Morgunblaðið - 04.12.1990, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 04.12.1990, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990 ia ■ ÖRN OG ÖRLYGUR hefur gefið út barnabókina Tjúlli - lán í óláni eftir Harald Sigurðsson og Inga Haas Jónsson. í kynningu útgefanda segir að „von sé í fram- tíðinni á fleirum bókum um köttinn Tjúlla, en hver þeirra verði sjálf- stætt ævintýri. Fyrsta bókin segir frá fyrstu ævintýrum Tjúlla eftir að hann verður heimilisköttur hjá Siggu gömlu. ■ IÐUNN hefur gefið út bókina 1999 spurninga spurningaleikur- inn, bók með nærri tvö þúsund spurningum og svörum fyrir börn á öllum aldri. í kynningu útgefanda segirm.a.: „Með bókina í höndunum geta krakkarnir eða öll fjölskyldan farið í skemmtilega og spennandi spurn- ingaleiki af ýmsu tagi, sama hvort setið er heima við eldhúsborðið eða í skólanum, í bíl eða flugvél. Spurn- ingarnar eru þyngdarflokkaðar og þess vegna geta allir átt jafnan möguleika á að svara rétt og sigra í leiknum!" Nanna Rögnvaldsdóttir sá um útgáfu bókarinnar. ■ ÖRN OG ÖRLYGUR hefur gefið út aðra útgáfu af bókinni Sjafnaryndi - Unaður ástarlífsins skýrður í máli og myndum. í kynningu útgefanda segir að „ Sjafnaryndi sé einstæð bók um samskipti kynjanna. Höfundur fajlli um hina ýmsu þætti kynlífsins af reynslu og þekkingu. ■ IÐUNNheíur gefið út nýja bók Vísnabók Iðunnar. í kynningu út- gefanda segir m.a.: „Hér er að finna gamla barnagælur, þulur og kvæði sem geymst hafa með þjóðinni um ár og aldir og lifa munu áfram með komandi kynslóðum. En í bókinni er einnig fjöldi nýrri vísna og ljóða sem unnið hafa hug og hjörtu barna á síðari árum. Hér eru vísur um vorið, sumarið, haustið og veturinn um jólin og Grýlu gömlu, um litina, finguma, dagana og margt, margt fleira.“ Brian Pilkington mynd- skreytti hveija síðu bókarinnar. Bókin er prentuð í Odda hf. ■ IÐUNN hefur gefið út bókina Leiðbeiningar fyrir konur um framhjáhald sem er skáldsaga eft- ir breska rithöfundinn Carol Clewl- ow í íslenskri þýðingu Sverris Hólmarssonar. í kynningu útgef- anda segir m.a.: „Hér er á ferðinni áhrifamikið og umtalað skáldverk um sterkar og sjálfstæðar nútíma- konur, en jafnframt tilfinninga- næmar og auðsærðar undir niðri, konu sem njóta frelsis til að elska og frelsis tii að þjást. Þær eru ham- ingjusamar í forboðinni ást sinni, þeirri ást sem þrungin er angist og þjáningu framhjáhaldsins.“ Bókin er prentuð í Odda hf. ■ HÖRPUÚTGÁFAN hefur sent frá sér bókina Stúlkan á strönd- inni eftir Bodil Forsberg og er þetta 22. bókin sem út kemur á íslensku eftir hana. Á bókarkápu segir m.a.: „Hjúkrunarkona finnst myrt. Arvid Holm ræðismaður er ákærður fyrir morðið. Björn sonur hans er eftirlýstur sem vitni í mál- inu. Hann má ekki til þess hugsa að vitna gegn föður sínum, sem hafði verið besti vinur hans og fé- lagi. Honum tekst að dyljast með hjálp vinkonu sinnar, stúlkunnar á ströndinni, sem var reiðubúin að fórna sér fyrir hann. Þetta er við- burðarík og spennandi ástarsaga um ungmenni og fjölskyldur