Morgunblaðið - 04.12.1990, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990
fclk í
fréttum
STAÐGENGILL
Minn kroppur
— ekki Juliu
að er ekki það nýjasta í frétt-
um, að leikkonan Julia Ro
berts kom, sá og sigraði í kvikmynd-
inni „Pretty Woman“ og sé síðan
eitt helsta kyntáknið í Hollywood
og ein eftirsóttasta leikkonan í
flestar kvikmyndir fyrir vestan haf.
Fallegur kroppur ungfrúarinnar
þótti njóta sín vel oft og tíðum í
myndinni sem um ræðir þar sem
hún lék á móti Richard Gere. Nú
hefur hins vegar ung stúlka að
nafni Shelly Michelle gengið fram
fyrir skjöldu og lýst því yfir að í
öllum tilvikum þar sem nekt er sýnd
og ekki sér í andlit leikkonunnar
hafi hún tínt af sér spjarirnar fyrir
myndavélarnar en ekki stjarnan
Julia Roberts. Þetta hafi ekki átt
að fréttast, en þar sem hún telji
hlut sinn hafa verið rýran vilji hún
nú nota þessa uppákomu til þess
að vekja á sér athygli ef það mætti
verða til þess að hún slái í gegn í
kvikmynda- eða sýningarbransan-
um.
Framleiðendur „Pretty Woman"
hafa lítið viljað tjá sig um afhjúpan-
Julia Roberts
ir ungfrú Michelle, sem þykir
nauðalík Roberts í vextinum.
Ungfrú Michelle segir Juliu Roberts
vera lítið fyrir að koma fram nakin
í kvikmyndum þótt hún þvertaki
ekki fyrir það í neyðartilvikum.
Hins vegar hafi við bæst í þessu
tilviki að hún hafí orðið fyrir miklum
þrýstingi frá foreldrum sínum sem
„séu sveitó“, að hafna hlutverkinu
vegna nektarsenanna. Hún hafí
ekki viljað sleppa tækifærinu, en
& & && && && &&!&$&&&&&$ &
& HhSMB!ÍÍMm|B|hI &
Ljúfíir fordrykkur.
Fjórrétta liátíðan'crður með eðal-borðvínum.
Ræðumaður kvöldsins Davíð Oddsson
Dansinn stíginn við undirleik hljómsveitar kvöldsins.
Vinsamlegast gangið frá pöntunum
fyrir 15. des. í síma 29900.
ft
%
&
Shelly Michelle
ungfrú Michelle verið þess í stað
fengin til að leika nektaratriðin og
um leið hafi þess verið gætt að
ekki sæist í andlit leikkonunnar er
atriðin voru tekin upp.
Svo mörg voru þau orð og ungfrú
Michelle bætir við að svona lagað
sé langt frá því að vera einsdæmi
í kvikmyndunum fyrir vestan haf.
Til dæmis hafi eitt atriði í kvik-
myndinni „My stepmother is an ali-
en“ með Kim Basinger í aðalhlut-
verki verið þannig að mikið hafi
verið gert úr fögrum fótleggjum
aðalleikkonunnar, myndavélamar
hafí suðað vel og lengi á leggjunum.
En það hafí bara alls ekki verið
leggir ungfrú Basinger, heldur hafi
önnur fótleggjafegurri leikkona,
Cathrine Oxenberg, verið fengin að
láni í umrædda töku. Áhorfendur
hafí ekki vitað eitt eða neitt, enda
hafi ekki sést í andlit leikkonunnar
í kvikmyndinni.
TINLICL T0LKE.R5
Jakkar - Blússur - Buxur - Pils
Húfur - Slæður - Sjöl - Treflar
Skartgripir og belti í miklu úr-
vali.
Glæsilegur sparifatnaður
Hár;x.
(Ðpryði
V Sérverslun
Iláaleitisbraut 58-60
Sími 32347
JS Sendum i póstkröfu.
VISA’
Rúnar Þór syngur um kletta.
Hjördís Geirsdóttir syngur.
PLÖTUUTGAFA
Uppskeruhátíð
Skífunnar
Nú stendur sem hæst slagurinn
í hljómplötuútgáfunni og
flestar plötur komnar út sem
koma út fyrir þessi jól. Steinar
og Skífan eru sem fyrr atkvæða-
mestu útgáfurnar og í síðustu
viku hélt Skífan mikla uppskeru-
hátíð í veitingastaðnum Amma
Lú i Kringlunni.
Skífan sendir frá sér að þessu
sinni níu breiðskífur og á hlut að
útgáfu þriggja til viðbóta, með
ýmiskonar tónlist, allt frá bama-
plötunni Barnaborg í plötu með
íslenskum einsöngslögum sem
Viðar Gunnarsson syngur. Á upp-
skeruhátíðinni, sem var einkar
fjölsótt, var tónlistin á plötunum
tólf kynnt og meðal annarra tróðu
upp Langi Seli og Skuggamir,
Síðan skein sól, Hjördís Geirsdótt-
ir og Rúnar Þór Pétursson.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Aðstandendur Skífunnar með Hermanni Gunnarssyni og Jjremur
fjórðu af Síðan skein sól. Frá vinstri: Hermann, Jón Olafsson
forstjóri Skífunnar, Helgi Björnsson söngvari, Pétur Kristjánsson
útgáfustjóri, Eyjólfur Jóhannson gítarleikari og Ingólfur Sigurðs-
son trommuleikari.
ffub&igi&t
SOKKAR OG SOKKABUXUR
TÁKN UM GÆÐI