Morgunblaðið - 04.12.1990, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990
35
HVAÐ SEGJA ÞEIR EFTIR ÁKVÖRÐUN HJÖRLEIFS GUTTORMSSONAR?
Þessi niður-
staða er mér
vonbrigði
- segir Þorsteinn
Pálsson
ÞORSTEINN Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins segir, að
ákvörðun Hjörleifs væri sér von-
brigði.
„Við hefðum gjarnan viljað
ganga til kosninga. Þessi niðurstaða
sýnir að ríkisstjórnarflokkarnir hafa
ekki þorað með þetta mál í kosning-
ar. Þeir vita sem er að þeir fóru
ranglega að. Þeir vita að bráða-
birgðalög á dómsniðurstöðu er sið-
laus aðgerð,“ sagði Þorsteinn í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Þorsteinn sagði að fram til þess
að Hjörleifur gaf yfírlýsingu sína í
gær hefði afstaða Sjálfstæðis-
flokksins í engu breyst. „Við árétt-
uðum okkar skoðanir á þessum
fundum í morgun og lýstum okkur
enn á ný reiðubúna til viðræðna
bæði við hagsmunasamtök og aðra
stjórnmálaflokka," sagði Þorsteinn.
Þorsteinn sagði að markmið
Sjálfstæðisflokksins að ná niður
verðbólgu og styðja hvers konar
lögmæta og siðlega viðleitni í þá
veru, stæði eftir sem áður.
Höfuðnauð-
syn að fá lögin
staðfest
- segir Einar Odd-
ur Kristjánsson
„VIÐ töldum það höfuðnauð-
syn að þessi lög fengju staðfest-
ingu í þingínu. Nú tel ég það
tryggt, eftir að Hjörleifur hefur
gefið þessa yfirlýsingu, og með
það er ég að sjálfsögðu mjög
ánægður," sagði Einar Oddur
Kristjánsson formaður Vinnu-
veitendasambandsins.
Einar Oddur sagðist hafa sagt í
sjónvarpsviðtali í fyrrakvöld að
hann tryði því að meirihluti væri
fyrir bráðabirgðalögunum í neðri
deild og kvaðst hann sannfærður
um að þótt Hjörleifur hefði ekki
tekið þessa ákvörðun, hefðu bráða-
birgðalögin náð fram að ganga. „Ég
vildi ekki trúa því að ógæfan yrði
svo mikil að þetta yrði fellt, og sem
betur fer er nú sýnt að ekki kemut'
til þess, ,“ sagði Einar Oddur.
Höfðum
sterka stöðu
til kosninga-
baráttu
- segir Steingrímur
Hermannsson
STEINGRÍMUR Hermannsson
forsætisráðherra segist ánægður
með ákvörðun Hjörleifs Gutt-
ormssonar. „Mig grunaði nú,
þegar menn stæðu frammi fyrir
alvörunni og þeim afleiðingum
sem það myndi hafa i för með
sér að fella þetta frumvarp, að
þeir sem ábyrgari eru myndu
hugsa sig um tvisvar, áður en
þeir felldu þetta,“ sagði forsætis-
ráðherra í samtali við Morgun-
blaðið.
Steingrímur sagðist jafnframt
hafa talið sig vita það sumir innan
raða Sjálfstæðisflokksins hefðu
einnig hugsað sig um tvisvar, áður
en þeir felldu frumvarpð.
Aðspurður hvort hann væri von-
svikinn með þessa niðurstöðu, sagði
forsætisráðherra: „Nei, það er alls
ekki hægt að segja það. Ég hefði
að vísu talið að staða okkar til þess
að fara út í kosningabaráttu og
kosningar hefði verið mjög sterk,
en ástæða þess að ég átti fund með
forsvarsmönnum Sjálfstæðisflokks-
ins í morgun, var sú að ég vildi
FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM - HEIMA
1 3. desember.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verö verö verð (lestir) verö (kr.)
