Morgunblaðið - 04.12.1990, Síða 21

Morgunblaðið - 04.12.1990, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990 21 Þórir S. Gröndal skrifar frá Flórída: Morgunstund gefur gull í mund Hérna í henni Ameríku, í Flórída, sem er eins og botnlangi álfunnar, og alla leið niður í totuna, sem er Suður-Flórída, erum við loks að fá umbun fyrir að hafa afborið hita og raka langs sumars. Við erum komin í himneska veðrið, sem á eftir að endast okkur allt fram á vor, ef allt er eðlilegt. Á nóttunni fer hitinn niður í 10° C og upp í 20° á daginn. Stundum koma stutt kuldaköst, og þá getur „kuldinn“ orðið 5° hiti að næturlagi og ekki nema 15° um hádegi. Á laugardagsmorguninn, rétt fyrir sólarupprás, sem er klukkan rúmlega 7, dreif ég mig í hressing- argöngu. Við hjónin reynum að ganga okkur til heilsubótar tvisvar eða þrisvar í viku. Við streitumst við að ganga 5 km rösklega og ljúka því á 45-50 mínútum. Svona göngur eru mjög góður vettvangur fyrir þátttakendur að tala saman án þess að verða fyrir truflunum, sem svo algengar eru á heimilum á þessum tímum hátækni og menn- ingar. En nú er ég grasekkjumað- ur, því konan er að sinna ömmu- störfum og aðstoða dótturina, sem er að ala af sér þriðja barnið. Vegna þess ætla ég að miðla ykkur, kæru lesendur, þeim hugsunum og bolla- leggingum, sem 'á hugann sóttu. Þegar sólin byijaði að stafa geislum sínum varð mér fyrst hugs- að til háskammdegisins, sem nú er nálgast þarna hjá ykkur uppi á ísaköldu landi. Lífið myndi vera mikið breytt á Fróni ef dægrin væru jafnari. En viljum við fórna björtum sumarnóttum fyrir lengri vetrardaga? Ég er ekki viss um, hvernig atkvæðagreiðsla um það myndi koma út. Flestir í Flórída, sem ekki veit einu sinni hvað skammdegi er, kann ekkert að meta bjartan og fagran laugardagsmorgun. Margt af því sefur ennþá í hausinn á sér, og aðeins örfáar hræður sjást gangandi eða skokkandi. Þær bjóða góðan daginn með bros á vör. Nokkrir hálf sofandi skrönglast út með hunda sína til þess að láta þá ganga örna sinna á lóð nágrannans áður en hann vaknar. Er það ekki einmitt eitt af lög- málum heimsins, að fólk kann ekki að meta það, sem það hefir og heldur stöðugt, að grasið sé grænna hinum megin við girðing- una? Margt fólk, sem ég hefi hitt hér, virðist lítið kunna að meta veðurblíðuna og kvartar gjarnan yfir of miklum hita og raka. Það kvartar líka, þegar því finnst of kalt á vetrum. Sumt af þessu fólki hefir flutt hingað frá norðlægari ríkjum, þar sem vetur geta verið harðir og langir. Sólina og sjóinn vill það selja ferðamönnum. Það er eins og með vatnið okkar góða á íslandi. Mig hefir oft stór- undrað, hve fátt fólk heima drekk- ur vatnið. Samt höldum við því fram, að það sé það besta og tær- asta í heimi og viljum selja það til útlanda. íslendingar eru svo aftur á móti mestu gosdrykkjumenn á heimskringlunni. í Ameríku er ekki boðið upp á máltíð án þess að glás af vatni fylgi með. Og yfirleitt er það vatn af miklu lakari gæðum heldur en tæra vatnið á Fróni. Þar sem ég spranga um götur og stræti gefst gott tóm til þess að virða fyrir sér nánasta umhverf- ið, gróðurinn og híbýli nágrann- anna. Yfirleitt er allt mjög snyrti- legt, en samt eru undantekningar. Öll húsin eru með tvöfalda bílskúra, en margir verða samt að geyma bíla sína úti. Bílskúrarnir eru fullir af alls kyns dóti og drasli. Okkar kynslóð hér er að drukkna í drasli. Gömul húsgögn, alls kyns raf- magnstæki, sem mörg eru enn gangfær, reiðhjól barna, sem farin eru að heiman, o.s.frv. í dag er annar tveggja sorp- hreinsunardaga vikunnar. Sorpið á að setja í plastpoka og færa út að gangstéttarbrún. Notaðir eru sér- stakir bláir pokar, sem bærinn sel- ur, og er kostnaðurinn