Morgunblaðið - 04.12.1990, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 04.12.1990, Blaðsíða 36
36 MORGUrtBLAÐIÐ VIÐSKIPri/iflVINNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990 Iðnaður Norræn umbúðasam- keppni á næsta ári Á næsta ári verður haldin umbúðasamkeppnin SCANSTAR á vegum norrænu umbúðasamtakanna, Samarbetsorganisationen för emballa- gefragor i Scandinavia. Þátttökurétt eiga allar umbúðir sem hannað- ar og/eða framleiddar eru á Norðurlöndum og ekki hafa verið sendar í SCANSTAR samkeppnina áður. Frestur til að tilkynna þátt- töku í keppnina er til 21. janúar 1991 en úrsiit verða gerð kunn á markaðssýningu í Gautaborg 14. maí. Umbúðir sem senda má í keppn- ina verður að taka í notkuri í síðasta lagi sama dag og þátttökufrestur rennur út, segir í frétt frá Félagi íslenskr iðrekenda. Rétt til að til- kynna þátttöku eiga hönnuður og framleiðandi viðkomandi umbúða og auk þess notandi þeirra með samþykki hinna tveggja. Iðnlánasjóður í SCANSTAR keppninni árið 1989 átti Island einungis tvær af 60 tilnefningum en vann til verð- launa þrátt fyrir það. Fyrirtækið SÓL hf. hlaut verðlaun fyrir drykkj- arvöruumbúðir. Nánari upplýsingar um keppnina veitir Lína G. Atla- dóttir á skrifstofu Félags íslenskra iðnrekenda. Minni eftirspum eftir fjárfestingarlánum HEILDAREFTIRSPURN eftir fjárfestingarlánum hjá Iðnlána- sjóði var 1.110 millj. kr. fyrir tímabilið janúar-október 1990. Áætluð heildareftirspurn á ár- inu er um 1.300 millj. kr., sem er um 10% minni eftirspurn en árið 1989. Þetta kemur fram í nýju fréttabréfi Iðnlánasjóðs- tíðinda. Þar segir að reynslan hafi sýnt að eftirspurn eftir lán- um sjóðsins endurspegli hina raunverulegu fjárfestingu í iðn- aðinum. Ofangreind þróun kemur í kjöl- farið á verulegum samdrætti á árinu 1989 þegar eftirspum eftir fjárfestingalánarlánum til Iðn- lánasjóðs minnkaði um 30% frá árinu áður. Tekið er fram, að árið 1988 hafí skorið sig úr hvað varð- aði eftirspum og beri að hafa það í huga þegar viðmiðun við það ár sé notað. Virðist sem meiri stöðug- leiki sé að færast yfír fjárfestingar í iðnaði en verið hafí undanfarinn áratug. Við nánari skoðun og flokkun á umsóknum til sjóðsins undanfarin misseri sé ekki hægt að merkja að samdráttar verði frekar vart í einni iðngrein en annarri. Hins vegar sé áberandi að í byggingarlánsumsóknum sé nú mun algengara en áður var að ráðist sé í kaup á eldra húsnæði í stað þess að byggja nýtt. Sú þróun hljóti að hafa áhrif á bygg- ingariðnaðinn 'heild. Þá kemur fram, að sívaxandi beiðni eftir skuldbreytingum og skilamálabreytingum hvers konar hafí haft þær afleiðingar að þáttur eiginfjármögnunar í ráðstöfunarfé sjóðsins hafí orðið minni en ella og hann því háðari lántökum við fjármögnun nýrra útlána. K Æ : 4/L,- __________ vjsa Dags. 4.12 1990 * NR. 190 VAKORT Númer eftirlýstra korta 4507 2900 4548 9000 4543 3700 4543 3700 4929 541 Kort frá Kuwait 4506 13** 4966 4507 13** 4921 4547 26** 4552 4508 70** 4507 0003 2489 0027 9424 0000 2678 0001 5415 675 316 sem byrja á nr.: 66** 4509 02** 04** 4921 90** 41** 4560 31** 77** 4966 82** Afgreiðslufólk vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000,- fyrir að klófesta kort og vísa á vágest. VI5A ISLAND K Hugbúnaður KERFIRAÐUR —— Unnið við lokaprófanir kerfiráðsins í Nesjavallavirkjun. Á myndinni eru f.v. Ámi Gunnarsson, yfirverkfræðingur Hitaveitu Reykjavíkur, Ari Arnalds, framkvæmdastjóri VKS og Tómas Gíslason, verkfræðingur hjá VKS. Sjálfvirkt fjargæslukerfi í Nesjavallavirkjun Gerir mögulegt að reka virkjunina án þess að gæslumaður sé á staðnum. VERK- og kerfisfræðistofan, VKS, annaðist hönnun fjargæslukerfis, svokallaðs kerfiráðs í