Þorskur 113,00 100,00 109,12 28,327 3.081.074
Smáþorskur 86,00 84,00 84,44 1,633 137.886
Ýsa 126,00 101,00 120,95 4,457 539.074
Karfi 44,00 44,00 44,00 0,169 7.436
Ufsi 38,00 38,00 38,00 0,067 2.565
Steinbítur 63,00 63,00 63,00 0,532 33.516
Langa 79,00 76,00 77,72 1,181 91.790
Lúða 365,00 315,00 333,98 0,489 163.483
Keila 49,00 49,00 49,00 1,306 63.994
Keila (ósl.) 36,00 36,00 36,00 0,439 15.804
Samtals 107,41 38,511 4.136.622
Á morgun verður selt úr Snæfara HF og Klettsvík VE.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 121,00 88,00 105,97 59,034 6.255.545
Þorskur(ósL) 82,00 78,00 78,27 2,118 165.776
Þorskur(smár) 86,00 86,00 86,00 0,174 14.964
Ysa 135,00 76,00 114,07 8,584 979.220
Ýsa (ósl.) 111,00 83,00 101,18 2,70*4 279.665
Karfi 48,00 43,00 46,50 1,678 78.019
Ufsi 49,00 20,00 48,18 38,471 1.853.388
Hnýsa 10,00 10,00 10,00 0,030 300
Langa 85,00 77,00 79,57 5,916 470.715
Lúða 360,00 270,00 340,78 0,459 156.420
Skarkoli 70,00 70,00 70,00 0,091 6.370
Keila 54,00 40,00 52,46 1,281 67.200
Steinbítur 72,00 59,00 61,87 0,549 33.964
Skata 125,00 125,00 125,00 0,085 10.625
Skötuselur 155,00 155,00 155,00 0,025 3.875
Lýsa 50,00 50,00 50,00 0,084 4.200
Reykturfiskur 330,00 330,00 330,00 0,030 9.900
Saltfiskflök 265,00 230,00 246,76 0,193 47.625
Blandað 43,00 29,00 34,65 0,161 5.579
Undirmál 85,00. 47,00 78,40 2,898 227.201
Samtals 85,62 124.625 10.670.550
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 114,00 90,00 103,48 58,725 6.076.682
Ýsa 130,00 100,00 113,48 4,815 546.354
Karfi 49,00 40,00 45,06 35,090 1.581.022
Ufsi 33,00 33,00 33,00 1,000 33.000
Hlýri/Steinb. 61,00 52,00 60,22 0,344 20.714
Hlýri 59,00 59,00 59,00 0,081 4.779
Langa 72,00 60,00 69,89 1,263 88.266
Lúða 425,00 310,00 368,33 0,275 88.266
Skarkoli 60,00 57,00 57,47 0,302 17.355
Sólkoli 74,00 74,00 74,67 0,000.75 56
Keila • 48,00 40,00 47,16 3,074 144.960
Kinnfiskur 200,00 200,00 200,00 0,019 3.800
Blálanga 80,00 71,00 74,08 0,467 34.597
Gellur 315,00 315,00 315,00 0,014 4.410
Hrogn
Undirmál 81,00 81,00 81,00 2,520 204.120
Samtals 82,06 107,989 8.861.405
I Selt var úr Hauki GK, Skarfi GK og Sveini Jónssyni. Á morgun verður selt
1 úr Hauki GK og dagróðrabátum.
ekki ijúfa þing í einhveijum leikara-
skap.“
Steingrímur sagði að málið hefði
verið svo langt komið að hann hefði
verið tilbúinn með alla pappíra, öll
frumvörp og annað sem hefði þurft
að fylgja, hefði hann rofið þing í
dag.
Var andvígur
þingrofi strax
- segir Júlíus Sól-
nes
JÚLÍUS Sólnes, formaður Borg-
araflokksins, segist hafa lýst því
yfir að bráðabirgðalögin ættu að
koma til aftkvæðagreiðslu á Al-
þingi en ekki grípa til þingrofs
áður.
„Það var sameiginleg stefna
borgaraflokksmanna að láta frum-
varpið um staðfestingu bráða-
birgðalaganna koma til atkvæða á
þinginu og taka svo afieiðingunum
af því. Við vorum lítt hrifnir af
þeirri hugmynd að ijúfa þingið og
setja svo bráðabirgðalög í kjölfarið
á nýjan leik,“ sagði Júlíus.
