Morgunblaðið - 04.12.1990, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 04.12.1990, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990 63 Ólympíuskákmótið í Novi Sad: Sovétmenn Ólympíumeistarar, ís- lenska sveitin líklega í sjöunda sæti 19. - g6, 20. Bxf7+! - Kxf7, 21. Dxh7+ - Kf6 Skák Karl Þorsteins SOVÉTMENN sigruðu á Ólympíu- skákmótinu í Novi Sad. Þeir sigr- uðu íslensku skáksveitina með tveimur og hálfum vinningi gegn einum og hálfum vinningi í siðustu umferð mótsins í gærkvöldi. Sov- éska sveitin hlaut 39 vinninga á mótinu. Lengst af virtist enska skáksveitin örugg um að hreppa annað sætið á mótinu óskipt uns einum búlgarska skákmanninum varð á hrapalleg mistök í viður- eigninni gegn bandarísku sveit- inni. Við sigurinn náði bandaríska sveitin þeirri ensku að vinningum. Islenska skáksvéitin má vel una við árangurinn. Markmiðið var að hafna á meðal tíu efstu sveitanna og það náðist. Að öllum líkindum endar sveitin í sjöunda sæti á mótinu. Það ræðst af stigaútreikn- ingi sem aðeins er hægt að fram- kvæma eftir að öll úrslit liggja fyrir. Lokastaða efstu sveita í karla- flokki varð þessi: 1. Sovétríkin 39 vinninga af 56 mögulegum. 2. -3. England 35‘/2 Bandaríkin 35'/2 4. Tékkóslóvakía 34V2 5. Júgóslavía 33‘/2 + biðskák 6. Kúba 33 7. -12. ísland 32*/2 Indland 32'/2 V-Þýskaland 32*/2 Holland 32'/2 Svíþjóð 32>/2 Júgóslavía - b 32‘/2 Það var ólán fyrir íslensku sveitina að mæta þeirri sovésku í síðustu umferð mótsins. Sovéska sveitin er gríðarlega sterk og ekki heiglum hent að glíma við þá snillinga sem skipa sveitina. Meðalstig sveitarmeð- lima eru t.d. 2645 Elo-skákstig. Helgi Ólafsson mætti Gelfand á fyrsta borði og stýrði svörtu tafl- mönnunum. Helgi beitti drottningar- bragði og fékk heldur þrengri stöðu en rétti úr kútnum og vann skipta- mun sem dugði samt ekki til vinn- ings. Margeir Pétursson beitti Nimzo-indverskri vörn gegn Arthur Jusupov á öðru borði. Margeir tefldi stíft til vinnings en Jusupov varðist vel og um jafntefli var samið eftir fimmtíu leiki. Á sömu leið endaði viðureign Jóns L. Árnasonar og Jud- asin. Jóhann Hjartarson tapaði hins vegar gegn Bareev á fjórða borði eftir að hafa haft vænlega stöðu framan af. Árangur íslensku sveitar- innar var góður og óheppni öðru fremur má kenna um að hærra sæti varð ekki raunin nú. í fyrstu umferð- unum var taflmennskan ekki sann- færandi hjá íslensku keppendunum líkt og þeir væru seinir í gang. Hins- vegar náðu þeir sér vel á strik í seinni hluta keppninnar. Gunnar Eyjólfsson, sem titlaður var andlegur leiðtogi sveitarinnar, á þar örugglega stóran hlut að máli. Með stórum sigri gegn Portúgal í tólftu umferð komst íslenska sveitin í tæri við toppsætin og hélt sínu striki til enda þrátt fyr- ir að andstæðingarnir í tveimur síðustu umferðunum væru þeir sveit- ir sem álitnar voru þær sterkustu á mótinu. í síðari hluta mótsins var nær eingöngu keyrt á aðalliðinu. Þeir Björgvin og Héðinn tefldu