Morgunblaðið - 04.12.1990, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990
Reuter
Kyrrt eftir byltingu í Tsjad
Ástandið í Tsjad var fremur rólegt í gær eftir að stjórn landsins var
steypt af stóli á sunnudag. Idriss Deby leiðtogi byltingarmanna hefur
nú tekið öll völd í landinu en Hissene Habre sem verið hefur við stjórn-
völinn í átta ár er flúinn til Kamerún. Talið er að Deby, sem réðst inn
í landið frá Súdan 10. nóvember sl., njóti stuðnings Líbýumanna. Á
myndinni sjást fr'anskir hermenn á verði fyrir utan hús fransks ríkis-
börgara í höfuðborginni N’Djamena. Frakkar segjast ætla að kalla
herlið sitt heim frá Tsjad sem var áður frönsk nýlenda.
Sovétríkin:
Uppreisn í stjórnarher Argentínu:
Náðu aðalstöðvum
hersins á sitt vald
Bucnos Aires. Reuter.
UPPREISNARMENN í stjómararher Argentínu náðu aðalstöðvum
hersins og nokkmm opinberam byggingum í Buenos Aires, höfuðborg
landsins, á sitt vald í dögun í gær. Lýsti stjórnin þegar yfir neyðar-
ástandi og hófu sveitir hliðhollar
gegn uppreisnarmönnum en höfðu
Auk aðalstöðva hersins náðu upp-
reisnarmennirnir á sitt vald herstöð
í útjaðri höfuðborgarinnar en misstu
hana síðar eftir harða bardaga þar
sem næstæðsti yfírmaður hennar og
tveir hermenn féllu.
Einnig náðu uppreisnarsveitírnar
skriðdrekaverksmiðju og stjórnstöðv-
um argentínsku strandgæslunnar á
sitt vald en þær eru við höfnina í
Buenos Aires örstutt frá stjórnarráð-
inu, „Bleika húsinu" svonefnda.
Hennt var að harðir bardagar geisðu
við aðsetur strandgæslunnar.
Að sögn embættismanna var talið
að uppreisnarmennirnir væru stuðn-
ingsmenn Mohameds Alis Seineldins
Carlos Menem forseta harða sókn
þó ekki yfirbugað þá í gærkvöldi.
fyrrum ofursta í hernum sem stjórn-
aði uppreisn í desember 1988. Hann
afplánar nú 60 daga varðhaldsvist í
herstöð vegna bréfs sem hann skrif-
aði Menem forseta nýlega en þar
hélt hann því fram að upplausn væri
í hernum og sagði að upp úr kynni
að sjóða.
Uppreisnin er hin fjórða í argentín-
ska hemum frá 1987. Hún á sér
stað aðeins tveimur dögum áður en
von er á George Bush Bandaríkjafor-
seta til Argentínu en hann er nú á
fimm daga ferðalagi um ríki Suður-
Ameríku og gerir ráð fyrir að sækja
Argentínumenn heim á morgun, mið-
vikudag.
Gorbatsjov skipar harðlínumann
í embætti innanríkisráðherra
Moskvu. Reuter.
JVIIKHAIL Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, vék á sunnudag Vadím
Bakatin úr embætti innanríkisráðherra og skipaði í hans stað harðlínu-
kommúnistann Borís Púgo. Bakatín þótti fijálslyndur ráðherra og
hafði sætt gagnrýni harðlínumanna, sem sökuðu hann um að hafa
ekki gripið til nauðsynlegra aðgerða til að stemma stigu við vaxandi
glæpastarfsemi og þjóðaólgu í landinu.
Púgo er Letti og var yfirmaður
sovésku leyniþjónustunnar í Lett-
landi á árunum 1980 til 1984 er
hann varð leiðtogi kommúnista-
flokksins í lýðveldinu. í júní var hann
kjörinn formaður þeirrar nefndar
sem fylgist með aga innan sovéska
kommúnistaflokksins. Aðstoðarinn-
anríkisráðherra verður Borís
Gromov, fyrrum yfirmaður sovéska
heraflans í Afganistan. Hann hefur
verið yfirmaður hersins í Kíev og
nágrenni og er fyrsti herforinginn
sem skipaður hefur verið aðstoðar-
innanríkisráðherra. Umbótasinnar
sökuðu hann í síðasta mánuði um
að hafa verið viðriðinn ráðagerðir
um að herinn tæki völdin í sínar
hendur en hann hefur vísað því á
bug.
