Morgunblaðið - 04.12.1990, Side 4
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 4. DESEMBER
YFIRLIT í GÆR: Við Hvarf er vaxandi lægð, sem mun hreyfast
austnorðaustur. Skammt vestur af íslandi er 1.034 mb hæð. í
nótt fer að hlýna, fyrst vestanlands.
SPÁ: Sunnnan- eða suðvestanótt. Sums staðar allhvasst um sunn-
an- og vestanvert landið, með skúrum eða rigningu. Annars staðar
hægara og úrkomulítið.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Suðvestanátt, allhvöss vestanlands,
en hægari annars staðar og skúrir eða slyddué! sunnan- og vestan-
til á landinu.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Norðvestan- og norðanátt, kaldi eða
stinningskaldi vestantil á landínu, en heldur hægari austanlands.
Él víða vestan- og suðvestanlands, annars staðar að mestu úrkomu-
laust. Frost 3 til 4 stig.
A Norðan, 4 vindstig:
•D- Heiðskírt / / / / Rigning V Skúrir Y Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar
* 1 vindstyrk, heil fjöftur
Lóttskýjað * / * * er tvó vindstig. ■ 'T * Vindstefna
/ * / * Siydda V Slydduól
Hálfskýjað f * f V ] 0' HJtastig: 10 gráöur á Celsíus
M Skýla* * * * * * * * Snjókoma Él — Þoka
m Alskýjað 5 5 9 Suld oo Mistur = Þokumófta
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBÉR 1990
Um 4 tonn af skemmd-
um laxi ófundin í gær
UM FJOGUR tonn af skemmdum laxi, sem tekin voru úr frystigeymslu
í Hafnarfirði í síðustu viku, voru enn ófundin í gær, að sögn Harðar
Jóhannessonar hjá rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík. Yfir-
heyrslur yfir aðilum er tengjast þessu máli fóru fram í gær, og sagði
Hörður þær ekki hafa leitt í ljós hvar fiskurinn er niðurkominn. Við
athugun heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðarsvæðis í verslunum í gær
fundust nokkur flök af reyktum laxi, sem reyndust vera skemmd, en
þau eru ekki talin vera úr þeim birgðum sem leitað er að.
Fiskurinn sem um ræðir varð sjálf-
dauður í fiskeldisstöðinni íslaxi á
Vestfjörðum, en hann var tryggður
hjá Reykvískri endurtryggingu. Að
sögn Ólafs Sigurðssonar, verkfræð-
ings hjá Reykvískri endurtryggingu,
urðu rúmlega 19 tonn af físki sjálf-
dauð hjá Islaxi, og hefur stöðinni
verið bætt tjónið að fullu. Hann sagði
að megnið af fiskinum sem drapst
hefði farið í gúanó, en forráðamenn
stöðvarinnar og sá aðili sem keyptl
afganginn hefðu samið sín á milli
um þau kaup, og væntanlega hefði
það verið gert í þeirri von að eitt-
hvað fengist fyrir fiskinn ef tjónið
yrði ekki bætt. Hann sagði að þegar
fregnir hefðu síðan borist af því að
fiskurinn hefði verið innsiglaður í
frystigeymslu í Hafnarfirði hefði tjón
fiskeldisstöðvarinnar verið greitt að
fullu.
Guðmundur H. Einarsson, for-
stöðumaður heilbrigðiseftirlits Hafn-
arfjarðarsvæðis, sagði að starfsmenn
heilbrigðiseftirlitsins hefðu farið í
verslanir í gær til að kanna hvort
umræddur fiskur væri þar á boðstól-
um. Hann sagði að skemmd laxaflök
frá sama aðila og keypti fiskinn af
íslandslaxi hefði fundist í tveimur
verslunum, en sá fiskur hefði verið
dágsettur áður en fiskurinn var tek-
inn úr frystigeymslunni í Hafnar-
firði.