þq'ár skákir hvor og stóðu sig með sóma. Kannski er það gagnrýnisvert að veita þeim ekki fleiri tækifæri til taflmennsku, en ég hygg þó að stefn- an hafí verið rétt. Jón L. Árnason sýndi snilldartakta í viðureign sinni gegn enska stór- meistaranum John Nunn í þrettándu og næst síðustu umferð mótsins. Viðureignin tók aðeins tvær og hálfa klukkustund og leikirnir voru 26 þegar óvetjandi mát eða drottning- artap blasti við Nunn. Viðureignin var valin skák 12. umferðar á Ólympíuskákmótinu. Hvítt: Jón L. Árnason Svart: John Nunn (England) 1. e4 - e5, 2. Rf3 - Rc6, 3. Bb5 - a6, 4. Ba4 - Rf6, 5. 0-0 - Be7, 6. Hel - b5, 7. Bb3 - 0-0, 8. a4 Jón hefur engan áhuga að tefla gegn Marshall-árásinni svokölluðu sem kemur upp eftir 8. c3 — d5, 9. exd5 — Rxd5, 10. Rxe5. 8. - Bb7, 9. d3 - d6, 10. Rc3 - Ra5, 11. Ba2 - b4, 12. Re2 - c5, 13. c3 — bxc3 Nunn þekkir vel til byijunarinnar. í skák gegn Nijoer í Wijk aan Zee Biðröðum eftir greiðslumati senn lokið: Bankar og sparisjóð- ir koma til með að framkvæma matið BIÐRÖÐUM lyá Húsnæðisstofnun ríkisins eftir greiðslumati í tengsl- um við húsbréfakerfið verður útrýmt í febrúar á næsta ári, er bank- ar og sparisjóðir í samvinnu við verðbréfafyrirtæki munu taka upp framkvæmd matsins. Þetta kom fram í máli Tryggva Pálssonar bankastjóra íslandsbanka á almennum fundi um húsnæðismál sem Samband ungra sjálfstæðismanna og málefnanefnd Sjálfstæðis- flokksins um húsnæðismál efndu til í síðustu viku. Frá 15. febrúar mun greiðslumat væntanlegra húsnæðiskaupenda ekki einungis fara fram hjá Hús- næðisstofnun, heldur jafnframt í bönkum og sparisjóðum. „Með þessu verður tekinn upp ákveðinn þjónustustaðall, sem með- al annars felur það í sér að frá þeim tíma að öll gögn liggja fyrir frá umsækjanda á stofnunin sem þjónustuna veitir að gefa sitt mat og vera búin að vinna það á viku hið lengsta," sagði Tryggvi. Hann sagði jafnframt að vissar forsendur væru fyrir því að banka- kerfið gæti farið að keppavið opin- bera kerfið í að veita löng stofnlán fyrir húsbyggjendur og kaupendur. „Það er staðreynd að í gegnum vaxtastefnu eru innlánin meiri og það er lfka vilji hjá lífeyrissjóðum Andstæðingar: a js &> á 'Z g ■D b. K 'rt ~ rt a> í 5 "5 i5 b bO •o ^ & 5 a t »3 Cð i O ^ co < a. S | c o Vinn. Skákir w cn HcIkí Ólafsson 0 1 ‘h 0 1 1 0 Vi Vi 1 'h ‘h 6'/i 12 Marfreir Pétursson 0 ‘h 1 1 'h 'h 'h 1 'h 0 1 0 ‘h 7 13 Jón L. Ámason 'h 1 0 'h 1 1 1 0 'h 'h 1 'h 7 'h 12 Jóhann Hjartarson 1 1 >h I 0 1 'h 'h 1 'h 1 ‘h 0 8'/i 13 Héðinn Steinerímss. 1 'h 0 U/i 3 Björgvin Jónsson 1 0 'h \'h 3 Vh 4 1 'h 2'h 21/! 2>/i 3‘/i 2Vi 2 2 l'/i 3'/i 2 l'/2 32 'h 1990 lék hann 13. — c4!?. Nunn skýr ir skákina ýtarlega í júgóslavneska skákritinu Informator og álítur færi hvíts betri í framhaldinu sem tefldist 14. cxb4 — cxd3, 15. Rc3 — Rc6, 16. Bd5 - Hb8, 17. b5 - Rb4, 18. Bxb7 - Hxb7, 19. bxa6 - Ha7, 20. Bg5!. 