Morgunblaðið - 04.12.1990, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 04.12.1990, Qupperneq 26
MÓRGUNBÍ ADH) ÞrMÓDagÓr 4. DKSKMHER 19ðÓ Alþýðuflokkurinn Austurlandi: Þjóðarsátt niilli dreif- býlis og þéttbýKsins -segir Gunnlaug’ur Stefánsson sem skipar fyrsta sæti listans GUNNLAUGUR Stefánsson, sóknarprestur í Heydölum í Breiðd- al, skipar efsta sæti á framboðslista Alþýðuflokksins í Austurlands- kjördæmi sem samþykktur var á kjördæmisþingi flokksins á Reyð- arfirði síðastliðinn laugardag. Annað sæti á listanum skipar Her- mann Níelsson, íþróttakennari á Egilsstöðum. Að sögn Eiríks Stef- ánssonar, formanns kjördæmisráðs, var alger samstaða um upp- stillingu á listann. „Það var mjög góð samstaða um listann. Stjórn kjördæmisráðs lagði listann svona fyrir og það voru all- ir sammála þessari niðurstöðu," ságði Eiríkur Stefánsson. I þriðja sæti á listanum er Magn- hildur Gísladóttir, húsmóðir frá Homafírði og fjórða sætið skipar Magnús Guðmundsson, skrifstofu- maður Seyðisfírði. Gunnlaugur Stefánsson, sem sat á þingi 1978-1979 fyrir Alþýðu- flokkinn í Reykjaneskjördæmi, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að komandi kosningar legðust vel í sig. „Við stefnum að því að fá þingmann kjörinn. Alþýðuflokk- urinn í Austurlandskjördæmi hefur ekki fengjð þingmann kjörinn frá því að ný kjördæmaskipan tók gildi. Það skorti sjö atkvæði síðast og við gætum náð því,“ sagði Gunnlaugur. Gunnlaugur sagði að fyrir tveimur mánuðum hefði það ekki verið á dagskrá hjá sér að fara framboð í Austurlandskjördæmi. Hann kvaðst telja framboðslista Alþýðuflokksins sterkan. „Ég mun leggja mesta áherslu á byggðamál- in. Eg mun beita mér fyrir því að veija búsetuna og lífskjörin á lands- byggðinni og koma á þjóðarsátt milli dreifbýlis og þéttbýlis. Að hér verði atvinna tryggð með fiskveiði- og landbúnaðarstefnu og að sjálfsá- kvörðunarréttur sveitarfélaga og fyrirtækja á landsbyggðinni verði efldur í stað núverandi miðstýringar frá Reykjavík," sagði sagði Gunn- laugur. Alþýðuflokkurínn í Suðurlandskjördæmi; Arni Guimarsson í 1. sæti ÁRNI Gunnarsson alþingismað- ur skipar efsta sæti framboðs- lista Alþýðuflokksins á Suðurl- andi, en kjördæmisráð flokks- ins gekk frá skipan tveggja efstu manna á listann um helg- ina. Annað sæti listans skipar Þorbjörn Pálsson frá Vest- mannaeyjum. Uppstillingar- nefnd gengur frá skipan í önn- ur sæti fyrir 14. desember næst- komandi. Kjördæmisráðið gekk frá skipan í tvö efstu sætin og skiptust at- kvæði innan þess þannig að landið hafði 16 fulltrúa á móti 10 fulltrú- um Vestmannaeyja. „Mér líst vel á þetta,“ sagði Árni Gunnarsson þingmaður sem flyst úr Norðurlandskjördæmi eystra til Suðurlandskjördæmis. Arni sagði að breytingar á fylgi við stjómmálaflokka í kjördæminu færu mikið eftir því hvort um fram- boð frá Kvennalista og Borgara- flpkki yrði að ræða að þessu sinni. „Ég geri mér vissulega vonir um að Alþýðuflokkurinn endurheimti þingsæti sitt í kjördæminu sem hann hefur ekki haft í tvö kjörtíma- bil.