Morgunblaðið - 04.12.1990, Síða 9

Morgunblaðið - 04.12.1990, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990 9 ŒHTann OROSENGRENS Enskir og sænskir peningaskápar ELDTRAUSTIR • ÞJÓFHELDIR • HEIMSÞEKKT FRAMLEIÐSLA E.TH.MATHIESEN H.F. BÆJARHRAUN 10 - HAFNARFIRÐI - SÍMI 651000 NÝ GERÐ OG BREIÐARA SNIÐ Skeifan 3h-Sími 82670 Nýja línan var framleidd til að gera fleirum mögulegt að nota þessa frábæru öryggisskó. JALLATTE öryggisskórnir eru með stáltá og stálþynnu i sóla, með stömum olíu- og hitaþolnum Neotril sóla. JALLATTE er allt sem þarf á fæturna. Nú er líka teygja að aftan, sem heldur ^ bleiunni á réttum stað. m Allar Libero bleiur Verndið náttúruna >> eru óbleiktar og ofnæmisprófaðar C ? • :n * Ursögn Dalvík er einn blóm- legasti bær norðan heiða og þar hefur verið mikill uppgangnr undanfarin ár. Talsvert lif hefur ver- ið í kring um Alþýðu- bandalagið á staðnum og í kosningunum 1986 fékk flokkurinn tvo menn kjörna í bæjarstjóm með 200 atkvæðum. íbúafjöldinn á Dalvík er nú um 1.500 manns og því mætti ætla að Al- þýðubandalagið reyndi að styrkja stöðu sína í bænum. En það er öðm nær. Hver höndin er upp á móti annarri í flokksfé- laginu og uppdráttarsýki svo mikil hefur lujáð fé- lagið, að stjómarmenn sáu sitt óvænna og sögðu sig úr því. Allir nema einn, sem búsettur er í Reykjavík. Hálfdautt Þjóðviljinn, málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar, fjallaði sl. fimmtudag um upplausnina í flokksfé- laginu á Dalvík. Þar seg- ir: Hinn 18. október sl. sagði mest öll stjóm Al- þýðubandalagsins á Dalvík sig úr félaginu. Nokkrir þeirra höfðu þá þegar sagt sig úr flokkn- um. Jóhann Antonsson, sem nú býr í Reykjavík, er ritari stjómar og sá eini sem enn er í stjóm- inni. Jóhann sagði að árið 1987 hefðu 40-50 manns verið í félaginu en nú væm 15-16 manns félag- ar, en hann taldi að í fyllingu tímans myndi verða kosin ný stjóm. Hann sagði að ástæðum- ar fyrir þessari fækkun væri málefnalegur ágreiningur. Uppdráttarsýki allaballanna Það á ekki af Alþýðubandalaginu að ganga í þeim hremmingum, sem klofningur flokksforustunnar hefur leitt yfir flokkinn. Þau tíðindi hafa spurzt frá Dalvík, að allir stjórnarmenn nema einn hafi sagt sig úr flokksfélaginu þar. Þóra Rósa Geirsdóttir, fyrrverandi formaður stjómar, tók undir það að um málefnalegan ágreining væri að ræða og "sagði hún að margir félagar hefðu ekki átt samleið með Steingrími J. Sigfússyni, samgöngu- ráðherra og þingmanni kjördæmisms. Hún benti á að Svanfríður Jónas- dóttir, aðstoðamaður fjármálaráðherra, hefði unnið mikið á staðnum og gengið vel að virkja fólk. Hún sagði að flestir þeir, sem hefðu sagt sig úr félaginu, hefðu stutt Svanfríði, en Svanfríður hefur lýst því yíír að hún sætti sig ekki við annað sætið á listanum en í þvi sæti var hún siðast. Aðra ástæðu fyrir afsögn stjórnarinnar sagði Þóra vera að félagsstarfið væri liálfdautt. Krlstján Hjartarson, sem er enn í félaginu, sagðist vilja að félagið héldi velli. Hann viður- kenndi að það væm stuðningsmenn Svanfríð- ar, sem væm að segja | af sér, og taldi eftirsjá í henni. Sjálfur hefði hann stutt bæði hana og Steingrím og að hann héldi áfram að styðja Steingrím. Dýrkeyptur stuðningur Það má glöggt sjá af frétt Þjóðviljans, að það er klofningurinn í for- ustu Alþýðubandalags- ins, sem hefur lagt flokksfélagið á Dalvík í rúst. Svanfríður Jónas- dóttir var í 2. sæti á lista flokksins við síðustu kosningar og varafor- maður flokksins. Á lands- fundi Alþýðubandalags- ins fyrir rúmu ári ákvað 1. maðurinn á listanum, Steingrímur J. Sigfússon, að bjóða sig fram á móti Svanfríði við varafor- maimskjör. Ástæðan var einfald- lega sú, að gamla kommaklikan í Alþýðu- bandalaginu hafði ákveð- ið að þrengja að flokks- formanninum, Ólafi I Ragnari, og þess vegna lét Steingrímur sig hafa það að fella meðfram- bjóðanda sinn úr varafor- mannssætinu. Stuðning- urinn við Ólaf Ragnar varð dýrkeyptur. Kratakæti Svanfríður tók þessa aðför auðvitað óstinnt upp og lýsti því yfir, að hún myndi ekki taka 2. sætið á lista Alþýðu- bandalagsins aftur. Alla- ballamir á Dalvík fyrtust að sjálfsögðu líka. Þeir standa með sínum kven- manni. En gömlu kommaklík- unni er nákvæmlega sama um það, þótt fylgið hryi\ji á Dalvík og jafnvel víðar í kjördæminu. Hún hafði erindi sem erfiði. Ólafur Ragnar, flokks- formaður, er í gíslingu og verður að horfa á stuðningsmenn sina í Birtingu hverfa úr flokknum án þess að geta nokkuð að gert. En kátt er í koti kratanna. Þeir uppskera eins og kommaklíkan sáir til. SJÓÐSBRÉF 5 Öryggi, eignarskattsfrelsi og ágæt ávöxtun Sjóðsbréf 5 eru góður kostur fyrir þá sem greiða háan eignarskatt því að eign í sjóðnum er eignarskattsfrjáls án skilyrða. Sjóður 5 fjárfestir eingöngu í verðbréfum með ábyrgð Ríkissjóðs Islands; spariskírteinum, ríkisvíxlum og húsbréfum, þannig nýtur þú öruggra raunvaxta auk þess hagræðis og sveigjanleika sem fylg- ir fjárfestíngu í verðbréfasjóðum. Verið velkomin í VIB. VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Póstfax 68 15 26. Metsölublaðá hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.