Rannsókn lögreglunnar beinist
fyrst og fremst að því að hafa upp
á þeim um það bil 4 tonnum af fiskin-
um sem ófundinn er, en í síðustu
viku fundust samtals um 720 kg af
fiskinum í reykhúsi á Grandagarði
o g á vöruflutningamiðstöð í
Reykjavík.
Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi:
Eins og um alvöru sé að ræða
- segir Guðjón Petersen
„TILFINNINMGIN hjá okkur er
eins og við séum einfaldlega að
vinna þetta í alvöru. Þetta er tek-
ið mjög alvarlega," sagði Guðjón
Petersen framkvæmdasljóri Al-
mannavarna ríkisins í samtali við
Morgunblaðið í gær. Almanna-
varnir, ásamt almannavarna-
nefndum byggðarlaganna á höf-
uðborgarsvæðinu, ýmsum ríkis-
stofnunum og stórfyrirtækjum á
svæðinu æfa nú sljórnunarleg við-
brögð við náttúruhamförum.
Daglega berast upplýsingar um
framvindu mála og aðilar bregð-
ast við þeim eins og um raunveru-
leika væri að ræða, það er að
segja skipuleggja aðgerðir og við-
búnað, en vettvangsæfingar fara
ekki fram.
„Við fáum nýjar upplýsingar dag-
lega um hvað er að „gerast" í náttú-
runni og vitum ekki hvað gerist í
dag fyrr en klukkan þrjú, þegar
skýrsla kemur til okkar. Það er líka
verið að æfa okkur að taka afstöðu
til mála eftir því hvemig þau þró-
ast,“ sagði Guðjón.
„Náttúruhamfarirnar" sem æf-
ingin byggist á eru umbrot á
sprungusveimi, þar sem skjálfta-
virknin á upptök sín við Kleifarvatn.
Æfingin byggist á því, að umbrotin
endi með eldgosi.
„Það ánægjulega við þetta er að
í gegn um æfinguna það sem af er,
hafa nú þegar komið fram fjölmarg-
ar tillögur um það sem Vatnsveitan,
Hitaveitan, Landsvirkjun og fleiri
hafa séð að megi gera. Það sem á
að koma út úr æfingunni er einmitt
að menn hafi náð að gera sér full-
komlega grein fyrir því hvar veik-
leikarnir eru og hvað þurfi að bæta.
Það er til dæmis mjög athygli-
svert að Landsvirkjun er þegar búin
að gera sér grein fyrir því hvernig
þeir ætla að veija sitt línukerfí gagn-
vart öskufalli sem gæti valdið
skammhlaupi," sagði Guðjón.
Aætlanir eru gerðar um margvís-
legar varnáraðgerðir, meðal annars
að veija Keflavíkurveginn gegn
hraunrennsli með vamargörðum.
Guðjón sagði reynslu af Heimaeyjar-
gosinu og Kröflueldum koma að
miklum notum við þá áætlanagerð.
Æfíngin hófst síðastliðinn fímmtu-
dag og er áætlað að henni ijúki á
laugardag. Þetta er umfangsmesta
æfing af þessu tagi, sem Almanna-
varnir hafa staðið fyrir.
Hlutafé aukið um
50 milljónir króna
ÁKVEÐIÐ hefur verið að auka
hlutafé Skipasmíðastöðvar Þor-
geirs og Ellerts hf. á Akranesi
um 50 miHjónir króna. Akranes-
bær ætlar að leggja 25 milljónir
króna í fyrirtækið og Byggða-
stofnun hefur samþykkt að lána
nýjum hluthöfum sömu upphæð,
að sögn Gísla Gíslasonar, bæjar-
stjóra á Akranesi.
Gísli segir miklar líkur á að ís-
lenska jámblendifélagið hf. á Grund-
artanga, Sjóvá-Almennar hf. og
sveinafélag málmiðnaðarmanna á
Akranesi gerist hluthafar í fyrirtæk-
inu, en ekki er enn ljóst hve mikið
fé hver þessara aðila leggur fram.
Þá liggja beiðnir um þátttöku í hluta-
fjáraukningu fyrir hjá Sementsverk-
smiðju ríkisins á Akranesi og lífeyris-
sjóði málm- og skipasmiða.