“ Þorbjörn Pálsson, sem skipar annað sæti listans, kvaðst vera ánægður með listann. „Það eru auðsjáanlega miklar hræringar uppi á landi, flakk á milli flokka. Hann kvaðst eiga von á því að drjúgur hluti þeirra er kusu Borg- araflokk í síðustu kosningum halli sér að Alþýðuflokknum nú. Morgunblaðið/Júlíus Gestum á hátíðarsamkomu stúdenta í Háskólabíói var boð- ið upp á átta metra langa mars- ipantertu í tilefni dagsins. Á innfelldu myndinni skoðar Sigmundur Guðbjarnason, rektor Háskóla Islands, sýn- ingu á rannsóknarverkefnum stúdenta. Morgunblaðið/Sverrir FuIIveldisdagurinn 1. desember; Fjölbreytt hátíðarhöld stúdenta STUDENTAR við Háskóla Is- lands héldu fullveldisdaginn 1. desember hátíðlegan á margv- íslegan hátt á laugardaginn, og af því tilefni var meðal annars haldin sýning á rannsóknar- verkefnum stúdenta úr öllum deildum skólans og boðið upp á átta metra langa „Fullveldi- stertu". Hátíðardagskráin hófst með stúdentamessu í Háskólakapell- unni, en því næst var blómsveigur lagður á leiði Jóns Sigurðssonar í kirkjugarðinum við Suðurgötu. Sýning á rannsóknarverkum stúd- enta var opnuð í tengibyggingu Háskólabíós kl. 14, en hátíðardag- skrá hófst í sal 2 í Háskólabíói kl. 15. Að henni lokinni var leikin blústónlist í anddyri bíósins á meðan hátíðargestir kynntu sér sýningu stúdenta og gæddu sér á fullveldistertunni. Málþing hófst í sal 3 í Háskólabíós kl. 16.30, og var yfirskrift þess „Hvað bíður okkar, er Island of dýrt?“, en á sama tíma var haldin menningar- vaka í sal 4. Alþýðubandalagið á Austurlandi: Hef áhyggjur af flokknum - segir Einar Már Sigurðarson, sem varð halloki fyrir Hjörleifi Guttormssyni í baráttunni um fyrsta sætið HJÖRLEIFUR Guttormsson, alþingismaður, hlaut bindandi kosningu í fyrsta sæti á Iista Alþýðubandalagsins í Austurlandskjördæmi fyr- ir næstu alþingiskosningar, í forvali flokksins um helgina. Einar Már Sigurðarson, kennari á Neskaupstað, sem keppti við Hjörleif um efsta sætið, varð númer tvö og þriðji Björn Grétar Sveinsson á Höfn, en hann stefndi á annað sætið og var yfirlýstur stuðningsmað- ur Einars Más í fyrsta sætið. Hvorugur þeirra hlaut bindandi kosn- ingu. Hjörleifur fékk alls 529 atkvæði í forvalinu, þar af 368 í fyrsta sæti, 55 í annað, 51 í þriðja, 29 í fjórða og 26 í fimmta sæti. Gild atkvæði í forvalinu voru 751. Einar Már Sigurðarson hlaut alls 484 atkvæði; 296 í fyrsta sæti, 76 í annað, 52 í þriðja, 35 í fjórða og 25 í fimmta sæti. Bjöm Grétar Sveinsson fékk alls 427 atkvæði; 28 í fyrsta sæti, 205 í annað, 85 í þriðja, 63 í fjórða og 46 í fimmta sæti. Einar Már sagðist, í samtali við Morgunblaðið að loknu forvali, vera að „meta stöðuna í rólegheit- um og ræða við mína stuðnings- menn. Ég bið þá að halda ró sinni Hjörleifur Guttormsson: Þakklátur fyrir undirtektirnar Hjörleifur Guttormsson al- þingismaður segist vera þakk- látur fyrir þær undirtektir, sem hann hefði fengið í forvali Al- þýðubandalagsins á Austurl- andi. Hann segir ekki vera flugufót fyrir ásökunum um óeðlileg vinnubrögð í kosninga- baráttunni. Hjörleifur sagðist gera sér ljóst, að hann hefði oft tekið afstöðu til mála sem erfitt væri að skýra úr fjarska gegnum fjölmiðla, og það endurspeglaðist væntanlega í fylgi hans á Austurlandi. Hins vegar hefðu félagar sínir sagt sér, að þegar hann ræddi málin við þá, teldu þeir sig fá skýringar sem fjölmiðlarnir flyttu ekki. „Mér finnst að sú mynd, sem reynt hefur verið að hamra á gegnum