Morgunblaðið - 04.12.1990, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990
53
ÞórgwmurK. Sveins-
dóttir - Minning
Þriðjudaginn 13. nóvember lést í
Landspítalanum vinkona mín og
frænka, Þórgunnur Kristbjörg
Sveinsdóttir, eftir langvarandi veik-
indi. Hún fæddist á Akureyri 1. apríl
1922. Foreldrar hennar, Svava og
Sveinn, bjuggu inni í Fjöru. Þau
eignuðust 4 börn og var Þórgunnur,
oftast kölluð Nunna, yngst þeirra.
Þegar móðir mín, systir Sveins,
þurfti að fara í kaupstaðarferð til
Akureyrar fékk ég oftast að vera
með. Þá var sjálfsagt að koma við
hjá Sveini og Svövu áður en haldið
var út í miðbæinn, þar sem kaupfé-
lagsbúðirnar voru. Þetta voru dagar,
sem ég hlakkaði alltaf til. Mér fannst
ég hafa eignast „litlu systur“ þar
sem Nunna frænka var. Hún var svo
létt í lund og ætíð full af gáska og
glettni. Marga skemmtilega leiki
kenndi hún mér, sem voru sveita-
bömum framandi. Þegar Nunna var
8 ára gömul dvaldi hún dálítinn tíma
að vorinu hjá frændfólki sínu á
Hranastöðum. Ég man enn þann
dag, er hún kom með mjólkurbílnum.
Sólskin og hæg sunnangola. Lítil,
ljóshærð stúlka með geislandi eftir-
væntingu í augum. Hún vann þegar
hug og hjörtu allra á heimilinu. Þetta
voru dýrlegir vordagar.
Nunna var aðeins 19 ára þegar
hún gekk í hjónaband. Eiginmaður
hennar, Bjöm Jónsson, starfaði mik-
ið að félagsmálum. Var ötull verka-
lýðsforingi og seinna þingmaður og
ráðherra um skeið.
Alltaf stóð Nunna eins og klettur
við hiið manns síns á hveiju, sem
gekk. Alls staðar sómdi hún sér vel,
hvort heldur sem var í þingveislum
eða með ráðherrum á ferðalögum.
En fyrst og fremst var hún frábær
eiginkona, móðir og amma. Börn
þeirra hjóna em fjögur og bera þau
öll foreldrum sínum gott vitni.
Mann sinn missti Nunna fyrir
rúmlega 5 árum eftir erfið veikinda-
ár. En eftir fráfall eiginmannsins tók
við hjá henni barátta við erfðan sjúk-
dóm, sem sigraði hana að Iokum.
Þegar ég lít til baka, man ég aldr-
ei eftir Nunnu öðruvísi en glaðri og
bartsýnni konu, sem öllum vildi gott
gera, er á leið hennar urðu.
Síðustu mánuðina gat Nunna ver-
ið heima í skjóli sinna nánustu. Börn
hennar veittu henni alla þá ástúð
og aðhlynningu sem hægt er að veita
sjúkum. Má það vera huggun harmi
gegn, nú þegar hún er öll.
Eg vil að lokum þakka frænku
minni alla vináttu og tryggð við
mig, foreldra mína og systkini. Sendi
börnum hennar, tengda- og barna-
börnum samúðarkveðjur. Einnig
systur hennar á Akureyri, sem nú
er ein eftir af systkinahópnum. Bið
þeim öllum blessunar guðs.
Blessuð sé minning Þórgunnar
Kristbjargar Sveinsdóttur.
K.P.
CMC kerti fyrir niðurhengd lolt, er úr
galvaniseruðum málmi og eldþolift.
CMC kerti er auðvelt i uppsetningu
og mjög sterkt.
CMC kertl er test með stillanlegum
upphengjum sem þola allt að
50 kg þunga.
CMC kertl taast í mörgum gerðum bœði
synilegt og falið og verðið er
ötrulega ligt.
CMC kerfi er serstaklegá hannad Hhngið eltir
tyrir loftplötur frá Armstrong Irekari upplýsmgum
Þ. ÞORGRIMSSQN & CO
Ármúla 29 - Reykavík - sími 38640
DUNILIN servíettan
er svo mjúk ad þú
finnur ekki muninn
DUNILIN servíettanfrá Duni sameinar kosti pappírs- og
tauservíettu. DUNILIN servíettan er mjúk og sterk og
það er auðvelt að setja hana í brot. DUNILIN servíettan
er til prýði á veisluborðinu og kemst nœr því að vera tau-
servíetta en nokktir önnur pappírsservíetla.■
DUNILIN servíettur fást í fjölbreyttu litaúrvali í
nwstu verslun.
Hótel Borg
Hallgríms Helgasonar
♦ Bubbi tekur lagið.
♦ Sigfús Bjartmarsson
♦ Silja Aðalsteinsdóttir
♦ Stefán Sigurkarlsson
♦ Qeirlaugur Magnússon
♦ Qyrðir Elíasson
♦ Helgi Hálfdanarson
♦ Kristján Ámason
♦ Linda Vilhjálmsdóttir
♦ Pétur Qunnarsson
Jólin nálgast, kvöldin lengjast
og þá er notalegt að hlýða á
upþlestur úr nýútkomnum
bókum. Mál og menning býður
til bókmenntakvölds
þriðjudaginn 4.12. á Hótel
Borg þar sem eftirtaldir
höfundar munu lesa upp:
Dagskráin hefst kl. 20:30
Ókeypis aðgangur —
allir velkomnir á meðan
húsrúm leyfir.
Auk þess verða kynnt verk
Jakobínu Sigurðardóttur,
Guðlaugs Arasonar og
og menning
Laugavegi 18. Sími 15199 - 24240. Síðumúla 7-9. Sími 688577
wmskr