við hreins- unina innifalinn í verði þeirra. Þess vegna taka sorpsérfræðingarnir ekki aðra poka en þá. í dag er reyndar stór dagur í sorphreinsun- armálum bæjarins. Það var hafin herferð fyrir flokkun á sorpi’ til endurnýtingar. Fólk var beðið að greina áldósir, glært gler og dag- blöð frá ruslinu, sem annars myndi fara í bláu pokana. Dagblöðin átti að binda í bunka, en dósirnar og glerið skyldi sett, hvort í sínu lagi, í þar til gerða glæra poka. Sérstak- ur endurnýtingarflokkur kemur síðan og tekur þetta hráefni. Víða sjást dagblaðabunkar, en mjög fáir gegnsæir pokar. Eflaust eru margir að safna og herða sig líklega að drekka bjór og gos, til að geta fyllt poka. Þeir, sem mikið drekka af vínum og sterku, verða ef til vill feimnir að sýna líkin í glærum pokum. Skyldi þetta fyrir- bæri eiga eftir að draga úr drykkju- skap? Kannski þið ættuð að prófa þetta á íslandi. Svo veit ég heldur ekki, hvað fólkið tekur þessi endurnýtingar- áform alvarlega. Það virðast allir hafa svo mikið á sinni könnu nú á dögum og verða áhyggjur af meng- un hnattarins og flokkun á sorpi eflaust útundan. Fólk er svo önnum kafið í sínum eigin vandamálum, enda virðist því lífið verða flóknara og flóknara. Það hefir engan tíma til að hugsa um það, sem er að gerast í landinu eða hvað þá úti í hinum stóra heimi. Það er að drukkna í ólgusjó lífsgæðakapp- hlaups og brauðstrits. Minna en helmingur þessa fólks hafði nógu mikinn áhuga til þess að koma sér á kjörstað fyrir nokkrum vikum, þar sem því gafst kostur á að kjósa ríkisstjóra Flórída, þingmenn og aðra embættismenn. Það er eðli- legt, að það sé úrvinda og sofi á sitt græna eyra. Það veit ekki, að sólin er rétt komin upp, og að „fag- ur dagur prýðir veröld alla“. Nú er nýlega búinn þakkargjörð- ardagurinn, sem haldinn er há- tíðlegur næstsíðasta fímmtudag í nóvember. Þetta er mikill fjöl- skyldudagur og tilheyrir að elda kalkún og aðrar kræsingar. Þá hefst, líka jólakauptíðin og er dag- urinn á eftir þakkargjörðardegin- um oft mesti verslunardagur árs- ins. í ár eru kaupmenn áhyggjufull- ir, því þeir eru hræddir um það, að lýðurinn haldi að sér höndum og eyði ekki eins gegndarlaust af hræðslu við kreppu og stríð við Persaflóa. Loks er ég svo kominn heim eft- ir 5 km gönguna og er búinn að vera næstum 50 mínútur. Ég þarf rétt að kasta mæðinni, en svo verð ég að drífa mig í að flokka sorpið. . ÍS Æ : . ' , Á f'' > is m mt mm m m zm yt^as/amrÆ as*___L:____ ff'f . ■■ ■ ■ 1»jílfil ,V\ uJr" ' , ' J ~ íslenski hlutabréfasjóðurinn er hlutafélag sem fjárfestir í verðbréfum, einkum hlutabréfum, margra arðbærra og vel rekinna íslenskra fyrir- tækja. Með því að f járfesta í hlutabréfum félags- ins gefst þér kostur á að eignast hlutabréf með dreifðri áhættu og von um góða ávöxtun. íslenski hlutabréfasjóöurinn hf. nýtur viðurkenn- ingar ríkisskattstjóra þannig að kaup einstaklinga í félaginu eru að vissu hámarki frádráttarbær frá skattskyldum tekjum. Dæmi: Þú kaupir hlutabréf í íslenska hlutabréfasjóðn- um hf. fyrir 115.000.- krónur. Skattfrádráttur vegna kaupanna nemur kr. 45.758.-* en þá upp- hæð færð þú endurgreidda frá skattinum. Hjón sem kaupa hlutabréf fyrir tvöfalt hærri upphæð fá að sama skapi tvöfalt hærri upphæð endurgreidda frá skattinum. * Miðað er við 39.79% skatthlutfall. Kynntu þér kosti þess að fjárfesta í hlutabréfum fé- lagsins með ráðgjöfum Landsbréfa hf. Upplýsingar vegna hlutafjárútboðsins liggja frammi hjá Landsbréfum hf. og í útibúum Lands- banka íslands, þ.m.t. Samvinnubankanum, um land allt. LANPSBREF H.F. Landsbankinn stendur með okkur Suðurlandsbraut 24,108 Reykjavík, sími 91-606080 Löggilt veröbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.