14. bxc3 - c4!?, 15. Rg3 - Rd7 Nunn lék 15. — Dc7 gegn Ehlvest á Ólympíuskákmótinu í Þessalóniku fyrir tveimur árum. Sá leikur var gagnrýndur og stungið upp á 15. — g6,16. Bh6 — He8, eða riddaraleikn- um sem endurbót. Nú þjónar 16. Bh6 — He8, eða riddaraleiknum sem end- urbót. Nú þjónar 16. Rf5 litlum til gangi vegna 16. — Rc5. 16. Ba3 - He8? Ráðlegra er 16. — g6 til þess að hindra stökk riddarans í átt að svörtu kóngsstöðunni. Eftir 17. d4 — Dc7 eru möguleikarnir á báða bóga. 17. Rf5 - Dc7, 18. Rd2! Mjög snjall leikur sem skilur við svartan á vonarveli. Hvítur hótar einfaldlega að vinna peðið á c4 í næsta leik og 18. — Rb6 dugar skammt vegna 19. Bb4. 18. - cxd3, 19. Dh5 Það er ekki erfitt að skýra þennan hluta skákarinnar. Við mátbótun í tveimur leikjum á svartur aðeins eitt svar. Svartur er í úlfakreppu. Ekki er ljóst hvort 22. Dg7+ — Ke6, 23. Dxg6+ — Rf6, 24. Rg7+ leiði til vinnings eftir 24. — Kd7, 25. Df5+ — Kc6. Leikur Jóns er miklu sterkari. 22. He3! Hvítum liggur ekkert á. Nú er hótunin 23. Hf3 og mát fylgir í kjöl farið. Við því á svartur aðeins eitt svar. 22. - Rf8, 23. Dh8+! - Kf7 Meiri mótspyrna veitti 23. — Ke6. Eftir 24. Dh3 hótar hvítur m.a. 25. Rh6+! - Kf6, 26. Hf3+ - Kg7, 27. Hf7+ - Kh8, 28. Rf5+ - Kg8, 29. Hg7 mát. Eftir þvingað svar 24. — Kd7 getur hvítur valið um að leika 25. Rxd6+ — Kc6, 26. Rxe8 eða 25. Rxe7+ — Kxe7, 26. Hxd3. Ef ég þekki Jón rétt hefur hann verið með vinningsleið á reiðum höndum. Nú lýkur hann skákinni snyrtilega. 24. Hf3! - gxf5, 25. Dh5+ - Rg6, 26. Dxf5 Hér gafst Nunn upp. Svartur er mát eða missir drottninguna eftir 26. - Kg7,27. Df7+ - Kh6,28. Hh3+. til að veita eitthvert fé eftir öðrum farvegi heldur en í gegnum opin- beru sjóðina. Valkosturinn sem bankarnir hafa í dag hvað þetta varðar er sá að byija með dýrari lán, þar sem starfsskilyrði banka eru allt önnur en hins opinbera kerfis, en bankarnir hafa það þó fram yfir að vitað er að viðbótar- kostnaðurinn við að taka yfir þessa þjónustu er mjög lágur auk þess sem hægt er að bjóða mikið meiri sveigjanleika í greiðsluflæðinu," sagði Tryggvi. Á fundinum tilkynnti Geir Haarde alþingismaður, að hann ætli að leggja fram innan tíðar frumvarp með það að markmiði að liðka til fyrir þessari starfsemi ban- kanna. 4> ... - •!~5 FORLAGIÐ LAUGAVEGM8, SÍMI91 -25188 LIÓÐ NÁMIIVÍÍLU SIGURÐUR PÁLSSON Sigurður pálsson er ótvírætt í fremstu röð íslenskra Ijóðskálda, og hver ný ljóðabók frá hans hendi er bókmenntaviðburður. Þetta er þriðja og síðasta bókin í flokki ljóðnámubókcmna. Lífskraftur, íhygli og óvæntar líkingar einkenna þessi ljóð, hvort sem kveikja þeirra eru heimsviðburðir líðandi stundar eða hjartans mál mannsins. Sem fyrr sýnir Sigurður meistarasnið þegar hann bregður á leik með hversdagsmyndir og gefur þeim gildi handan hversdagsins. Hér togast á ísmeygileiki, ofsafenginn galsi og sár alvara. Úr þeirri togstreitu spretta ljóð sem eru hvort tveggja í senn - opinská og dularfull. AUKR507-37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.