Morgunblaðið - 04.12.1990, Side 37

Morgunblaðið - 04.12.1990, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ VDÐSKEPTI'fflVINNUIÍr ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990 37 Fyrirtæki Grindvíkingar kaupa nýja sundlaug og vatnsrennibraut GRINDVÍKINGAR hafa nýlega keypt sundlaug og vatnsrennibraut af heildversluninni íslaug hf. sem er cinkaumboðsaðili ítalska fyrir- tækisins Piscine Castiglione á íslandi. Guðmundur Harðarson, fram- kvæmdastjóri íslaugar hf. sagði að um nokkurs konar pakkalausn væri að ræða þar sem allt sem til þarf er útvegað af sama aðila. Afgreiðslutími á vörum frá Piscine Castiglione er stuttur, aðeins 2-6 mánuðir. SAMNINGSGERÐ — Eftirtaldir aðilar voru viðstaddir undirritun samningsins milli Grindavíkurbæjar og Piscine Castiglioiie. Fremri roð frá vinstri; Kristinn Kolbeinsson stjómar- formaður íslaugar hf., Bjarni Andrésson forseti bæjarstjómar Grindavíkur og Guðmundur Þ. Harðarson framkvæmdastjóri Is- laugar hf. Aftari röð frá vinstri; Margrét Gunnarsdóttir og Jón Gröndal bæjarfulltrúar, Giorgio Colletto forstjóri Piscine Castigli- one og bæjarfulltrúamir Eðvarð Júlíusson, Kristmundur Ásmunds- son, Hinrik Bergsson og Halldór Ingvarsson. Að sögn Gúðmundar gerði Pisc- ine Castiglione sértilboð í samning- inn við Grindavíkurbæ þar sem þetta er sá fyrsti hérlendis um kaup á vörum frá fyrirtækinu. Tilboðið hljóðaði uppá tuttugu milljónir og sagði Guðmundur felast í því kaup á 25x12,5 metra sundlaug, svepp- asturtu í barnalaug, 32,4 metra vatnsrennibraut og 4x8 metra hlið- arlaug fyrir rennibrautina ásamt öllum hreinsitækjum. Þá mun ís- laug hf. sjá um uppsetningu sund- laugarinnar og tengingu hennar við hreinsitæki og er öll vinna við það innifalin í samningsverðinu. Sundlaug af þessari gerð er nýj- ung á íslandi. Botn laugarinnar er steyptur og lagður þykkum PVC dúk. í botninn eru steyptar festing- ar sem veggimir eru síðan skrúfað- Fyrirtæki ir á, en þeir eru verksmiðjufram- leiddir á Italíu. Veggirnir eru úr galvaniseruðu stáli og innan á þá er bræddur PVC dúkur sem ekki er hægt að ná af stálinu. Með sund- lauginni fylgja yfirfaílsrennur ásamt öllum hreinsitækjum, pípum, lokum og lögnum á milli sundlaugar og hreinsitækja. Guðmundur Harðarson sagði að íslaug hf. stæði í samningaviðræð- um við ýmsa aðila hérlendis varð- andi kaup á svona sundlaugum. Heildarkostnaður við 25x12,5 metra laug, uppsetningu og annað er um 14 milljónir, en þó nokkuð breytilegur eftir aðstæðum. Aðal- hluthafar íslaugar hf. eru auk Guð- mundar, Kristinn Kolbeinsson stjórnarformaður fyrirtækisins og Guðfinnur Ólafsson. Filmurfrá Agfa Gevaert fá viðurkenningu ÁSGEIR Einarsson hf. er með umboð fyrir belgíska Ijós- myndavörufyrirtækið Agfa Gevaert N.V. í sumar gerðu Innkaupastofnanir ríkis og borgar samning við þessa aðila um sölu og birgðahald á flestum gerðum röntgenfilma sem not- aðar eru við heilsugæslu og hófust