Morgunblaðið - 04.12.1990, Side 19

Morgunblaðið - 04.12.1990, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990 19 Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Kvenfélagskonur á Stokkseyri ásamt forsvarsmönnum á Kumb- aravogi og hjúkrunarforstjóra. Frá vinstri: Krislján Friðbergs- son, Unnur Guðmundsdóttir, Sigríður Guðmundsdóttir, Ragn- hildur Jónsdóttir, Sigríður Gísladóttir, Elsa Gunnþórsdóttir, Sigríður Pálsdóttir hjúkrunarforstjóri og Guðni Kristjánsson. Gáfu sogdælu til Kumbaravogs Selfossi. KVENFÉLAG Stokkseyrar afhenti nýlega vist- og hjúkrunarhe- imilinu Kumbaravogi sogdælu að gjöf. Dæla þessi er notuð við að soga slím úr hálsi fólks. Kvenfélagið hefur, eins og fjöl- mörg önnur kvenfélög, það að markmiði í sínu starfi að sinna líknar- og félagsmálum í samfélag- inu og reynir að verða þar að sem mestu liði. Það gaf til dæmis tvær tölvur í grunnskólann, innan- stokksmuni í leikskólann á staðn- um og fyrir skömmu afhentu þær Krabbameinsfélaginu 60 þúsund krónur til minningar um Guðrúnu Andrésdóttur. Þá hafa kvenfélags- konur rétt fólki hjálparhönd þegar erfiðleikar hafa steðjað að vegna fjárhagsörðugleika eða veikinda. Aðal fjáröflunarleið félagsins eru erfisdrykkjur sem konurnar sjá al- farið um og gefa þá kökurnar þann- ig að afraksturinn verði sem mest- ur. í Kvenfélagi Stokkseyrar eru 30 félagskonur, þar af 19 sem eru virkar í félagsstarfinu. - Sig. Jóns. Söguþáttur eftir Þorstein frá Hamri IÐUNN hefur gefið út bókina Hallgrímur smali og húsfreyjan á Bjargi, sem Þorsteinn frá Hamri hefur skráð. í kynningu útgefanda segirm.a.: „Hér er á ferðinni söguþáttur úr Borgarfirði og rakin örlög feðgin- anna Hallgríms Högnasonar (1799- 1834) og Kristrúnar dóttur hans (1833-1912) en fjölmargir aðrir eru einnig nefndir til. Hallgrímur sagði af sér óvenjulega sögu sem skráð var, að hann rataði ungur í nokkur viðskipti við huldu- manneskju. Kristrún ólst upp á hrakningi, giftist sjósóknara á Skipa- skaga, eignaðist sautján börn, varð ekkja snemma og þá svipt nær öllum jarðneskum eigum. í frásögninni er gætt fyllstu ná- kvæmni í meðferð heimilda og pers- ónufróðleiks. Hún er jafnframt skemmtileg og áhrifarík, yljuð nær- færnum mannskilningi og menntandi um lífshætti íslenskrar alþýðu á tíma sem virðist fjarlægur en stendur okkur þó býsna nærri.“ Þorsteinn frá Hamri I bókarauka er skrá yfir niðja Hallgríms Högnasonar. Bókin er prentuð í Odda hf. Barnasaga eftir Illuga Jökulsson IÐUNN hefur gefið út nýja bók eftir Illuga Jökulsson. Er það saga fyrir börn og nefnist hún Platafmælið. í kynningu útgefanda á efni sögunnar segir: „Mamma ætlar að sofna og hvað er þá til ráða? Það er enginn hægðarleikur fyrir tvo Ijöruga krakka að læðast allt- af um á tánum meðan mamma er að leggja sig. Allra síst þegar hún þarf að leggja sig á hverjum degi! Tómas og Alexandría eru systkini og saman bralla þau ýmis- legt þegar enginn sér. Einn góðan veðurdag fá þau skrýtna hugmynd og þá láta þau ekki sitja við orðin tóm heldur hefjast handa.“ Gunnar Karlsson myndskreytti söguna. Bókin er prentuð í Odda hf. Illugi Jökulsson 1 BLEKSPEGILUNN Heimsbókmenntir! GRÍSKU HARMLEIKIRNIR í stórfenglegri heildarútgáfu. Snilldarþýöing Helga Hálfdanarsonar. Leikverk þeirra Æskílosar, Sófóklesar og Evrípídesar eru klassísk, lesin enn og sett á svið víða um heim. Það er íslenskum bókmenntaunnendum mikill fengur að geta gengið að þeim öllum í svo glæsilegu riti. Þýðandinn, Helgi Hálfdanarson, hefurfyrir löngu skipað sér sess sem einn okkar bestu bókmenntaþýðenda. Bókin sem er 1198 bls. fæst einnig í fallegri gjafaöskju. SYRTLUR - erlendar fagurbókmenntir í nýjum bókaflokki. Með þessum bókaflokki kynnum við athyglisverðarerlendarfagurbókmenntir frá undanförnum árum og áratugum í vönduðum kiljum. Fyrstu bækurnar eru: Blekspegillinn - sögur eftir Argentínumanninn Jorge Luis Borges, Heimur feigrar stéttar eftir Nadine Gordimer frá Suður-Afríku, Undirleikarinn eftir rússnesku skáldkonuna Nínu Berberovu og Utz eftir Englendinginn Bruce Chatwin. Eitt frægasta skáldverk allra tíma, Karamazovbræðurnir eftir Dostojevskí. Mögnuð saga um afbrýði, hatur og morð, en jafnframt kærleika, bróðurþel og ást. í heild tekst verkið á við allar þær stærstu spurningar sem varða mannlega tilveru: Tilvist guðs, mátt hins illa og möguleika kærleikans. Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi úr rússnesku en hún hefur hlotið afbragðsdóma fyrir þýðingar sínar á öðrum verkum Dostojevskí. Mál || og menning Bœkur eru ódýrari Laugavegi 18. Sími 15199 - 24240. Síðumúla 7-9 Sími 688577.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.