað-
ist krydd- og hunangsilm kakanna.
Enn ilma heimilin af kertum og
kryddi á jólaföstunni. Við skulum
leyfa bömunum að taka þátt í
bakstrinum með okkur. Það veitir
birtu og yl inn í hjörtu þeirra og
vekur upp tilhlökkun og eftirvænt-
ingu til hinnar miklu hátíðar gleði
og ljóss.
Hunangskökur
500 g hunang
3 dl sykur
125 g smjör eða smjörlíki
rifinn börkur af 1 sítrónu
rifinn börkur af 1 appelsínu
1 kg hveiti
3 tsk. kanili
1 tsk. negull
2 tsk. engifer
1 msk. lyftiduft
1. Setjið hunang, sykur og smjör
í pott og hitið. Gætið þess að þetta
rétt nái að sjóða. Hrærið vel í og
takið af hitanum um leið og suðan
kemur upp.
2. Þvoið appelsínuna og sítrónuna
vel, rífíð síðan börkinn af þeim og
setjið út í og hrærið vel saman.
3. Kælið að mestu, þó ekki alveg.
4. Setjið eitt egg í senn út í og
hrærið saman.
5. Blandið saman hveiti, kanil,
negul, engifer og lyftidufti. Hrærið
út í.
6. Setjið á hveitistráða borðplötu
og hnoðið örlítið.
7. Mótið síðan „fígúrur" úr deig-
inu, eins og ykkur sýnist, skerið
þetta ekki út með móti.
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
höfð neðst. Á stjörnue'ndana er svo
hægt að festa lítil afmæliskerti.
Nota má glassúr hrærðan út með
eggjahvítu til að festa þau með.
Þessi tré geta orðið nokkuð stór.
Við ráðum raunar stærðinni. Klipp-
um fyrst út stærstu stjörnuna, fletj-
um deigið út og skerum eftir henni.
Þá klippum við örlitla ræmu utan
af stjörnunni og mótum eftir henni.
Síðan klippum við alltaf meira og
meira af, þannig að stjörnumar
minnki alitaf. Svo röððum við
XXK
?? XKV**
70 vxv
XVXKV
VKXXXX
VVVXKX
o*/ -XXWKXX
<=rfin xxxx*
oO
rá*. plíí,
xx
yvvV x.
8. Setjið á bökunarpappír á bök-
unarplötu og bakið í um 15 mínút-
ur. Bökunartími fer eftir þykkt
deigins. Fylgist vel með.
9.Skreytið „fígúrurnar“ með
smartís, lakkrís, súkkulaði eða því,
sem ykkur dettur í hug. Hægt er
að líma það á með glassúr, sjá hér
á eftir.
Athugið: Gaman er að búa til
smáhjörtu úr þessu deigi og húða
með súkkulaði, þegar þau eru orðin
köld.
Ýmislegt er hægt að búa til úr
piparkökudeigi. Sumir búa til hús
og aðrir hjörtu til að hengja í eld-
húsgluggann. Víða í Mið-Evrópu
eru skreyttar piparköku-„fígúrur“
hengdar á jólatréð. Börn búa ekki
til piparkökuhús á eigin spýtur, en
þau geta búið til misstórar stjömur
og raðað þannig upp að þær mynda
jólatré og er þá stærsta stjaman
stjömunum saman og höfum þá
stærstu neðst. „Jó!atréð“ getum
við síðan skreytt með hvítum glass-
úr og stráð grænum skrautsykri
yfir og loks festum við smákerti á
stjörnuendana.
Sírópskökudeig í „fígúrur"
og ,jólatré“
180 g lint smjörlíki
4 dl sykur
1 dl síróp
1 dl vatn (eða kaffi)
9 dl hveiti
1 tskt. natron (sódaduft)
1 tsk. hjartarsalt
1 tsk. hjartasalt
1 tsk. negull
1 tsk. engifer
2 tsk. kanill
Vi tsk pipar
1. Hrærið saman smjörlíki, sykur
og síróp.
2. Setjið hveiti, natron, hjartar-
salt, negul, engifer, kanil og pipar
út í ásamt vatni og hrærið saman.
3. Látið skálina með deiginu
standa í kæliskáp í 2-3 klst.
4. Takið deigið úr skálinni, setjið
á hveitistráða borðplötu, fletjið
síðan út með kökukefli.
5. Skerið út stjömur eða „fígúr-
ur“. Setjið á bökunarpappír á bök-
unarplötu.
6. Hitið bakaraofn í 190° C,
blástursofn í 170° C, setjið í miðjan
ofninn og bakið í um 10 mínútur.
Fylgist vel með. Þetta er mislengi
að bakast enda oftast misþykkt á
plötunni.
Glassúr á kökurnar
2'A til 3 dl flórsykur
1 eggjahvíta
Hrærið saman, setjið ekki allan
flórsykurinn út í í einu.
„'i<.
'T'
*
-'i'-
'l'
*
*
*
ÍN-
ÍTC-
%
HOFUM OPNAÐ
JOLAMARKAB
MIDBIJARDS
Austurstræti 1OA (úður Penninn)
Opnunortími:
Mánudaga -föstudaga 12-18
Laugard. 8. desember. 10-18
Laugard. 15. desember. 10-22
Fimmíud. 20. desember. 9-22
Föstud. 21. desember. 9-22
Laugard. 22. desember. 10-23
Mánud. 24. desember. 9-12
UPPLÝSINGAR
m SÖLUBÁSA
ÍSÍMA 25200
Hér fæst aiít ntiili kimins og |arðar