Hann sagðist vera ánægður með
að nú væri víst að málið fengi þing-
lega meðferð og kvaðst gera ráð
fyrir að ríkisstjórn sæti til vors þar
sem tryggður hefði verið stuðningur
við frumvarpið í neðri deild þings-
ins.
Voðinn var vís
- segir Jón Baldvin
Hannibalsson
„KJARNI málsins er sá að ef
staðfestingarlögin hefðu fallið í
neðri deild, þá hefði voðinn verið
vís: BHMR samningar hefðu tek-
ið gildi, óstöðvandi víxlhækkana
verðbólga hefði farið af stað,
árangur af samstarfi ríkisstjórn-
ar og aðila vinnumarkaðarins
hefði verið fyrir bí og vonir
manna um að geta byggt á stöð-
ugleika í framtíðinni hefðu bros-
tið,“ sagði Jón Baldvin í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Aðalatriði málsins sagði Jón
Baldvin hafa verið að koma í veg
fyrir þessa atburðarráð með hvaða
ráðum sem dygðu. „Stjórnarflokk-
arnir gátu ekki tekið þá áhættu að
láta skeika að sköpuðu í þessu
máli. Hefðu staðfestingarlögin fall-
ið, þá hefði ríkisstjórnin orðið að
segja af sér og atburðarrásin sem
ég lýsti áðan hefði hafíst. Við sem
vildum gera allt sem í okkar valdi
stóð til þess að veija þjóðarsáttina,
áttum því engra kosta völ annarra
en að tjúfa þing, setja bráðabirgða-
lög á að nýju og skjóta málinu und-
ir æðsta dómsstól þjóðarinnar.
Þetta höfðum við ákveðið að gera,“
sagði Jóri Baldvin.
Jón Baldvin sagði að yfirlýsing
Hjörleifs hefði dugað til þess að
breyta stöðunni. „Reyndar sann-
færðist ég um, þegar líða tók á
daginn í dag, að fleir hefðu skipt
um skoðun áður en á það hefði
verið látið reyna með atkvæða-
greiðslu í þinginu. Þetta þýðir að
við vorum komin á ystu nöf með
þetta mál. Það er afar lærdómsríkt
mál um það hvernig ábyrgir stjórn-
málamenn eiga ekki að hegði sér,“
sagði utanríkisráðherra.
Niðurstaða
Hjörleifs mjög
dýrmæt
- segir Ólafur
Ragnar Grímsson
ÓLAFUR Ragnar Grímsson
formaður Alþýðubandalagsins
segist telja það mjög dýrmætt,
að málefnaleg niðustaða Hjör-
leifs Guttormssonar hefði orðið
á þann veg að hann muni ekki
greiða atkvæði gegn staðfesting-
arfrumvarpi um bráðabirgðalög-
in. Hann segir að með þessu hafi
Alþýðubandalagið tryggt fram-
gang þjóðarsáttarinnar.
„Við komum saman á þingflokks-
fundi í Alþýðubandalaginu í [gær-
jmorgun íd. 10 og aftur klukkan
1,“ sagði Ólafur Ragnar. „Ég tel
það mjög dýrmæta niðurstöðu, að
í ljósi þeirra umræðna tók Hjöreifur
Guttormsson þá ákvörðun sem hann
tilkynnti síðar í þingsalnum. Þar
með er ljóst að Alþýðubandalagið
hefur tryggt framgang þjóðarsátt-
arinnar á Alþingi, og það sýnir tölu-
vert önnur vinnubrögð en eru innan
Sjálfstæðisflokksins.
