Morgunblaðið - 04.12.1990, Side 38

Morgunblaðið - 04.12.1990, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990 Morgunblaðið/Benjamín Baldursson Plægt í desember Ytri-Tjörnum. Einmuna tíð hefur verið hér það sem af er vetri. Verður það að teljast mjög óvenjulegt að jörð er með öllu ófrosin enn. Um helgina var unnið að plægingu hér á búinu og er það einsdðemi að plægt hafi verið hér í desembermánuði. Þessi góða tíð hefur verið vel notuð af húsbyggjendum og eru fimm einbýlishús í smíðum í Eyjaíjarðarsveit, þar af þtjú í Reykárhverfi á Hrafnagili, hin eru á Vökulandi og Rútsstöðum. Þá hefur nýtt fjór risið af grunni í Kristnesi, hlaða við nýlega byggð fjárhús á Munkaþverá, áburðargeymsla á Ytra-Laugalandi og verið er að fullgera íjárhús og geldneytafjós á Brúnum. Síðustu ár hefur ekki verið mikið um byggingaframkvæmdir í sveitinni, en nú virðist sem þar hafi orðið breyting á. - Benjamín Þjóðarflokkur ákveður framboðslista: Fomiaður kjördæmisráðs hættur vegna ágreinings FOLK í kjördæmisstjórn óskaði eftir að ég færi í 1. sætið og ég varð við þeirri ósk,“ sagði Arni Steinar Jóhannsson umhverfisstjóri á Akur- eyri, sem skipar 1. sæti á lista Þjóðarflokks í Norðurlandskjördæmi eystra fyrir næstu Alþingiskosningar. Benedikt Sigurðarson formaður kjördæmisstjórnar sagði af sér eftir að ákvörðun um listann var tekin. Á fundi kjördæmisstjómar Þjóðar- flokksins á sunnudagskvöld voru fyrstu 6 sætin ákveðin, en í 2. sæti verður Anna Helgadóttir, kennari, Kópaskeri, Björgvin Leifsson, líffræðingur, Húsavík verður í 3. sæti og Oktavía Jóhannesdóttir, hús- móðir, Akureyri í 4. sæti. Klara Geirsdóttir, nemi, Akureyri verður í 5. sæti og Gunnlaugur Sigvaldason, bóndi, Svarfaðardal í því 6. „Það er okkar stefna að bjóða fram á eigin forsendum án samvinnu við aðra,“ sagði Árni Steinar Jóhanns- son, en formaður kjördæmisstjómar, Benedikt Sigurðarson sagði af sér eftir fundinn á sunnudagskvöld. Hann var talsmaður þess að reyna að ná fram samstöðu með aðilum sem stóðu að framboði Samtaka jafnrétt- is og félagshyggju og jafnvel Borgar- flokksmönnum. „Að sumu leyti er þetta sorglegur viðskilnaður og mér líður ekkert sérlega vel, er dálítið hruflaður. Ég tel að þama hafi menn fórnað góðu tækifæri fyrir lítið,“ sagði Benedikt. Fiskeldi Eyjafjarðar: Hlýraeldi sem auka- búgrein „VIÐ höfum bara verið að ná okk- ur í klakfisk," sagði Ólafur Hall- dórsson framkvæmdastjóri Fi- skeldis Eyjafjarðar, en fyrirtækið fékk nýlega um 100 hlýra sem togarar Utgerðarfélags Akur- eyringa, Kaldbakur og Harðbak- ur, hafa fengið á veiðislóð. Hlýraeldi er aukabúgrein sem stunduð er hjá Fiskéldi Eyjafjarðar. á Hjalteyri og tekur Ólafur skýrt fram að lúðueldið sé á oddinum. „En við höfum mikinn áhuga á því að stunda hlýraeldið jafnframt eldi á lúðunum, við erum að fikra okkur áfram, læra inn á þennan fisk.