þeirra, einnig spillingu og undirferli sem þróast í skjóli auðs og frægðar." Stúlkaa á ströndinni er 176 bls. Skúli Jensson þýddi. Prentverk Akraness hf. prentaði. ■ HÖRPUÚTGÁFAN hefur sent frá sér bók eftir Duncan Kyle sem heitir Eftirförin. Á bókarkápu seg- ir m.a.: „Árið 1941 öslar orustu- skipið Prince of Wales vestur um haf gegn stormi og stórsjóum með- an kafbátahernaður Þjóðveija er í algleymingi. Leynilegur flutningur þess gerir það að ómótstæðilegu skotmarki kafbátanna. Maðurinn sem er farþegi í þessari ferð getur einn síns liðs, unnið eða tapað stríðunu fyrir Breta. Mesta hættan steðjar þó að úr lofti, því að vestan hafs bíða þrír menn eftir tækifæri til þess að greiða banahöggið af hálfu Þjóðveija. Þegar orustuskipið nálgast áfangastað, hefur flugvél sig á loft og banvænn leikur hefst fyrir alvöru." Eftirförin er 211 bls. prentuð og bundin í Odda hf. Þýð- andi er Hersteinn Pálsson. Kápu- teikningu gerði Kristján Jóhanns- son. \ ^ma^) AUÐSTILLT MORATEMP blöndunar- tækin eru með auðveldri einnar handar stillingu á hitastigi og vatnsmagni, MORA sænsk gæðavara fyrir íslenskar aðstæður. Fást í byggingavöruverslunum. Fallegir hlutir gefa lífinu gildi Það á einnig við um penna. Parker Duofold blekpenninn hér að neðan er vissulega fall- egur, enda hefur ekkert verið til sparað. Hitt er þó mikilvægara að hann er mjög vandaður. Parker Duofold dansar um blaðið meðjöfnu flæði af bleki og gæðir rithöndina persónu- legum þokka. Það er hrein unun að skrifa með Parker Duofold. Parker Duofold fæst hjá eftirtöldum söluaðilum. t PARKER REYKJAVÍK Penninn, Hallarmúla Mál og menning, Síðumúla Eymundsson, Mjódd Penninn, Kringlunni Griffill, Síðumúla Mál og menning, Laugavegi Eymundsson, við Hlemm Penninn, Austurstræti KÓPAVOGUR Bókaverslunin Veda HAFNARFJÖRÐUR Bókabúð Olivers Steins KEFLAVÍK Bókabúð Keflavíkur ÍSAFJÖRÐUR Bókaverslun Jónasar Tómassonar AKUREYRI Bókaverslun Jónasar Jóhannssonar Tölvutæki - Bókval ^ meiri ánægja^ IÞESSARI FYRIRSÖGN UM BÓKINA „AHA! EKKI ERALLTSEM SÝNISF ERU 15 ORÐ VMBÓKWA „AHAJ BKKL ERAÍCT CEttSftmr ERU ±S Á myndinni eru 14 orö i setningunni. Þess vegna hlýtur hún aö vera ósonn. Þar af leióandi hlýtur andstæða hennar aó vera sönn. 3 / ænART FmiRio^ UMBÓfONA ')\ EKKl ER ALLT SEm iÝtrpT* ERU EKKI 15 ORÞ. Eóa hvaö? Þessi setning hefur nákvæmlega 15 orö. Hvaö ertil ráöa? Rökleysur, þversagnir og andstæöur eru efniviöurinn í bók Martins Gardners, J\ha! Ekki er allt sem sýnist”. Lengi vel hafa þessar sömu þversagnirvaldiö mönnum miklum heilabrotum. i bókinni eru sett upþ fræg dæmi um slikar þversagnir og útskýrö f islenskri þýöingu Benedikts Jóhannessonar. Stærðfræði hefur oft veriö óskiljanlegt torf í hugum margra, en hér gefur að Ifta nýja og óvenjulega hliö á þeirri grein. Sannariegur ánægjuauki I hversdagsumræðuna á aðeins 1.300,- krónur. Gefiö út af Talnakönnun, Slöumúla 1, slmi 91-68 86 44. Fæstíbókabúðum. TALN AKÖNNUN HF. Siöumúla 1, slmi 91 -68 86 44
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.