Morgunblaðið - 04.12.1990, Síða 11

Morgunblaðið - 04.12.1990, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990 n. Er þrösturinn laus af gaddavírnum? Bókmenntir Jóhanna Kristjónsdóttir Silja Aðalsteinsdóttir og Asbjörn Morthens: BUBBI Utg. Mál og menning 1990 Það endar sennilega með því að ég verð búin að éta ofan í mig stór orð um fákaskap þess að skrifa reynslu- eða ævisögur ungs fólks og tek undir með skáldinu um að oft hafí tvítugur lifað meira en öld- ungurinn, svo að farið sé frjálslega með tilvitnun. Bubbi Morthens er sérstæður og litskrúðugur persónuleiki. Byijaði feril sinn sem farandverkamaður, sönglandi hráa texta sína við eigið gítarspil vítt og breitt í verstöðvum milli þess sem hann var í slorinu, reykti hass og var djarftækur til kvenna. Með árunum — þó Bubbi sé raunar ekki hálffertugur enn — hefur hann svo smátt og smátt endurskapað sinn stíl, textamir eru orðnir slípaðri og hann er ekki leng- ur aðeins eftirlæti róttækra mennt- amanna sem hann segir að fyrstir hafí tekið ástfóstri við sig. í frásögn hans af því gætir í senn hæðni og léttis: „Fljótlega eftir að ég byijaði að spila opinberlega uppgötvaði ég að menntafólk og vinstrimenn hrif- ust af mér. í augum þeirra var ég sambland af verkalýðshetju, bami og listamanni og þegar ég söng um slorið var ég að gera nákvæmlega það sem þeir vildu að ég gerði — þó að það væri á mínum forsendum en ekki þeirra. Með vinsældum meðal þessa fólks tryggði ég mig varanlega. Um leið og róttæku menntamennimir viðurkenndu mig sem listamann þá hafði ég ekkert að óttast lengur.“ Bubbi fer tiltölulega fljótt yfir bernsku sína, uppvöxt, áhrif for- eldra, aðbúnað, skólagöngu og leiki. Þó er þetta ágætlega skilmerkilegt og þessu gerð hin hæfílegustu skil. Síðan tekur við ársdvöl í Danmörku þar sem uppgötvast seint og um síðir að hann hefur skriftblindu en vandræði í skólanum í Vogunum vegna þessa sem enginn gaumur var gefínn olli honum erfíðleikum og gerði hann fráhverfan skólanum. í bernsku fékk hann ást á bókum og virðist hafa lesið allt sem að kjafti kom, háalvarlegar og þungar bókmenntir eða Morgan Kane — sem hann hefur reyndar sínar kenn- ingar um og bara sniðugar — og allt þar á milli. Samskiptin við for- eldra, einkum móður eru dregin upp af þekkilegu hispursleysi og hvergi verður vart ásökunartóns eða reynt að skella skuldinni á að bernskuár hafí verið, erfið eins og menn gera einatt. Ég fæ ekki séð að ástæða væri til slíks en oft detta menn í þá gryfju engu að síður. Sambandi sínu og móður sinnar lýsir hann af hreinskilni og virðist ekki draga neitt undan. Hún er honum mjög nákomin en hér er heldur engin til- fínningavella á ferðinni. Hann segir „Ég var henni ekki til neins gagns síðustu árin sem hún lifði. Bræður mínir voru henni miklu betri. Við vorum samt mjög náin alla tíð og þegar ég las ljóðin hennar skildi ég hvaðan þörf mín fyrir að yrkja er komin. Mér leið lengi illa út af því hvað ég reyndist henni vondur son- ur en núna er ég búinn að fyrirgefa sjálfum mér,“ og á öðrum stað get- ur hann þess að sá maður hljóti að vera mikið bældur sem vilji ekki viðurkenna áhrif móðurinnar á sig, góð eða slæm. „Hver einasta mann- eskja sem andann dregur er meira og minna mótuð af móðurinni, miklu meira en föður sínum. Kannski er þetta að breytast en ég er af ’56 kynslóðinni og hún var alin upp af mömmunum." Fyrirferðarmikill