“ Félagið á tæplega 200 fullorðna hlýra og um 500 seiði. Fiskurinn hefur dafnað óvenju vel og vaxið hratt. Ólafur segir að fyrir hlýrann, sem er náskyldur steinbít, fáist gott verð um þessar mundir og er mikill áhugi í Noregi fyrir slíku eldi. Ríkisskip 60 ára í tilefni af sextugsafmæli Ríkisskipa var efnt til hófs í húsakynnum fyrirtækisins fyrir helgi og var fjölmenni mik- ið. Frá vinstri Halldór Karelson yfirstýrimaður á Öskju, Jón Ingólfsson skipstjóri á Heklu, Guðmundur Einarsson for- stjóri, Hilmar Snorrason skipstjóri á Öskju og Hjörtur Emilsson framkvæmdastjóri tækni- og útgerðarsviðs. Á innfelldu myndinni eru Amgrímur Pálsson og Eðvarð Jóiis- son að gera veitingunum góð skil. Hlutafjárútboð UA: Eftirspurn forkaupsréttarhafa 30 milljónum umfram framboð Morgunblaðið/Rúnar Þór ÞEIR aðilar sem forkaupsrétt hafa að nýju hlutafé í síðara hlut- afjárútboði Utgerðarfélags Akur- eyringa á þessu ári vilja kaupa hlutabréf fyrir tæplega 30 millj- ónum króna meira en til ráðstöf- unar er. Nánast allir forkaups- Krossanes- verksmiðja klár í slaginn „VIÐ erum að vona að loðnuveið- arnar fari að glæðast," sagði Jó- hann Pétur Anderssen fram- kvæmdastjóri Krossaness. Hjól verksmiðjunnar eru nú farið að snúast að nýju eftir eldsvoðann sem varð á gamlársdag í fyrra. Unnið hefur verið að endurupþ- byggingu verksmiðjunnar frá því hún brann. Jóhann Pétur sagði að vélar verksmiðjunnar hefðu gengið þokka- lega eftir að þær voru ræstar að nýju og ekkert óvænt komið upp á. réttarhafar nýta rétt sinn, en fram hefur komið að Akureyrar- bær muni setja þau bréf í sölu sem hann hefur rétt á að kaupa. Hluta- bréf Akureyrarbæjar verða því einu bréfin sem á markað koma nú. Pétur Bjarnason, formaður stjóm- ar Útgerðarfélags Akureyringa, sagði að þau viðbrögð sem orðið hefðu við hlutaljárútboðum félagins bentu til þess að fólk bæri traust til félagsins og teldi það örugga leið til ávöxtunar að leggja fé sitt í félag- ið. „Þetta staðfestir það sem við áður vissum, að fólk telur það góða fjárfestingu að kaupa hlutabréf í Útgerðarfélagi Akureyringa. , Við getum því ekki annað en verið án- ægð með viðbrögðin," sagði Pétur. Svo til allir þeir sem forkaupsrétt eiga hafa nýtt sér rétt sinn, en Pét- ur sagði að á milli 2-3 milljónir að nafnverði hefðu orðið eftir, er frest- ur forkaupsréttarhafa rann út. Eftir- spúrn eftir hlutabréfum í Útgerðar- félaginu er mun meiri en framboðið, því forkaupsréttarhafar óskuðu eftir að kaupa hlutabréf fyrir um 30 millj- ónum króna meira en til ráðstöfunar var að þessu sinni. Fram hefur kom- ið í máli Sigurðar J. Sigurðssonar formanns bæjarráðs, að þau hluta- bréf sem Akureyrarbær hefur for- kaupsrétt að verði sett á almennan markað, en það verður gert í sam- ráði við stjórnendur ÚA. Forkaups- réttur Akureyrarbæjar að hlutabréf- um í fyrirtækinu er rúmar l7 millj- ónir króna að nafnvirði. Stjórn félagsins var veitt heimild til að auka hlutafé félagsins um rúmar 100 milljónir króna á nafn- verði á aðalfundi í apríl og var hluta- féð boðið út í tvennu lagi, fyrst í sumar og síðan nú, þannig að hluta- fé yrði í heild 430 milljónir króna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.