fjölmiðlana, af ininni afstöðu, m.a. til þessarar ríkisstjórnar hafí verið nokkuð óþyrmileg og einhliða,“ sagði Hjörleifur. Þegar hann var spurður um ásakanir á hendur hans um óeðli- leg vinnubrögð í kosningabarát- tunni fyrir forvalið, sagði hann að fyrir þeim væri ekki fiugufót- ur. „Ég skil þetta ekki og harma það mjög, að mál hafa verið borin fram á þennan hátt í eftirleiknum og vona að það leiði ekki til þess að samband milli manna slitni til frambúðar." Hjörleifur sagðist ekkert geta útilokað, að þeir Einar Már Sig- urðarson gætu unnið saman, tæki Einar 2. sætið á listanum. — það er svolítill titringur og skjálfti í þeim hópi, og ég get því miður ekki óskað Hjörleifi til ham- ingju með drengileg vinnubrögð að öllu leyti, en hef ekki meira um það að segja,“ sagði Einar Már. Einar Már var spurður hvort hann hygðist skipa annað sæti list- ans ef honum yrði boðið það: „Ég get ekki svarað því á þessari stundu, og það er í raun ekki mitt að svara. Hjörleifur var kjörinn til forystu samkvæmt þeim leikregl- um sem samþykktar voru — hann fær að vísu innan við 50% at- kvæða í fyrsta sæti, sem hlýtur að vera skelfilegt veganesti fyrir mann sem hefur verið hér í for- ystu þennan tíma — en það er hans að meta hvernig hann stend- ur að málum. Ég lít þannig á að boltinn sé hjá honum og bíð eftir að heyra hvort hann hafi áhuga á að nýta mig til þessara hluta.“ Einar Már sagði að yfirlýsing Hjörleifs á þingi í gær, þess efnis að hann hygðist sitja hjá við at- kvæðagreiðslu um bráðabirgða- lögin á BHMR-samninginn gerði „málið ekki erfiðara“ eins og hann komst að orði. Einar Már sagðist ekki að öllu leyti óánægður þó hann hefði ekki náð fyrsta sætinu; Hjörleifur hefði fengið um 70% tilnefninga og hann sjálfur um 65%. Einnig að Hjörleif- ur hefði fengið um 79% tilnefninga í fyrsta sæti fyrir síðustu kosning- ar en um 49% nú. „En ég hef verulegar áhyggjur af flokknum — af fylgi hans hér í vor ef menn ná ekki að stilla saman strengi. Ég sagði það fyrir forval að ég biði mig fram í fyrsta sæti vegna þess að ég teldi mig geta tengt saman alla krafta flokksins hér fyrir austan, en var með miklar efasemdir um að Hjörleifi tækist það.“ Björn Grétar Sveinsson, sem lenti í þriðja sæti, sagði úrslitin hafa valdið sér vonbrigðum. „Ég vil byija á því að óska þingmannin- um til hamingju. En úrslitin ollu mér vonbrigðum að sjálfsögðu, og ég mun gefa mín svör um fram- haldið á kjördæmisþinginu [sem líklega verður haldið um næstu helgi], og það verður afdráttar- laust hvemig ég skýri frá því.“ Reiknarðu með að taka þriðja sæti listans ef það stendur þér til boða? „Eg stefndi á annað sæti og lýsti yfír stuðningi við Einar Má Sigurðsson. Við töpuðum þessum kosningum og það þýðir ekkert að lemja hausnum við steininn.“ Þess má geta að Álfhildur Ól- afsdóttir, Vopnafírði, varð í fjðrða sæti og Þuríður' Backman, Egils- stöðum, í því fímmta í forvalinu. Samkvæmt reglum forvalsnefndar flokksins skal leitast við að hlut- fall milli kynja sé þannig að tvær konur séu meðal fimm efstu á list- anum, þar af önnur í einu af þrem- ur efstu sætunum. Einnig skal leitast við að hafa sem jafnasta dreifingu miðað við búsetu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.