Nesjavallavirkjun, sem gerir vaktmönnum kleift að stýra virkjuninni. Nesjavallavirkjun er fyrsta háhitavirkjun Hitaveitu Reykjavíkur og ein örfárra háhitavirkjana í heiminum. Virkjunin er nú þegar meðal stærstu virkjana Iandsins en fullbúin verður hún sú stærsta í landinu. Hægt er að stýra virkjuninni hvort sem er frá stjórnherbergi á Nesjavöllum eða frá stjórnstöð Hitavei- tunnar á Grensásvegi 1 í Reykjavík. Árið 1983 fólu borgaryfirvöld VKS að hanna og framleiða kerfí- ráð, sem gerir vaktmönnum kleift að stýra öflun og dreifingu á heitu vatns á höfuðborgarsvæðinu frá einni stjórnstöð. Árni Gunnarsson yfirverkfræðingur Hitaveitu Reykjavíkur segir að kerfíráðurinn í Reykjavík hafi reynst mjög vel og því hafí verið ákveðið að ganga til samninga við VKS á ný um hinn nýja kerfiráð Nesjavallavirkjunar. Að sögn Ara Arnalds, fram- kvæmdastjóra VKS, er kerfiráður- inn langstærsta hugbúnaðarverk- efni á þessu sviði sem íslendingar hafa ráðist í. Tveir til þrír menn hafa að jafnaði unnið við þetta verk- efni undanfarin sjö ár, bæði vegna þessara tveggja verkefna fyrir Hita- veitu Reykjavíkur og vegna tveggja annarra notenda þessa kerfís. Síldarverksmiðjur ríkisins á Siglu- firði nota kerfíráðinn til að stýra framleiðslu í loðnubræðslu en hjá Póst- og símamálastofnun vakir kerfiráðurinn yfír örbylgjusam- böndum stofnunarinnar um allt land. Kerfíráðurinn á Nesjavöllum er tengdur við stjómstöð í Reykjavík, þannig að vaktmaður þar getur haft eftirlit með öllum borholum og dælustöðvum Hitaveitunnar í Reykjavík og á Nesjavöllum. í stjórnstöðinni í Reykjavík er sólar- hringsvakt allan ársins hring en rekstrarmenn á Nesjavöllum eru hins vegar á bakvakt utan venjulegs vinnutíma og á þá er kallað eftir þörfum. Við virkjunina á Nesjavöll- um vinna að jafnaði sjö menn við rekstur og viðhald. Kerfiráðurinn tengist einstökum dælustöðvum um iðntölvur sem framleiddar eru af Texas Instru- ment. Tengingar eru um símalínur. Við hönnun kerfiráðsins hefur verið lögð áhersla á að kerfíð sé auðvelt í notkun. Sem dæmi má nefna að vilji vaktmaður ræsa dælu í dælu- stöð, kallar hann fram mynd af dælunni á einum af þrem tölvu- skjám sem hann hefur til umráða, bendir á dæluna með bendli og slær á skipanahnapp „ræsa“. Við þetta fer dælan í gang og mynd dælunn- ar á rásateikningu breytist til stað- festingar á því að dælan sé komin í gang. Verslun Dagskinna fyrir athafnafólk LEÐURIÐJAN hf., Hverfisgötu 52, hefur nýlega hafið fram- leiðslu á svokallaðri dagskinnu, sem ætluð er athafnafólki á öll- um sviðum þjóðlífsins. Dagskinn- an inniheldur eina UGLU, en það er minnisbók, sem í er ársdaga- tal, dagbók, minnisblöð, síma- númerablöð o.fl. Einnig er hægt að sérprenta fyrir fyrirtæki ýms- ar upplýsingar sem það vill hafa í bókinni. Að sögn Nönnu Mjallar Atladótt- ur eiganda Leðuriðjunnar er Dag- skinnan úr vönduðu kálfsskinni og efninu pet. Hún segir, að bókin eðá hulstrið hafi það fram yfir erlenda framleiðslu af svipuðum toga, að hún sé af stærðinni A-5 og því sé hægt að fá í hana vinnubókarblöð í öllum ritfangaverslunum. Fyrir næstu jól komi út ný UGLA, sem hægt sé að setja í dagskinnuna í stað þeirrar gömlu. Verði þá líka hægt að fá seðlaveski og lyklakippu í stíl við dagskinnuna. Fremsta síðan í bókinni er úr gegnsæju hlífðarplasti. Þar er hægt að setja nafn og merki fyrirtækis eða eiganda með gylltu letri. Hönn- uður dagskinnu er Edda Hrönn, sem jafnframt er hönnuður Leðuriðjunn- ar. En Leðuriðjan er ný verslun, fyrsta sinnar tegundar hér á landi, að sögn Nönnu Mjallar, því að þar er hægt að fá nær allt sem lítur að leðurvinnu og föndurgerðar í sambandi við leðurvinnu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.