„Að því gengnu að við náum þess-
um 25 milljónum saman, sem við
erum mjög bjartsýnir á, þá taka gildi
aðrar hliðarráðstafanir, niðurfærsla
skulda, lagfæring vaxta og annað í
þeim dúr. Það verður unnið að því
um leið og við höfum náð þessu hlut-
afé saman,“ sagði Gísli, og bætti við
að eftir „þá lagfæringu á fyrirtækið
að hafa möguleika á að standa und-
ir því sem áfram mun á því hvfla.
Staða fyrirtækisins var orðin ger-
samlega vonlaus og það er ljóst að
töluverð vinna verður við þetta á
næstu tveimur til þremur vikum, en
eftir það eigum við að geta verið
með fyrirtæki sem á að geta spjarað
sig.“
Um 80 manns starfa nú hjá fyrir-
tækinu. Þeir voru um 150 þegar
mest var fyrir nokkrum árum, að
sögn Gísla, en hafa verið yfir 100
að jafnaði undanfarin ár. „Fjöldi
starfsmanna nú er þvi með því
minnsta um langt skeið og við teljum
að botninum sé náð. Við erum mjög
ánægðir með útlitið í þessu, vonum
að með þessu sé hlutunum snúið við
almenfit í bænum, og héðan í frá
verði ekki um annað en góðar fréttir
að ræða úr atvinnulífínu á Akranesi.
Við erum bjartsýnir," sagði Gísli
Gíslason, bæjarstjóri.
Nauteyrarhreppur:
— ___
Obreytt úr-
slit kosning’a
KOSNINGAR til hreppsnefndar
Nauteyrarhrepps fóru fram á
laugardag, en félagsmálaráðu-
neyti úrskurðaði ógildar kosning-
ar, sem fram fóru 9. júní siðastlið-
inn. Niðurstöður kosninganna á
laugardaginn eru óbreyttar frá
kosningunum í júní hvað varðar
aðalmenn I hreppsnefnd.
Hreppsnefndarkosningarnar í
Nauteyrarhreppi voru á sínum tíma
kærðar vegna þess að í kjörklefa lá
frammi yfirlýsing frá fyrrverandi
hreppsnefndarmanni um að hann
gæfí ekki kost á sér sem aðalmaður
í hreppsnefnd. Félagsmálaráðuneytið
taldi þetta bijóta í bága við kosninga-
lög, og því bæri að ógilda úrsliti
kosninganna.
Alaðmenn voru kjöniir: Snævar
Guðmundsson, Melgraseyri, Kristján
Steindórsson, Kirkjubóli, Reynir
Stefánsson, Hafnardal, Benedikt
Eggertsson, Nauteyri og Ástþór
Ágfústsson, Múla.
í stjórnstö Almannavarna
Viðbúnaðaræfing Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu:
W VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hlti veður Akureyri +3 skýjað Reykjavík 4 hálfskýjað
Bergen 5 skúr
Helslnki 6 alskýjað
Kaupmannahöfn 8 rigning og súld
Narssarssuaq +1 snjókoma
Nuuk vantar
Ósló 8 léttskýjað
Stokkhólmur 8 skýjað
Pórshöfn 5 hálfskýjað
Algarve 16 súld
Amsterdam 8 þokumóða
Barcelona 11 mistur
Berlfn 6 þokumóða
Chicago vantar
Feneyjar 5 skýjað
Frankfurt 3 súld
Glasgow 8 léttskýjað
Hamborg 7 þokumóða
Las Palmas vantar
London 7 mistur
LosAngeles 14 heiðskírt
Lúxemborg 4 alskýjað
Madrld 8 léttskýjað
Malaga 16 skýjað
Mallorca 15 skýjað
Montreal 5 skýjað
NewYork 5 alskýjað
Orlando 17 hálfskýjað
París 6 alskýjað
Róm 8 skýjað
Vín +5 hrfmþoka
Washington vantar
Winnipeg +11 snjókoma