viðskiptin í síðasta mán- uði. Ásgeir Einarsson, eigandi sam- nefndrar heildsölu, segir að Agfa Gevaert bjóði meðal annars í þess- um samningi nýja filmu, CURIX Ortho. Filman hefur það umfram þær sem eldri eru að hún er næm- ari og dregur því úr geislun sem sjúklingar verða fyrir við röntgen- myndatöku. Eins auðveldar hún sj úkdómsgreiningu. í Evrópu er nú unnið að sam- ræmingu á gæðakerfum og bygg- ist það starf á aiþjóðastöðlum í flokknum ISO-900x. Þeir staðlar eru mjög almennir og eiga við um hvers konar starfsemi. Staðallinn ISO-9002 gefur tiyggingu fyrir gæðum svokölluðum NDT filmum sem notaðar eru við eftirlit með framleiðslu og iðnaði. Eins á staðallinn við hvers kon- ar röntgenfilmur sem notaðar eru við heilsugæslu og í síðasta mán- uði varð Agfa Gevaert fyrsta ljós- myndavörufyrirtækið til þess að hljóta þessa viðurkenningu hjá Lloyds Register Quality Assur- ance. SHARR SJÓÐVÉLAR Verð frá kr. 29 ■545 m/vsk. 0 . SKRIF BÆR 'X r / Hverfisgötu 103 - simi 627250 - 101 Reykjavík. Áhættu- dreifing á einum stað Hlutabréfasjóðurinn hf. hefur áhættudreifingu að leiðarljósi. Félagið ver hlutafé sínu til fjárfestinga í hlutabréfum og skuldabréfum traustra atvinnufyrirtækja. Kaup einstaklinga á hlutabréfum í félaginu veita rétt til skattalækkunar. Hluthafar í Hlutabréíasjóðnum hf. eru nú 1330 og markaðsverð hreinnar eignar félagsins er 425 milljónir króna.* Þar af er markaðsverðmæti hlutabréfaeignar félagsins 323,7 milljónir króna og skiptist þannig á einstök félög: millj.kr. millj.kr. Eimskip ............71,0 Sjóvá/Almennar.........5,3 Flugleiðir .........75,6 Skagstrendingur......10,7 Hampiðjan...........20,6 Skeljungur ..........49,2 íslandsbanki.........1,5 Tollvörugeymslan .... 11,0 EHF Alþýðubankans . . . 1,8 ÚA .................0,5 EHF Iðnaðarbankans .. 10,0 Olís................3,8 EHF Verslunarbankans . 7,8 Faxamarkaður.........1,5 Grandi..............36,9 __________________________ Olíufélagið ........16,5 323,7 * Alllar tiiliir ni.v. nóvcmhcr 1990. Hlutabréf Hlutabréfasjóðsins fást hjá öllum helstu verðbréfafyrirtækjum landsins. Útboð nýrra hlutabréfa er hafið. Útboðslýsing liggur frammi á sölustöðum. HLUTABRÉFASJÓÐURINN HF. Skólavörðustíg 12 — Sími 21677 — 101 Reykjavík. o 0) Helluborð „Moon“ keramik yfirborð, snertirofar, svartur rammi eða stálrammi, fjórar hellur, þar af tvær halógen og ein stækkanleg, hitaljós, tímastilling á hellum. TH 2010 Helluborö Keramik yfirborð, svartur eða hvítur rammi, fjórar hellur, þar af tvær halógen og ein stækkanleg, sjálfvirkur hitastillir og hitaljós. TH490 Helluborð „Moon“ kermik yfirborð, stálrammi, fjórar hellur, þar af tvær halógen, sjálfvirkur hitastillir og hitaljós. TH 483 B Helluborð Keramik yfirborð, svartur eða hvítur rammi, fjórar hellur, þar af tvær halógen, sjálfvirkur hitastillir og hitaljós. Funahöfða 19 sími 685680

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.