kafli bókarinn- ar er vitanlega um hljómleikaferðir vítt og breitt um landið og til út- landa og ekki dregin fjöður yfir sukkið. Eiturlyfjaneysla, hass og síðan kókaín varð fylginautur hans árum saman en áfram hélt hann þó að semja texta, spila og ferðast um. Kvennamálin eru litrík og ekk- ert verið að fara í launkofa með þau mál frekar en annað í þessari bók. Þar er hvergi farið yfir strikið enda virðist ekki vera tilgangur Bubba að sjokkera lesendur bara til þess eins að sjokkera. A hinn - bóginn sýnist hann hafa gert það upp við sig og Silju Aðalsteinsdótt- Lífssaga Margrétar Danadrottningu ÖRN og Örlygur Jiafa gefið út bókina Margrét Þórhildur Dana- drottning segir frá lífi sínu. Anna Wolden Ræthinge skráði. Þuríð- ur J. Kristjánsdóttir prófessor þýddi yfir á islensku. í kynningu útgefanda segirm.a.:,, Það er ekki á hveijum degi sem þjóðhöfðingjar fallast á að eiga opinská viðtöl um einkalíf sitt og þau séu gefin út á bók. Margrét Þórhildur Danadrottning er undan- tekning hvað þetta snertir. Ævi- saga hennar kom út fyrir jólin 1989 í Danmörku og vakti strax mikla athygli um allan hinn vestræna heim fyrir það hversu opinská og einlæg drottningin var um einkamál sína.“ Bókin er prýdd fjölda persónu- legra mynda og er 180 blaðsíður. Margrét Þórhildur Danadrottn- ing. Bubbi ur sem bókina skráir að það sé best að koma til dyranna eins og honum fínnst hann vera klæddur. Að lokum segir frá því þegar hann Silja Aðalsteinsdóttir er orðinn örvita af eiturlyfjaneysl- unni og fer í meðferð, kynnist seinni konu sinni og er nú orðinn faðir. í bókinni eru og birt fjöldamörg Ijóð hans og hreifst ég ekki af þeim. Rímið handahófskennt og oft óþarft, innihald stundum gott og gilt en leirkennd meðferð. Þessir textar njóta sín langtum betur í söng. Mikið af myndum af Bubba hér og þar og alls staðar eru í bók- inni, skrá yfír viðtöl sem birt hafa verið við Bubba og nákvæm skýrsla um allar hans eigin plötur og aðrar sem hann á hlut að. Vera kann að þetta hafí gildi en mér fannst það að bera í ansi bakkafullan læk. Eins og fram kemur fyrr er þetta hreinskilnislega sögð saga, vel skrifuð og nálæg án þess að örli á tilfinningasemi eins og áður var vikið að; veruleiki bókarinnar oft lyginni líkastur. Það er hraði í frá- sögninni og höfundar missa aldrei þráðinn úr höndum sér eða falla fyrir málalengingafreistingum. Silja Aðalsteinsdóttir hefur ugg- laust þurft að halda nokkuð fast í tauminn en hún leyfir Bubba að koma mjög klárt og kvitt í gegn. Það er veigur í þessari bók. ODYRU BIANCA BAÐINNRETTINGARNAR ERU KOMNAR AFTUR í dag tökum við upp nýja sendingu af hinum vinsælu Bianca baðinnréttingum frá Dansani. Við afgreiðum samdægurs Bianca og fjölmargar aðrar línurfrá Dansani og Hafa. Góðir greiðsluskilmálar - raðgreiðslur Visa og Euro. SUÐURLANDSBRAUT 10, S: 686499 Mólningarþjónustan, Akranesi ★ Kf. Borgnesinga ★ Húsgagnaloftið, ísafirði ★ Kf. Skagfirðinga, Sauðórkróki ★ Kf. Þing., Húsavík ★ KASK, Hornafirði ★ Brimnes, Vestmannaeyjum ★ Kf. Rang., Hvolsvelli. JólatílboB á flisum 40x40cm á kr. 2.699 — athugið 10% staðgreiðsluafsláttur að auki frá Nýkomnar gólf- og veggflísar. Sérpantanir óskast sóttar. Athugið aö allar staðfestar pantanir fyrir jól á jólatiTboðsflísum verða selaar á föstu verði. við Gullinbrú, Stórhöfða 17 Sími: 674844 — Fax 674818

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.