Skipun Púgos í embættið er áfall
fyrir Borís Jeltsín, forseta Rússlands,
sem lagði til í síðasta mánuði að
mynduð yrði þjóðstjóm og rússneska
stjómin fengi að skipa þrjá ráðherra,
þar á meðal innanríkisráðherra.
Bakatín hefur verið talinn einn af
ftjálslyndu ráðheirunum í stjóm
Gorbatsjovs. Viktor Alksnís, leiðtogi
Sojúz, hreyfíngar harðlínumanna á
sovéska þinginu, hafði haldið þeirri
kröfu á loft að Bakatín yrði vikið
úr stjóminni og sagt að hann hefði
ekki gert nægar ráðstafanir til að
stemma stigu við skipulagðri glæpa-
starfsemi í landinu og binda enda á
Vadím Bakatín Borís Púgó
ofbeldisverk aðskilnaðarsinna. Frá
því Bakatín tók við embætti inn-
anríkisráðherra árið 1988 hefur
giæpum fjölgað gífurlega í Sovétríkj-
unum og þjóðaólgan í suðurlýðveld-
unum hefur kostað hundmð manna
lífíð.
Gorbatsjov gaf út tilskipun á laug-
ardag, þar sem hann bannaði yfir-
völdum í lýðveldunum fimmtán að
stofna eigin heri eða hvetja unga
menn til að neita að ganga í sovéska
herinn. Tilskipunin virtist miða að
því að friða herforingja, sem hafa
að undanförnu kvartað mjög yfír því
að grafið hafi verið undan völdum
og virðingu hersins.
• Sovéska dagblaðið Ízvestía skýrði
frá því á sunnudag að sovésk stjórn-
völd hygðust auka útgjöld til hersins
á næsta ári um 27,6 milljarða rúblna
(2,750 milljarða ÍSK) þrátt fyrir
efnahagskreppuna í landinu og enda-
lok kalda stríðsins. Á sama tíma
bárast fregnir af því að matvæla-
skömmtun hefði verið tekin upp í
Leníngrad og tveimur öðram borgum
í Sovétríkjunum. Þá féllu fímmtán
manns í skotbardögum í tveimur lýð-
veldum, Úzbekístan og Azerbajd-
zhan, á sunnudag, að sögn fréttastof-
unnar Tass. Fimm hermenn og þrír
óbreyttir borgarar biðu bana í Úz-
bekístan er hópur ungmenna réðst á
hermenn sovéska innanríkisráðu-
neytisins. Fjórir lögreglumenn og
þrír armenskir þjóðernissinnar féllu
í átökum sem brutust út við landa-
mæri Azerbajdzhans að Armeníu
vegna deilunnar um héraðið Nag-
orno-Karabakh.
KJÖRBÓK
...kjörin leið
til spamaðar
L
Landsbanki
íslands
Banki alira landsmanna
wmfKKBi
*5 MÍN. ÆFING MEÐ BUMBUBANANUM
JAFNAST Á VIÐ 20 MÍN. AF BOLBEYGJUM.
* EKKERT ÁLAG Á MJÓHRYGGINN.
* ALLT ÁLAGIÐ Á MAGAVÖÐVANA.
MŒm ma mm. s
N0TAÐU BUMBUBANANN I VIKU
0G MÁTAÐU SPARIFÖTIN AFTUR!
Breska Verslunarfelagiö
Faxafeni 10 - Húsi Framtlöar • 108 Reykjavik
mm ummm
ERU JAKKAFÖTIN AÐ MINNKA INNI í SKÁP?
ER SPARIKJÓLLINN AÐ ÞRENGJAST?