Við höfðum sem flokkur tekið
skýra afstöðu en einstakir þing-
menn höfðu aðra afstöðu. Niður-
staða Hjörleifs var hins vegar þessi, -
þegar hann hafði metið hag þjóðasr-
innar og stefnu fíokksins. Ég er
mjög ánægður með það, því það
sýnir mikinn skilning á því sem er
í húfi. Mér fínnst hins vegar yfírlýs-
ing Sjálstæðisflokksins eftir þessa
ákvörðun, að við höfum verið «
hræddir við kosningar, sína að for-
usta Sjálfstæðisflokksins stundar
bara leikaraskap um þjóðarhags-
muni.“ ,
En felst ekkert slíkt í umræðu
um þingrof og kosningar, áður en
bráðabirgðalögin kæmu til at-
kvæða? „Nei alls ekki því ef bráða-
birgðalögin hefðu komið til atkvæða
og fallið i þinginu, hefði allt farið
úr böndunum. Það veit það hver
einasti maður að þá hefði .farið í
gang keðjuverkandi sprengja í verð-
bólgu og verðlagsmálum. Þess
vegna var aðeins um tvennt að
ræða. Annarsvegar að tryggja
meirihluta fyrir lögunum á þingi,
eða vísa málinu til þjóðarinnar án *
þess að láta hina efnahagslegu
sjorengingu eiga sér stað,“ sagði
Ólafur Ragnar Grímsson.
Kvennalistinn
reiðubúinn í
kosningar
KVENNALISTINN samþykkti á
þingflokksfundi á sunnudags-
kvöld kröfu um að bráðabirgða-
lögin komi til atkvæða á Alþingi
þegar í stað og að ríkisstjóminni
beri að segja af sér og boða til
kosninga hið bráðasta verði þau
ekki staðfest. Segist flokkurinn
vera reiðubúinn í kosningar
hvenær sem er um nýja þjóðar-
satt.
Kasparov klúðraði vinningsstöðu
____________Skák________________
Karl Þorsteins
HEIMSMEISTARINN Garrí Kasp-
arov var að vonum súr þegar skor-
blöð keppenda voru innsigluð að
afloknum fjörutíu leikjum í 16. ein-
- vígisskákinni um heimsmeistaratitil-
inn í Lyon í Frakklandi. í miðtaflinu
hafði Kasparov peð til góða auk betri
stöðu en í tímahrakinu voru honum
mislagðar hendur. í stað þess að
treysta stöðuyfirburðina einkenndist
taflmennska heimsmeistarans af ein-
földum gildrum sem Karpov átti auð-
velt með að forðast þrátt fyrir mikið
tímahrak. Karpov lét skiptamun af
hendi skömmu fyrir bið en hafði einu
peði meira. I biðskákinni varðist
Karpov snilldarlega og skáksérfræð-
ingar í Lyon tóku svo dúpt í árinni
að segja að varnartaflmennska
Karpovs væri göldrum líkust. Skákin
fór aftur í bið eftir 88 leiki. Kasparov
er skiptamun yfír en jafntefli þykja
samt sem áður líklegustu úrslit.
Staðan í einvíginu er jöfn að
afloknum 16 skákum. Hvor keppandi
hefur sjö og hálfan vinning auk bið-
skákarinnar sem tefid verður áfram
á þriðjudaginn. Kasparov nægir að
halda jöfnu í einvígisskákunum 24
til þess að halda heimsmeistaratitlin-
um.
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Anatolíj Karpov
Skoskur leikur
I. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. d4 -
exd4 4. Rxd4 - Rf6 5. Rxc6 -
bxc6 6. e5 — De7 7. De2 — Rd5 8.
c4 — Rb6
I 14. einvígisskákinni lék Karpov
8. — Ba6. Kasparov náði betri stöðu
eftir 9. b3 - 0-0-0 10. g3! - He8
II. Bb2 - f6 12. Bg2 - fxe5 13. 0-0.
9. Rd2 - De6 10. b3 - a5?! 11.
Bb2 - Bb4 12. a3 - Bxd2+ 13.
Dxd2 - d5!?
Eftir 13. - a4 14. c5 - Rd5 15.
b4 — 0-0?! 16. Be2 stendur hvítur
mun betur að vígi.
14. cxd5 — cxd5 15. Hcl! 15. — 0-0
16. Hxc7 - Dg6 17. f3 - Bf5 18.
g4! - Bbl 19. Bb5 - Hac8 20.
Hxc8 - Hxc8 21. 0-0 - h5 22. h3
- hxg4 23. hxg4 — Bc2 24. Dd4!
- De6
Karpov er ekki ginnkeyptur fyrir
að endurheimta peðið á b3. Ekki
þarf að undrast þá ákvörðun, því
Kasparov myndi þá leika 25. e6! —
Rc4 26. e7! og vinnur.
25. Hf2! - Hc7 26. Hh2 - Rd7
Ennþá er peðið á b3 eitrað. Eftir
26. — Bxb3? 27. Dd3! hótar hvítur
máti í þremur leikjum. í áframhaldinu
verst Karpov snilldarlega þrátt fyrir
mikið tímahrak.
27. b4 — axb4 28. axb4 — Rf8 29.
Bfl - Bb3 30. Bd3 - Bc4 31. Bf5
- De7 32. Dd2 - Hc6 33. Bd4 -
Ha6! 34. Bbl - Ha3! 35. Hh3 -
Hb3 36. Bc2 - Dxb4 37. Df2 -
Rg6 38. e6?
Sjálfsagt var að leika 38. Bxb3 —
Dxb3 39. Db2! og með skiptamun
yfir ætti hvítur að vinna taflið.
38. - Hbl+
Auðvitað fellur Karpov ekki í gildr-
una 38. - Rf4? 39. Hh8+! - Kxh8
40. Dh4+ - Kg8 41. Dh7+ - Kf8
42. Dxg7-r — Ke7 43. Dxf7+ og mát
í næsta leik.
39. Bxbl - Dxbl+ 40. Kh2 - fxe6
Hér fór skákin í bið. Ef hvítur
getur skorðað svörtu peðin á e6 og
d5 í kjölfar drottningauppskipta er
staðan unnin. Taflmennska Karpovs
í áframhaldinu er aðdáunarverð og
varla hægt að bæta þar um. 41. Db2
- Dxb2+ 42. Bxb2 - Rf4 43. Hh4 -
Rd3 44. Bc3 - e5 45. Kg3 - d4 46.
Bd2 - Bd5 47. Hh5 - Kf7 48. Ba5
- Ke6 49. Hh8 - Rb2! 50. He8+ -
Kd6 51. Bb4+ - Kc6 52. Hc8+ 52.
Hxe5 gekk auðvitað ekki vegna 52.
- Rd3 52. - Kd7 53. Hc5 - Ke6
54. Hc7 - g6 55. He7+ - Kf6 56.
Hd7 - Ba2 57. Ha7 - Bc4 58. Ba5
- Bd3 59. f4 - exf4 60. Kxf4 Kasp-
arov hefur áorkað að bijóta svarta
peðavígið á miðborðinu. Svarta
d-peðið er dæmt til glötunar og flest-
ir skáksérfræðingar í Lyon álitu vinn-
ingsvonir heimsmeistarans allgóðar.
Karpov er ekki á sama máli. Hann
verst snilldarlega í framhaldinu og
með vörninni bætir hann við köflum
í endataflsbækur framtíðarinnar. 60.
- Bc2 61. Ha6+ - Kf7 62. Ke5 -
Rd3+ 63. Kxd4 - Rf2 64. g5 - Bf5
65. Bd2 - Ke7 66. Kd5 - Re4 67.
Ha7+ - Ke8 68. Be3 - Rc3+ 69.
Ke5 - Kd8 70. Bb6+ - Ke8 71. Hc7
- Re4 72. Be3 - Rg3 73. Bf4 - Rh5
74. Ha7 - Kf8 75. Bh2 - Rg7 76.
Bgl - Rh5 77. Bc5+ - Kg8 78. Kd6
- Kf8 79. Bd4 - Bg4 80. Be5 - Bf5
81. Hh7 - Kg8 82. Hc7 - Kf8 83.
Kc6 - Kg8 84. He7 - Kf8 85. Bd6
- Kg8 86. He8+ - Kf7 87. He7+ -
Kg8 88. Be5 - Kf8
Hér fór skákin í bið. Jafntefli eru
líklegustu úrslit þrátt fyrir að hvítur
sé skiptamun yfir. Eina vinningsvön
hvíts felst í leikþvingunum til þess
að hrekja svarta kónginn úr horninu.
Áframhaldið gæti orðið 89. Bf6 Bbl
90. Kd7 Bf5+ 91. Kd8 en ekki er
Ijóst hvemig hvítur getur bætt stöð-
una eftir það.